Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2000, Qupperneq 10
+
Költ. Hvað er það? Költið verður til þegar lítill hópur fólks
fer að fíla eitthvað sem aðrir skilja ekki eða finnst skrýtið
og költið deyr þegar of margir fara að fíla það. í gegnum
árin hefur ýmis költ rekið á fjörur þeirra sem leita að költi.
Áður en annar hver maður lét húðflúra sig og gata var það költ
að vera með tattú og hring annars staðar en í eyrnasneplinum.
Nú er það ekki költ lengur af því fjöldinn hefur tekið við sér
og drepið költið, gert það að almenningseign. Þeir sem vilja
standa í fararbroddi költsins eru því sísnuðrandi að einhverju
góðu költi, sem þeir geta velt sér upp úr áður en fjöldinn
fylgir í kjölfarið og breytir költi í almenningseígn.
Dr. Gunna langaði að finna nýjasta költið og fór því á stúfana.
www.boingboing.net segist vera skrá yfir frábæra hluti og er
þaö: Þaðan er beintengt í ýmsan skemmtilegan költfróöleik.
Fólkiö á bak við síðuna hefur gefiö út bækur eins og Hand-
book for Happy Mutants og tímaritiö bOING bOING, leiðandi
afl í költi. Þaö er létt stemning yfir þessu fólki og þaö er aö
spá í „jákvæö" költ eins og .—■--------------
teiknimyndir Johns K, bong-
ótrommur og geimaldarpipar-
sve'natónlisL JmiMbDilia
Billboard Liberation Front
eru samtök flippaðra költara
sem ganga út á þaö að
breyta auglýsingaskiltum og
hræra með því upp í fólki.
Samtökin hófu starfsemi
1977 og eru enn að. Eftir
hvern hrekk birta samtökin
fréttati I kynni ngu og útskýra
sjónarmið sín. Allt um sam-
tökin er á www.billboar-
dliberation.com.
SHIT HAPPENS
Það má segja að költið
eins og við þekkjum
það hafi fæðst þegar
farið var að sýna
Rocky Horror Picture
Show á miðnætursýn-
ingum í New York.
Church of Subgenius er flipp-trúboð í Kaliforníu meö jafn flókinni
sögu og reglum og hver önnur trúarbrögö. Óspart er gert grín aö
öðrum trúarbrögðum meö illskiljanlegu rugli, sem er, þegar betur
er aö gáö, svipað bulli annarra trúarbragða. „Guð“ samtakanna
heitir Bob og reykir pípu. Trúboöiö byrjaði I byrjun 9. áratugarins og
stefnir hægt að heimsyfirráöum. Leggið málefninu lið á heimasíð-
unni: www.subgenius.com.
Þættirnir X-files
gerðu út á költ. Þar
voru mörg költ hrærð
saman og þar brá
fyrir geimverum,
fjöldamorðingjum og
alls kyns yfirnáttúr-
legum atburðum.
Geðsjúklingurinn Charles
Manson stofnaði dópkomm-
únu í Death Valley-eyðimörk-
inni og fékk dópaðar smapi-
ur og sveitalubba til að
myrða fyrir sig í tveimur
sendiferðum. Þetta vakti
------- mikla skelfingu, hristi ham-
insuleitandi hippa niöur á JWIna ogjdrap. i raun
draum hippanna um „P7+0+er enn þl
síðuna www.atwa.com.
Heitustu költin í dag
virðast vera þau sem
fólk dreifir í tölvupósti;
heimasíður, myndir og
alls konar djönk sem
gengur á milli tölva.
Klám er orðið „main-
stream" og klámstjörnu-
költ er orðið mjög út-
breitt. Költ sem slíkt er
dautt fyrirbæri því mark-
aðsfræðingarnir gera ráð
fyrir því í sínum plönum.
Leitin
hGitasta koltfflu
Hægt er að segja að költ geti ver-
ið jákvæð eða neikvæð, sak-
laus eða suddaleg. Jákvætt
költ er með léttum og
grínaktugum forsendum,
eins og eitt nýjasta költið,
sem varð að vísu fljótt að
breytast í almenningseign.
Það spratt upp með ógnar-
hraða í kringum Tyrkjann
Mahir Cagri, sem gerði fras-
ann „I kiss you“ svo eftir-
minnilegan.
Hann skrifaði lélega ensku á
heimasíðu sinni og bauð fólki í
heimsókn (“She can stay my
home“). Þetta þótti milljónum
veflesenda um ailan heim fynd-
ið og skemmtilegt. Önnur já-
kvæð költ eru t.d. þau að safna
og spekúlera í dóti eins og göml-
um leikfongum, Pez-körlum, lava-
lömpum eða forneskjulegum tölvu-
leikjum.
Dæmi um költ sem sumum gæti
fundist neikvæð, en eru það þó
varla, eru t.d. þau költ sem eru í
kringum gömlu nektardansdísina
Betty Page, það að spá í fljúgandi
furðuhluti eða að sökkva sér í fróð-
leik um sirkusfrík fortíðar; síamst-
víbura, vanskapaða dverga og risa-
vaxna ístrubelgi. Einnig er hægt að
segja að allt í kringum Herbalife sé
nokkurs konar költ á jaðri góðs og
ills, góðs smekks og smekkleysu.
Svo eru sum költ sem enginn get-
ur neitað að tilheyri dökku hliðum
tilverunnar. Á tímabili voru allir
sem költvettlingi gátu valdið á kafi
í fræðum um fjöldamorðingja. Ed
Gein, Charles Manson og John
Wayne Gacy þóttu svalir költkapp-
ar og eins trúargeðsjúklingar eins
og Jim Jones og David Koresh,
sem drápu fjölda manns með buil-
inu i sér. Norskt svartmetal, satan-
ismi, svartigaldm-, Ku Klux Klan og
Hell’s Angels eru enn fleiri dæmi
um myrk költ. Þessi költ taka oft
Páll Öskar:
„Költið er komið í tölvurnar.“
Jólin geta verið költ ef þú heldur þau allan
ársins hring. Slðan 1994 hefur hópur flipp-
aðra költara í jólasveinabúningum gert usla
í stórmörkuðum og á götum stórborga með
ójólalegu athæfi og oftar en ekki hafa fang-
elsin fyllst af jólasveinum. Þetta er Santan-
arcy költið og það er engin tilviljun að
sömu stafirnir eru í Satan og Santa! Allt
um þetta árstíðabundna költ á: www.sant-
anarcy.com.
yfir líf költarans, verða hans lífs-
stíll. Dökku költin hafa tilhneig-
ingu til að verða að lífsstíl á meðan
saklausu költin eru lik venjulegu
áhugamáli. Þó er ekki að neita að
t.d. Star Trek-dýrkun I sinni verstu
mynd getur nánast tekið yfir lif
költarans þegar hann fer að ganga
um í búningi og heimta að aðrir
kalli hann einhverjum asnalegum
nöfnum.
Hirm nýi farvegur költsins
Hluti af költinu eru költ-bíómynd-
ir. Það má segja að költið eins og við
þekkjum það best hafi fæðst þegar
farið var að sýna Rocky Horror Pict-
ure Show á miðnætursýningum í
New York. Þá
mætti sama gengið
aftur og aftur,
kunni myndina ut-
anbókar og söng
með. Siðan
hefur sú
mynd og leik-
ritið orðið of
vinsælt til að
teljast költ.
Dæmi um
költleikstjóra eru
Russ Mayer, sem
gerði léttbláar
grínmyndir með
risatúttur í aðal-
hlútverkum, Hers-
hell Gordon Lew-
is, sem gerði
fyrstu splatter-
myndirnar, og Ed
Wood Jr., sem gerði alls konar
myndir af vanefnum en miklum
sannfæringarkrafti. Dæmi um teg-
undir költbíómynda eru hallærisleg-
ar geimmyndir frá 6. áratugnum
(„ha ha, sjáiði vírinn sem fljúgandi
furðuhluturinn hangir í“) og ódýrar
og ofbeldisfullar hryllingsmyndir
um mannakjötsétandi uppvakninga
og morðóða sveitapilta. Súperstjam-
an Páll Óskar, sem sjálfur er
örtvaxandi költfigúra í Evrópu,' er
költmyndafikill af hæsta stigi. Því
er eðlilegt að athuga hvaða glænýja
költ er að grassera í vídeómynda-
safninu hans.
„Það er nú engu líkara en maður
sé alveg hættur að uppgötva nýja
Gísli:
„Ég vildi gjarnan taka þátt í
rússíbana-költinu."
Margir költarar finna sig T nýjum þjóðsögum eöa
„Urban Legends". Sígilt dæmi: „Barnapía á
sýru steikir barn í örbylgjuofni“ eöa þessi hér
sem nú gengurí Reykjavík: „íslensk stelpa var
aö koma heim frá Majorka og í tollinum varö
hasshundurinn alveg óöur utan í henni. Ekk-
ert fannst fyrr en tékkaö var á hælunum á
skónum hennar. Þeir voru fullir af dópi en
skóna haföi hún keypt í frægri tískubúð í
Reykjavík." Heimasíðan www.urban-
legends.com er troðfull af svona sögum.
hluti, eitthvað djúsí og byltingar-
kennt,“ segir hann og dæsir. „Þó það
séu kannski gamlar lummur fyrir
fólk eins og okkur sem er komið á
grafarbakkann er hollt fyrir ungt
fólk að uppgötva snilld eins og
myndir Alexandro Jodorowsky (E1
Topo), William Castle (The Tingler)
og Doris Wishman (Double Agent
73). Svo má maður ekki gleyma að
gefa bömunum „Pink Flamingos"
eftir John Waters í fermingargjöf.“
Páll segir költið hafa skipt um far-
veg: „Það virðist sem öndergránd
stöffið sé farið úr vídeóspólunum og
komið yfir í tölvurnar. Sem dæmi
Bókaútgáfan Re/Search í San
f s ' Francisco hefur ávallt hitt naglann
á böfuöiö og gefið út bækur um
költ á uppleið. Hægt er aö þakka
v I , \ útgáfunni óbeint fýrir húöflúr/göt-
unar-æðiö (bókin Modern Primiti-
* ■ ves), áhuga á költmyndum (bók-
in Incredible Strange Films) og
költtónlist (Incredible Strange Music I & II). Út-
gáfan virðist eitthvaö vera að missa tökin á költinu og gaf
síðast út bók um swing-tónlist og -tísku. En samt, allir sem
vilja bergja á bikar költsins ættu að drífa sig beint á
heimasíöu útgáfunnar: www.vsearchmedia.com.
rv-j l; MOSCRN
tAKCH PR/Mln V£S
%. I
um það hefur ekki verið gerð góð
splattermynd í bíó síðan ‘92 þegar
Peter Jackson gerði Braindead, á
meðan að tölvuleikir eins og Silent
Hill eru virkilega skerí og blóðugir."
Páll heldur áfram: „Heitustu költ-
in í dag virðast vera þau sem fólk
dreifir í tölvupósti; heimasíður,
myndir og alls konar djönk sem
gengur á milli tölva. Það er stemn-
ingin í dag. Fólk er að fá sama kikk
út úr þessu og maður fékk t.d. út úr
myndum Hershell Gordon Lewis í
gamla daga. Mér finnst þessi þróun
jákvæð."
Markaðssetningin
drepur költið
Eina meðvitaða költbúðin í bæn-
um er Nexus VI á Hverfisgötu. Þar
er teiknimyndakölt í hávegum haft
og allt yfirfullt af dóti til að seðja
Star Trek- og Star Wars-aðdáendur.
Vinsældir þeirra stjörnumynda eru
þó slíkar að erfitt er að segja þær
költ, nema þá kannski að aðdáend-
ur Star Trek og Wars séu stærstu
költhópar í heimi. Gísli Einarsson
rekur Nexus VI og er með puttann
á slagæð költsins. Hann var einn af
fyrstu Star Wars-költistunum á
landinu og safnaði ofurhetjuteikni-
myndablöðum á unglingsárum þeg-
ar slík blöð voru vandfundin hér.
„Ég held að nútíma markaðssetn-
ing sé að ganga af költinu dauðu,"
segir hann. „Um leið og lítill hópur
tekur sig saman og fer að hafa gam-
an af einhverju er reynt að mark-
aðssetja það fyr-
ir stærri hóp.“
Gisli viður-
kennir að flest
það sem Nexus
VI býður sé of
„mainstream"
til að geta talist
költ, „nema
kannski hlut-
verkaleikurinn
Dungeons og
Dragons, sem er
gjörsamlega
óskiljanlegur
öllum nema
þeim sem eru á
kafi i honum“.
Gísli nefnir
einnig til sög-
unnar tindáta-
leikinn War-
hammer. „Breskt fyrirtæki setti
hann á markaðinn fyrir 20 árum og
hann er hálfgert hobbíkölt sem
kemur í staðinn fyrir gömlu flug-
vélamódelin. Warhammer er hern-
aðarleikur sem er spilaður með
tindátum á stóru borði eftir stífum
reglum. Svo safna fullorðnir menn
tindátum, mála þá og kynna sér
söguna á bak við hvern karakter."
Gísli nefnir einnig Manga-teikni-
myndir og Hong Kong-spennu-
myndir sem eru vinsæll afþreying-
ariðnaður í Asíu, en hafa verið költ
á íslandi um nokkurn tíma. Uppá-
haldskölt Gísla sjálfs í augnablik-
inu er að spá í nútímapopp frá Mið-
jarðarhafslöndum eins og Alsír og
Egyptalandi. „Ég veit ekki um
neinn annan hérna sem hefur gam-
an af þessu svo þetta er mitt einka-
költ!“ segir hann. „Svo kíki ég oft á
heimasíður Rússíbanakölts á Net-
inu. Það er hópur fólks sem ferðast
um heiminn og prófar rússíbana og
gefur þeim einkunnir. Ég vildi
gjarnann taka þátt i þessu költi en
get það bara ekki vegna legu lands-
ins.“
Költ hefur
ekkert listrænt gildi
Sumir rithöfundar eru meira költ
en aðrir. Steven King er t.d. of vin-
sæll til að vera költ á meðan að
menn eins og Charles Bukowski,
Iain Banks og Harry Crews
sleppa. í tónlist er allt vaðandi af
költi. 1 fáum listgreinum er jafn
mikið framboð af efni sem fáir
þekkja eða hafa
gaman að. Költ-
hetjur í músík
skipta hundruð-
um og nægir að
nefna menn eins
og Syd Barrett
og Roky
Erikson, sem
urðu geðveikir
og eru költ þess
vegna og hljóm-
sveitir eins og
Kraftwerk og
Velvet Und-
erground sem
voru á undan
sinni samtíð og
teljast költ út
af því. Tónlist-
arstefnur eins
og lyftutónlist
krautrokk og
blaxplotion-fönk
hafa fengið upp
reisn æru og teljast
nú költ. Ekki má svo
gleyma tónlistarflokkn-
um „svo lélegt að það er
gott“. Af íslenskum költplöt-
um má nefna sólóplötu Rósu
Ingólfs frá byrjun 8. áratugarins,
Hamfarir Gunnars Jökuls og jóla-
smáskífu Alla Rúts frá 8. áratugn-
um. Ef plata slær ekki strax í gegn
er alltaf von til þess að hún verði
költ í áranna rás.
Jóhann Jóhannsson í Tilrauna-
eldhúsinu segist engan áhuga hafa
á költinu. „Eins og það snýr að mér
skiptir költið engu máli. í dag er
það bara markaðsfræðilegt fyrir-
bæri og hefur því ekkert listrænt
gildi sem skilgreining eða flokkun.
Það breytist þó ekkert að fólk er
alltaf að leita aö einhverju nýju og
spennandi og sú leit hættir aldrei.
Með þeirri sprengingu af endurút-
gáfum sem orðið hefur hafa verk
P* Tf 1; ÍÆ
Adam Parfrey
er rannsóknar-
blaöamaöur og
rithöfundur og rekur
Feral House-útgáfuna.
Hann er höfundur tveggja
bóka - Apocalypse Culture
og Cult Rapture - sem allir
áhugasamir um költ ættu
aö fá sér. Þar skrifar hann
um költhluti eins og sam-
særiskenningar, geimtrúar-
brögö og kristilegar
ofbeldishreyfingar. Adam býr yfir óvenjulegri
kaldhæðni verandi Ameríkani og þessar bækur
eru glimrandi skemmtilegar.
www.feralhouse.com.
Margir sjónvarpsþættirnir eru
költ. Augljóslega ekki Friends, sem
70% landsmanna horfa á og
heldur ekki South Park. Það
er séns að það hafi verið
költ að vita hvað South
Park var áður en allir
hinir föttuðu þætt-
ina. Þættirnir X-
files gerðu út á
költ. Þar voru
mörg költ hrærð
Franski söngvarinn og laga-
höfundurinn Serge Gainsbo-
urg var költ á meðan hann
lifði og er sívaxandi költ nú,
9 árum eftir dauða sinn.
Frægastur er hann fýrir „Je
t’aime ... moi non plus“
(“stunulagiö"), en einnig fyr-
ir aðrar frábærar tónsmíðar,
stórkostlega texta, mikið
sukk og hneykslanlega
framkomu (m.a. tyrir að lýsa
yfir „I Wanna Fuck You“ við
Whitney Houston í beinni
sjónvarpsútsendingu). Költ-
útvarpsstööin WFMU í New
York er með skemmtilegan
fróðleik um karlinn á
www.wfmu.org/~bart/sg.h_
tml.
komið á yfirborðið sem valda því að
reglulega þarf að endurskrifa tón-
listarsöguna. Það er t.d. að koma
fram núna að Raymond Scott er
faðir tekknósins, ekki Kraftwerk."
Jóhann segir markaðsöflin sífellt
verða örvæntingarfyllri í leit sinni
að költi til að markaðssetja: „Klám
er t.d orðið „mainstream" og klám-
stjömukölt er orðið mjög útbreitt.
Að minu mati er því költ sem slíkt
dautt fyrirbæri því markaðsfræð-
ingamir gera ráð fyrir því í sínum
plönum."
Að leita að
költi er mótsögn
Er snjóbretta- og hjólabrettaiðk-
un költ? Er graffití költ? Jóga?
Mormónatrú eða það að hlusta með
andakt á þáttinn Ólaf á Radíó? Hvar
eru línurnar dregnar? Er það költ
þegar menn hittast og grínast sam-
an, eins og hjá Hrekkjalómafélaginu
í Vestmannaeyjum eða i aðdáenda-
félagi Sigurðar Pálssonar í
Reykjavík? í því félagi klæðast
menn alpahúfum, síðum frökkum
og stórum treflum og lesa upp úr
verkum Sigurðar heilu kvöldin og
drekka rauðvín. Er það költ eða er
það kannski frekar flipp? Er flipp
költ? Mann fer fljótlega að svima
þegar költ ber á góma.
Aldrei hefur aðgengi að költi ver-
ið jafn mikið. Netið er fullt af þvi og
kannski er költið ekki það sem það
var áður. Þeir sem fremst stóðu í
költinu gefast upp á þvi og snúa sér
að einhverju viðurkenndara. Er hið
viðurkennda kannski að verða hið
sanna költ? Enn magnast sviminn
og ég er ekki einu sinni farinn að
tala um „post-modemisma!“
saman og þar
brá fyrir geim-
v e r u m ,
fjöldamorðingj-
um og alls kyns
yfirnáttúrleg-
um atburðum.
Áhorf á þættina
varð svo mikið
að ekki er hægt
að segja þá sjálfa
hafa orðið költ og
eftir að þeir döluðu
í vinsældum skildu
þeir eftir sig tómarúm
í hugum þeirra sem
alltaf leita að nýjasta költ-
inu. Þættirnir gerðu ýmis
költ vinsæl og þá gátu alvöru
költarar ekki verið þekktir lengur
fyrir það að fíla þau. Alvöru költar-
ar verða nefnilega alltaf að passa
sig á því að vera frumlegir í költvið-
leitni sinni því ekkert er eins dap-
urt í huga költarans og að fíla sama
költ og „fjöldinn". Þvf er mikil mót-
sögn fólgin í því að leita að heitasta
költinu því heitasta költið er í raun
það sem nánast engir annar er að
spá í. Ég gæti t.d. farið að safna
gömlum klósettpappírsrúllum og
opnað heimasíðu á Netinu með alls
kyns fróðleik um klósettpappírsrúll-
ur í fortíð og nútíð. Þá gæti ég sagst
vera algjör költkóngur því senni-
lega myndu örfáir - eða jafnvel eng-
inn - nenna að pæla í þessu. Költið
er dautt - lifi költið!
Jóhann:
„Hef engan áhuga á költi.“
John Waters er leikstjóri mynda
eins og Pink Flamingos og Female
Trouble - glerfínar költræmur sem
kynntu til sögunnar hinn búttaða
klæðskipting Divine - og nýrri og
meira „mainstream" mynda eins
og Serial Mum og Pecker. Karlinn
er algjör költfræöingur og frábær
penni eins og sjá má í bókum
hans, Shock Value og Crackpot (skyldulesning”
költara). John kom til íslands á vegum Listahátíð-
ar og lét Hrafn Gunnlaugsson mata sig á sviðum,
en Divine kom síðar og tróð upp í Klúbbnum.
www.johnwaters.net.
f Ó k U S 3. mars 2000
4*
3. mars 2000
f ó k u s