Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2000, Page 12
vikuna
02.3-09.32000
9. vika
Litla Ijóskan íris fer á kostum með
Sálinni í laginu Original. Þar velta hún
og Stebbi vöngum yfirþví hver sé
alvöru og hver spegilmynd. íris var
einmitt tvífari Elmu Lísu hér í Fókus.
Þá er bara spurningin: Er kannski
Elma að syngja eða er þetta original?
1.
Topp 20
01 Orginal (órafmagnað)
Sálin hans Jóns míns
(02) Hann („Ben“ úrThriller) Védís Hervör Árnadóttir (Versló)
(03 ) The Dolphins Cry Live
04; OtherSide fíed Hot Chilli Peppers
(05) Freistingar Land & synir
06 Mana Maria Santana
'07) Sexbomb (fíemix) Tom Jones
(08) Cartoon Heroes Aqua
(09) Caught out there Kelis
(l0) Kiss (When the Sun Don’s Shine) Vengaboys
(71) Americanpie Madonna
(72) The Great Beyond fí.E.M.
(73) Show Me the Meaning ofBeing Lonely Backstreet Boys
14 ; GoLetltOut Oasis
(75) IHaveaDream Westlife
(76) The GroundBeneath Her U2 (The Million Dollar Hotel)
(77) Re-Arranged Limp Bizkit
(78) SexxLaws Beck
(19) Backinmylife Alice Deejay
(20) What a girl Wants Christina Aquilera
Sætin 21 til 40
0 foppiag vikunnar 21. Under Pressure (Rah Mix) i Queen & David Bowie
. 22. Only God Knows Why Kid Rock
J hástökkvari „„ „ 4 vikunnar 23. Feelm so good Jennifer Lopez
r 24. 1 Learned from the Best Whitney Houston
X nýttáiistanun, 25 Pure Shores All Saints
Jo| stendurlstaö 26. Miseratjte Lit
„ hækkar sig írá 27 Hryllir (Thirller) Védis Hervör Árnadóttir
siiistuviku 28. Rainbow Country Marley & Funkstar De Luxe
lækkarsigfrá 29. Saymyname siðjstu viku 30 Whatever You Need Destiny 's Child
Tina Turner
faiivikunnar 31. If / Could Turn Back the Hands ofTime R. Kelly
32. Byebyebye N'syne
33. / Regret It Selma
34. Better Be Good Páll Óskar
35. Take a picture Filter
36. Off the wall (enjoy yourself) Wisdome
37. viltu hitta mig í kvöld Greifarnir og EinarÁgúst
38. Private Emotions Ricky Martin & Meja
39. Girl with the Sparkling Eyes Bellatrix
40. My Beautiful Friend Charlatans
Vikur
á lista
0 4
t 5
4- u
4- w
3
-Þ 10
t 10
1“ 4
1" 4
'l' 4
42
-Þ 9
4, 7
5
4, 5
X 1
4. 3
4, 9
4, 4
4, n
4
t
t
4-
t
X
X
X
4.
4-
t
X
4-
4-
t
4
X
4-
X
10
3
2
12
3
1
1
8
1
3
12
2
1
7
2
2
8
1
5
1
^ijpÍ
JlXFT'
Tt
Ifókus
Nostalgíuþurfandi músíkpælarar hafa löngum grafið í
plöturekkum fortíðar og dregið fram rykfallnar tónlistarstefnur.
Klámmyndatónlist, svalt fönk og kokkteilapopp hefur gengið í
endurnýjun lífdaga en nú er komið að döbbinu. Dr. Gunni
tékkaði á þessari áhrifamiklu stefnu og mesta furðufugli hennar.
Döbbið
og hinn
M i i *
w
Perry
Döbbið - raggea dub eða „version“ -
varð til í litlum hljóðverum í Kingston á
Jamaíku þegar nokkrir eldklárir tækni-
menn fóru að gera tilraunir í lok 7. ára-
tugarins. Döbb varð útkoman þegar
menn hristu upp í raggea-lögum, tóku
sönglínurnar úr þeim og hrærðu í ryt-
manum og hljóðfæraleiknum. Rafrænu
bergmáli, töfum og endurtekningum var
sturtað í lögin og niðurstaðan var frum-
stæð og framandleg, dáleiðandi og djörf.
Um leið og þessi nýja tónlist var
kynnt skók hún diskótekin á Jamaíku.
Ferðahljóðkerfi - tveir plötuspilarar og
risahátalarar - sköffuðu fullkomið um-
hverfl fyrir flippaða karaktera sem fóru
á kostum, oftast útúrskakkir af innlendu
grasi. Plötusnúðamir voru kallaðir rist-
arar (“toasters") og fremstir í flokki í
döbbinu fóru King Tubby og Lee Perry.
Tubby er oftast talinn frumkvöðull
döbbsins en þar sem framleiðsla Lees
var útúrsýrð hefur hann verið kallaður
fyrsti súrrealisti döbbsins.
Breska plötumerkið Blood and Fire
hefur verið duglegt við að endurútgefa
þessa tæru snilld fortíðar og nýlega fór
plötubúðin 12 tónar að flytja þessar plöt-
ur inn. Það er ekki seinna vænna að ís-
lendingar fari í döbbgírinn og kynnist
tóniistinni sem flest danstónlist samtím-
ans er byggð á, bæði tekknó og drum ‘n’
bass og ekki síst tripp-hoppið. Bönd eins
og Massive Attack og Portishead óiust
upp við döbbtónlist og söngvarinn
Horace Andy, sem er fastagestur á plöt-
um Massive Attack, er ein af goðsögnum
döbbsins. Af öðrum snillingum má nefna
I-Roy, Prince Jammy og Scientist og
hljómsveitirnar Isreal Vibration og The
Congos. Fyrsta skrefið í að tékka á döbb-
inu eru nokkrar stórgóðar safnplötur
sem Blood and Fire hefur gefið út. En
setjum nú fókusinn á Lee Perry, enda
vandfundinn annar eins fúrðufugl.
Snillingur eða brjálæðingur?
Margir kalla hann sniliing, aðrir
segja hann geðveikan bijálæðing, og í
raun er Lee Perry hvort tveggja. Síðast
en ekki síst er hann risanúmer í raggea-
bransanum - hljóðstjórnandi, mixari og
lagasmiður sem hefur gert raggea-tónlist
að áhrifamiklum hluta af popptónlist
samtímans.
Lee fæddist 1936 og var farinn að
vinna með ska-körlum eins og Prince
Buster seint á 6. áratugnum. Lee lætur
illa að vinna með öörum og brennir yfir-
leitt allar brýr að baki sér þegar sam-
starfi lýkur. Árið 1968 gafst hann upp á
að vinna fyrir aðra og stofnaði eigin út-
gáfu sem hann kallaði Upsetter. Fyrsta
lagið sem hann gaf út var People Funny
Boy og í því gerði hann grín að síðasta
starfsfélaga, útgefandanum Joe Giggs.
Lagið var geysivinsælt á Jamaíku og fer
í sögubækumar fyrir að vera fyrsta pop-
platan á Jamaíku með hægum og letileg-
um takti.
Með laginu sagði Lee skilið við hröðu
ska-tónlistina sem hafði verið allsráð-
andi á Jamaíku og steig fyrsta skrefið í
átt að hinni seiðandi raggea-tónlist sem
allir þekkja.
Satan stelur súperbolta
Upp frá þessu hefur tónlistin runnið
frá meistaranum í stríðum straumum og
hann hefur notaö tugi nafna á sjáifan
sig: m.a. Jah Lion, Pipecock Jakxon,
Super Ape, the Upsetter, en Scratch er
frægasta gælunafnið. Þegar Lee heyrði
döbbtilraunir Kings Tubby var hann
snöggur að hoppa á vagninn, setti á fót
eigið hljóðver, Black Ark, og tók þar
döbbið á annað og sýrðara plan en öðr-
um haföi tekist.
í Black Ark tók Lee upp fyrstu meist-
araverk Bobs Marleys og The Wailers
en kom sér í ónáð þegar hann seldi teip-
in án þess að spyrja Marley og félaga og
stakk greiðslunni í eigin vasa. Þá kom
Englendingurinn Chris Blackwell hjá
Island-plötum til sögunnar og gerði
samning við Marley en Lee sat eftir með
sárt ennið. Lee kallar Chris enn í dag
vampíru og hefur ekki mikið álit á Bob
Marley.
Lee steypti sér í vinnu, vann m.a. með
The Clash, miklum aðdáendum. Geð-
heilsa hans fór versnandi og alls konar
sögur um hrikalega eiturlyfjaneyslu
fengu byr undir báða vængi þegar Black
Ark brann tU kaldra kola 1979. Sagan
segir að Lee hafi kveikt í sjálfur í LSD-
æði þegar hann var fullviss um að Satan
sjálfur hafði gert stúdíóið að heimUi
sínu. Þegar blaðamenn komu í rústir
hljóðversins sat Lee þar, tUbað banana
og át peningaseðla. Hann sagðist hafa
kveikt í af því Satan hefði stolið uppá-
haldssúperboltanum hans sem hann
geymdi ofan á mixemum. Skömmu síð-
ar flutti Lee frá Jamaíku, enda búinn að
gera flesta heima fyrir að óvinum með
athöfnum sínum og kjaftagangi. Hann
benti sjálfur á að spiUingin hefði verið
slík í tónlistarheimi Jamaíku að þar
væri ekki verandi lengur.
Hann fór tU Evrópu og bjó um tíma í
Amsterdam. Fljótlega var hann þó kom-
inn tU Jamaíku aftur og endurreisti
Black Ark-hljóðverið. Sett voru upp tæki
en þá skar Lee á aUar rafmagnsleiðsl-
umar og gróf andapoU i miðju hljóðver-
inu. Þegar engar endur höfðu komið í
pollinn þrem vikum síðar gafst Lee upp
í annað sinn og flaug til Ameriku þar
sem hann spilaði raggea með hvítingjum
í nokkur ár en sú tónlist þykir ekki
merkUeg. Árið 1986 gerði Lee ágæta
plötu, enda tók hann hana upp með raf-
magnsofn bundinn á hausinn á sér og
drakk kokkteU úr beijasafa og bensíni.
Ári síðar dró tU tíðinda þegar Lee gerði
plötu með Adrian Sherwood og bandi
hans, The Dub Syndicate. Þeir hafa gert
nokkrar plötur saman síðan þó Lee hafi
eftir hverja plötu svarið að vinna aldrei
með Adrian aftur.
Safnar góðum heilum I Sviss
I dag býr Lee í Sviss með þriðju kon-
unni sinni, fyrrverandi hórumömmu,
sem er líka umboösmaður hans. Hann
hefur sett upp stúdíó í kjaUaranum og
kaUar það White Ark; „leynileg tilrauna-
stöð þar sem enginn hefur komið áður“,
nema þvottavél konunnar hans auðvit-
að. Enn er karlinn að þróast þó hann sé
kominn á gamalsaldur. Hann á marga
aðdáendur, m.a. strákana í Beastie Boys
sem fengu hann tU að rappa á plötunni
IU Communication og koma fram á Tí-
bet-tónleikunum sínum.
Eftir meistarann liggja þúsundir laga
en aUt það besta er að finna á þriggja
diska settinu „Arkology" sem kom út
1997.
Leyfum Lee sjálfúm að hafa síðasta
orðið: „Ég er geimvera frá öðrum heimi,
utan úr geimi. Ég á ekkert land, engar
eignir, ekkert hús. Ekki í þessum heimi.
Ég bý í geimnum og er hér bara í heim-
sókn. Sumir eru héma bara tU að safna
eignum. Ég er hér með ferðatöskuna
mína til að safna góðum heUum."
Og heilamir verða varla betri en eftir
að Lee „Scratch" Perry er búinn að
hræra í þeim með sínu útúrspeisaða
döbbi.
*
12
f Ó k U S 3. mars 2000