Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2000, Blaðsíða 14
Þann tíunda mars verður gráglettna gamanmyndin Fíaskö frumsýnd, Höfundur handrits og ieik-
stjóri er Vestfirðingurinn Ragnar Bragason. Hann er sjálfmenntaður kvikmyndagerðarmaður og myndin er
framleidd af Zik Zak kvikmyndum ásamt íslensku kvikmyndasamsteypunni.
Auður Jónsdóttir spjallaði við kvikmyndagerðarmanninn um Smuguna, snjóflóð, Fíaskó og galdra,
Braut
hauskúpuna
jöxlunum
„Fæðing drengjanna átti að
vera sett í gang þriðjudaginn 6.
apríl en sá dagur var bókaður fyr-
ir stærstu hópsenuna í myndinni
og það var engin leið að fresta
henni, það er svo erfitt að fá fólk,
þetta voru hundrað aukaleikarar
og tökustaður sein var ekki hægt
að fá aftur. Ég hringdi á mánudegi
og spurði lækninn hvort það væri
ekki séns að fresta fæðingunni um
sólarhring svo ég gæti verið við-
staddur og hann tók bara vel í
það, sagði beiðnina mjög óvana-
lega en hann skyldi gera undan-
tekningu," rifjar Ragnar Bragason
upp og lítur brosandi á konuna
sína, hana Helgu Rós, sem segir
góðlátlega: „Maður sagði ekkert
við því frekar en öðru á þessu
tímabili." Tvíburabræðrunum
varð þó ekki meint af og Ragnar
er stoltur fjölskyldufaðir í dag.
Barði ís og
fældi burt ísbirni
„Ég var að skrifa annað handrit
og fór á sjó til að hafa efni á að
sitja heima og skrifa. Á sjónum
var maður sem heitir Hilmar
Karlsson og er af Suðurnesjunum,
svona týpa sem segir óteljandi
sögur af sjálfum sér og aldrei
sömu söguna. Hann er ótæmandi
brunnur af skemmtilegheitum og
sagði mér sögu af sjálfum sér sem
varð eiginlega til þess að Fíaskó
varð til. í rauninni er sagan að-
eins eitt atriði í myndinni en i
kringum þennan karakter urðu til
sex aðrar persónur sem tengdust
allar innbyrðis. Ég skrifaði sem
sagt fyrstu drögin að handritinu á
frystitogaranum Hrafni Svein-
bjarnarsyni í Smugunni,“ útskýr-
ir Ragnar.
í Smugunni eru vaktirnar sex
tímar og svo fáið þið frí í sex tíma,
er þaö ekki?
„Jú, það voru alltaf sex og sex
en það var ekkert fískirí. Við
gerðum ekkert annað en að berja
ís og fæla burtu ísbirni svo ég gat
lagt drög að Fíaskó.“
Rammgöldróttir
sjómenn
„Faðir minn er vélstjóri á
Hrafni Sveinbjarnarsyni, hann er
menntaður vélstjóri og útgerðar-
tæknifræðingur en það snýr að
sjálfri útgerðinni. Hins vegar er
faðir minn svo mikill sjómaður að
hann hefur aldrei tollað lengi í
landi og hefur verið, meira og
minna, á sjó síðan hann var 12 ára
gamall.
Eruö þið sjómenn langt aftur í
œttir?
„Sko, ég er kominn af galdra-
mönnum af Vestfjörðum. Ég er
fæddur og uppalinn í Súðavík. Og
öll föðurættin mín er af Vestfjörð-
unum. Langafi minn var sjómað-
ur og rammgöldróttur - hann gat
gert ýmislegt sem er ekki til frá-
sagnar. Megnið af því er hálfó-
hugnanlegt. Ég ætla ekki að segja
söguna af því - það er fjölskyldu-
harmleikur,“ segir Ragnar og
brosir svo það skín í tvær fram-
stæðar augntennur. Brosið er tví-
mælalaust vestfirskt, samanber
Hallgrím Helgason, Hannibals-
slektið og fleira fólk sem rekur
einnig ættir sínar vestur. Ugg-
laust hefur þessi munnsvipur sett
sterkan vampírublæ á göldrótta
forfeður kvikmyndagerðarmanns-
ins.
Nokkur ættmenni
fórust í snjóflóðinu
Ragnar er vitanlega spurður um
snjóflóðið í Súðavík og hvaða
áhrif það hafði á hans líf. „Það
kom náttúrlega mjög við mig á
sínum tíma. Margt af mínum ætt-
mennum býr enn þá þarna og
nokkrir ættingja minna fórust í
þessu slysi. Þetta er ekki nema 250
manna samfélag. Ég bjó þarna til
tiu ára aldurs og maður hugsaði
aldrei út í snjóflóðahættu á þeim
tíma. Það var eitthvað sem enginn
bjóst við og ákveðin mörk á
snjóflóðahættusvæðinu lágu í
gegnum húsið sem ég bjó í,“ svar-
ar hann að bragði.
Flóðið hefur ekkert umturnað
þinni heimsmynd eða eitthvað
slíkt?
„Ég myndi kannski ekki segja
það. En ég held að þau ár sem ég
bjó í Súðavík hafi mótað alla mína
®!
Ragnar: „Ég skrifaði sem sagt fyrstu drögin að handritinu
á frystitogaranum Hrafni Sveinbjarnarsyni í Smugunni."
f Ó k U S 3. mars 2000
14