Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2000, Page 15
Ragnar Bragason kvikmyndageröarmaöur er náttúrubarn fram í fingurgóma
enda er hann alinn upp viö sjóinn í Súðavík.
ævi. Það að búa í svona litlu sam-
félagi vakti fljótt áhugann á fólki
og sögum þess. Maður kynnist
líka fólki á öllum aldri í svona
litlu þorpi, alls konar týpum og
umgengst miklu breiðari aldurs-
hóp en krakkar í Reykjavík. Mín-
ir vinir voru til dæmis allir þrem-
ur eða fjórum árum eldri en ég.
Við vorum aðeins þrjú í mínum
árgangi og í bekk
rneð eldri krökk-
um. Þorrablótin
eru líka ágætis
dæmi. Þar mættu
þriggja ára
krakkar jafnt
sem nírætt fólk.“
Bjóstu aö þessu
þégar þú
skrifaöir
handritiö?
„Já. Fíaskó er
rammíslensk
mynd sem segir
sögu þriggja kynslóða innan
sömu fjölskyldunnar. Allar fást
þær við ástina á sinn hátt svo úr
verður eitt „Fiaskó“. Yngsta
aðalpersónan er átján ára og sú
elsta áttræð. Ég held nefnilega að
íslendingar vilji sjá myndir um
raunverulegt fólk.“
Haqlabyssurnar
í roðum
„Ég var mikið inni á heimili
hjá besta vini mínum á þessum
árum og pabbi hans var hrefnu-
skytta. Þegar við kynntumst, 5-6
ára, þá bjó afi hans heima hjá
þeim. Þetta var svona fólk sem er
með minkabúrin fyrir aftan hús
hjá sér, það hangir siginn fiskur í
öllum rjáfrum og haglabyssurnar
eru bara i röðum. Ég var eitt sum-
ar með þeim á Galtarvita. Þá var
faðir vinar míns vitavörður þar
og maður var bara að skjóta
svartfugl og var látinn liggja kjur
í gúmmíbát - kannski í klukku-
tíma. Síðan stóð karlinn upp og
plaffaði fuglana í kring niður og
maður pikkaði þá upp sem voru
enn þá lifandi. Það var ekki tími
til að snúa þá alla úr hálsliðnum
því þeir sukku svo maður þurfti
að brjóta á þeim hauskúpuna
-með þvi að bita...“
Beistu fuglana í hausinn?
„Já, maður setti bara hausinn
upp í sig, beit með jöxlunum og -
köhkkk - var með þá í báðum
höndum og beit í annan meðan
maður hélt á hinum. Maður ólst
upp í aðeins öðruvísi umhverfi en
krakkar í bænum.“
Hvernig er aö vera fyrir vestan í
dag, eru þessir lífshœttir enn þá
ríkjahdi?
„Ja, ég meina, þetta fólk býr
þama enn þá. Það var til dæmis
afskaplega lítill fólksflótti frá
Súðavík eftir snjóflóðið, allt ann-
að en á Flateyri þar sem megnið
af bænum flutti í burtu. í Súðavík
var bara eitthvað allt annað í
gangi,“ segir Ragnar hugsandi.
Skíthræddur við sjóinn
Ragnar er á þeirri skoðun að
vestfirsku fjöllin séu fallegustu
fjöll í heimi og haldi fólki fyrir
vestan þrátt fyrir snjóflóðin.
„Maður finnur
ekki til hræðslu
gagnvart fjallinu
sem slíku, þetta
var slys. Rétt eins
og sjóslys.
Ég held að flest-
ir í Reykjavík hafi
hugsað: „Hvað er
þetta fólk að búa
þarna, af hverju er
það ekki löngu
komið í bæinn?
En það er eitthvað
sem heldur í fólk-
ið - og það em einmitt fjöllin. Ég
meina, þetta er algjör töfrastaður
og þarna er galdraloft ... það em
galdrar á öllum Vestfjörðum. Sem
betur fer er mamma mín af hún-
vetnsku skynsemisfólki sem er
mótvægi við þessa vestfirsku ...
tja, klikkun," segir hann og kímir
við tilhugsunina.
Líöur þér vel á sjónum?
„Sko, þér líður alveg hryllilega
illa í fyrsta skipti sem þú ferð á
sjó. Það er hræðileg lífsreynsla,
sérstaklega ef þú ert sjóveik(ur)
eða eitthvað slikt. Svo er það svo
merkilegt að eftir afskaplega
stuttan tíma verður það bara
þægilegt. Þetta er dáldið eins og
að vera á leikskóla. Þú ert vakinn
á ákveðnum tímum, það er búið
að elda handa þér og svo vinn-
urðu í ákveðinn tíma og þegar þú
kemur af vakt bíður matur eftir
þér. Þú þarft ekki einu sinni að
tala við bankann eða neitt slíkt.
Einu áhyggjumar sem þú þarft að
hafa er hvort konan þín haldi
fram hjá þér. Þetta er verndaður
vinnustaður."
Kanntu vel við víöáttuna?
„Jú, jú, ég kann vel við víðátt-
una en ég er alveg skíthræddur
við sjóinn. Hann skelfir mig
alltaf. Ég er voða lítið fyrir að
vera úti á rúmsjó og standa við
borðstokkinn. Mig hefur dreymt
sama drauminn frá því að ég man
eftir mér og þá dreymir mig
drukknun og fyrir vikið veit ég
nákvæmlega hvernig tilfinning
það er að drukkna.- Ég hlýt að
hafa drukknað einhver tímann í
sjó og líklega er það skýringin á
hræðslunni," segir Ragnar sem
lætur sjóhræðsluna ekki aftra því
að hann skrifi kvikmyndahandrit
í Smugunni og frestar fæðingu
barna sinna líkt og sannur galdra-
maður.
„Langafi minn
var sjómaður og
rammgöldróttur,
hann gat gert
ýmislegt sem
er ekki til
frásagnar. “
Prumphljóð í símanum
heimasíöa vikunnar
Ert þú einn af þeim sem eru
orðnir leiðir á að hafa sömu tölvu-
gerðu hringinguna á símanum
þínum og allir aðrir? Ekki ör-
vænta því væntanlegur er nýr
sími á markaðinn þar sem maður
getur hljóðritað sjálfur þá hring-
ingu sem maður vill hafa á síman-
um. Sími þessi heitir Panasonic
GD92 og inniheldur hann tvö
hljóðspor sem hvort um sig getur
tekið upp 15 sekúndur af hljóði.
Þetta þýðir að þú gætir t.d. tekið
upp söng, prump, tónlist, eldhús-
hljóð eða hvað annað sem þér
dettur í hug. Það er bara ímynd-
unaraflið sem setur mörkin hér.
Væri t.d. ekki sætt að hafa rödd
kærasta síns sem hringingu eða
jafnvel mjálmið í kettinum þín-
um? Sími þessi er einnig með tal-
stýringu en það þýðir að þú þarft
ekki að slá inn númerið sem þú
ætlar að hringja í heldur bara
segja það.
Fljótlega getur þú slegið alla vini
þína út þegar kemur að frumlegum
farsímahringingum.
www. klebsr. net
Kleber.net eru heimastöðvar
Kleber-fyrirtækisins en það sér-
hæfir sig í því að búa til vefsíður.
Það er kannski ekkert einsdæmi
en Kleber má samt eiga það að
margar af síðunum sem
það hefur gert eru mjög
flottar og skemmtilegar.
Þetta eru mestallt heima-
síður hljómsveita eins og
Jamiroquai,
Leftfield, Suede
og Lightning
Seeds. Plötufyr-
irtækin Warp
og Ninja Tune
eru líka með síður frá
Kleber, sem og Kylie
Minogue. Það besta við
hljómsveitasíðurnar er
að maður getur fengið
endalaust af lögum. Þar
standa Ninja Tune-félag-
ar þó framar en margir
aðrir. Þeir leyfa manni
að fá heilu hálftímana af
tónleikaupptökum þegar t.d.
Jamiroquai býður manni einung-
is tíu sekúndur af hverju lagi
(hvað þykjast þeir eiginlega
vera?). Það er mjög gaman að
liggja yfir öllum þessum síðum og
hlusta á alls konar lög sem maður
hefur aldrei heyrt áður. Skelltu
þér á Kleber.net og skoðaðu.
wbMlffldi tiiboð'
ladkaua ræðubotaretnum
um helgina.
Ólafur Pórlsson, verslunarstjóri Adonis
hefur um árabil starfað með íþróttafólki,
næringarfræðingum og vaxtarræktar-
fólki með góðum árangri. Hann hefur
haldið fyrirlestra og skrifað greinar um
næringarfræði og hreyfingu. Nýttu þér
sérfræðiþekkingu Ólafs og láttu hann
ráðleggja þér við val á fæðubótarefnum.
Ólafur Þórisson. Einkaþjálfari og leiðbeinandi í líkamsrœkt.
Einkaþjálfunarpróf hjá ISSA (International Sport Scienco
Association). SWL (Specialist in Weight Management)
ADOfll^
V6RSLUN M6Ð
FPGÐUBÓTRR6FNI
Kringlunni • sími 588 2988
ww.adonis.is
EAS • PERFECT • LEAN BODY • MLG • TWINLAB • AST • LEPPIN • MUSCLETECH
3. mars 2000
f ó k u s
15