Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2000, Blaðsíða 17
t
Þessir pissuöu þar...
* R
Óhætt er aö reikna
Gír liggi í flensu
aö fáklæddur aftan
meö því að Gassi
eftir aö hafa teik-
í vélsleöa.
nokkrum sinnum og lestin hefur lít-
ið færst úr stað.
„Jæja, er einhverjum kalt?“ spyr
Ásgeir bílstjóri farþega sína með
hugulsemi í röddinni.
„Nei,“ svarar hópurinn einum
rómi.
„Nú, fyrst svo er þá væri fínt að
þið löbbuðuð upp þessa brekku,"
svarar Ásgeir og opnar dymar.
Eins gott að maður sé ekki að
borga fyrir þessa ferð, þá hefði mað-
ur orðið nokkuð pisst. Það hlýtur að
kosta sitt að leigja svona jeppa og
hefði maður verið búinn að því þá
hefði maður örugglega ekki viljað
labba heldur fá sem mest fyrir pen-
ingana. En þar sem maður borgaði
ekki og veðrið er yndislegt er ekki
svo slæmt að labba. Eftir að orku-
drykk með vodka hefur verið dreift á
mannskapinn heyrast heldur engar
kvörtunarraddir og fólki virðist vera
orðið alveg sama hvort það kemst í
Landmannalaugar eða ekki.
Græjumar eru settar í botn og Gleði-
bankinn settur á repeat.
Björgunarsveit
varar við ófærð
Stuttu seinna, þegar jeppi,
merktur Björgunarsveitinni Kyndli
frá Mosfellsbæ, stöðvar leiðangur-
inn og segir að það sé ófært I Land-
mannalaugar fer enginn að gráta.
Fólk sem er á Skuggabarnum
hverja helgi biður heldur ekki um
mikið. Þetta er meira en nóg til-
breyting frá skemmtanalífi borgar-
innar. Margir eru orðnir vel við
skál og aðrir eru önnum kafnir við
að ná nokkrum freknum ókeypis á
... og koma svo!
(í sjö hundraöasta
sinn...)
„Þetta er soddan hvelja,“ sagöi bíl-
stjórinn, Ásgeir Úlfarsson, og minnk-
aöi loftiö í dekkjunum á bílnum en
fjallaferöir á þessum árstíma ganga
mikiö út á það aö ýta, draga og
hleypa lofti úr dekkjum.
Uhmm! Hrefna, verslunarstjóri í Sasha,
tók duglega til matar síns eftir erfiöan
dag og kunni vel að meta lambakjötið.
andlitið. Þegar svo hópur vélsleða-
manna sem á leið um svæðið býður
stelpunum i hópnum í ökuferð aft-
an á sleðunum virðist ferðin hafa
náð ákveðnu hámarki - allavega
þangað til farsiminn hjá einum af
bílstjórunum hringir og fréttirnar
kvisast út: „Hekla er farin að gjósa,
Hekla er farin að gjósa.“ Fólk rýk-
ur með æsingi upp í bílana án þess
að tfna upp ruslið eftir sig. Hvað
eru líka nokkrar bjórdósir og
pappaglös á við Heklugos?
Neyðarblys frá Heklu
Það er farið að líða á kvöldið,
færðin hefur versnað og bílstjórinn
er ekkert að fara í kringum hlutina
lengur. Það er bara kcillað „út“ og
heimtað að menn ýti þegar billinn
festist. Á milli þess að ýta rýna
menn út í myrkrið I leit að
Heklunni. Fljótlega gefur kella
merki, sendir upp nokkur neyðar-
blys í formi þruma og eldinga, og
þama blasir hún við í allri sinni
brennandi dýrð.
„Vááá!“ heyrist einum rómi í öll-
um bílunum. Það er virkilega kvikn-
að í snjónum. Þetta er hátíðleg
stund. Þetta er nokkuð sem menn
munu segja barnabömunum sínum:
„Já, þegar Hekla gaus árið 2000, jú,
ég var þar. Það held ég nú. Ég sá
það.“
Óskar Freyr Ericsson, útsendari frá
þættinum Meö hausverk um helgar,
á leiö í bæinn meö vídeóspóluna
dýrmætu með myndum af Heklu-
gosinu. Fregnir herma aö Stöö 2
hafi boðið of fjár í spóluna og Ósk-
ar sé oröinn ríkur maöur í dag.
Þegar komið er til baka á hótelið
eftir mikið jugg mætir hópnum hóp-
ur af sjónvarps- og fréttafólki. Óskar,
myndatökumaðurinn frá Hausverk
um helgar, er brátt miðpunktur at-
hyglinnar, enda náði hann góðum
myndum af gosinu. Fólk er kalt,
blautt og svangt en kokkarnir í
Hrauneyjum hafa staðið i ströngu og
dekkað upp með þríréttuðu. Eftir
matinn fara sumir beint í koju en
aðrir reyna að halda uppi stemning-
unni með fjöldasöng og kynnast enn
nánar. Fólk er sammála um að þetta
hafí verið góður túr en persónulega
hefði ég ekki gefið mikið út á hann
ef Hekla hefði ekki farið að gjósa.
Ótrúlegt hverju þessar útvarpsstöðv-
ar geta komið i kring. Austurbakki
gaf vínið, 66 gráður norður gaf flís-
húfurnar en hver sponseraði Heklu-
gosið náði ég ekki. Einhver sagði það
hefði staðið „Coca Cola“ við rætur
fjallsins.
einn poka af
hraunmolum og selja í Kolaportinu,“
stakk einhver upp á en félagarnir
Óskar og Óskar Örn frá Akureyri létu
sér nokkra mola nægja.
f
\
#
-■
<r
■f
3. mars 2000 f Ókus
17