Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2000, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 6. MARS 2000 J3V Fréttir Vélsleðamaður týndur á Langjökli: Dauðaleit í blindbyl - björgunarsveitarmenn kallaðir út frá Vík í Mýrdal og allt til Akureyrar Miklum fjölda björgunarsveitar- manna á 15 snjóbílum og um 100 vélsleðum var stefnt að Langjökli um helgina til leitar að vélsleðamanni sem varð þar viðskila við félaga sinn síðdegis á laugardaginn. Mennirnir misstu sjónar hvor af öðrum í af- spyrnuvondu veðri skömmu eftir að þeir komu upp á Langjökul á leið sinni frá Hveravöllum, yfir jökulinn og niður í Kaldadal. Mennirnir voru tveir á ferð, báðir þrautreyndir ferða- menn, að sögn björgunarsveitar- manna sem leituðu við nær því von- laus skilyrði á jöklinum i gærkvöldi. Skyggni var nær því ekkert og veður- hamurinn ólýsanlegur. Höfuðstöðvar leitarmanna voru hjá björgunarsveitinni Oki i Borgar- firði og þangað var stefnt öllum til- tækum vélsleðum, allt frá Vík í Mýr- dal og til Akureyrar. Það sama gilti bteinr a LangjoKui. Björgunarsveitarmenn í Vík í Mýrdal leggia af stað á snjóbíl til leitarstarfa á Langjökli í gær. Bílslys á Óshlíð: Stöðvaðist á Ijósastaur í staö þverhnípis DV, ísafjaröarbæ: Bílslys varð á veginum um Óshlíð rétt utan við gömlu sorpeyðingar- stöðina á Skarfaskeri á laugardags- kvöld. Bílstjóri fólksbifreiðar missti stjórn á bílnum í mikilli hálku og hafnaði að lokum á ljósastaur. Þrír voru í bílnum og var farþegi fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði vegna hugsanlegra háls- og bakmeiðsla en aðrir sluppu ómeidd- ir. Bíllinn er stórskemmdur. Það má teljast lán 1 óláni að bíllinn stöðvað- ist á staurnum því þarna liggur veg- urinn hvað hæst um Óshlíðina og snarbratt í sjó fram. Lögreglunni á ísafirði barst tilkynning um slysið kl. 22.50 á laugardagskvöld. -KS Bolludagurinn: Bolluát og flengingar Bolludagur er I dag. Hann er ávallt á mánudögum á tímabilinu 2. febrúar til 8. mars og er því í seinna lagi nú en er þó alltaf sjö vikum fyr- ir páska. í kjölfarið kemur sprengi- dagur og síðan öskudagurinn og Bollur á hvers manns vörum í dag. Bollurnar eru stórar á bolludaginn og rjómamiklar og rjóminn á þaö til aö fara út á kinnar hjá krökkum sem hafa beöiö dagsins uppfull af spenningi. þann dag hefst langafasta. Algengt var að menn borðuðu ekki kjöt síð- ustu tvo dagana fyrir löngufóstu til þess að venjast léttu mataræði. í þjóðveldislögum var meira að segja bannað að borða kjöt þessa síðustu tvo daga fyrir föstuna. Bolluát og flengingar bárust til ís- lands seint á 19. öld og virðast danskir og norskir bakarar hafa átt hlut að máli. Bolludagur er hins vegar talið vera íslenskt heiti á deg- inum. Siðurinn að vekja fólk með flengingu er kominn hingað til lands frá Danmörku. Hann á sér lík- lega kaþólska fyrirmynd í táknræn- um hirtingum á öskudag. En vönd- urinn minnir líka á stökkul sem notaður var til að dreifa vígðu vatni á söfnuði í föstubyrjun. Siðurinn að slá köttinn úr tunnunni á öskudag- inn er enn í heiðri hafður ásamt fjöldagöngum bama í grímubúning- um. -HK Neyðarkalli svarað af myndarskap Fyrir helgi barst Rauða krossi ís- lands neyðarkall frá Alþjóða Rauða krossinum vegna flóðanna miklu í Mósambik en mikil örv'ænting hefur gripið um sig meðal eitt hundrað þús- und manna sem bíða þess að þeim verði forðað úr vatnselgnum. Rauði kross Islands setti strax af stað söfnun sem gengið hefur mjög vel og hafa þegar safnast milljónir króna: „Við erum afar þakklát fyrir hversu vel landsmenn hafa brugðist við og þessi stuðningur er ómetanlegur fyrir fólk á flóðasvæðunum en líf þess er nú undir alþjóðlegum stuðningi komið,“ segir Sigrún Árnadóttir, fram- kvæmdastjóri Rauða kross íslands. Brýnt er hjálp berist sem fyrst á flóða- svæðin þar sem mikil hætta er á að farsóttir á borð við kóleru og malaríu spretti upp og því mikilvægt að út- vega hreint vatn og mat. -HK um alla snjóbíla sem til ráðstöfunar voru á sama svæði. Til dæmis fór snjóbíll björgunarsveitarinnar í Vík í Mýrdal af stað síðdegis í gær með fjóra björgunarsveitarmenn með stefnuna á Langjökul. Vélsleðamennirnir urðu viðskila við Þursaborgir á Langjökli miðjum um þrjúleytið á laugardag og sáust ekki eftir það. Annar mannanna komst yfir jökulinn og náði niður í Kaldadal í Borgarfirði um kvöldið. Gerði hann strax viðvart um félaga sinn og hófust þá björgunaraðgerðir. Snjóbílar voru á jöklinum í gær- kvöldi en leitarskilyrði voru afleit og sáu björgunarsveitarmenn ekki handa sinna skil. Fjöldi vélsleða og björgunarsveitarmanna biðu átekta við jökulröndina og biðu þess að veð- urofsanum slotaði þannig að fært yrði upp á jökulinn. Stóðu vonir manna til þess að vélsleðamaðurinn týndi hefði grafið sig í fönn og biði björgunar. -EIR DV MVNDIR NJORÐUR HELGASON Keppinautar Keppnin var hörð en hér er væntanlegur sigurvegari, María Katrín Jósepsdóttir, ásamt einum keppinauta sinna. Ungfrú Suðurland 2000: Selfossmær vann 18 ára Selfossmær, María Katrín Jósefsdóttir, var kosin ungfrú Suð- urland á laugardagskvöldið. Tólf stúlkur tóku þátt í keppninni. í öðru sæti varð Hugborg Kjartansdóttir úr Ölfusi en þriðja varð Sif Jónsdóttir úr Hveragerði. Var keppnin öU hin glæsilegasta, stúlkurnar komu þrisvar fram fyrir krýninguna, í fatnaði að eigin vali, i bikiní og í kvöldkjólum. Þær sem urðu í þrem fyrstu sætunum öðluðust jafnframt rétt til að taka þátt í keppninni um titilinn ungfrú ísland. -NH Skammdegisgjöf RÚV: Hryllingsmyndir í heila nótt „Okkur langaði til að brjóta upp venjulegt laugar- dagskvöld á þennan hátt og það má líta á þetta sem vetrargjöf ríkissjónvarps- ins til dyggra áhorfenda sem vissulega eiga skilið spennandi og skemmtilega nótt í skammdeginu," sagöi Bjami Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri ríkissjón- varpsins, um nýbreytni í dagskrá Sjónvarpsins um helgina. Ríkissjónvarpið sýndi þá hryllingsmyndir frá því snemma á laugar- dagskvöldið og fram undir morgun á sunnudag. Gat þar að líta hetjur eins og Tom Craise, Jack Nichol- son og Brad Pitt í hverri hryllmgsmyndinni á fætur annarri. „Við vildum gjarnan gera þetta oftar en okkur skortir fé eins og allir vita,“ sagði Bjami Guð- Bjarni Guömundsson. mundsson sem útilokaði Áhorfendur eiga skilið þó ekkert í þessum efnum spennandi nótt í - nú yrðu viðbrögö áhorf- skammdeginu. enda könnuð. ------------- -EIR Aðaltollhafnir Fjármálaráðherra ætlar að beita sér fyrir því að hafnirnar í Þorláks- höfn og á Höfn í Hornaflrði verði gerðar að aðaltollhöfnum. Hann til- kynnti þetta við vígslu nýs tollaf- greiðsluhúss á hafnarsvæði Þor- lákshafnar. 5000 á dag Árið 1999 fóru samtals 1.822.494 flugfarþegar um níu stærstu áætl- unarflugvelli íslands. Þeir skiptust þannig að tæplega 480 þúsund flugu innanlands en rúmlega 1,3 milljónir í millilandaflugi. Þetta svarar til þess að 1.371 farþegi hafi flogið inn- anlands og 3.681 í millilandaflugi dag hverrí allt árið um kring, að meðaltali. Eftirlit brugðist Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra segir hrein- leikaímynd íslensks landbúnaðar hafa beðið hnekki und- anfarið og eftirlit hafa brugðist. Stöð 2 greindi frá. Oska upplýsinga Tölvunefnd hefur óskað eftir upplýsingum um það hvernig gögn um barnaverndarmál eru varðveitt. Meðal þess sem á að kanna er hvort gögn kunni að leynast í fórum þeirra sem setið hafa í barnaverndarnefndum. i RÚV greindi frá. Fjör á þingi Fundir Alþingis lágu niðri alla síðustu viku vegna þess að nefndavika var hjá alþingismönnum. Þingfundir hefjast í dag og má búast við fjöri á þingi í vikunni. Stein- grímur J. Sigfús- son, formaður VG, sagði að strax á þriðjudaginn vaeru Vinstri grænir búnir að biðja um utandagskrárumræðu um Þjóðminjasafnið og uppá- komurnar þar. Dagur sagði frá. Ný skýrsla Stefnt er að því að ný skýrsla um frummat vegna umhverfisáhrifa ál- vers á Reyðarfirði verði lögð fýrir skipulagsstjóra ríkisins í apríl. Þetta kemur fram á heimasíðu Stór- iðju á Austurlandi. Aumingjaskapur Halldór Björn Runólfsson list- fræðingur segir að það hafi verið aumingjaskapur hjá sérfræðingum í myndlist að ráðast ekki gegn fólsuð- um málverkum sem boðin voru upp hér á landi Fullur sigur Eigandi nektarstaðarins Club Clinton vann fullan sigur á borg- aryfirvöldum þegar úrskurðar- nefnd skipulags- og bygginga- mála felldi úr gildi breytingu á staðfestu deiliskipulagi Kvosar- innar. Áleitnar spurningar Sólveig Péturs- dóttir dómsmála- ráðherra segir að slys í umferðinni að undanförnu veki upp áleitnar spurningar um hvert stefni í þess- um málum, þau séu mikið áhyggjuefni og krefjist bæði skoðunar og aðgerða. Dagur greindi frá. -hdin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.