Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2000, Side 11
MÁNUDAGUR 6. MARS 2000
r>v
Utlönd
u
■
Tony Blair leitar til dómstólanna:
Stöðvar frásagnir
af fjölskyldulífinu
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, fékk liðsinni dómstól-
anna um helgina til að koma i veg
fyrir að frásögn af fjölskyldulífi
hans eftir fyrrum harnfóstru þriggja
barna hans kæmi fyrir sjónir al-
mennings.
Sunnudagsblaðið Mail on Sunday
hafði í hyggju að birta kafla úr end-
urminningabók sem barnfóstran
Rosalind Mark skrifaði. Mark starf-
aði fyrir Blair-hjónin á árunum 1994
til 1998. Forráðamenn blaðsins
sögðu i gær að þeir myndu áfrýja
úrskurðinum.
Bamfóstran sagði í gær að hún
væri alveg eyðilögð vegna deilunn-
ar og ítrekaði að það hefði aldrei
verið ætlun hennar að frásögn
hennar birtist á prenti. Hún gagn-
rýndi blaððið fyrir birtinguna. Blað-
ið sagði að hún hefði boðist til að
Tony Blair og frú ekki skemmt
Mail on Sunday vildi segja frá fjöl-
skyldulífinu í Downingstræti 10.
aðstoða við fréttina.
Blair sagðist standa með Mark og
sagði að hún væri góður vinur fjöl-
skyldunnar.
„Ég veit að hún er góð manneskja
sem ætlaði ekki að gera neinum
mein og mér þykir miður að níðst
hefur verið á góðmennsku hennar,"
sagði Blair.
Talsmaður Blairs sagði að efni
greinarinnar í blaðinu hryti í bága
við þagnareið sem barnfóstran hefði
undirritað, auk þess sem hún hefði
ekki haft vitneskju um né leyft birt-
ingu á köflum úr óhirtum endur-
minningum sinum.
Barnfóstran sakaði umboðsmann
rithöfunda um að koma endurminn-
ingum hennar í hendur blaðsins.
Tony Blair hefur lagt gifurlegt
kapp á að halda börnunum þremur
Qarri kastljósi fjölmiðlanna.
Særðir í Grozní
Foringi í sérsveitum rússnesku
lögreglunnar gengur hjá særöum
félögum sinum i Grozní, höfuö-
borg Tsjetsjeníu, um helgina.
Hundruð féllu í
árás Rússa á
tsjetjenskt þorp
Breska blaðið Observer greindi
frá því í gær að rússneski herinn
hefði fellt 363 menn í árás á þorp-
ið Katír-Júrt í Tsjetsjeníu í síð-
asta mánuði.
Observer lýsir aðfórunum, þar
sem gerð var sprengjuárás á þorp-
ið og ráðist var á bílalest flótta-
manna, sem einhverjum mestu
grimmdarverkum frá því í heims-
styrjöldinni siðari.
Rússneskur herforingi viður-
kenndi í gær aö uppreisnarmenn
hefðu fellt 31 rússneskan fallhlíð-
arhermann í fjallagljúfri í sunn-
anverðri Tsjetsjeníu.
Gerhard Schröder
Þýskalandskanslari fær sér bjórsopa
en drekkur nú minna en áöur.
Schröder sendur
í megrunarkúr
Eiginkona Gerhards Schröders
Þýskalandskanslara hefur sent
bónda sinn í megrun. Læknir hafði
úrskurðað hann of feitan.
Frúin sagði í viðtali við þýska
blaðið Bild am Sonntag að kanslar-
inn væri hættur að drekka áfengi
um miðjan dag og hann hefði meira
að segja minnkað rauðvínsdrykkj-
una á kvöldin. Þykir honum þó sá
sopi allgóður.
Schröder hefur lést um tvö eða
þrjú kíló og hann er ekki nema
nokkrum kílóum þyngri nú en þeg-
ar hann tók við kanslaraembættinu
1998. Þá var Schröder 78 kíló.
Stuö á kjötkveöjuhátíöinni
Mikiö var um dýröir á kjötkveöjuhátíöinni I bænum Ivrea á Ítalíu í gær þegar
bæjarbúar settu á svip orrustu frá miööldum þegar grimmum kóngi var
steypt af stóli. Vopnin voru appelsínur en ekki sverö og lásborgar.
John McCain á í vök að verjast:
Sakar Bush um óheiðar-
lega kosningabaráttu
John McCain, öldungardeildar-
þingmaður frá Arizona, sakaöi
George W. Bush, ríkisstjóra í Texas,
um óheiðarlega kosningabaráttu til
að tryggja sér útnefningu
repúblikanaflokksins fyrir forseta-
kosningarnar í haust.
• „Ég myndi ekki reka svona kosn-
ingabaráttu," sagði McCain í gær
um tvær sjónvarpsauglýsingar úr
herbúðum Bush. Þar er annars veg-
ar látið að þvi liggja að McCain sé
andvígur þvi að fé sé varið til rann-
sókna á brjóstakrabba og hins vegar
er ráðist á stefnu McCains í um-
hverfismálum.
Nýjustu skoðanakannanir benda
til að Bush muni fara með sigur af
hólmi í flestum ríkjunum þar sem
forkosningarnar verða haldnar á
morgun, þar á meðal í lykilríki á
borð við Kaliforníu.
Syrtir í álinn fyrir John McCain
Skoöanakannanir benda til aö John
McCain tapi fyrir George W. Bush I
forkosningum í flestum ríkjum þar
sem forkosningar veröa á morgun.
EVERY
GOAL
Manchester United
ICHAMPIONS
% OF EIJROPE
r ^
The Official Story of
The Greatest Night In British Sport
95 mín.
kr. 2.990
SENDIIM I POSTKBOHJ
Sillli 5333
VIDEOHQLLIN
Á. fyfnui banch
LÁGMÚLA 7 • SÍMI 568 53 33