Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2000, Qupperneq 28
40
MÁNUDAGUR 6. MARS 2000
Hringiða
DV
Við erum að tala um dúndurstuð á
heimsmælikvarða. Þessar ungu
stúlkur sáu sér ekki annan veg fær-
an en að fá styrka stráka til að
skella sér á axlirnar. Svo mikið
stuð var á Samfési.
Sýning á verkum listakonunnar
Svövu Björnsdóttur var opnuð í
Listasafni íslands á laugardag-
inn. Stöllur listakonunnar, Bryn-
hildur Þorgeirsdóttir og Rúrí,
höfðu um margt tala.
Ishestar opnuðu nýja
hestamiðstöð að Sörla-
skeiöi 26 í Hafnarfirði á
laugardaginn. Einar
Bollason framkvæmda-
stjórl tók á móti gestum
Hér heilsar hann Árna
Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra.
Listneminn Birgir Örn Thoroddsen opnaði
fyrstu sýninguna í hinum svokallaöa nýja
stíl, eöa The new style, í Gallerí Nema hvað
á föstudaginn. Birgir, eöa Bibbi eins og
hann kallast, kemur gestum í skllning um út
á hvað nýi stíllinn gengur.
Einar Bollason, framkvæmdastjóri Is-
hesta, ræöir við Ólaf Ragnar Grimsson,
forseta íslands, við opnun nýrrar hesta-
miðstöövar íshesta í Sörlaskeiðinu á
laugardaginn.
Það var haldiö Samfésball í
íþróttahúsinu við Strandgötu á
föstudaginn. Ingunn Margrét Blön-
dal og Margrét Inga Guðmunds-
dóttir voru í góðu stuöi enda Land
og synir á sviðinu.
Hreimur, draumur allra ungra stúlkna, söng sig inn i
hjarta þeirra á Samfésballinu sem haldiö var í íþrótta-
húsinu viö Strandgötu á föstudaginn.
DV-myndir Hari
Myndlistarkonan Svava Björnsdóttir opnaði sýn-
ingu á verkum sínum í Listasafni íslands á laug-
ardaginn. Listakonan ræðir hér við Kormák Geir-
harðsson, umsjónarmann sjónvarpsþáttarins
Vélarinnar á RUV.
Stúlkurnar fremst viö
sviðiö kunnu vel að
meta Hreim, söngvara
hljómsveitarinnar Land
og synir, á ballinu sem
samband félagsmiö-
stöðvanna, Samfés, hélt
á föstudaginn.
Forseti Islands, herra Olafur
Ragnar Grímsson, opnaöi glæ-
nýja hestamistöö Ishesta á laug-
ardaginn. Forsetinn leit á aöstöð-
una og heilsaöi gestum.
Nýtt gallerí var tekið í notkun á laugardaginn. Þaö er i hús-
inu aö Flókagötu 17 sem kennt er við listamanninn Jón Eng-
ilberts. Sigtryggur Bjarni Baldvinsson sýndiB fyrstur enda á
heimavelli þar sem hann býr í húsinu.
Svenni úr félagsmiöstöðinni Miögarði í Breiðholt-
inu datt heldur betur t lukkupottinn þegar Þórdís,
söngkona úr árshátíöarsýningu Fjöibrautaskólans
í Breiöholti, valdi hann til að taka með sér lagiö.
Mundu mig, ég man þig er heitið á skemmtilegri sýningu um það hvernig
ungt fólk hafði það á 20. öldinni. Vinkonurnar Jóhanna Vigdís Ingadóttir og
Kristín Helga Ríkharösdóttir voru forvitnar að vita hvernig mamma og pabbi
höfðu þaö í gamla daga.