Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2000, Síða 36
MILLENNIUM subaru
t i—< ^si m r
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Þórshöfn:
Þak fauk af húsi
Þak fauk af 150 fermetra einbýlis-
húsi á Þórshöfn á Langanesi í ofsa-
veðri sem þar gekk yfir í gærkvöld.
Þakið fór af með sperrum og þak-
klæðningu og endaði úti á götu, að
hluta til ofan á bifreið sem þar stóð
í rokinu.
„Þetta er einnar hæðar hús og
íbúamir voru að fara að borða
kvöldmatinn þegar þeir heyrðu allt í
einu sprengingu og þakið lyftist af.
Fólkinu var komið fyrir hjá vensla-
fólki en hér eru björgunarsveitar-
menn að reyna að bjarga því sem
bjargað verður," sagði Jón Stefáns-
son, lögreglumaður á Þórshöfn, sem
stóð ekki í ofsarokinu þegar hann
sté yfir útidyraþröskuldinn, að eigin
sögn. Þegar síðast fréttist, skömmu
fyrir miðnætti, var þak á öðru húsi
að gefa sig og voru björgunarsveitar-
menn að reyna að binda það niður
með aðstoð þungra dráttarbíla.
„Hann stendur af hafi og er rosa-
^ legur,“ sagði Jón Stefánsson lög-
reglumaður og kveið nóttinni. -EIR
DV MYND S
Færöin
Starfsmenn tryggingafétaga eru
farnir aö ókyrrast í stólum sínum
vegna fjölda árekstra.
Reykjavík:
192 árekstrar
192 árekstrar urðu í höfuðborg-
inni síðastliðna viku og er það eins-
dæmi á svo skömmum tíma. Kenna
löggæslumenn færðinni um en fjöl-
margar götur eru orðnar einbreiðar
vegna snjóruðninga og eru bílstjór-
ar að rekast á vegna þessa.
„Ég gæti trúað að starfsmenn trygg-
ingafélaga séu farnir að ókyrrast í
stólum sínum því hver rispa kostar
^ sitt,“ sagði varðstjóri hjá lögreglunni í
Reykjavík í gærkvöldi. -EIR
íslensku pólfararnir:
Sváfu úti í 20
gráða frosti
íslensku pólfaramir Haraldur Örn
Ólafsson og Ingþór Bjamason sváfu
úti í nótt í 20 gráða frosti, þeir höfðu
tjaldað í Iqualit, smáþorpi á Baffms-
landi í Kanada. Þar munu þeir halda
tU næstu tvo þrjá daga. Þann 10. mars
munu þeir halda á ís norðurskauts-
landsins þar sem þeir eiga von á 50
gráðu frosti og erfiðleikum þegar ísinn
hleðst upp og torveldar þeim leiðina
að sögn HaUs HaUssonar. -JBP
Hross á búnaöarþingi.
íslenski hesturinn var í forgrunni við setningu búnaöarþings á Hótel Sögu í gær. íslenska landsliöiö í hestaíþróttum á
glæstum fákum heiöraði þingfulltrúa viö upphaf þingsins og ráöherrarnir Davíö Oddsson og Guöni Ágústsson féllu vel
inn í hópinn meö bros á vör. Ef aö líkum lætur mun íslenski hesturinn gegna veigamiklu hlutverki viö móttökuathafnir
erlendra gesta hér á landi í framtíðinni og stinga skemmtilega í stúf viö erlenda byssustingi sem notaöir eru í sama
tilgangi víöa erlendis, svo vitnað sé til oröa landbúnaðarráöherra.
Keikó stækk-
ar hringinn
Síðastliðinn föstudag varð breyt-
ing á högum frægasta háhymings
heimsins þegar Keikó var skammt-
að mun stærra rými í Klettsvíkinni
heldur en áður: „Þetta hefur gengið
framar vonum," segir HaUur HaU-
son, talsmaður Keikósamtakanna.
„Hann fór strax um víkina og hefur
verið að bæta við, fara stærri hringi
í hverri ferð um leið og hann kann-
ar nýjar aðstæður sem eru þær
bestu sem hann hefur haft frá því
hann var fluttur frá íslandi fyrir um
tuttugu árum.“
HaUur segir að það sé greinUegt
að Keikó aðlagist vel nýjum aðstæð-
um, kvíin hans er þó enn „heimUi"
hans og þangað kemur hann í lok
hverrar ferðar og henni er síðan
lokað á kvöldin og er
At ekki annað að sjá en
Æ að Keikó kunni því
Æf' 'S ágæflega.
■ÍJ “
Skjáreinn leitar aö nýjum íjárfestum:
Hlutafé uppurið
- en tilraunin tókst og við höldum áfram, segir stjórnarformaðurinn
„Það eru ýmsir sem hafa
áhyggjur af velgengni sjón-
varpsstöðvarinnar og ég lái
þeim það ekki. Mergurinn
málsins er hins vegar sá að
tilraunin tókst og við höld-
um áfram,“ sagði PáU Kr.
Pálsson, stjórnarformaður
sj ónvarpsstöðvarinnar
Skjáreinn, en hlutafé
stöðvarinnar er uppurið og
er nú leitað að nýjum íjár-
festum sem tUbúnir eru að
leggja fé í stöðina og tryggja þar
með áframhaldandi tUvist hennar.
„Það er rétt að 100 miUjóna króna
hlutafé stöðvarinnar er búið enda
stóð aldrei til að það nægði nema í
fjóra til fimm mánuði. Sá tími er nú
liðinn og ég get staðfest að ýmsir
fjárfestar eru spenntir fyrir
að koma inn i fyrirtækið.
AUar tölur sýna okkur að
þetta er gott mál. Auglýs-
ingatekjur í síðasta mánuði
voru um 20 miUjónir króna
og hafa verið að aukast um
60 prósent á miUi mánaða.
Þótt við séum ekki enn fam-
ir að skUa hagnaði gerum
við fastlega ráð fyrir að gera
það á þessu ári,“ sagði
stjórnarformaðurinn sem
hefur útbúið viðamikla framtíðará-
ætlun sem eigendur stöðvarinnar
eru nú að kynna fyrir einstakling-
um og fyrirtækjum í von um undir-
tektir - og aukið rekstrarfé.
Samkvæmt heimildum DV fóm
Árni Þór Vigfússon sjónvarpsstjóri
og Kristján Kristjánsson, fiármála-
stjóri Skjáseins, á fund forráða-
manna Kaupþings í peningaleit en
var þar visað á dyr með þeim orð-
um að Kaupþing væri ekki hjálpar-
stofnun:
„Já, ég veit að strákarnir álpuðust
þarna inn fyrir misskilning þvi þeir
vissu ekki að Kaupþing á 15 prósent
í Stöð 2. Þeir hefðu átt að láta það
ógert að fara þarna inn en þeir hafa
hins vegar sannað sig sem stjórnend-
ur fyrirtækisins og í framtíðaráæti-
unum okkar eru engin plön um að
láta þá fara. Þeir hafa staðið sig vel,“
sagði Páll Kr. Pálsson.
Eigendur að Skjáeinum eru 3-P
Fjárhús í eigu Páls Kr. Pálssonar
stjórnarformanns og Hagkaups-
bræðranna, Sigurðar Gísla og Jóns
Fóru í fýluferö í Kaupþing.
Árni Þór Vigfússn og Krístján
Kristjánsson ásamt starfsfólki á
Skjáeinum
Pálmasonar, Jón Amalds lögmaður
og fyrirtæki á hans vegum, kvik-
myndafyrirtækið Nýja bíó og svo
sjónvarpsstjórinn Árni Þór Vigfús-
son og fiármálastjórinn Kristján
Kristjánsson. -EER
Kjarasamningarnir:
Róðurinn þyngist þegar rætt er um kaupið
„Það liggur við að menn þurfi
áfallahjálp vegna launaliðarins á
morgun, við fórum í að ræða hann
á þriöjudagsmorguninn en mikið
ber í milli,“ sagði Kristján Gunnars-
son, formaður Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur og einn
frammámanna Flóabandalagsins, í
gærkvöld um níuleytið þegar samn-
ingafundi lauk í Karphúsinu.
Viðræður hefiast aftur fyrir há-
degi í dag. Þá verður fiallað um
laun blaðburðarbarna og sagði
Kristján að blaðaútgefendur mættu
til samninga.
„Hingað til hefur allt verið í góð-
um farvegi í viðræðunum en mér
sýnist að á brattann sé að sækja
varðandi launaliðina, svo mikið ber
á milli. Við erum þungir á brún
gagnvart þeim,“ sagði Kristján.
Krafa Flóabandalagsins er um 91
þúsund króna lægstu laun sem er
30% hækkun.
Kristján sagði að menn hefðu náð
landi í tryggingamálunum, öðrum
stærsta lið samninganna, en aðalat-
Tregir til hækkana
Fulltrúar vinnuveitenda í samningaviöræöum viö Flóabandalagiö, þeir Ari Ed-
wald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Finnur Geirsson, formaö-
ur samtakanna, í nýja karphúsinu ásamt Þóri Einarssyni sáttasemjara. Ftóa-
bandalagsmenn segja menn handan samningaborösins trega til hækkana.
riðið væri vissulega launin, róður-
inn þyngdist ævinlega þegar um
þau væri rætt. -JBP
brother P-touch 9400
Stóra merkivélin sem þolir álagið
10 leturgerðir
margar leturstærðir
16 leturstillingar
prentar í 10 línur
borði 6 til 36 mm
Rafoort
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
Erum flutt í
Skipholt 50 d
__' 1—j
Skipholti 50 d