Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2000, Blaðsíða 12
12
Útlönd
MÁNUDAGUR 20. MARS 2000
I>v
Hópsjálfsvígið í Úganda:
Leiðtoginn kann aö
hafa flúið til Evrópu
Merkel nýr formaður
Kristilegi
demókrataflokkur-
inn í Þýskalandi
mun að öllum lík-
indum kjósa Ang-
elu Merkel nýjan
formann flokksins í
dag. Allir aðrir
frambjóðendur hafa
dregið sig í hlé. Merkel hefur vakið
athygli fyrir að taka afstöðu gegn
Helmut Kohl, fyrrverandi kanslara.
Óttast er að 650 manns, þar á
meðal fjöldi barna, hafi látið lífið í
hópsjálfsvíginu í kirkju í Úganda á
fóstudaginn. ígær var enn óljóst
hversu margir í sértrúarsöfnuðin-
um Endurvakningu boðorðanna tíu
höfðu kveikt í kirkju sinni og sjálf-
um sér. Samkvæmt fréttum ríkisút-
varpsins í Úganda var fjöldi látinna
235 en dagblaðið Sunday Vision í
Úganda hafði það eftir lögreglustjór-
anum á svæðinu að 650 hefðu farist
í logunum í kirkjunni í bænum
Kanungu.
Dagblöð í Kenía töldu í gær að
leiðtogi safnaðarins, Joseph Kibwet-
eerekan, hefði flúið til Evrópu með
félaga í söfnuðinum. Leiðtoginn,
sem hafði útnefnt sjálfan sig sem
spámann, hafði boðað heimsendi 31.
desember síðastliðinn en breytti síð-
an dagsetningunni.
í síðustu viku tóku félagar í söfn-
uðinum að safnast saman í Kan-
ungu. Síöastliðinn miðvikudag
slátruðu þeir þremur nautum og
héldu hátíð. Síðan brenndu safnað-
Brunarústir
Ungur drengur við kirkjuna i Úganda þar sem mörg hundruð féiagar í
sértrúarsöfnuði sviptu sig lífi.
armeðlimir allar eigur sínar og
gengu um í nágrannabæjunum til
að kveðja nágranna og vini fyrir
fyrirhugað sjálfsmorð síðastliðinn
fóstudag.
„Þeir vissu að þeir áttu að deyja
17. mars. María mey hafði lofað að
birtast þeim um morguninn til þess
að leiða þá til himins," sagði vitni í
viðtali við blaðið Sunday Vision.
Blaðamenn sögðu skelfilega sjón
hafa blasað við þeim í kirkjunni.
Lík hefðu legið í hrúgum á bak við
kirkjudyrnar sem neglt hafði verið
fyrir. Greinilegt hefði verið að
nokkrir hefðu reynt að flýja úr eld-
inum.
„Ég taldi 400 lík en svo varð það
of erfitt að telja. Ættingjar tóku að
streyma inn. Þeir grétu og reyndu
að telja látna ástvini sína,“ greindi
blaðamaður frá.
Dagblöð í Úganda skrifuðu að sér-
trúarsöfnuðurinn hefði verið undir
eftirliti frá 1998 vegna ofbeldis gagn-
vart bömum og gruns um rán á
bömum.
Ósló:
Læknar grunaðir
um tugmilljóna
króna skattsvik
Yfirlæknir í Ósló, Bjorn Gilbo,
við Oslo Akutten, er grunaður um
að hafa svikið tugi milljóna
íslenskra króna undan skatti. Tveir
aðrir læknar við stofnunina liggja
einnig undir grun. Gilbo
viðurkennir í viðtali við norska
blaðið Aftenposten að tekjur vegna
lýtalæknisaðgerða á tíunda ára-
tugnum hafi ekki verið bókfærðar.
Sjúklingar, sem komu í slíkar
aðgerðir, urðu að staðgreiða. Siðan
skiptu læknarnir fénu á milli sín.
Upp komst um svikin eftir að
yfirmaður fjármála stofnunarinnar
var rekinn. Hann greindi frá athæfi
læknanna. Tekin verður ákvörðun
um kæm í vikunni.
Persónuleg,
alhlifia útfararþjónusta.
Sverrir Olsen Sverrir Einarsson
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa (slands
SuGurhlfb35 • Sfmi 581 3300
allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
Erfðaskrímsli
Mótmælandi í gervi,,erföaskrímsiis“ var meðal þeirra fjölmörgu sem söfnuöust saman i Karlsruhe í Þýskalandi í
gær. Þar funduðu græningjar og var tækifæriö notaö til að mótmæla erfðabreyttum matvælum.
Vonsviknir Taívanar
slógust við lögreglu
Óeirðalögregla á Taívan beitti í
gær vatnsþrýstidælum gegn 2
þúsund manns sem safnast höfðu
saman fyrir utan aðalstöðvar
flokks þjóðemissinna sem tapaði
í forsetakosningunum á laugar-
daginn. Flestir mótmælenda flýðu
en þeir herskáustu börðust við
lögregluna
Mótmælendurnir voru reiðir
yflr þvi að flokkur þjóðernissinna
skyldi hafa tapað eftir 50 ára
valdatíma. Lögreglan lét til skar-
ar skríða í kjölfar árásar á for-
ystumenn flokksins. Einn forystu-
mannanna var dreginn út úr bíl
sínum og hann barinn.
í gær var svo tilkynnt að fráfar-
andi forseti, Lee Teng-hi, myndi
segja af sér flokksformennsku í
Vonsvikinn Taívani
Ekki voru allir ánægðir með úrslitin.
september næstkomandi.
Sigurvegarinn, sjálfstæðissinn-
inn Chen Shui-bian, rétti Kínverj-
um sáttahönd í sigurræðu sinni.
Kinverjar höfðu lýst því yfir að
þeir hikuðu ekki við að úthella
blóði lýstu Taívanar yfir sjálf-
stæði.
Chen Shui-ban kvaðst vilja inn-
leiða timabil friðar og sátta en
hann gætti þess að nefna ekki
eins og hann hefur gert áður að
Taívan sé í raun sjálfstætt. En
ekki er búist við að Kínverjum
geðjist að þeim orðum nýja forset-
ans að Taívan sé fyrirmynd lýð-
ræðis þar sem hægt var að fella
flokk eftir langa setu á valdastóli.
Gert er ráð fyrir að yfirvöld í
Kína ítreki viðvaranir sínar.
Samvinna viö mafíuna
ítalska lögreglan kvaðst í gær
hafa handtekið tvo embættismenn,
fyrrverandi rannsóknardómara og
félaga í nefnd gegn mafíunni fyrir
að vera í vitorði með mafíunni.
Lestarslys í Finnlandi
Tveir létu lífið og einn slasaðist
alvarlega eftir að hafa lent undir
lest í Helsinki í Finnlandi í gær.
Samþykktu afhendingu
Stjórn Ehuds Baraks, forsætisráð-
herra ísraels, gaf í gær grænt Ijós á
að Palestínumönnum yrði afhent 6,1
prósent landsvæðis á Vesturbakk-
anum. Samþykktin ryður braut fyr-
ir friðarviðræðum sem hefjast í
Washington á morgun.
Kray í nýtt fangelsi
Breski glæpamaðurinn Reggie
Kray hefur verið fluttur til fangels-
is á Wighteyju svo að hann geti
heimsótt Charles bróður sinn sem
er á sjúkrahúsi. Charles afplánar 12
ára fangelsisdóm vegna fikniefna-
máls. Reggie hlaut 30 ára fangelsi
fyrir morð.
Pútín í fríi við Svartahaf
Vladimir Pútín,
starfandi forsætis-
ráðherra Rúss-
lands, var í gær í
fríi við Svartahaf
þótt ekki sé nema
vika til forsetakosn-
inganna. Pútín
hafði ætlað á skíði
en slæmt veður kom í veg fyrir það.
Samkvæmt skoðanakönnun í síð-
ustu viku nýtur Pútin fylgis 50 pró-
senta kjósenda. 21 prósent styður
kommúnistaleiðtogann Gennadí
Zjúganov.
Gegn betli í Bretlandi
Bresk yfirvöld íhuga nú að senda
heim erlenda flóttamenn sem láta
böm sin aðstoða þá við betl. Betl
hefur snaraukist í neðanjarðarlest-
um undanfarið hálft ár.
í trúarlegum tilgangi
Jóhannes Páll
páfi sagði í gær að
ferð sín til ísraels
væri eingöngu farin
í trúarlegum til-
gangi. Heimsókn
páfa til Miðaustur-
landa hefst í
Jórdaníu í dag.
Páfa er beðið með eftirvæntingu.
600 þúsund slátrað
Yfir 637 þúsund sauðum,
nautgripum og kameldýrum var
slátrað vegna árlegrar
pílagrímaferðar til Sádi-Arabíu.
Kjötið verður gefið flóttamönnum
í Pakistan, Súdan, Jórdanínu og
þurfandi í Tsjad.