Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2000, Blaðsíða 13
13
MÁNUDAGUR 20. MARS 2000_________________________________________________________________________________________
Útlönd
Lögmaöur Færeyja er æfur í garð danska forsætisráðherrans:
Poul Nyrup ógnar
færeysku stjórninni
Lögmaður Færeyja, Anfinn Kalls-
berg, réðst í gær á Poul Nyrup
Rasmussen, forsætisráðherra Dan-
merkur, sem á fóstudaginn lét fær-
eysku landstjórnina halda heim frá
Kaupmannahöfn með þau óvæntu
skilaboð að fjárstyrkur Dana til Fær-
eyja, 10 milljarðar islenskra króna á
ári, yrði felldur niður eftir 3-4 ár
vildu Færeyingar sjáifstæði. Færey-
ingar höfðu gert ráð fyrir mikiu
lengri aðlögunartíma.
Kallsberg þykir ekki bara meðferð-
in sem sendinefnd landstjórnarinnar
fékk í Danmörku ögrandi heldur bein-
línis ógnandi.
„Nyrup tilkynnti afstöðu Dana áð-
ur en samningaviðræðurnar voru í
Kjell Magne Bondevik
Fyrrverandi forsætisráðherra
Noregs vill aftur í stjórn.
Bondevik langar
ekki að fella
Stoltenberg
Kjell Magne Bondevik hefur
hug á því að setjast aftur I stól
forsætisráðherra Noregs. Hann
hefur þó ekki mikla löngun til að
fella Jens Stoltenberg.
„Við ætlum ekki að reyna að
komast aftur í stjórn á þessu kjör-
tímabili," sagði Bondevik á fundi
með Kristilega þjóðarflokknum í
Kristiansund um helgina.
Ungliðar í flokknum og konur
föðmuðu Bondevik og hrósuðu
honum fyrir afstöðu hans í deil-
unni um byggingu gasorkuvera.
Bondevik lagði áherslu á að flokk-
urinn ætti að stefna að þvi að
mynda nýja stjórn að loknum
þingkosningum á næsta ári.
raun hafnar. Það þykir mér mjög
slæmur grundvöllur fyrir samninga-
viðræður,“ sagði Kallsberg í viðtali í
gær.
Hann kvaðst einnig undrandi á því
að Nyrup skyldi hafa tryggt harðlinu-
stefnu sinni stuðning á þingi áður en
viðræðurnar við færeysku landstjórn-
ina hófust á fóstudaginn. Kallsberg
benti meðal annars á að sá breiði
stuðningur sem Nyrup kvaðst hafa
sýndi að Danir hefðu engan skilning á
sjónarmiðum Færeyinga. Kallsberg
lagði jafnframt áherslu á að afstaða
Dana sýndi að þeir vildu með valdi
hafa ákvörðunarrétt yfir Færeying-
um.
„Danmörk er brauðryðjandi hvað
varðar aðstoð við önnur lönd og hjálp
til sjálfshjálpar. En ef það er 100 pró-
senta stuðningur við þá afstöðu sem
Nyrup sýndi okkur hefur danska
þingið ekki sömu stefnu gagnvart
Færeyingum sem það hefur gagnvart
öðrum þjóðum,“ sagði færeyski lög-
maðurinn.
Hann gat þess í gær að tillagan að
nýjum sáttmála Færeyja og Danmerk-
ur, sem Færeyingar kynntu Nyrup á
fóstudaginn, yrði gerð opinber 1 upp-
hafi þessarar viku. Færeyingar höföu
óskað eftir að rætt yrði um málið í
trúnaði. Kallsberg kvaðst hins vegar
hafa ákveðið að gera alla tillöguna op-
inbera þar sem Poul Nyrup hefði
kynnt hluta tillögunnar áður en
samningaviðræðurnar voru í raun
hafnar. Kallsberg sagði enn fremur að
landstjórnin hygðist halda áfram við-
ræðum samkvæmt áætlun. Næsti
fundur Færeyinga og Dana á að verða
6. maí næstkomandi.
Gert hafði verið ráð fyrir að samn-
ingur yrði tilbúinn fyrir sumarið sem
greitt yrði þjóðaratkvæði um í Fær-
eyjum í haust. Hogni Hoydal, sjálf-
stæðismálaráðherra Færeyja, vildi
um helgina ekki tjá sig um niðurstöð-
ur þjóðaratkvæðagreiðslu í kjölfar
viðbragða danskra yfirvalda á fóstu-
daginn. Samkvæmt könnun færeyska
blaðsins Socialurinn á fimmtudaginn
er álíka margir sjáifstæðissinnar og
andstæðingar sjáifstæðis í Færeyjum.
Clinton boðinn velkominn
Indverskir ráðamenn buðu í gær Bill Clinton Bandaríkjaforseta, Chelsea dóttur hans og tengdamóður hans, Dorothy
Rodman, velkomin til Indlands. Er þetta í fyrsta skipti í 22 ár sem bandarískur forseti kemur í opinbera heimsókn til
Indlands. Clinton mun einnig heimsækja Bangladesh og Pakistan. Tilgangurinn með heimsókninni er að reyna að
draga úr spennunni milli Indlands og Pakistans. Nokkrum klukkustundum áður en Clinton kom til Indlands bárust
fréttir af skothríð í Kasmír sem Indverjar og Pakistanar deila um.
Pinochet
Einræðisherrann fyrrverandi er alls
ekki með gloppótt minni.
Sonur Pinochets
segir föður sinn
muna alla hluti
Augusto Pinochet, fyrrverandi
einræðisherra Chile, er með betra
minni en Bretar vildu vera láta.
Sonur einræðisherrans fyrrverandi,
Augusto yngri, hefur lýst því yfir að
faðir sinn sé við tiltölulega góða
heilsu og muni allt. Pinochet var
látinn laus úr stofufangelsi í Bret-
landi fyrir tveimur vikum á grund-
velli skýrslu breskra lækna sem
sögðu hann of elliæran til að geta
komið fyrir rétt. Pinochet dvelst nú
á einu sveitasetra sinna og skrepp-
ur í göngutúra með lífvörðum
sínum.
Tsjetsjenía:
Meintur morðingi
hjúkrunarfólks
líklegur leiðtogi
Maðurinn, sem sakaður er um
að hafa staðið á bak við morð á sex
hjúkrunarfræðingum Rauða kross-
ins 1996, getur orðið nýr leiðtogi
Tsjetsjeníu, að því er kom fram í
Sunday Times í gær. Bæði útlaga-
stjóm Tsjetsjeníu og bandaríska
utanríkisráðuneytið telja að Adam
Denijev, forseti Tsjetsjensku end-
urnýjunarhreyfingarinnar, sé
morðingi hjúkrunarfólksins.
Nú er Denijev, sem er fæddur í
Tsjetsjeníu, í uppáhaldi í Kreml og
þykir líklegur til að verða látinn
stjórna héraðinu. Að því er
Sunday Times greinir frá hefur
Denijev náin tengsl við rússnesku
leyni- og öryggisþjónustuna, FSB,
sem tók við af KGB. Tsjetsjenar
höfðu sent Rússum næg sönnunar-
gögn um Denijev en yfirvöld í
Moskvu neituðu samt að yfirheyra
hann. Sjálfur vísar Denijev öllum
sakargiftum á bug. Rússneski
blaðamaðurinn Andreij Babitskí,
sem rússneski herinn tók til fanga
í janúar síðastliðnum og sleppti
fjórum vikum seinna, fullyrðir að
hann haii verið fangi manna Deni-
jevs.
úrval nofa«Sra bíla af «11 uw s-faer&uw «3 ser^uw /
Margar bifreiðar á söiuskrá
okkar er hægt að greiða með
Visa eða Euro raðgreiðslum
VW Passat 1600, f.skrd. 25.09.1999,
bsk., 4 dyra, ekinn 16 þ. km, blár.
Verðkr. 1.350.000
VW Polo 1400, f.skrd. 27.08.1999,
bsk., 5 dyra, ekinn 6 þ. km, grár.
Verðkr. 1.190.000
VW Golf CL Variant, f.skrd. 25.07.
1996, bsk., 5 dyra, ekinn 65 þ. km,
blár. Verðkr. 930.000
Alfa Romeo 156, f.skrd. 04.09.1998,
bsk., 4 dyra, ekinn 33 þ. km, rauður.
Verðkr. 1.570.000
Skoda Felicia, f.skrd. 02.03.1999,
bsk., 5 dyra, ekinn 15 þ. km, rauður.
Verðkr. 750.000
MMC Pajero 2800 dísil, f.skrd. Toyota Hiace 4x4, dísil, f.skrd. 06.09. Toyota Land Cruiser dísil, árgerð
26.06.1998, ssk., 5 dyra, ekinn 40 þ. 1995, bsk., 5 dyra, ekinn 135 þ. km, 1994, ssk., 5 dyra, ekinn 15 þ. km,
km, grár. Verð kr. 2.750.000 rauður. Verð kr. 1.190.000 rauður. Verð kr. 2.850.000