Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2000, Page 11
11
FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000___________________________________________________________________________________________
DV_________________________ Útlönd
Karadzic hylltur
Radovan Kara-
dzic, leiðtogi Bosn-
íu-Serba sem nú er
á flótta undan rétt-
vísinni, var hylltur
á kosningafundi í
skíðabænum Pale í
gær. Bosníu-Serbar
höfðu aðalstöðvar
sínar í bænum í borgarastríðinu.
Eiginkonu Karadzics var vel fagnað.
Mat fyrir fólkið, ekki vopn
Forstöðurmaður hjálparstofnunar
Bandaríkjanna hvatti stjómvöld í
Eþíópíu og Erítreu að leggja
landamæraágreining sinn til hliðar og
koma matvælum til milljóna manna
sem horfa framan í hungurvofuna.
Jeltsín fær góð ellilaun
Boris Jeltsin, fyrram Rússlands-
forseti, fékk ellilífeyrispappíra sína
í gær. Ellilaun hans verða þó um-
talsvert betri en hinn venjulegi
Rússi á kost á.
Tveggja ára stúlka skotin
Lögreglan í Los Angeles leitar nú
að manni sem skaut tveggja ára
gamla stúlku á hraðbraut í borg-
inni. Stúlkan var í bíl sem sveigði
fyrir bíl skotmannsins.
Ekki á förum frá ESB
Romano Prodi,
forseti fram-
kvæmdastjómar
Evrópusambands-
ins, ESB, hélt i gær
neyðarfund innan
stjómarinnar um
blaðafréttir undan-
fama daga um að
hann sé á leið inn í stjómmálin á
Ítalíu á ný. Talsmaður Prodis visaði
því á bug að forseti framkvæmda-
stjórnarinnar væri að hætta.
Rannsaka ekki Echelon
Dómsmálaráðherra Danmerkur,
Frank Jensen, sagði á þingi í gær að
það þjónaði engum tilgangi að skipa
nefnd til að rannsaka meintar
njósnir í Danmörku gegnum njósna-
kerfið Echelon. Stjórnin hvetur hins
vegar dönsk fyrirtæki til að vernda
sig gegn iðnaðarnjósnum.
Sá leiðtogana flýja
17 ára piltur í Úganda, Peter
Ahimbisibwe, flýði sértrúarsöfnuð-
inn Endurreisn boðorðanna tíu vegna
| svengdar nokkrum klukkustundum
áður en móðir hans og systir létu lífið
í kirkjubrunanum. Peter kveðst hafa
séð tvo helstu leiðtoga safnaðarins,
Kibwetere og Mwerinda, flýja yfir ak-
ur áður en hann stakk sjálfur af. Lög-
reglan telur að presturinn Katari-
babo, sem lést í kirkjunni, hafi einnig
ætlað að flýja en mistekist. Hann var
í eldheldum klæðum og með eldspýtur
í hendinni.
Þrýst á Lipponen
Þrýst er á Paavo
Lipponen, forsætis-
ráðherra Finn-
lands, að gera grein
fyrir hvers vegna
hann hafi einn tek-
ið ákvörðun um að
styðja refsiaðgerðir
Evrópusambands-
ins gegn Austurríki. Ráðuneytis-
stjóri dómsmálaráðuneytisins hefur
hafið rannsókn á málinu í kjölfar
kvartana tveggja óbreyttra borgara
sem telja Lipponen hafa breytt gegn
stjórnarskránni.
Evrópuráðiö fjallar um framtíð Rússa í ráðinu:
Brottrekstur er
talinn ólíklegur
Evrópuráðið, elsti og stærsti fé-
lagsskapur lýðræðisríkja í heimin-
um, greiðir í dag atkvæði um tillögu
um að vísa Rússum úr samtökunum
vegna stríðrekstrar þeirra í
Tsjetsjeníu.
Enn hefur ekkert ríki verið rekið
úr Evrópuráðinu, þar sem 41 þjóð á
sæti. Embættismenn þar á bæ segja
ólíklegt að Rússum verði refsað þótt
þeir hafi framið mannréttindabrot í
átökunum í Tsjetsjeníu.
Stjómmálanefnd Evrópuráðsins
mælti með því á þriðjudag að ráðið
hvetti ráðherra aðildarlandanna til
að reka Rússa ef þeir bættu ekki ráð
Vladímír Pútín
Rússlandsforseti bíöur í ofvæni eftir
úrskuröi Evrópuráösins í dag.
sitt umtalsvert fyrir maílok. Þá
mælti nefndin einnig með þvi að að-
ildarríkin drægju Rússa fyrir mann-
réttindadómstól Evrópu vegna
framferðisins í Tsjetsjeníu.
„Ég á von á að samkoman sam-
þykki tilmælin en við eigum ekki
von á að ráðherramir vísi Rússum
úr ráðinu," sagði embættismaður
Evrópuráðsins sem ekki vildi láta
nafns síns getið. „Rússar virðast fá
sérstaka meðferð hjá þjóðum
heims.“
Það yrði Vladímír Pútín Rúss-
landsforseta nokkurt áfall ef Evr-
ópuráðið samþykkti tillögurnar.
Bandaríkin afhenda
umdeild Stasi-skjöl
Þýska stjómin tilkynnti i gær
að Bandaríkin hefðu afhent gögn
fyrrum a-þýsku leyniþjónustunn-
ar Stasi sem lengi hefur verið beð-
ið eftir. Gögnin voru á geisladiski
og munu Þjóðverjar fá 1000 geisla-
diska til viðbótar næstu 18 mán-
uðina. Talið er að vænta megi
málaferla gegn fyrrverandi njósn-
urum í kjölfarið þar sem i skjöl-
unum eru skráö um 300 þúsund
nöfh. Auk njósnara eru á skrá
þýskir stjómmálamenn og leið-
togar úr atvinnulífinu sem Stasi
fylgdist með.
Samið var um afhendinguna í
mars eftir fundi bandarísku leyni-
þjónustunnar CIA og leyniþjón-
ustu Þýskalands. Bandaríska
leyniþjónustan fékk Stasi-skjölin
eftir fall Berlínarmúrsins 1989 en
hefur ekki viljað greina frá
hvernig. Þýska blaðið Súdd-
eutsche Zeitung sagði í morgun
að CIA hefði fengið skjölin í
Moskvu 1992 frá foringja í KGB,
rússnesku leyniþjónustunni.
ingactilbod
o 10.995
cc c
fm aduci9.995,-
nsx
3-Diska geislaspilari - Super T-BASSI - Hægt er að tengja
myndbandstæki við stæðuna - Tónjafnari með ROCK -
POP - JAZZ -12 + 12 W RMS magnari - Al leiðsögukerfi
með Ijósum -32 stöðva minni á útvarpi, klukka, timer og
svefnrofi - Tvöfalt segulband - Fjarstýring - Segulvarðir
hljómmiklir hátalarar.
nsx-s555
3-Diska geislaspilari -37 + 37 + 12 + 12W RMS magnari
með surround kerfi - SUPER T-BASSI - Hægt er að tengja
myndbandstæki við stæðuna - Innibyggður Subwoofer í
hátölörum - tónjafnari með ROCK - POP - CLASSIC -
Jog fyrir tónstillingar og lagaleitun á geislaspilara - Al
leiðsögukerfi með Ijósum - 32 stöðva minni á útvarpi,
klukka, timer og svefnrofi - Tvöfalt segulband - Fullkomin
fjarstýring fyrir allar aðgerðir - Tengi fyrir auka bassa-
hátalara (SUPER WOOFER) - Segulvarðir hátalarar.
ftrn)«iiið«Siiiii3liiii3
UMBO0SMENN UM LAND ALLT: Reykjavfk: Heimskringlan - Húsasmiðian • Hafnarfjörðun Rafbúð Skúla - Húsasmiðjan • Grindavík: Rafborg • Keflavik: Sðnar - Húsasmiðjan ■ Akranes: Hljómsýn • Borgames: Kaupfélag Borgfirðinga
Heillissandun Blómsturvellir • Gmndaíörður: Guðni E. Hallgrfmsson ■ Stykkishómun Versl. Sjávarborg • Blönduós: Kaupfélag Húnvetninga • Hvammstangi: Rafeindaþj. Odds Stefánssonar • Sauðárkrókur Skagfirðingabúð ■ Búðardalur
Versl. Einars Stefánssonar • ísaflörður Fmmmynd ■ Síglufjörður Rafbær • Ólafsfjörður Versl. Valberg • DaMk: Húsasmiðjan ■ Akureyri: Ljósgjafinn - Húsasmiðjan • Húsavík: Ómur - Húsasmiðjan • Egilstaðir Rafeind • Neskaupsstaður
Tónspil • Eskiflörður: Rafvirkinn ■ Seyðisflörðu: Tumbræður • Breiðdalsvík: Kaupfélag Stöðfirðinga • Höfn: KASK • Hella: Mosfell • Selfoss: Radíórás - Árvirkinn - Húsasmiðjan • Vestmannaeyjar Eyjaradíó ■ Þorlákshöfn: Rás
I