Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2000, Qupperneq 6
6
Fréttir
MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ 2000
■
Micro samstæða
25.900 kr.
28" breiðtjaldssjónvarp
79.800 kr.
2ja hausa myndbandstæki
18.900 kr.
Ferðatæki meÖ geislaspilara
19.990 kr.
DVD myndspilari
39.900 kr.
14" sjónvarp
28.405 kr.
Heimilistæki
SÆTÚNI 8 • SÍMI 569 1500
umboðsmenn um land allt
Verö miöast viö staögreiöslu.
Launadeilur hjá Höldi ehf. á Akureyri:
53 starfsmönn
um sagt upp
- allir verða endurráðnir segir forsvarsmaður Hölds
„Þetta er almenn endurskipulagn-
ing á starfsemi og rekstri og allir
verða endurráðnir," segir Stein-
grimur Birgisson, forsvarsmaður
Hölds, en öllu starfsfólki Esso-Nest-
is, sem Höldur rekur, hefur verið
sagt upp. Höldur komst í fréttir DV
fyrir um mánuði vegna óánægju
starfsstúlkna með vangoldna matar-
og kaflitíma. Steingrímur sagði end-
urskipulagninguna koma til vegna
þeirrar deilu og með þessu vilji þeir
koma málum í rétt horf og gera
ráðningarsamninga. Hann gat ekki
svarað hvort matar- og kaflitimarn-
ir yrðu greiddir aftur í tímann.
_ _ , bílasaunn.
Möldur ehf.
BÍLASALA
Liklegt þykir að verkalýðsfélag-
inu Einingu sé ætlað að taka þátt í
nýjum samningum í stað Félags
verzlunar- og skrifstofufólks sem
meirihluti starfsfólks Hölds er nú í.
Guðmundur Björnsson, formaður
þess, sagði málið á mjög viðkvæmu
stigi og engin lausn væri að Höldur
léti starfsfólk sitt ganga í Einingu.
Formaður Einingar vildi ekki tjá
sig um málið.
Sigríður Þrastardóttir er ein
þeirra sem hafa leitað réttar síns
með að fá greidda matartíma eins
og kveður á um í kjarasamningum.
„Hví skyldi Höldur standa við
samninga hjá nýju verkalýðsfélagi
þegar hann hefur ekki gert það hjá
því gamla?“ segir Sigríður.
„Með þessu reyna þeir að komast
hjá því að borga okkur það sem okk-
ur ber en við ætlum hins vegar með
málið alla leið.“ -HH
Vorboöar
Þessi æöarkollufjölskylda á Reykjavikurtjörn er meöal ótal vorboöa sem mátt hefur berja augum í blíöunni aö undanförnu.
íslensk fiskiskip smíðuð hinum megin á hnettinum:
Tugur skipa frá Kína
Von er á tug skipa frá Kína í sum-
ar og haust sem smíðuð eru fyrir ís-
lenska aðila og eru 9 af þeim 21
metra löng línu- og netaskip og einn
ísfisktogari.
„Kínversku skipin eru á mun
hagstæðara verði, það verður ekki
efast um gæði þeirra og það segir
sína sögu að íslenskur sjávarútveg-
ur, sem er fremstur á sínu sviði,
skuli sækjast eftir þeim,“ segir
Franz Jezorski hjá ísbúi ehf.
Fyrirtækið hefur á síðustu árum
undirritað nokkra viðskiptasamn-
inga við kinverskar skipasmíði-
stöðvar um smiði á rúmum tug
skipa fyrir íslensk fyrirtæki. „Þetta
þótti hálfgert óðs manns æði í upp-
hafi og Kínverjamir vissu varla
hvar ísland var en nú er verið að
opna nýja vídd í viðskiptum á milli
landanna," segir Franz.
Að sögn Franz er ekki búist við
því að verðið haldist lágt mjög
lengi. „Þetta verður líklega eins og
með skip frá Japan hér áður fyrr,
þegar fólk uppgötvar þetta þá eykst
ásóknin og verðið hækkar,“ segir
hann.
„Þegar skipin koma til landsins
og menn sjá gæðin með eigin aug-
um þá verður mikil sprenging i
þessu og ég trúi því að innflutning-
ur á skipum frá Kina eigi mikla
framtíð fyrir sér,“ segir Franz.
-jtr
Umferð um Hvalfjörð eykst á ný
- Ferstikluskáli er aftur á góðu róli
DV-MYND DANÍEL V. ÓLAFSSON
Fengu ekki að hætta
Hugrún Vilhjálmsdóttir, annar af rekstaraöilum Ferstlkluskála, þarf aö sinna
ýmsum verkum í vegaskálanum, enda er ferðamannastraumurinn aftur á
uppleið eftir aö göngin gleyptu alla umferöina eöa svo gott sem.
DV, HVALFIRÐI:____________________
Rekstur Ferstikluskála í Hval-
firði hefur gengið vel i vetur en um
tima var óttast að skálanum yrði
lokað. Ibúar við Hvalfjörð og sum-
arbústaðaeigendur sáu til þess að
svo varð ekki, að sögn Gunnars Sig-
urðssonar, umdæmisstjóra Olís á
Vesturlandi. Menn hreinlega létu
undan þrýstingi, þeir fengu ekki að
loka.
Um það leyti sem fyrrverandi
rekstraraðili Ferstiklu ákvað að
hætta rekstri á síðasta hausti barst
forstjóra Olís, Einari Bene-
diktssyni, undirskriftarlisti frá
flestum íbúum við Hvalfjörð og
sumarbústaðaeigendum þar sem
skorað var á Olís að halda rekstrin-
um áfram. Ferstikla er með elstu
bensínstöðvum Olís á Islandi, þar
hefur verið bensínsala i yfir 50 ár.
Á þessum tímamótum sýndu
hjónin Hugrún Vilhjálmsdóttir og
Eyþór Ámason, sem búa í Hlíðar-
bæ, áhuga á að taka að sér áfram-
haldandi rekstur og með miklum
áhuga sínum kveiktu þau áhuga
hjá forráðamönnum Olís. I dag hef-
ur Olís gert miklar endurbætur á
Ferstiklu og hafa þau Hugrún og
Eyþór rekið staðinn síðcm í haust
og gengið vel. Undanfarið hefur um-
ferð um Hvalfjörð aukist og er
greinilega mikið um að fólk keyri
fyrir Hvalfiörð aðra leiðina og fari
svo gegnum göngin til baka og er sú
hringleið mjög skemmtileg sem
sunnudagsbíltúr, enda fallegt í
Hvalfirði og margt að sjá. -DVÓ
Sandkorn
Garðar Om Ulfarsson
netfang: sandkom@ff.is
knattspyrna?
Senn etja evrópsk-
ir knattspymumenn
kappi og fá úr því
skorið hvaða þjóð
álfunnar hefur besta
landsliðinu á að
skipa. Keppnin nær
hámarki í úrslita-
leik sunnudaginn 2.
júlí. Þann sama dag
munu leiðtogar kristinna manna á ís-
landi og fylgismenn þeirra verða í
önnum á Þingvöllum að minnast
þess að 1000 ár eru liðin frá því trú-
frelsi var aflagt i landinu. I Ijós kem-
ur hvort menn láti sannfærast af fag-
urgala Júlíusar Hafsteins og
Kristnihátíðamefndar um bættar
samgöngur frá katastrófunni 1994 og
taki áhættuna af að skreppa á Þing-
völl þennan sunnudag í von um ná
heim í tæka tíö fyrir úrslitaleikinn.
Bauð á sjálfan sig
Þegar nokkuð
var liðið á útitón-
leika Eltons Johns
var ákveðið að
hleypa utangáttar-
mönnum sem voru
staddir við Laugar-
dalsvöllinn inn á
gafl hjá söngvar-
anum án endur-
gjalds. Kunnugir segja þetta oft gert
á svipuðum viðburðum erlendis þeg-
ar nóg sé plássið og útséð um fleiri
borgunarmenn. Fjöldi tónleikagesta
sem þannig fengu ókeypis inn á
Elton er óljós, tölur hafa heyrst frá
60 manns í yfir 1000 manns. En eitt
mun þó vera víst: Hliðin voru opnuð
að frumkvæði umboðsmanns Eltons
og mun goðið því sjálft greiða tón-
leikahaldaranum fyrir aðgöngumiða
þessara gesta. Skyldi það vera hugg-
un fyrir þá sem keyptu fokdýra miða
fullu verði?
Reiknaði skakkt
Skrif Moggans um
verðmæti Landssím-
ans eru skemmtileg.
Upphafið var að
Þórarinn V. Þórar-
insson Landssíma-
forstjóri sagði hálf-
fimm fréttamenn
Búnaðarbankans
meta Landssímann
allt of hátt. Daginn eftir húðskamm-
aði samgönguráðherra Þórarin fyrir
að tala verðið niður. Þá kom ný frétt
þar sem Þórarinn reyndi að tala
verðið upp á ný. Hann tók dæmi af
kaupum Mannesman á Orange sl.
haust og sagði Mannesman hafa
greitt sem svarar 100 þúsund krón-
um á hvern einstakan viðskipta-
mann í GSM-kerfinu. Yfirfærði hann
þetta á Landssímann og sagði far-
símakerfikerfi fyrirtækisins, miðað
við 120 þúsund viðskiptavini, 120
milljarða króna virði. En Þórami
skjöplast því útkoman úr þessu
dæmi ætti að vera 12 milljarðar
þannig að í raun er Þórarinn að tala
verðið niður einu sinni enn. Viö-
skiptavinir Landssímans ættu að
fara vel yfir símreikningana sína.
Land og tengdasynir
Nýlega leigði i
Guðni Ágústsson
landbúnaðarráð-
herra ungum
manni og eigin-
konu hans ríkis-
jörðina Ásvöll í
Fljótshlíðinni. i
Mm-gir gimtust
Ásvöll eftir að
fyrri leigjandi gafst upp á dvölinni,
seldi ríkinu húsakostinn sem hann
átti þar á jörðinni og flutti á mölina.
Ásvöllur mun reyndar fremur lítil
jörð og ólíkleg til framfærslu heillrar
fiölskyldu en þaö mun varla heldur
hafa verið ætlun Guðna þegar hann
afréð að fela unga manninum jörðina
og nýkeyptu húsin á henni. Svo vill
nefnilega til að á jörðinni Landi, sem
liggur að Ásvelli, býr einmitt tengda-
faðir unga mannsins og em þar með
í sjónmáli allgóð samlegðaráhrif sem
nú eru einmitt í tísku. Þessi aðgerð
öll gengur undir nafninu „Land og
tengdasynir" í Fljótshlíðinni.