Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2000, Qupperneq 36
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tdkum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ 2000
Mendingur í Wiesbaden:
Féll 8 metra í
gegnum glerþak
- haldið sofandi
Reykvískum auglýsingagerðar-
w manni á þritugsaldri er haldið sof-
andi í öndunarvél á háskólasjúkra-
húsinu í Wiesbaden í Þýskalandi
eftir að hann féll 8 metra niður í
gegnum glerþak og hafnaði á gang-
stétt við stórhýsi þar sem hann
vann við uppsetningu á auglýsingu.
Maðurinn var í hópi íslenskra sam-
starfsfélaga sem unnu við verkið
þegar slysið varð á fóstudaginn.
Ekki er að fullu ljóst hvað olli
falli mannsins en hann mun hafa
stigið út á glerþak við vinnu sína,
glerþakið gaf sig og maðurinn féll
án fyrirstöðu niður á gangstétt.
Fjölskylda auglýsingagerðar-
mannsins hélt utan strax og fréttist
af slysinu og dvelur nú við sjúkra-
^ beð hans í Wiesbaden. Samkvæmt
upplýsingum frá föður mannsins er
sonur hans illa slasaður eftir fallið
en ekki i lífshættu og læknar von-
góðir miðað við aðstæður.
-EIR
Trésmiður á Benidorm:
Hengilásar í
fimmtugsafmæli
N - svaf á svölunum
„Þetta var ekki nógu gott því það
voru hengilásar fyrir öllum fata-
skápum, engin rúmfot og alls ekki
pláss fyrir okkur öll. Því gátum við
ekki tekið upp úr töskum, þurftum
að sofa með handklæði ofan á okk-
ar í stað sænga og sjálfur þurfti ég
að sofa úti á svölum vegna pláss-
leysis,“ sagði Viðar Þorbjörnsson,
trésmiðurinn sem hafði lengi
hlakkað til að halda upp á fimm-
tugsafmælið sitt á Benidorm ásamt
fjölskyldu sinni „Þessi hótelher-
bergi eru bersýnilega í einkaeign
og síðan framleigð tO íslensku
ferðaskrifstofunnar. Fatnaður eig-
endanna hangir sem sagt í skápun-
um sem eru læstir með hengilás,“
1 'M sagði Viðar sem dó ekki ráðalaus
heldur hringdi í fararstjóra ann-
arrar ferðaskrifstofu sem kom fjöl-
skyldu trésmiðsins fyrir á öðru og
betra hóteli fyrir 180 þúsund króna
aukagjald.
Viðar hafði staðgreitt Spánar-
ferðina með þriggja mánaða fyrir-
vara til að geta örugglega verið á
Benidorm á afmælisdaginn ásamt
átta manna fjölskyldu sinni. Hann
hafði hins vegar ekki gert ráð fyr-
ir því að þurfa að sofa úti á svölum
þann dag með hengilása fyrir öll-
um fataskápum og fjölskylduna
vafða í handklæði á hótelinu þar
sem hann hafði skipulagt veislu
lífs síns með góðum fyrirvara.
< M -EIR
DV-MYND PÉTUR
1 ^ ^ H Í \ r i X*
« 1 | aMi L [
Það var margt um manninn viö Bílanaust í Reykjavík í gær þegar þar fór fram kappakstur á vegum Mótorsportsklúþþs
íslands en þetta er fyrsta keppnin á vegum klúþþsins innan þorgarmarkanna. Þrettán keppendur tóku þátt og fór Þor-
steinn Már Jónsson með sigur af hólmi. Gokart-akstur er vaxandi íþrótt sem 30 keppnismenn stunda að jafnaði.
Stórt mót er fyrirhugað í iok júlí en æfingasvæði klúbbsins er i Kapelluhrauni þar sem er 800 m löng braut. -HH
22 ára maður handtekinn í Leifsstöð:
Með 700 e-töflur
faldar í maganum
- úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir röntgenmyndatöku
Tuttugu og tveggja ára íslenskur
karlmaður var handtekinn í Leifs-
stöð við komuna til landsins í síð-
ustu viku.
Við reglubundið eftirlit fundust
fíkniefni innan klæða á manninum
og grunur lék á að um meira væri
að ræða innvortis. Við nánari eft-
irgrennslan reyndist hann vera
með 700 e-töflur i meltingarvegi.
Verðmæti taflnanna er talið vera
rúmar 2 milljónir króna en smá-
söluverð á e-töflum er 3-3500 kr.
Maðurinn, sem var að koma frá
Amsterdam, var úrskurðaður í
gæsluvarðhald til þriðjudags. Mað-
urinn hefur lítillega komið við
sögu lögreglu áður og þá vegna of-
beldisbrota og neyslu fikniefna.
Málið er í rannsókn hjá fikniefna-
deild lögreglunnar í Reykjavik en
það er það stærsta það sem af er
þessu ári.
Til samanburðar má geta þess að
í stóra fikniefnamálinu svokallaða
í fyrrahaust fundust 6000 töflur og
er það mesta magn sem fundist
hefur. í máli Kios Briggs var um
að ræða 2000 töflur og hlaut hann 7
ára dóm.
Ásgeir Karlsson, yfirmaður
fikniefnadeilar lögreglunnar, sagði
málið á viðkvæmu stigi og að yfir-
heyrslur stæðu yfir. Gæsluvarð-
haldsúrskurður yfir manninum
rennur út á morgun. -HH
Beðið eftir peningum til að knýja þrjá strætisvagna með vetni:
220 milljónir frá Brussel
- nánast í höfn segir forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
„Þetta er nánast í höfn,“ sagði
Guðmundur Þóroddsson forstjóri
Orkuveitu Reykjavíkur um 220
milljóna króna styrk frá Evrópu-
sambandinu til vetnisrannsókna
hér á landi sem búist er við að
verði afhentur innan skamms. „í
framhaldinu verða smíðaðir þrír
vetnisknúnir strætisvagnar sem
verða reyndir á götum höfuðborg-
arinnar í þrjú ár. Þetta er aðeins
fyrsta skrefið en markmið okkar
er að ísland verði rannsóknarmið-
stöð vegna notkunnar vetnis sem
eldsneytis í skip þannig að við get-
um fyrir alvöru farið að standa við
Kyoto-bókanir okkar," sagði Guð-
mundur Þóroddsson sem er stjóm-
armaður í Nýorku sem er fyrir-
tæki í eigu Chrysler-bílaverksmiðj-
anna, Shell olíufélagsins, Norsk
Hydro og svo Vistorku sem er is-
lenski angi fyrir-
tæksins sem beitir
sér fyrir þvi að
vetni verði tekið
upp sem eldsneyti
í farartækjum.
“Það liggtu- um-
sókn frá okkur hjá
Evrópusamband-
inu og við erum
bjartsýnir á að fá
þetta,“ sagði
Hjálmar Ámason
alþingismaður um
milljónirnar 220
...... frá Evrópusam-
bandinu en Hjálmar hefur sem
kunnugt er verið ötull talsmaður
rannsókna á vetni sem eldsneytis
fyrir bifreiðar og önnur farartæki.
“Ég vil ekki tjá mig um neinar
tölur. Þetta er á viðkvæmu stigi og
Guömundur
Þóroddsson
Næst verður
það vetnið í
fiskiskipa-
flotann.
við höfum verið
beðnir um að tjá
okkur ekki um
upphæð styrksins
frá Evrópusam-
bandinu. Menn
hafa áður brennt
sig á því að segja of
I mikið of fljótt,"
sagði Hjálmar
Árnason.
Guðmundur Þór-
oddsson segist hins
vegar fastlega bú-
ast við að vetnis-
vagnamir þrír verði komnir í um-
ferð á götum höfuðborgarinnar eft-
ir 2-3 ár merktir Strætisvögnum
Reykjavíkur sem tákn um nýja og
betri tíma.
-EIR
Hjálmar
Árnason
Vill ekki segja
of mikið of
fljótt.
Leiksvæði barna:
Drengurfékk
mikil brunasár
DV, HVERAGERDl:
„Vinur minn var með kveikjara
og við sáum einhvem stóran brúsa
með einhverju bensíni eða ein-
hverju ofan í og svo kveikti hann í
og svo logaði. Svo þegar hann ætlaði
að slökkva sparkaði hann í dolluna
og þá skvettist á mig. Kannski var
þetta bensín, sagði Sindri Heiðars-
son, 9 ára drengur í Hveragerði, í
gær. Hann slasaðist iíla af eldsneyti
sem var á umtöluðum ruslahaug við
„Húsið á sléttunni" í Hveragerði, í
næsta nágrenni við Eden og við
Suðurlandsveginn. Sindri sagði að
sér hefði ekki liðið illa en hélt að
kannski væri hann að væri að
deyja, segir að sig hafi svimað tals-
vert. Hann hlaut mikil brunasár.
Vegaframkvæmdir standa nú yfir
í götunni Bláskógum í Hveragerði
þar sem ruslagámar hafa verið. Á
meðan á framkvæmdum stendur
hafa gámamir verið fluttir á svæðið
þar sem „Húsið á sléttunni" er,
mörgum Hvergerðingum og ferða-
mönnum til ama.
Björgvin Sigurðsson, stjúpfaðir
Sindra Heiðarssonar, sagði í gær-
kvöld að hann væri mjög óhress
með staðsetningu ruslagámanna og
sérstaklega þar sem krakkamir
sæktu í leik þar. -eh
Nánar á bls. 8
Suðurnes:
Skammbyssa og
lamb finnast í bíl
Lögreglan í Keflavík fann skamm-
byssu og lifandi lamb í bifreið sem
var stöðvuð í Innri-Njarðvík um
sexleytið í gærmorgun. Fjórir menn
voru í bílnum og var þremur þeirra
sleppt eftir yfirheyrslur en eiganda
skammbyssunnar haldið eftir en
hann hefur áður komið við sögu lög-
reglu. Lögregla hafði fengið upplýs-
ingar um að byssa væri í fórum
mannanna en hún reyndist óhlaðin.
Ekki er enn ljóst hvort málið tengist
fundi 6 dauðra kinda við nýju rat-
sjárstöðina við Sandgerði á laugar-
dag. -HH
Mtrmíra)
WdDOD
Gæði og glæsileiki
Csólbaðstofa)
Grensásvegi 7, sími 533 3350.