Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2000, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2000, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 DV Fréttir Mörg hús á Hellu stórskemmd eftir hamfarirnar: Yfir 30 hús óíbúðarhæf eða mikið skemmd Ekki er óvarlegt að áætla að yfir 30 hús séu afar illa farin eða óíbúðarhæf á Hellu eftir jarð- skjálftann á laugardag. DV gerði úrtak á húsum á svæðinu og komst að því að 21 hús er mjög iila farið eða óíbúðarhæft. Bygg- ingarfulltrúi vesturhluta Rangár- vallasýslu, Sigbjörn Jónsson, hef- ur einnig kannaö skemmdir á svæðinu og telur að um 11 hús séu óíbúðarhæf og að auki séu um 20 hús sem þurfi að laga. Hann vildi þó ekki gefa DV upplýsingar um þau hús sem talin eru mikið skemmd eða óíbúðarhæf. „Það eru upplýsingar sem mér er ekki heimilt að gefa upp. Tölu- vert er um að hús séu skemmd eða algjörlega óíbúðarhæf. Einnig eru til hús sem fólk vill einfald- lega ekki búa í lengur - ekki vegna skemmda heldur af ótta við annan jarðskjálfta." Sigbjöm vildi ekki kannast við að skýrslu sem hafði verið gerð um ástand húsa á Suðurlandi hefði verið stungið undir stól af ótta við fall á fasteignaverði. „Sú skýrsla var eingöngu byggð á úrtaki sem gert var á hverjum stað fyrir sig og er vonlaust að al- hæfa nokkuð út frá henni. Mörg af þeim húsum sem hér eru voru byggð fyrir 1978 en þá var bygging- arlöggjöf fyrir allt landið sam- þykkt. Mörg þeirra húsa sem voru reist fyrir 1978 voru því miður ekki nægilega vel byggð - en mörg voru ákaflega vel byggð og standa enn og munu standa um ókomna tið. Innveggir í mörgum húsum virðast líka hafa farið illa. Þá stendur húsið sjálft heilt en inn- veggimir hafa verið hlaðnir og því ekki þolað mikinn kipp.“ En hvernig eru hús sveitar- stjórnarinnar? „Mér hefur ekki gefist tími til þess að fullkanna það enn þá en það íitla sem ég hef skoðað virðist vera í góðu lagi,“ sagði Sigbjörn Jónsson byggingarfulltrúi. -ÓRV Ekki óvarlegt aö áætla 100 milljóna króna tap: 6 mánuðir í að allt komist í fyrra horf - segir Ragnar Pálsson, glerverksmiðjunni Samverki „Við munum væntanlega ekki ná upp fyrri framleiðslugetu fyrr en eft- ir nokkrar vikur eða mánuði," sagði Ragnar Pálsson, framkvæmdarstjóri glerverksmiðjunnar Samverks, með- an á hreinsun stóð í gær. „Það sem við óttumst kannski helst er að eitthvað af vélunum kunni að hafa skemmst og þá þurfum við að láta senda eftir varahlutum til Ítalíu eða Þýskalands. Það á líklega eftir að taka um viku að hreinsa upp héma í verksmiðjunni og þá getum við kann- að skemmdir á vélunum okkar. Fyrst um sinn munum við ekki geta sinnt neinum framleiðslubeiðnum nema al- gjömm neyðartilvikum." Allt er á tjá og tundri í þessarri elstu glerverksmiðju landsins. Hætturnar á svona stað eru margar og ef menn gæta sín ekki er voðinn vís. Þetta sannreyndi blaðamaður DV í gær með þeim afleiðingum að sauma þurfti 13 spor í fót hans. Til allrar hamingju hafa slysin ekki orðið fleiri á þessum stað og átti einn starfsmaður verksmiðjunnar fótum fjör að launa þegar skjálftinn reið yfir. Sá starfsmaður stökk upp á glerskurðarborð verksmiðjunnar á meðan gler allt í kringum hann hrundi niður og mölbrotnaði. -ÓRV DV-MYND TEITUR Tungufljótsbrú löskuð Gamla brúin yfir Tungufljót hefur veriö lokuö síöan jaröskjálftinn sterki skók landiö á laugardag en hún þykir ótrygg yfirferöar. Ræðlr enn Enn flæddi úr hita- veitunni í Brautar- holti á Skeiöum í gærdag en eftir skjálftann á laugar- daginn upphófst mikiö flóö heits vatns úr uppsprettunni. DV-MYND TEITUR DV-MYNDIR ÞÖK 100 milljónir í tap Starfsmenn Samverks gera sig tilbúna til þess aö hreinsa upp glerbrot og glerplötur sem höföu eyöilagst í skjálftanum um helgina. Ekkert heilt Tvær gröfur voru notaöar til þess aö ná upp glerinu sem brotnaöi í elstu gler- verksmiöju landsins, Samverki. EEŒSEí; Umdeild tillaga Búist er við að um- deildasta mál á næsta þingi Sam- bands ungra fram- sóknarmanna verði tillaga um að ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu. Þingið verður haldið að Hólum í Hjaltadal um næstu helgi. Svo gæti farið að Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknar, fengi áskorun frá ungliðahreyfmgunni um aðild að sambandinu. Dagur greindi frá. Vextir hækka - króna styrkist Krónan hækkaði um 0,46 prósent í gær í kjölfar vaxtahækkunar Seðlabankans um hálft prósentu- stig, 50 punkta. í febrúar, þegar vextir voru síðast hækkaðir - að- eins um 30 punkta - styrktist gengi krónunnar meira en nú hefur gerst. Sumarexem rannsakað Starfshópur á vegum landbúnaðar- ráðuneytisins hefur lagt til að hafm verði vinna við rannsóknarverkefni í sumarexemi í hrossum. Heildarkostn- aður við verkefnið er talinn nema um 82 milljónum króna. Sumarexem hef- ur valdið hruni í útflutningi á íslensk- um hrossum. RÚV greindi frá. íslenskur knapi í keppnisbann íslenskur hestamaður, sem keppti undir áhrifúm áfengis á reiðmóti í Nörrköbing í Svíþjóð, hefur verið dæmdur í keppnisbann. Knapinn, sem keppti í búningi félags tamninga- manna, VEir áminntur fyrir grófa reið- mennsku. Málið þykir síst til þess fall- ið að bæta ímynd íslenskra hesta- manna erlendis. Vísir.is greindi frá. VIII hækkun Helgi Hjörvar, for- maður Félagsmála- ráðs Reykjavíkur, vill beita sér fyrir hækkun félagslegra lána til bammargra flölskyldna. Helgi segir þetta álit sitt í kjölfar nýlegrar ákvörðunar húsnæðisnefndar um lækkun hámarks viðbótarláns í 25 pró- sent af húsbréfaláni. Það þýðir að lán til borgarbúa úr opinbera lánakerfmu geta hæst orðið 8.025 þús. krónur. Dag- ur greindi frá Ráðist á íslendinga í Póllandi Ráðist var á íslensk hjón á áttræðis- aldri úr Kópavogi þegar þau voru á ferði í Gdansk í Póllandi á flmmtudag í síðustu viku. Árásarmennimir náðu vegabréfúm hjónanna en aðeins jafn- virði um 330 króna í peningum. Farið var með Islendingana á sjúkrahús. Maðurinn hafði hlotið áverka á öxl en konan á auga. Fólkið var í skipulagðri ferð með fleirum. Samkvæmt frétt Mbl. lagði fólkið af stað til íslands í gær. íslenska skútan í forystu Skútan Besta, sem er með íslenska áhöfn, var í forystu í alþjóðlegu sigl- ingakeppninni frá Paimpol i Frakk- landi í gær. Ferðinni er heitið til Reykjavíkur þar sem búist er við kepp- endum næstkomandi sunnudag. 12 ís- lendingar em í áhöfn Bestu en 13 skút- ur taka þátt í keppninni. Vísir.is greindi frá. Kvarnaöist úr Alþingishúsinu Þegar jarðskjálft- inn stóri reið yfir á laugardag kvamað- ist úr lofti og veggj- um Alþingishússins, að sögn Friðriks Ólafssonar, skrif- stofústjóra Alþingis. Þörf er á viðgerðum á stöku stað í húsinu. -ótt/JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.