Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2000, Blaðsíða 11
11 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 PV__________________________________________ Útlönd Flóttamennirnir sem létu lífið í flutningabíl í Dover: Börðu í örvæntingu á sjóðheita veggi gámsins Mennimir tveir, sem fundust á lífl í flutningabílnum í Dover í Englandi innan um 58 lik, hafa greint frá því að flóttamennimir, sem voru af asísku bergi brotnir, hafi fuilir örvæntingar reynt að flýja úr gáminum áður en þeir létust. Breska lögreglan vonast til að geta yfirheyrt þá sem komust lífs af betur i dag. Lögreglan óttast um ör- yggi mannanna tveggja og lætur vopnaða verði gæta þeirra. Þeir sem komust lífs af greindu frá því í gær með aðstoð túlks að þeir sem létust hefðu hrópað á hjálp, barið á veggi gámsins og reynt að komast út áður en þeir létu lífið. Talið er að fólkið hafi kafnað. Flutningabíllinn, sem var skráður í Hollandi, kom frá Zee- brúgge í Belgíu til Dover, á heitasta degi sumarsins til þessa í Bret- landi. Hitinn fór upp í 30 stig. Og í gáminum, sem var lokaður, hafði A hafnarbakkanum í Dover Lögregla rannsakar farm flutningabílsins sem 58 lík flóttamanna fundust í. loftkælingin ekki verið sett í sam- band. Tollverðir fundu líkin er þeir könnuðu innihald flutningabílsins. Á fraktseðlinum stóð að farmurinn væri tómatar. Talið er að kínversk samtök hafi smyglað fólkinu úr landi. Sú kenn- ing fékk byr undir báða vængi í gær þegar kínverskur lögmaður, sem býr i Bretlandi, tjáði BBC í gær- kvöld að fólk, sem kvaðst hafa átt ættingja um borð í flutningabílnum, hefði haft samband við hann. Fjöldi glæpasamtaka í Kina smyglar árlega tugum þúsunda Kínverja úr landi. Taka smyglar- amir um 2 milljónir króna á haus. Lögreglumenn um alla Evrópu reyna nú að kortleggja leið flutn- ingabOsins til Zeebrúgge. ökumað- ur flutningabílsins hefur verið handtekinn. Ökumaðurinn er Hollendingur. Beðlð eftir matvælaaðstoð frá SÞ Hópur þorpsbúa bíöur eftir aöstoö í matvælamiöstöö Sameinuöu þjóöanna í bænum Loyengalni i noröurhluta Kenýa. Yfirmaöur Barnahjáipar SÞ, Carol Bellamy, varaöi viö því í gær aö miklu meira þyrfti aö gera til aö hjálpa þeim millj- ónum manna sem eiga um sárt aö binda vegna þurrka í svokölluöu Horni Afriku. Taívanforseti réttir fram sáttahönd: meö leiðtoga Kína Sannleikurinn hjá NATO Madeleine Albright og George Ro- bertson eru aöalkallarnir i NATO. NATO gætir þess að rétti sannleik- urinn komi fram Fréttaþjónusta Atlantshafsbanda- lagsins í höfuðstöövunum í Brussel gætir þess vel að allt sem birtist í fréttabréfi hennar sé í anda hinnar kórréttu stefnu, að því er segir í franska dagblaðinu Libération. Fréttaþjónustan styðst við frétta- skeyti frá Reuter og AFP en passar upp á að strika út úr þeim allt sem ekki passar. Þannig segir Libér- ation að eftir utanríkisráðherrafund NATO dagana 24. og 25. maí hafi all- ar setningar um spennu milli Bandaríkjanna og rikja Evrópusam- bandsins um vamir Evrópu verið þurrkaðar út. Þá var ekkert minnst á áhyggjur Evrópuríkja um fyrir- hugað eldflaugavamarkerfi Banda- rikjanna. Þá segir Libération að franskir diplómatar hafi uppgötvað að gagn- rýni franska utanríkisráðherrans Huberts Védrines um að áðumefnt vamarkerfi kynni að raska valda- jafnvæginu hafi verið þurrkuð út. Franska blaðið segir að hugsana- lögreglan í aðalstöðvum NATO sjái til þess að aðeins sannleikur banda- lagsins komi fram og klykkir út með að allt í heimi NATO hljóti að vera alveg dásamlegt. Vill fund Chen Shui-bian, forseti Taívans, rétti stjómvöldum í Peking sátta- hönd í morgun þegar hann bauð starfsbróður sínum í alþýðulýðveld- inu, Jiang Zemin, til fundar, svipaðs þeim sem leiðtogar Kóreuríkjanna héldu á dögunum. „Ef Norður- og Suður-Kóreumenn geta það, hvers vegna þá ekki ríkin beggja vegna sundsins?" sagði Chen á fundi með fréttamönnum úti undir bem lofti í morgun. Chen sagði að ekki ætti að setja nein skilyrði fyrirfram um fundar- stað og skipulag. Stjórnvöld í Peking hafa krafist þess að stjómin á Taívan fallist á stefnuna um eitt Kína áður en við- ræður verði teknar upp að nýju milli landanna. Kínversk stjómvöld líta á Taívan sem órjúfanlegan hluta Kína. Chen sagði fréttamönnum að stjómvöld í Peking og Taipei hefðu bæði visku og getu til að finna skil- greiningu á „einu Kína“ sem bæði löndin gætu sætt sig við. Hann hélt einnig opnum þeim möguleika að bandarísk stjórnvöld tækju meiri þátt í að bæta samskipti Kína og Taívans. Karl Bretaprins Prinsinn hefur i hyggju aö kvænast ástkonu sinni. Kanna möguleika á giftingu í Skotlandi Heimildarmenn innan skosku kirkjunnar hafa staðfest í viðtali við breska blaðið Sunday Times að ráð- gjafar Karls Bretaprins hafi kannað möguleikana á að prinsinn kvænist ástkonu sinni, Camillu Parker Bow- les, í Skotlandi. Skoska kirkjan er, andstætt ensku kirkjunni, ekki mót- fallin því að gifta fráskilið fólk. Samkvæmt heimildarmanni innan bresku hirðarinnar hefur Karl prins alltaf haft í hyggju að kvænast Camillu. Marc Dutroux Barnaníöingurinn var dæmdur fyrir flóttatilraun. Dutroux dæmdur í 5 ára fangelsi Belgíski bamaníðingurinn og meinti bamamorðinginn Marc Dutroux var í gær dæmdur í 5 ára fangelsi fyrir að hafa ráðist á lögreglumenn og stolið bíl og byssu við flóttatilraun 1998. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða um 150 þúsund krónur í sekt. Dutroux var gripinn þremur klukkustundum eftir flóttann. Dutroux hefur verið í gæsluvarðhaldi í fjögur ár vegna gruns um rán, nauðganir, pyntingar og morö á fjórum ungum stúlkum 1996. Dutroux haföi verið sleppt úr fangelsi 1992 eftir að hafa afplánað 3 ár af 13 ára fangelsisdómi fyrir nauðganir á börnum. Réttað verður yfir honum á ný á næsta ári vegna voðaverkanna 1996. Troðfull búð af spennandi unaðsvörum ástarlífsins fyrir dömur og herra. Utsala 20.-28. júní Utsala 20.-28. júní Utsala 20.-28. júrtí Smellurammar 40x50 cm, matt, kr. 390. 50x60 cm, glært, kr. 490. 15x21 cm, glært, kr. 70. Álrammar 24x30 cm, svart, kr. 650. 51x66 cm, silfur, kr. 1900. 50x60 cm, silfur, kr. 1900. Trérammar 10x15 cm, kr. 200. 13x18 cm, kr. 270. 18x 24 cm, kr. 400. Innrömmun, 15% afsláttur. RAMMA Plaggöt gefins ef þú kaupir ramma. MIÐSTOÐIN Trérammar margar gerðir, kr. 240. INNRÖMMUN Sóltúni 16- Sfmi 511-1616 • Fax 5111619. Plaggöt 20-50% afsláttur. Segultöflur, 50x55, kr. 900.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.