Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2000, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2000, Blaðsíða 5
5 PlayStation <»«> EURO 2000 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 Fréttir I>V í Euro 2000 knattspyrnuleiknum SPORTR Stund á milli stríöa Mikill fjöldi fólks hefur leitað sér áfallahjálpar á sl. dögum og hvetja aðstandendur RKÍ fólk til þess að leita sér hjálpar. Ritlingur um sálræna skyndihjálp var sendur á öll heimili fyrir tilstilli RKÍ. DV-MYNDIR ÞÖK Áfallahjálp á Hellu Sigurður Jónsson, prestur í Odda, og Elín Jónasdóttir sálfræðingur voru meöal þeirra sem aðstoðuðu þá er leituðu sér áfallahjálpar í grunnskólanum á Hellu. DV-MYND ÞÖK Sparifötin í tösku Bæði íbúðarhús og útihús á bænum Brekkum, rétt vestan viö Hellu, eru gjörónýt. Ábúendur vita ekki hvort þeir koma til með að bregöa búi. Hér má sjá Ragnheiði Jónasdóttur húsfreyju, Eyvind Ágústsson bónda- son og Ágúst Eyvindsson, bónda á bænum. Dagana 23. - 25. júní fer fram stórmót í Euro 2000 Playstation leiknum í stórverslun Skífunnar, Laugavegi 26. Komið og keppið í hreint ótrúlega spennandi knattspyrnuleik með sterkustu leikmönnum Evrópu. Veglegir vinninngar í boði. Skráning fer fram í stórverslun Skífunnar, Laugavegi 26, dagana 19.-21. júní. Ekkert þátttökugjald. Takmarkaður fjöldi þátttakenda Mikill fjöldi fólks leitar áfallahjálpar vegna skjálftanna: m ottaslegið - segir Elín Jónasdóttir hjá Rauöa krossi íslands Yflr 30 manns leituðu sér áfallahjálpar á Hvolsvelli á laugardagskvöldið. Síðan þá hef- ur mikill fjöldi fólks komið í tímabundnar bækistöðvar Rauða krossins í grunnskólanum á Hellu. Mikill óhugur er í fólki og þá sér- staklega börnum. Aðstandendur RKÍ segja að áberandi sé að fólk sem var heima við þegar skjálftinn reið yfir leiti hjálpar. Ástæður þess eru eins margar og fólkið sem leitar hjálpar- innar. Fólk er óttaslegið, hrætt við að atburðirnir endurtaki sig, hefur jafn- vel misst hús sín og óttast hvað muni taka við. Elín Jónasdóttir heldur utan um sálræna skyndihjálp RKÍ: „Það er ákaflega mikilvægt að fólk átti sig á því að þær tiifinningar sem það upplifir eru eðlilegar. Fólki sem líður illa er ráðlagt að tala við ein- hvem um líðan sína - hvort sem það er einn af þeim 20 sjálfboðaliðum sem eru hér í bækistöð Rauða krossins eða einhver sem er því nákominn." Aðspurð sagði Elín að einungis lítið brot fólks bíði varanlegan sálrænan skaða vegna atburða á borð við þenn- an. „Það er í raun fremur sjaldgæft að áhrifanna gæti í langan tíma. Við hvetjum fólk hins vegar til þess að ræða tilfinningar sínar og létta á sér. Eins er ekki úr vegi aö benda á sálrænu skyndihjálparnámskeiðin sem í boði eru hjá RKÍ um land allt. Þeim sem vilja kynna sér það nánar er bent á að hafa samband við sína svæðisdeild." -ÓRV Fólk er mjög

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.