Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2000, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2000, Blaðsíða 7
7 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 I>V Fréttir Hundruð lampa féllu í gróðrarstöðvum á Suðurlandi: Mildi að eng- inn varð undir - segir garðyrkjubóndi „Garðyrkjuhúsin gengu til um 50 sentímetra og ég er mest hissa á að aðeins rúmar 10 rúður skuli hafa brotnað," segir Helga Karlsdóttir I Gróðrarstöðinni Melum á Flúðum. I jarðskjálftanum títtnefnda á laugardaginn féliu tugir lampa nið- ur úr loftinu og er tjónið metið á rúmar 2 milljónir en Helga segir sitt fólk hafa sloppið vel þrátt fyrir eignatjón. „Það var mesta lán að enginn skyldi vera inni í gróðurhúsinu því hver lampi er um 15 kíló að þyngd og það er aldrei að vita hvemig hefði farið ef einhver hefði orðið undir,“ segir hún. Að sögn Helgu er það ekki bara gróðurhúsið sem varð illa úti hjá þeim í fjölskyldunni. „Eldhúsið var í rúst, ísskápurinn steyptist á gólfið og það var ekkert á sínum stað í húsinu," segir hún. Helga og fjölskylda hennar voru í heimsókn þegar skjálftinn varð og segir hún aðkomuna hafa verið óþægilega. „Það var megn lykt af mjólk og allt sem gat hafði hrunið á gólflð og ég þakka bara fyrir að enginn varð undir ósköpun- um,“ segir Helga. Það er ljós í myrkrinu fyrir eig- endur gróðrarstöðv- arinnar Mela á Flúð- um að heitavatns- DV-MYND ÞÖK Vatnslagnir sprungnar Víöa gáfu vatnslagnir sig í jaröskjálftanum og hér var unniö í kapp viö tímann til þess aö stööva vatnsleka í kjallara hússins. uppstreymi hefur ná- lega tvöfaldast frá því að skjálftinn varð og því ljóst að nóg verður af heitu vatni á næstunni. Ein af mörgum fleiri gróðrarstöðv- um á Suðurlandi sem urðu fyrir tjóni í jarðskjálftanum var Gróðrarstöðin Hveratún í Laugar- ási i Biskupstung- um. „Það féllu niður DV-MYND TEtTUR 109 lampar féllu Magnús Skúlason, garöyrkjubóndi í Laugarási í Biskupstungum, var í gær vongóöur um aö fá tjón sitt bætt af tryggingum. 109 lampar og rósimar okkar fóru á hliðina," segir Magnús Skúlason, eigandi Gróðrarstöðvarinnar Hveratúns. Magnús segist vona að hann fái tjón sitt bætt en þegar DV kom að máli við hann í gær átti hann von á manni frá tryggingunum sem skera skyldi úr um það. -jtr Þjóöhátíðardagurinn bjargaði Lampinn sem Helga Karlsdóttir á Metum á Fiúöum heldur á vegur um 15 kíló og ekki þarf aö spyrja hvernig hefði fariö ef hann heföi lent á höföi einhvers, en starfsmenn voru hins vegar víös fjarri aö fagna þjóöhátíöardeginum. Nokia 6150 dualband verð: 25-100 kr. (handfrjáls búnaður að verðmæti 4.900 kr. fylgir). Nokia 7110 verð: 29.5OO kr. Nokia 5110 verð: I4.9OO kr. Nokia 3210 dualband verð: I4.9OO kr. (3000 kr. auka afsláttur fylgir ef keypt er intemet- þjónusta Heimsnets. verð: 11.900). Nokia 8210 verð: 38.OOO kr. Nokia 8850 CllUbbOn 120 UIU55UII I verd: 59*9^0 kr. verð: 29.000 kr. verð: 34*9^0 HALLÓ 0 GSM HEIMSNET HEIMUR NETSÍMI Halló býður þér nú hagstæðustu tilboðin á GSM símum án óþarfa skuldbindinga. Tilboðin gilda í verslun okkar að Skúlagötu 19 og munu standa út júní mánuð. Fáðu upplýsingar í síma 53 50 500 eða á www.hallo.is. Frjáls Fjarskipti sími 53 50 500 fax 552 5051 Skúlagötu 19 101 Reykjavík hallo@hallo.is www.hallo.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.