Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2000, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2000, Blaðsíða 24
36 Tilvera ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 1>V 1 i f i ft ■ UUFT A CAFE ROMANCE Lifandi tónlist er öll kvöld. Enski píanóleik- arinn og söngvarinn Miles Dowley skemmtir gestum frá 20-1. ■ UÚFT Á NAUSTINU Enska söng konan og píanóleikarinn Liz Gamm- on sér um Ijúfa tóna á bar og í kon- íakstofu Naustsins. Myndlist ■ USTASAFN EINARS JÓNSSONAR Opnunartími Llstasafns Einars Jónssonar í sumar veröur þannig aö opið er alla daga » nema mánudaga frá 14 til 17. Höggmyndagarðurinn er opinn alla daga. Fundir ■ FYRIRLESTUR UM VATNAJOKUL Helgi Björnsson, Raunvísindastofn- un Háskólans, heldur fyrirlestur á Jöklasýningu Sindrabæ á Höfn í Hornafirði. kl. 20. Fyrirlesturinn nefnist Vatnajökull: tilurð, yfirborð og botn, afkoma og afrennsli íss og vatns. í fyrirlestrinum veröur gerð grein fyrir myndun Vatnajökuls og breytingum hans frá landnámi, nú- verandi stærö hans og þykkt. Lýst verður botni undir jöklinum, sagt frá eldstöövum undir honum, fjöllum og dölum. Greint verður frá afkomu jök- ulsins síðastliðinn áratug og lýst skriði hans og framhlaupum. Rætt verður um afmörkun vatnasviða og afrennsli til jökulflóta, uppsöfnun í lón undir jöklinum og loks rætt um jökulhlaup. Allir velkomnir. Siðustu forvöð ■ ■ HJÖLABRETTAKVÖLD Á INGÓ Hjólabrettakvöld verður á Ingólfs- torgi í kvöld, í samvinnu við Bretta- félag Reykjavíkur. Rampar verða settir upp og tónlistin mun duna fram eftir kvöldi. Kvöldið er hluti af Sumariþróttavikunni. Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is Menningarveisla á Isafirdi í slóð Hannesar Hafsteins sýslumanns er heiti á göngu- og sjóferð sem hefst þar sem Bessa- staðabærinn stóð og minnis- merkið um slysið á Dýraíirði 1899 stendur nú. Lagt verður af stað kl. 14 en gangan er hluti af Menningarveislu á ísafirði. Krár ■ ÆJA I VIKINNI Listakonan Æja lýkur málverkasýningu sinni í Brydebúð f Vík i Mýrdal. Kabarett Oðinn Helgi Jónsson Framkvæmdastjóri Sólheima. DV-MYNDIR NJORÐUR HELGASON. Magnús Á. Árnason, Guðmund Einarsson frá Miðdal, Martein Guðmundsson, Sigurjón Ólafsson, Tove Ólafsson, sem er eini erlendi listamaðurinn, og Ásmund Sveins- son, en verk hans Járnsmiðurinn, var afhjúpað af Birgi ísleifi Gunn- arssyni Seðlabankastjóra við opn- un garðsins sl. laugardag. Verkin eru gjafir stofnana, félagasamtaka og sveitarfélaga til Sólheima. “Upphaflega féll hugmyndin í grýttan jarðveg og við þóttiun stór- tækir. Menn héldu að það væri erfitt að safna í þetta fjármagni, en reyndin hefur ekki verið sú. Eftir því sem verkunum fjölgar hefur Bíógagnrýni orðið meiri sátt um garðinn sem er einstakur að því leyti að hér eru á einum stað verk eftir alla þessa brautryöjendur," sagði Óðinn Helgi. Markmiðið með garðinum er þríþætt, að skapa fagurt og menningarlegt umhverfi í hjarta byggðarinnar, að heiðra með hon- um minningu brautryðjenda ís- lenskrar höggmyndalistar og að laða að ferðamenn og auka þannig tekjur af sölu afurða frá fyrirtækj- um og verkstæðum á Sólheimum. -NH Sam-bíóin/Stjörnubió - Gone in 60 Seconds: i Þjófar, bílar og heimskar löggur Hilmar Karisson skrifar gagnrýni um kvikmyndir Sólheimar í Grímsnesi: DV, SUÐURLANDI:____ Bjöm Bjamason menntamála- ráðherra opnaði á dögunum form- lega höggmyndagarð á Sólheimum í Grímsnesi. Þar er að finna 10 höggmyndir eftir brautryðjendur íslenskrar höggmyndalistar frá aldamótum 1900 til 1950. Þá var opnuð sögusýning með myndum af uppbyggingu og starfi Sólheima frá upphafi í tilefni 70 ára afmælis Sól- heima. Óðinn Helgi Jónsson, fram- kvæmdastjóri Sólheima, segir garðinn hafa verið í uppbyggingu síðustu 12 árin og markmiðið sé að taka inn eitt verk á ári. „Það er samdóma álit listfræðinga að brautryðjendumir séu þeir niu listamenn sem eiga verk í garðin- um“ sagði Óðinn. Myndirnar eru allar i raunstærð en þær eru bronsafsteypur upphaflegra verka. í garðinum era verk eftir níu ís- lenska listamenn, þá Einar Jóns- son, Ríkharð Jónsson, Gunnfríði Jónsdóttur, Nínu Sæmundsson, ssi. Járnsmiðurinn Verk Ásgríms Jónssonar sem var afhjúpaö á laugardag. Höggmynda- garður braut- ryðjenda Bílránin plönuö Nicolas Cage fyrir miöri mynd, í hlutverki meistarþjófsins Mempis Raines, leggur línurnar fyrir félaga sina úr stétt bílaþjófa. Er hægt að gera bílaþjófa að hetj- um? Kannski, ef mælikvarðinn er Gone in 60 Seconds, þvi ekki vantar tilburðina í að sýna okkur fram á hvað bílaþjófar eru miklir töffarar og lögreglan heimsk. Annars eru vits- munimir í myndinni á það lágu plani að sjálfsagt eru það aðeins ungir strákar undir fermingu sem hugsan- lega gætu litið upp til bílaþjófana. Sá sem ábyrgur er fyrir þessari til- raun í að gera bilaþjófa aö hetjum er framleiðandinn Jerry Bruckheimer, sem kannski fer að nálgast þann titil að vera mesti skaðvaldur kvikmynd- anna. Formúla hans er einfold; fyrir 100 milljón dollara skal skrifa einfalda sögu í kringum einhvem rosaatburð, með einu stykki af stórstjömu upp á 20 milljónir dollara, leikstjóra sem segir já við öllu sem hann leggur til, fullmannaða tæknideild af tölvunörd- um, fjölda áhættuleikara þar sem dag- skipunin er að gera betur í dag en í gær og handrit upp á fimm blaðsíður eða minna þar sem áhersla er lögð á að 20 miiljón dollara stjaman fái nokkrar „kúl“ setningar. Bmckheimer er ekki einn um að notast við formúlu þessa og af og til verða til ágætar kvikmyndir þar sem þessi Hollywood-uppskrift er notuð. Bruckheimer hefur meira að segja sjálfur staðið fyrir góðum slíkum myndum, má þar nefna The Rock. En þegar miðað er við gæði síöustu mynda hans, Armageddon og Gone In 60 Seconds, þá virðist kappinn vera útbrunninn og liggur við að maður hugsi með hryllingi til þess hvemig hann mun endurskapa mannkynssög- una í Pearl Harbour, sem hann er að byrja á. Nicolas Cage er stórstjaman í Gone in 60 Seconds. Hann leikur fyrrum bíiaþjóf, Randall „Memphis" Raines, sem hefur snúið af villu vegar en tek- ur að sér að stela fimmtiu bílum þeg- ar litli bróðir, sem hefur dyggilega fylgt í fótspor stóra bróðurs, kiúðrar verki með þeim afleiðingum að stóri bróðir þarf að stela bílunum fimmtíu til að bjarga lif hans. Memphis, sem er þjóðsagnapersóna i faginu, fær með sér reynda kappa og þótt lögreglan fylgist með þeim tekst þeim á nánast auðveldan hátt að stela fjörutíu og níu bílum. Erfiðleikarnir byrja þegar kemur að bíl númer fimmtíu og þá fer einnig atburðarásin út og suður í þeim tilgangi að skapa langt og spenn- andi lokaatriði. Nicolas Cage, Robert Duvall og aðr- ir leikarar hafa ekki úr miklu að moða og eins og vera ber er leikur þeirra vélrænn. Þeir komast þó skammlaust frá hlutverkum sínum. Mest bágt á Angelina Jolie. Hún er fyrst og fremst til skrauts þar sem enginn tOgangur er með hlutverki hennar. í viðtali fyrir frumsýningu sagðist hún hafa litla hugmynd um um hvað myndin væri þrátt fyrir að vera búin að sjá hana. Leikstjóri: Dominic Sena. Handrit: Scott Rosenberg. Kvikmyndataka: Paul Camer- on. Tónlist: Trevor Rabin. Aöalhlutverk: Nicolas Cage, Angelina Jolie, Robert Duvall og Giovanni Ribisi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.