Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2000, Qupperneq 8
8
Fréttir
ÞRIDJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
JOV
Fjöldi húseigenda sem kaupa innbústryggingar að aukast:
Húseignir sjálfkrafa tryggö-
ar gegn náttúruhamförum
- það sama á ekki við um innbú, segir starfsmaður Viðlagatryggingar
Þar sem viðlagatrygging er skyldu-
trygging hjá íslenska ríkinu er ljóst að
öll þau hús sem skemmdust í jarð-
skjálftanum sem gekk yfir landið á
laugardaginn voru viðlagatryggð.
„Viðlagatrygging er skyldutrygging
sem virkar þannig að allar húseignir
sem eru brunatryggðar, sem er lika
skylda, eru viðlagatryggðar,“ sagði Ás-
Anna Líndal
Tumi
Magnússon
Ingólfur
Örn Arnarsson
Listaháskóli íslands:
Fjórir prófess-
orar ráðnir
Ráðnir hafa ver-
ið fjórir prófessor-
ar við myndlistar-
deild Listaháskóla
íslands. Prófessor-
arnir eru Anna
Líndal, Einar
Garibaldi Eiríks-
son, Ingólfur Öm
Amarsson og
Tumi Magnússon.
Öll hafa þau víð-
tæka reynslu sem
myndlistarmenn
og kennarar í
myndlist. Gimnar
Harðarson heim-
spekingur hefur
og verið ráðinn
gestaprófessor við
deildina.
Hjálmar H.
Ragnarsson rektor
sá um ráðningu en
umsóknir um pró-
fessorsstöðumar
vom alls átján.
Dómnefnd um mat
á hæfi umsækj-
enda komst að
þeirri niðurstöðu
að átta umsækjendur teldust „vel hæf-
ir“, þrír „hæfir“ en sjö töldust ekki
uppfylla sett skilyrði. -þhs
Maöur tryggir ekki eftir á
Á meöan húseignir eru skyldutryggöar gegn náttúruhamförum er húseigendum þaö í sjálfsvald sett hvort
þeir tryggja innbú sín.
Gunnar
Harðarson
Elnar Garibaldl
Eiríksson
geir Ásgeirsson, starfsmaður Viðlaga-
tryggingar íslands. Hins vegar er fólki
það í sjálfsvald sett hvort það tryggir
innbú sitt. Ef fólk brunatryggir lausa-
muni, þá kaupir það sjálfkrafa viðlaga-
tryggingu á innbúi um leið.
Viðlagatrygging íslands er opinber
stofnun sem sett var á stofn á áttunda
áratugnum eftir eldgosið í Vestmanna-
eyjum. Henni er ætlað að bæta beint
tjón af völdum eftirtalinna náttúm-
hamfara; eldgosa, jarðskjálfta, snjó-
flóða, skriðufalla og vatnsflóða. Stofn-
unin er ekki búin að gera sér grein fyr-
ir hversu mikið fjónið varð um helg-
ina, en Ásgeir sagði ljóst að gríðarlega
mikið væri um lítil tjón. „Þetta kemur
allt í ljós, en aðalatriðið er að fólk sem
er með tryggingu fær sitt tjón bætt,"
sagði Ásgeir.
„Það er ákveðin forsjárhyggja með
húseignimar þar sem fólki er gert
skylt að bæði bruna- og viðlagatryggja
þær. Hins vegar er fólki í sjálfsvald
sett hvort það kaupir tryggingar á inn-
búið. Ef fólk ákveður að gera það ekki,
þá hlýtur það að vera undir það búið
að fá engar bætur ef það verður fyrir
tjóni af völdum náttúruhamfara. Mað-
ur tryggir ekki eftir á,“ sagði Sigmar
Ármannsson, framkvæmdastjóri Sam-
bands íslenskra tryggingafélaga.
Árið 1991 olli mikið rok talsverðu
eignatjóni á Islandi og í framhaldi af
því kannaði Samband íslenskra trygg-
ingafélaga í hversu miklum mæli eign-
ir íslendinga væm óvátryggðar saman-
borið við Norðurlöndin. Þá kom í ljós
að íslendingar stóðu að baki öðrum
Norðurlandaþjóðum - einungis um tvö
af hverjum þremur heimilum á land-
inu höfðu valið að tryggja innbú sitt.
Sigmar sagði að síðan þá hefði ástand-
ið batnað. „Okkur sýnist að á síðustu
árum hafl fólk verið jaflit og þétt að
auka kaup á frjálsum eignatrygging-
um,“ sagði Sigmar. -SMK
Jarðskjálftinn á laugardag mældist 6,5 á Ricther:
Yfirborðsbylgjur
nákvæmari í
þessu tilviki
Ástæðan fyrir því að jarðskjálft-
inn sem gekk yfir landið á laugar-
daginn hefur verið mældur bæði
sem 5,7 á Ricther-skala og 6,5 á
sama skala er sú að til eru tvær
leiðir til þess að mæla jarðskjálfta
á þessum skala. Páll Halldórsson,
jarðeðlisfræöingur á Veðurstofu ís-
lands, útskýrði að á fiórða áratugn-
um uppgötvaði Kalifomíubúinn
Charles Richter leið til þess aö
mæla jarðskjálfta.
„Síðan kom það í ljós að skalinn
sem Richter notaði upphaflega
hentaði ágætlega til þess að mæla
tiltölulega nálæga skjálfta, en var
ekki góður á Qarlæga skjálfta,"
sagði Páll. Aðferðir Ricthers voru
þá þróaðar í tvær áttir. Annars
vegar er útslagið á fyrstu tveim
bylgjum skjálftans, p og s bylgjun-
um, mælt. Mælingar á þessum
bylgjum eru nytsamlegar þegar um
skjálfta allt að 5,5 til 6 er að ræða,
en þær geta vanmetið styrkleika
stórra skjálfta.
Hins vegar er notast við mæling-
ar á yfirborösbylgjum. „Þegar mað-
ur er með stóra skjálfta, þá fylgja í
kjölfarið svokallaðar yfirborðs-
bylgjur sem ferðast eftir yfirborði
jarðar ekki ósvipað og bylgjur ofan
á vatni ef þú lætur stein detta I
vatn. Þær bylgjur hafa lægri tíðni
og berast mjög langt,“ sagði Páll.
Vegna þess hve stór þessi skjálfti
var eru yfirborðsbylgjurnar ná-
kvæmari í þessu tilfelli, og þvi
telst skjálftinn hafa mælst 6,5 á
Richter.
-SMK
HEILDARVIÐSKIPTI 751,7 m.kr.
Hlutabréf 113 m.kr.
Ríkisbréf 236 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
©Össur 19,34 m.kr.
©íslandsbanki FBA 11,80 m.kr.
© Sjóvá-Almennar 11,30 m.kr.
MESTA HÆKKUN
©Sjóvá-Almennar 17,30%
© Þormóöur rammi 6,12%
©íslandsbanki FBA 5,76%
MESTA LÆKKUN
© Skeljungur 3,23%
© Flugleiöir 2,24%
© Landsbankinn 2,17%
ÚRVALSVÍSITALAN 1,69%
- Breyting O 1.524,9
Austurbakki á VÞI á morgun
Austurbakki hf. verður skráður á Að-
allista Verðbréfaþings íslands miðviku-
daginn 21.6. 2000. Skráð hlutafé er kr.
14.400.000 að nafnvirði. Auðkenni Aust-
urbakka hf. í viðskiptakerfi Verðbréfa-
þings verður HL/AUSTURB. Félagið
verður tekið inn í heildarvísitölu Aðall-
ista og vísitölu verslunar og þjónustu
mánudaginn 26. júní. Hluthafar Austur-
bakka eru nú 705 talsins.
íhuga að auka olíuframleiðslu
Ah Rodriquez, formaður Opec og ollu-
málaráöherra Venezúela, segir að samtök-
in kunni að auka olíuframleiðslu til þess
að stuðla að stöðugra ohuverði. Rodriquez
segir að hátt olíuverð nú sé ekki afleiðing
framleiðslustýringar heldur afleiðing spá-
kaupmennsku og hás bensínverðs í
Bandaríkjunum. Opec heldur aukafúnd i
dag og á morgun til að ræða olluverð og
framleiðslutakmarkanir.
Óbreytt verðbólga
Verðbólga á evrusvæðinu var 1,9% í
maí, sem er óbreytt frá þvi í apríl, að
því er fram kemur í frétt frá Eurostat,
hagstofu Evrópusambandsins. Á fjár-
málamarkaði hafði almennt verið búist
við að verðbólga hækkaði litillega frá
því í apríl.
síöastliöna 30 daga
© Össur
o Islandsbanki-FBA
© Húsasmiðjan
0 Eimskip
© Baugur
363.109
265.958
240.246
165.658
143.959
llúlVlIiliriiliI.ViMJ sioas I © Samvinnuf. Landsýn tnona 30 daga 17%
© Nýheiji 16%
© Opin kerfi 15%
© Stálsmiðjan 9%
©Tæknival 8%
síöastllöna 30 daga
1 © Loðnuvinnslan hf. -20%
I © Fiskiðjus. Húsavíkur -18%
I © Delta hf. -12%
O síf -12%
||ö .. I
iEÍPOW JONES 10557,84 O 1,04%
F*1nikkei 16907,55 O 1,91%
BHs&p 1486,00 O 1,47%
fclNASDAQ 3989,83 O 3,35%
EíSftse 6521,00 O 0,47%
FFFpax 7262,74 O 0,89%
ÖCAC40 6570,64 O 1,01%
20.6.2000 kl. 9.15
KAUP SALA
HriÍPollar 75,680 76,060
S^Pund 114,510 115,090
B*ÍKan. dollar 51,540 51,860
tiSlDönskkr. 9,7220 9,7760
ríriS Norsk kr 8,7910 8,8400
: Sænsk kr. 8,7600 8,8080
5“]fí. mark 12,1911 12,2644
B jB Fra. franki 11,0503 11,1167
riBelg. franki 1,7969 1,8077
E3 Sviss. franki 46,4800 46,7300
VJVHoll. gyllini 32,8922 33,0899
Þýskf mark 37,0610 37,2837
J, j ít líra 0,03744 0,03766
QQAust. sch. 5,2677 5,2993
Port. escudo 0,3616 0,3637
msuá. poseti 0,4356 0,4383
[IjJap. yen 0,71640 0,72070
| lírskt pund 92,036 92,590
SDR 101,0400 101,6500
5Uecu 72,4850 72,9205