Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2000, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2000, Page 9
9 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 X>V Fréttir Upplýsingar um lyfjanotkun og lyfjakostnað á íslandi í tíu ár: Gríðarlega auk- in lyfjanotkun Jjfas Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytið hefur geflð út ritið Notkun lyfja á íslandi 1989 til 1999. I ritinu eru dregnar saman tæm- andi upplýsingar um lyfjanotkun og lyfja- kostnað á íslandi í tíu ár. Þetta tímabil ein- kennist helst af örri þróun í lyfjaiðnaði, nýj- um og dýrari lyfjum og mikilli þróun í meðferð sjúkra með lyQum sem hefur leitt til gríðar- legrar útgjaldaaukning- ar vegna lyfjakostnað- ar. Til marks um þessa öru þró- un er að skv. - - skýrslunni var helmingur þeirra lyfja sem neytt var lyf sem komu á mark- að á íslandi árið 1990 eða síðar en söluverð þesara lyfja var næstum 3/4 af heildarsölu lyfja. Úttektin sýnir einnig umtals- verða aukningu á notk- un lyfja, eða um 38% heildaraukningu á skil- greindum dagsskömmt- um. í tilteknum lyfja- flokkum hefur notkun- in meira en tvöfaldast á þessum áratug. Aðgerðir til að draga úr lyfjakost- aði Heilbrigðisyfirvöld á íslandi hafa reynt að dragá úr lyfjaneyslu og lyfjaávísunum með ýms- um hætti: 1) Lyfjainn- kaupum á sjúkrahús- um, hjúkrun- i arheimilum og öðrum heilbrigðisstofnunum var breytt til að freista þess að draga úr aukningu lyfjaútgjalda. 2) Reynt var að stuðla að sam- hliða innflutningi og beinum inn- flutningi lyfja. 3) Lyfjaverðsnefnd var falið að gera kröfur um verðlækkun lyfja sem eru dýrari hér en í nálægum löndum. 4) Greiðsluhlutdeild neytenda í lyfjaverðinu var aukin á grundvelli lækkunar neysluverðsvísitölu lyfja. Á undanfornum mánuðum hefur einnig verið unnið að þróun Lyfja- vals, upplýsingabanka um lyf og kostnað og á vegum embættis Land- læknis hafa læknar verið heimsótt- ir með það að markmiði að sýna þeim fram á faglegan og fjárhagsleg- an ávinning af markvissum lyfjaá- vísunum. 1 síðustu viku gaf heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra út tvær reglugerðir sem eiga að hafa áhrif á lyfjakostnað í landinu. Nánar verð- ur fjallað um þessar reglugerðir á neytendasíðu síðar. Skýrslan Notkun lyfja á íslandi 1989 til 1999 er aðgengileg á heima- síðu Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytisins. irgr<a 9.000 8.000 7.000 6.000 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 BÝmislyf Lyfjanotkun á íslandi IB Augna- og eyrnalyf 1989-1999 Öndunarfæralyf Sníklalyf g: ; Tauga- og geölyf Vöðvasjúkdóma- og beinagrindarlyf ~j Æxlahemjandi B Sýklayf Hormónalyf, önnur en kynhormónar Ð Þvagfæralyf og kynhormónar BHú0lyf m ]] Hjarta- og æðasjúkdómalyf B Blóölyf I I Meltingarfæra- m I_i og efnaskiptalyf Milljónir I_______[ J I I I L J L króna 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 Kynslóðirnar snæða saman „Samveruform nýrrar aldar“ hef- ur hún verið nefnd máltíðin sem á ensku heitir „brunch". Heitið er samsett úr „breakfast" (morgun- verður) og „lunch“ (hádegisverður) og máltíðarinnar er neytt venjuleg- ast á bilinu 11 til 14. Á undan getur fjölskyldan farið í gönguferð með gestum sinum eða leikið við bömin úti á róluvelli, sparkað bolta eða farið í sund. Þeg- ar heim kemur er hlaðið á borð brauði og einföld- um en gómsætum réttum fyrir aldna sem unga. I vikunni sem leið kom út bók hjá PP forlagi um fyrirbrigðið „brunch" eftir Danann Lynn Andersen: Brunch á 100 vegu. Fyrir- bærið - að byrja seint að borða morgunverð eða snemma að borða hádegisverð - nýt- ur talsverðra vin- sælda í grannlöndum okkar, bæði 1 heimahúsum og á veitingastöðum sem sum sérhæfa sig í þess háttar matargerð. Tíminn er þægilegur fyrir bamafólk, ekki þarf að fá bamfóstru þegar maður fer i matar- boð að morgni til heldur hefur mað- ur rollingana með sér og reyndar er brunch ákaflega fjölskylduvænn, allar kynslóöir geta verið með því einfalt og sjálfsagt er að hafa á borð- um eitthvað fyrir alla. „Brunchinn" getur orðið afar fjöl- breyttur og spennandi. Réttir geta verið bæði eða ýmist heitir eða kaldir, kjöt, grænmeti, eggjaréttir, brauðmatur, ávextir, samlokur, kökur - og ómissandi eru vöfílur, pönnukökur eða skonsur með osti eða sætu ofan á. Nýpressaður ávaxtasafl ætti að vera skylda, einnig eru kafíl og te á borðum, jafnvel freyðivín... „Brunchinn" má helst ekki taka mikinn tíma og flest- ir réttimir í bókinni eiga sameigin- legt að þá má útbúa á innan við hálftíma; suma þarf að vísu að und- irbúa daginn áður. Upplagt er að velja rétti sam- kvæmt ákveðnu þema sem hæfir hópnum, en á brunch-hlaöborði fyr- ir alla fjölskylduna gæti verið sam- ankomið eggjahræra, ofnsteikt beikon, kartöfluréttur, ávextir, reyktur lax, ostar, pylsur, gott brauð, skonsur eða pönnukökur. Uppskriftir eru af ljúffengum bök- um í bókinni með ýmiss konar fyll- ingu, einnig eggjakökum, sultum, kökum, muffms, bæði sætum og ósætum og mörgu fleira. Þess má geta að Café Flora í Gras- garðinum í Laugardal í Reykjavik sérhæfir sig í að framreiða „brunch" og býður upp á þá þjón- ustu á laugardögum og sunnudög- um í sumar frá kl. 11-14. Veitinga- stjóri þar er Marentza Poulsen. AEG Uppþvottavélar Þvottavélar Þurrkarar Sterkstaða íslensku krónunnargagnvart þýska markinu gerir okkur nú kleift að lækka verð á ýmsum heimilistækjum. Auk þess höfum við lagt til nokkurn afslátt til viðbótar svo nú er um að gera að drífa sig og nýta sér aðstæður. ___rííi_ RáDIOMOSf Geislagötu 14 • Simi 462 1300 BRÆÐURNIR Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.