Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2000, Qupperneq 10
10
Útlönd
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
JOV
Tertan er góð
Benita Ferrero-Waldner, utanríkisráö-
herra Austurríkis, gæöir sér á
sachertertu á fundi ESB í Portúgai.
Austurríkismenn
einir gegn öllum
í skattadeilu ESB
Stjómvöld í Austurríki komu í
gær í veg fyrir að samkomulag tæk-
ist um skattlagningu spamaðar
þegna Evrópusambandslandanna
fimmtán, þrátt fyrir aö hin aöildar-
ríkin fjórtán hafi lýst yfir vilja til að
slaka á þeirri pólitísku einangrun
sem Austurríki hefur verið í undan-
farna mánuði.
Fjármálaráðherrar ESB kenndu
Austurríkismönnum hvemig komið
væri þegar þriðju lotu viðræðna
þeirra var slitið seint í gærkvöld.
Austurríkismenn berjast fyrir því
að lög um bankaleynd verði virt.
Embættismenn í ESB vilja ekki
enn afskrifa samkomulag um skatt-
lagninguna. „Við viljum að allir
verði með. Við viljum ekki útiloka
Austurríki," sagði einn þeirra við
fréttamann Reuters.
Antonio Guterres, forsætisráð-
herra Portúgals, sem er í forsæti
ESB, sagði Wolfgang Schússel
Austuríkiskanslara í gær að ESB
væri ekki enn tilbúið til að taka að
nýju upp samskipti háttsettra emb-
ættismanna. Þeim var hætt í janúar
eftir að hægriöfgamenn tóku sæti í
ríkisstjóm Austurríkis.
UPPBOÐ
Uppboö munu byrja á skrifstofu
embættislns að Stillholti
16-18, Akranesi, sem hér segir
á eftirfarandi eignum:
Kirkjubraut 12, Akranesi, þingl. eig. Mar-
ía Jósefsdóttir, gerðarbeiðendur Akranes-
kaupstaður og Vátryggingafélag íslands
hf., mánudaginn 26. júní 2000 kl. 14.
Vallholt 11, efri hæð, Akranesi, þingl. eig.
Þórdís Kristjánsdóttir, gerðarbeiðandi
Lífeyrissjóðurinn Lífiðn, mánudaginn 26.
júní 2000 kl. 14.
SÝSLUMAÐURINN Á AKRANESI.
Rússar bera frétt New York Times til baka:
Ekki leynimakk um
framtíð Milosevics
ígor ívanov, utanríkisráðherra
Rússlands, sagði í gær að rekja
mætti fréttir þess efnis að stjóm-
völd í Moskvu tækju þátt í óformleg-
um viðræðum um að gefa Slobodan
Milosevic Júgóslavíuforseta kost á
að fara frá til frjós ímyndunarafls.
Bandaríska dagblaðið New York
Times hafði það eftir háttsettum
embættismönnum bandarískum og
innan NATO að bandarísk stjóm-
völd og nokkrir bandamenn þeirra
væm að kanna það með Rússum
hvort Milosevic gæti látið af embætti
og fengið tryggingu fyrir því að ör-
yggis hans yrði gætt og hann fengi
að halda sparireikningum sinum.
Blaðið sagði að viðræöurnar
væru viðkvæmar og óformlegar um
framtíð Júgóslavíuforseta. Stríðs-
glæpadómstóllinn í Haag i Hollandi
hefur ákært Milosevic fyrir stríðs-
glæpi.
„Það eru engar leynilegar viðræð-
ur milli Rússa og Bandaríkjamanna
Slobodan Milosevic
Júgóslavíuforseti skoöar sverö sem
honum var fært á degi júgóslavn-
eska hersins fyrir heigi. New York
Times segir viöræöur hafa fariö
fram um framtíö þessa versta óvinar
Vesturveldanna.
um örlög Slobodans Milosevics, leið-
toga Júgóslavíu," hafði RIA-frétta-
stofan eftir rússneska utanríkisráö-
herranum. „Maður þyrfti að hafa
virkilega frjótt ímyndunarafl og það
er greinilegt að heimildarmenn
New York Times hafa það.“
Rússar voru andvígir ellefu vikna
lofthemaði NATO gegn Júgóslavíu í
fyrravor til að stöðva ofsóknir
serbneskra hersveita á hendur al-
banska meirihlutanum í Kosovohér-
aði.
Stjómvöld í Moskvu eru í fá-
mennum hópi sem enn viðheldur
hlýlegum samskiptum við Milosevic
og stjóm hans í Belgrad. Þau hafa
þó hvatt Milosevic til að setjast nið-
ur til viðræðna við stjórnarand-
stæðinga heima fyrir.
Að sögn New York Times hrydd-
aði Bill Clinton Bandarikjaforseti
upp á framtíð Milosevics viö
Vladímír Pútín Rússlandsforseta á
fundi i Moskvu.
Israelskir unglingar mótmæla gegn Barak og stjóm hans
Unglingar úr hópi landnema gyöinga komu saman í almenningsgaröi í Jerúsalem í gær og kröföust þess aö stjórn
Ehuds Baraks semdi ekki um aö rífa tandnema upp meö rótum í friðargerö sinni viö Palestínumenn. Þúsundir
barna landnema tóku sér frí í skóla í gær og héldu til Jerúsalem.
INNKA UPA STOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
F ríkirkjuvegi 3-101 Reykjavík-Sími 570 5800
Fax 562 2616 - Netfang: isr@rhus.rvk.is
ÚTBOÐ
F.h. Orkuveitu Reykjavíkur og Landssíma íslands er óskað eftir
tilboðum í verkið: „Dæluhús OR og tækjahús LÍ ”
verknúmer 0058007.
Verkið felst í að byggja steinsteypt dælu- og tækjahús í Hafnarfirði
og ganga frá að fullu innan- og utanhúss.
Helstu magntölur eru:
Húsflatarmál: 80 m2
Húsrúmmál: 260 m3
Mót veggja: 400 m2
Frágangur lóðar: 250 m2
Raflagnir.
Loftræstikerfi.Hita- og hreinlætiskerfi.
Afhendingartími hússins er: Uppsteypa og frágangur innanhúss
1. september 2000. Fullfrágengið 15. október2000.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá 21. júní 2000
gegn 15.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 28. júní 2000 kl. 14.00
á sama stað.
OVR 100/0
Kjarnorkustöðin í Los Alamos:
Dularfullur fundur
hörðu diskanna
Þrátt fyrir að hörðu diskamir í
kjamorkustöðinni í Los Alamos í
Bandaríkjunum hctfi fundist vekur
hvarf þeirra enn margar spurningar.
Diskamir, sem á voru leynilegar
upplýsingar um kjarnorkuvopn,
fundust nefnilega skyndilega á
fostudaginn á bak við ljósritunarvél
í herbergi sem bandaríska alríkis-
lögreglan hafði tvisvar sinnum leit-
að vandlega í.
Lögreglan hefur nú eflt rannsókn
sína. Kanna á hvort tekið hafi verið
afrit af innihaldi diskanna. Verið er
að yfirheyra starfsmenn og nokkrir
þeirra verða látnir gangast undir
lygapróf. Ekkert þykir þó enn benda
til að um njósnir hafi verið að ræða
þó það sé ekki útilokað.
En jafnvel þó að um hirðuleysi
einhvers starfsmanns hafi verið að
ræða þykir málið vandræðalegt fyr-
ir stjóm Bills Clintons Bandaríkja-
forseta. Repúblikanar á þingi eru
æfir vegna málsins og ætla í vik-
unni að yfirheyra Bill Richardson
orkumálaráðherra sem ber ábyrgð á
kjamorkustöðinni. Segja repúblik-
anar öryggi ábótavant. Hvarf leyni-
legra hemaðarlega mikilvægra
gagna og fundur þeirra á bak við
ljósritunarvél vekur ekki traust.
Hörðu diskarnir hurfu úr læstri
hvelfingu í kjamorkustöðinni í síð-
asta lagi 7. maí. Það var ekki fyrr en
mörgum vikum seinna sem æðstu
ráðamönnum var greint frá hvarf-
inu. Á diskunum voru meðal annars
upplýsingar um hvemig bregðast
skuli við kjarnorkusprengingu
hryðjuverkamanna.
Sprengja við hús ráðherra
Sprengja fannst í
gærkvöld við opin-
beran bústað Peters
Mandelsons, N-ír-
landsráðherra
bresku stjómarinn-
ar. Sprengjan var
gerð óvirk. Mandel-
son var ekki í bú-
staðnum, sem er nálægt Belfast,
þegar sprengjan fannst.
Fékk enga hjálp
Móðir Svíans, sem hefur viður-
kennt að hafa ráðist á tvær systur
með hnífi á fóstudagskvöld og myrt
aðra þeirra, segir að hún hafi árang-
urslaust beðið yfirvöld um aðstoð
vegna slæmrar geðheilsu sonarins
undanfarna mánuði.
Fyrsti geimtúristinn
Bandarískur kaupsýslumaður,
Dennis Tito, vonast til að fá að
dvelja í viku í rússnesku geimstöð-
inni Mir á næsta ári. Farmiðinn og
dvölin myndi kosta nær 2 milljarða
Islenskra króna.
Hindra eftirlit í Simbabve
Yfirvöld í Simbabve hafa komið í
veg fyrir að 200 af 500 alþjóðlegum
eftirlitsmönnum geti fylgst með
þingkosningunum í landinu um
helgina.
Prestur skiptir um kyn
Prestur í ensku kirkjunni, Peter
Stone, hefur fengið leyfi biskups til
að gegna áfram starfi eftir að hafa
skipt um kyn. Sóknarbömin styðja
prest sinn sem ætlar að taka sér
nafnið Carol Stone síðar á árinu.
New York
Gyðingar í New
York hafa boðið
rússneska fiöl-
miðlakónginum
Vladimir Gúsinskí
til heimsborgarinn-
ar til að ræða hand-
töku hans í síðustu
viku og þýðingur
hennar fyrir gyöinga í Rússlandi.
Gúsinskí er hins vegar í ferðabanni
og kemst hvergi.
Gíslum sleppt í Jemen
ítölskum fornleifafræðingi og
jemenskum samstarfsmönnum hans
var sleppt í gær eftir að hafa verið í
haldi mannræningja í fióra daga.
Mannræningjarnir höföu krafist
frelsis tveggja manna úr ættbálki
þeirra sem fangelsaðir voru fyrir
þjófnað.
Gúsinskí til
Ekki fullur stuðningur
Bashar al-Assad,
sonur Hafez al-
Assads Sýrlandsfor-
seta, nýtur ekki
skilyrðislauss
stuðnings eldri kyn-
slóðarinnar í Sýr-
landi, að því er
stjómarerindrekar
fullyrða. Baathflokkurinn í Sýr-
landi kaus Bashar sem leiðtoga sinn
á sunnudaginn.
Afnám viðskiptabanns
Áhrifamiklir aðilar í Bandaríkj-
unum vinna nú að þvi að viöskipta-
banninu gegn Kúbu verði aflétt. Eli-
anmálið hefur ýtt undir baráttuna
þar sem mörgum stendur ógn af
áhrifamætti kúbverskra útlaga í
Miami.