Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2000, Page 22
34
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
DV
Ættfræði
Umsjón: Helga D. Sigur&ardóttír
85 ára_________________________________
Elín Bjamadóttir,
: ■ Réttarholtsvegi 35, Reykjavík.
' Guðrún Sigurðardóttir,
Birkihlíð 6, Sauðárkróki.
Sigurður Aibertsson,
Brúsholti, Reykholtsdalshreppi.
80_ára_________________________________
Þorgrímur Einarsson,
Grenimel 20, Reykjavík.
75 ára_________________________________
Anna Kandler Pálsson,
Hólavallagötu 13, Reykjavík.
Arnþór Þórðarson,
Ásholti 2, Reykjavík.
Ólafur Ólafsson,
Hjálmholti 6, Reykjavík.
■^Sigurmunda Guðmundsdóttir,
Asparfelli 4, Reykjavík.
Þorkell Skúlason,
Birkigrund 43, Kópavogi.
70 ára_________________________________
Björgvin Hannesson,
Seljalandi 3, Reykjavik.
Guömundur Jónsson,
Aratúni 8, Garðabæ.
Jóhann Hannesson,
Giljalandi 17, Reykjavík.
Jósefína Hafsteinsdóttir,
Álfheimum 68, Reykjavík.
Sixten Elof Holmberg,
Laugateigi 15, Reykjavík.
60 ára_________________________________
Agnar Hallgrímsson,
Miðgarði 6, Egilsstöðum.
Grétar B. Grímsson,
* Syðri-Reykjum 3, Árnessýslu.
Helga B. Óskarsdóttir,
Engihjalla 3, Kópavogi.
Valdís Friðriksdóttir,
Mjallargötu 1, ísafirði.
5Qára__________________________________
Alda Guömundsdöttir,
Espigerði 2, Reykjavík.
Anna Sigríður Björnsdóttir,
Fífuseli 20, Reykjavík.
Guðmundur A. Stefánsson,
Lönguhlíð 4, Akureyri.
Guðmundur Lárusson,
Stekkum 2, Árnessýslu.
* Oddný Vilhjálmsdóttir,
Mávahlíð 42, Reykjavík.
40 ára_________________________________
Aðalsteinn Sverrisson,
Klettahrauni 17, Hafnarfirði.
Berglind Þórhallsdóttir,
Hólmgaröi 44, Reykjavík.
Einar Ludvik Einarsson,
Flúðaseli 93, Reykjavík.
Grímur Eggert Ólafsson,
Mánahlíð 1, Akureyri.
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir,
Tunguseli 1, Reykjavík.
Heiða Björg Scheving,
Krókamýri 80, Garðabæ.
Heiöbjört Dröfn Jóhannsdóttir,
Hávallagötu 17, Reykjavík.
Helena Mjöll Jóhannsdóttir,
Austurgötu 29b, Hafnarfirði.
m Höröur Gestsson,
Hraunkambi 5, Hafnarfirði.
Jón Grétar Kristjánsson,
Holtagötu 9, Súðavík.
Margrét Bára Sveinsdóttír,
Byggöavegi 122, Akureyri.
Smáauglýsingar
visir.is
Agnar Hallgrlmsson cand. mag.,
Miðgarði 6, Egilsstöðum, er sextug-
ur í dag.
Starfsferill
Agnar er fæddur á Arnheiðar-
stöðum í Fljótsdal og ólst upp á
Droplaugarstöðum i Fljótsdal. Hann
var í Alþýðuskólanum á Eiðum
1955-1957 og lauk stúdentsprófi frá
MA 1963. Agnar var skrifstofumað-
ur hjá Samvinnutryggingum í Rvík
1966-1968 og lauk cand. mag.-prófi í
íslenskum fræðum í Hl í janúar
1972. Hann var stundakennari í Iðn-
skólanum í Rvík 1972-1973 og próf-
arkalesari á Tímanum 1973-1974.
Agnar var skrifstofumaður hjá
Kaupfélagi Héraðsbúa á Egilsstöð-
um frá vorinu 1974 og þar til hann
lét af störfum vegna aldurs í janúar
nú í ár. Hann hefur ritað nokkrar
greinar um sagnfræðileg efni í ritið
Múlaþing, auk þess sem greinar eft-
ir hann um ýmiss konar efni hafa
birst, meðal annars í timaritinu
Heima er bezt, dagblöðunum Tím-
anum, Degi og Dagblaðinu Vísi og
vikublaðinu Austra.
Fjölskylda
Agnar kvæntist 18.5. 1968 Auði L.
Óskarsdóttur, f. 11. apríl 1945, gjald-
kera á skrifstofu Ríkisspítalanna.
Þau skildu 1974. Foreldrar Auðar
eru Óskar Ágústsson,
húsvörður í Rvík, og
kona hans, Elín Kjart-
ansdóttir.
Systkini Agnars
eru Helgi, f. 11.6. 1935,
náttúrufræðingur á
Egilsstöðum; Ólafur
Þór, f. 18.9.1938, prest-
ur á Mælifelli; Guð-
steinn, f. 7.3. 1945,
bóndi á Teigabóli;
Guðrún Margrét, f.
27.5. 1948, húsmóðir á
Akureyri, og Bergljót,
f. 1.3.1952, húsmóðir í
Haga í Aðaldal.
Foreldrar Agnars
eru Hallgrímur Helga-
son, f. 29. ágúst 1909,
d. 30.12. 1993, bóndi á
Droplaugarstöðum í
Fljótsdal, og kona
hans, Laufey Ólafs-
dóttir, f. 31.5. 1912, húsmóðir.
Ætt
Hallgrímur er sonur Helga, bónda
á Refsmýri í Fellum, Hallgrímsson-
ar, bónda á Bimufelli, bróður Gísla,
fóður Benedikts frá Hofteigi og Sig-
urðar, prests á Söndum, föður Jóns
tónlistarmanns. Hallgrimur var
sonur Helga, bónda á Geirúlfsstöð-
um, bróður Guðrúnar, ömmu Gunn-
ars Gunnarssonar rithöfundar.
Helgi var sonur Hallgríms, skálds á
Stóra-Sandfelli, Ásmundssonar,
bróður Indriða, afa skáldanna Jóns
og Páls Ólafssona. Móðir Hallgríms
á Bimufelli var Margrét Sigurðar-
dóttir, bónda á Mýmm i Skriðdal,
Eiríkssonar, af Njarðvíkurættinni,
og konu hans, Ólafar Sigurðardótt-
ur, af Pamfílsættinni. Móðir Hall-
gríms á Droplaugarstöðum var Agn-
es Pálsdóttir, bónda á Fossi á Síðu,
Þorsteinssonar. Móðir Páls var Agn-
es Sveinsdóttir, bónda á Fossi á
Síðu, Steingrímssonar og konu
hans, Ragnhildar Oddsdóttur,
systur Guðríðar, langömmu Jó-
hannesar Kjarvals. Móðir Agnes-
ar var Margrét Ólafsdóttir, systir
Þuríðar, langömmu Odds Björns-
sonar leikritahöfundar.
Laufey er dóttir Ólafs, bónda í
Holti í Fellahreppi, Jónssonar,
bónda á Skeggjastöðum, Ólafs-
sonar, af Melaættinni. Móðir
Ólafs var Bergljót Sigurðardóttir,
bónda í Geitagerði, Pálssonar og
konu hans, Þorbjargar Jónsdótt-
ur, vefara á Skjöldólfsstöðum,
Þorsteinssonar, ættfóður Vefara-
ættarinnar. Móðir Laufeyjar var
Guðlaug, systir Halldóru,
langömmu Hrafns Gunnlaugs-
sonar. Guðlaug var dóttir Sigurð-
ar, bónda í Kolsstaðagerði, Gutt-
ormssonar, stúdents á Amheið-
arstöðum, Vigfússonar, prests á
Valþjófsstað, Ormssonar, langafa
Ingunnar, móður Þorsteins Gísla-
sonar skálds. Vigfús var einnig
langafl Vigfúsar, langafa Hjör-
leifs Guttormssonar. Móðir Sigurð-
ar var Halldóra Jónsdóttir vefara,
systir Þorbjargar. Móðir Guðlaugar
var Guðríður Eiríksdóttir, bónda á
Hafursá, Arasonar, og konu hans,
Þóru Ámadóttur, bónda á Kappeyri,
Stefánssonar, bónda í Sandfelli,
Magnússonar, ættfóður Sandfells-
ættarinnar. Móðir Áma var Guðrún
Erlendsdóttir, bónda á Ásunnar-
stöðum, Bjarnasonar, ættfóður
Ásunnarstaðaættarinnar.
BMBK
Karl Gíslason
deildarstjóri
Karl Gíslason, deildarstjóri og
umsjónarmaður á Bessastöðum, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Karl fæddist í Reykjavík og ólst
upp á Seltjarnarnesi og Njálsgötu í
Reykjavík.
Hann varð gagnfræðingur frá
Lindargötuskólanum árið 1966.
Hann lauk sveinsprófi frá Hótel- og
veitingaskólanum árið 1972. Hann
lauk einnig seinni önn frá Lögreglu-
skóla ríkisins árið 1977.
Árið 1967 vann Karl við Búrfells-
virkjun og verslunarstörf. Hann var
á m.s. Gullfossi árið 1968 og síðan af
og til allt þar til skipið var selt árið
1974. Árin 1969-1975 vann hann á
Hótel Sögu. Hann hóf störf í Lög-
reglunni í Reykjavík þann 1.4. 1974.
Hann vann einnig í afleysingum við
bifreiðaakstur hjá forseta íslands
frá árinu 1992. Frá 1.8. 1996 hefur
Karl unnið hjá forsætisráðuneytinu
á Bessastöðum við eftirlit og örygg-
isgæslu á húseignum ríkisins.
Karl var í stjóm Lögreglufélags
íslands í Reykjavík frá 1996 til 1997.
Hann hefur lengst af búið í Hafn-
arfirði eða frá árinu 1973 og allt
fram til ársins 1996, í samtals 23 ár.
Fjölskylda
Karl giftist þann 7.10. 1972 Sigur-
björgu Sigurbjömsdóttur deildar-
fulltrúa, f. 26.7. 1951. Hún er dóttir
Ágústu Unnar Guðnadóttur. Þau
eru bæði látin.
Böm Karls og Sigurbjargar eru
Sigríður Líndal, f. 17.4. 1973, ritari,
maður hennar er Veturliði Þór Stef-
ánsson og þau eiga 2 böm; Heiðrún
Líndal, f. 18.1. 1975, launafulltrúi,
hennar maður er Jón Arnar Jóns-
son; Unnur Líndal verslunarmær,
unnusti hennar er Hilmar Óskars-
son.
Systkini Karls eru Sigriður, f.
16.4. 1957, og Súsanna, f. 12.8. 1962,
deildarstjóri.
Foreldrar Karls eru Gísli Kristján
Líndal Karlsson, f. 3.4. 1929, og Guð-
munda Sigríður Eiríksdóttir, f. 3.9.
1929. Þau eru bæði eftirlaunaþegar.
Ætt
Guðmunda Sigríður, móðir Karls,
er dóttir Eiríks Kristjánssonar,
verkamanns í Reykjavík. Hann var
sonur Kristjáns Egilssonar, bónda
og formanns í Hjalla í Ölfusi. Gísli
Kristján, faðir Karls, var sonur
Guðríðar Lilju Sumarrósar Krist-
jánsdóttur, húsmóður í Reykjavík,
og Karls Gíslasonar verkamanns.
Karl tekur á móti ættingjum og
vinum í Rúgbrauðsgerðinni, Borg-
artúni 6, á milli kl. 18.00 og 20.00
fostudaginn 23.6.
Kazimiera Nowak
verkakona
Kazimiera Nowak
verkakona, Bakkavegi 27,
Hnífsdal, er fimmtug í
dag.
Starfsferill
Kazimiera fæddist í
bænum Budy í Póllandi
og ólst þar upp. Upp úr ’
tvítugu flutti hún til Tom-
aszów Lubelski í Póllandi. Hún
vann verslunarstörf í 20 ár og síðar
heimilisstörf.
Kazimiera er nú búsett á íslandi
og hefur starfað við fískvinnslu i
Hraðfrystihúsinu í Hnífsdal í 3 ár
og 7 mánuði.
Fjölskylda
Kazimiera giftist þann 31.8. 1970
Antoni Nowak, f. 10.10. 1948, bíl-
stjóra. Hann er sonur
Mariu Nowak saumakonu
og Kazimierz Nowak lög-
reglumanns. Þau eru bú-
sett í Tomaszów Lubelski.
Kazimiera og Antoni
eiga þrjú börn, þau eru
Renata Nowak, f. 16.12.
1972, hún er verkakona,
hennar maður er Reimar
Vilmundsson, þau eiga
eitt barn og eru búsett á Bolungar-
vík; Robert Nowak, f. 1.6.1974, hann
er atvinnulaus og á heima í Pól-
landi; Barbara Nowak, f. 10.4. 1979,
hún f skóla f Póllandi og hún er
einnig ógift.
Foreldrar Kazimieru voru Jan
Drag, f. 2.2. 1901, d. 28.8.1980, bóndi,
og Juzefa Drag, f. 6.6. 1918, d. 22.8.
1992, hún var einnig bóndi. Þau
bjuggu í Budy í Póllandi.
Smáauglýsingar
byssur, ferðalög, ferðaþjónusta,
fyrir ferðamenn, fyrir veiðimenn,
gisting, golfvörur, heilsa, hesta-
mennska, Ijósmyndun, iíkamsrækt,
safnarinn, sport, vetrarvörur,
útilegubúnaður... tómstundir
Skoðaðu smáuglýsingarnar á VÍSÍI'.ÍS 550 5000
'ÆHKKEBM3
Siguröur Þengill Hjaltested, Hjarðar-
haga 50, Reykjavik, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 20.6. kl.
13.30.
Emma Magnúsdóttir, Öldugötu 44,
Hafnarfirði, veröurjarðsungin frá Hafnar-
fjaröarkirkju þriöjudaginn 20.6. kl.
13.30.
Sigfríöur Pálmarsdóttir, Baugatanga 7,
Skerjafiröi, veröur jarösungin frá Foss-
vogskirkju þriöjudaginn 20.6. kl. 15.00.
Valur Skarphéöinsson, Sóleyjarhlíö 1,
Hafnarfiröi, veröurjarðsunginn frá Selja-
kirkju þriöjudaginn 20.6. kl. 15.00.
Kristjana Brynjólfsdóttir, Árskógum 6,
Reykjavík, veröurjarösungin frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík þriöjudaginn 20.6.
kl. 13.30.
Merkir Islendingar
P áll Jónsson bókavörður fæddist þann 20. júní ár-
ið 1909 að Lundum í Stafholtstungum og ólst
upp í ömólfsdal 1 Þverárhllð. Foreldrar hans
voru Jón Gunnarsson og Ingigerður Kristjáns-
dóttir húshjón.
Páll fluttist 17 ára gamall til Reykjavíkur og
bjó þar að mestu síðan. Hann stundaði versl-
unarstörf í Reykjavík til að byrja með en áriö
1936 dvaldist hann erlendis, meðal annars við
nám, nánar tiltekið í Þýskalandi og Sviss.
Árið 1941 varð hann auglýsingastjóri við
dagblaðið Vísi og hélt því starfi áfram í tólf ár.
Hann flutti sig þá yfir á Borgarbókasafn
Reykjavíkur og starfaði þar allt frá árinu 1953
fram til ársins 1980, eða í 27 ár.
Páll var einn af stofnendum Bandalags ís-
lenskra farfugla árið 1938 og sat í stjóm félagsins
um nokkurt skeið.
Páll Jónsson
Hann var einnig mjög virkur í Ferðafélagi ís-
lands og var í stjóm þess um tima. Árið 1980
var hann gerður heiðursfelagi þess.
Páll var mjög áhugasamur um ljósmynd-
un og þótti fær áhugaljósmyndari. Hann
hlaut til að mynda fyrstu verðlaun í ljós-
myndakeppni Ferðafélags íslands árið
1952. Margar mynda hans voru einnig not-
aðar í Árbók Ferðafélags íslands, Landinu
þinu og fjölmörgum öðrum ritum, bæði ís-
lenskum og erlendum. Hann hafði þar að
auki umsjón með útgáfu myndabóka.
Hann hóf að safna bókum ungur að ár-
um og er hann lést, árið 1985, arfleiddi hann
Bókasafn Borgamess að safni sínu með því
skilyrði að því yrði ekki sundrað en safn hans
var mjög vandað og undir lokin einnig orðið
mjög stórt.
Andlát
Anna G. Helgadóttir, Þverholti 30, áöur
Skipholti 47, lést á Vífilsstööum fimmtu-
daginn 15.6.
Stelnunn Árnadóttir, Bergþórugötu 6B,
lést á Landspítalanum laugardaginn
17.6.
/
jjrval
- í stuttu máli sagt