Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2000, Síða 28
Traktorar
fyrir
börnin
Heildverslun með
leikföng og
gjafavörur
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá f síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö f DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
Hella:
Hundrað á
kvöldfundi
- um áhrif
áfalla
- fleiri fundir ráögerðir
Um 100 manns sóttu fræðslufund
um áhrif áfalla sem haldinn var á
Hellu í gærkvöld. Þar voru saman-
komnir íbúar Hellu og nærsveita
ásamt sálfræðingum Rauða kross ís-
lands og áfallahjálparteymis. Að
fundi loknum gátu fundargestir
spjallað við sálfræöinga og nýttu sér
það margir. Að sögn Þóris Guð-
mundssonar hjá Rauða krossinum
hafa skjálftarnir undanfarna daga
haft mikil áhrif bæði á börn og ung-
^inga og mörg böm þvemeitað að
snúa aftur til síns heima.
Á næstunni er ráðgert að halda
íleiri fræðslufundi og verður fundur
á miðvikudaginn kl. 16 á Lauga-
landi fyrir íbúa Holta- og Landsveit-
ar. Annar fundur verður svo hald-
inn í grunnskólanum á Hvolsvelli á
fimmtudag og hefst hann kl. 20.
-KGP
Kviknaði í út frá
eldamennsku
hótelgesta
Slökkviliðið í Reykjavík var kall-
að að hótelherbergi á Hótel Esju
skömmu fyrir klukkan 21 á fóstu-
dagskvöldið eftir að kviknað hafði í
handklæði út frá eldunartækjum
hótelgesta. í herberginu voru asísk
hjón sem voru að elda sér mat á
gólfmu þegar kviknaði í handklæði
sem þau höfðu breitt undir eldunar-
tækið. Reyk lagði frá eldinum en
fólkinu tókst að slökkva eldinn áður
en slökkviliðið kom að. Engar
skemmdir urðu á hótelinu. -SMK
DV-MYND TEITUR
Hundruö mlnka sluppu
Minkar í minkabúinu i Ártúni í Gnúpverjahreppi trylltust þegar jaröskjálftinn reiö yfir sl. laugardag. Tugir minkabúra
féllu niöur og opnuöust meö þeim afleiöingum aö minkarnir sluppu út. Þá krömdust aðrir undir búrunum og læöur átu
unga sína í látunum. Viðar Magnússon minkabóndi beitti öllum ráöum til aö ná minkunum aftur í búrin. Á myndinni
sést hann nota unga sem agn fyrir lausa læöu. Sjá bls. 4
Olía lækkar ytra
Verð á hráolíu lækkaði um 2% í
London og 4% í New York í gær í kjöl-
far frétta um að OPEC-rikin muni sam-
þykkja framleiðsluaukningu á fundi
samtakanna sem nú stendur yfir. Verð-
ið hefur hins vegar hækkað um 76% frá
því á sama tíma í fyrra.
„Það er ljóst að þessar miklu hækk-
anir eru i og með vegna mikillar spá-
kaupmennsku. Ég held að ef OPEC sam-
þykki að auka framleiðsluna og Banda-
rikjamenn setja hnefann í borðið þá ger-
ist eitthvað. Það hefúr hins vegar ekki
orðið ennþá og virðist vera að velmeg-
unin í Bandaríkjunum hafi gert það að
verkum að Bandaríkjamönnum hefúr
ekki ofboðið enn þetta háa bensínverð.
En ég held að það geti varla verið ann-
að en að verð muni lækka annað hvort
með sumrinu eða í haust," segir Krist-
inn Bjömsson, forstjóri Skeljungs.
Kristinn segir þó að óbreyttu stefni í
verðhækkun á bensíni hérlendis um
næstu mánaðarmót enda hafi bensín-
verð á erlendum mörkuðum hækkað
um 15% í júní: „Og auðvitað er ljóst að
það er dýrar birgðir til í landinu.“-GAR
Gífurlegt álag á mannvirki á Hellu í jaröskjálftanum:
Nam allt að þyngd
hverrar byggingar
Umferðaróhapp
í Olfusi
Umferðarslys varö á móts við
Kirkjuferju í Ölfusi um hádegisbilið
í gær er tveir bOar skullu saman.
Bílamir eru báðir mikið skemmdir
en fólkið í þeim var allt í bílbeltum
TÍog slapp ómeitt. -SMK
Lárétt áraun á byggingar á Hellu
í jarðskjálftanum sem reið yfir sl.
laugardag nam um það bil þyngd
hverrar byggingar, að sögn Ragnars
Sigbjömssonar, prófessors við verk-
fræðistofnun Háskóla íslands. Ragn-
ar stýrir jafnframt Rannsóknarmið-
stöð í jarðskjálftaverkfræði sem
vinnur í samráði við byggingarfull-
trúa, Almannavamir og Qeiri aðila
þegar til náttúruhEunfara kemur
eins og gerðist á laugardag.
Samkvæmt rannsókn sem Verk-
fræðistofnun HÍ gerði á árunum
1996-98, þar sem markmiðið var að
efla forvamir og viðbúnað gegn jarð-
skjálftum, var gert ráð fyrir að tjón á
húsnæði gæti numið 25
prósentum af end-
urstofhverði þess kæmi
til skjálfta af stærðinni
6,5 með upptök á svip-
uðum slóðum og jarð-
skjálftinn 26. ágúst 1896.
Endurstofnverð er
kostnaður við að byggja
sams konar hús í dag.
Þessar niðurstöður
Verkfræöistofnunar Hf
virðast ætla að standast
ef marka má þá vit-
neskju sem þegar liggur
fyrir um tjón af völdum
jarðskjálftans.
DV-MYND TEITUR
Lárétt áraun á byggingar á Hellu og víöar var
afar mikll í jaröskjálftanum á laugardag.
DVMYND JÓN BEN.
Sprunglnn vegur
Sprungan, sem myndaöist við jarðskjálftann á laugardag í veginum viö bæinn
Áshól í Holtunum, um 5 kílómetra austan Þjórsárbrúar, var um 50 metra löng
og mjög djúp á köflum. Efni var ekiö í sprunguna strax á laugardagskvöld og
í gær lauk veghefill bráöabirgöaviögeröum á sprungunni.
Rekstur KEA
I járnum
Kaupfélag Eyfirðinga skilaði met-
hagnaði fyrstu fjóra mánuði ársins,
yfir 400 milljónum króna. Þrátt fyr-
ir að KEA hafi selt frá sér rekstrar-
einingar, m.a. byggingavörudeild-
ina, jókst velta félagsins.
Yfir 30 milljóna króna tap varð af
rekstri KEA í fyrra en hinn mikil
hagnaður nú skýrist af fjármála-
starfsemi og þá fyrst og fremst sölu
á hlut félagsins í Húsasmiðjunni.
Hefðbundinn rekstur KEA mun
hins vegar enn vera í járnum. Á
framhaldsaðalfundi KEA í gær var
kynnt og samþykkt nýtt stefnumót-
unarplagg stjómar félagsins. Stjóm-
armenn voru endurkjömir með
miklum mun en nokkrir utan
stjómar buðu sig fram til setu í
stjóminni. -GAR
„Miðað við styrk skjálftans og
lengd, svo og það tjón sem verður á
innanstokksmunum, er ákaflega
ánægjulegt að heyra hversu fá slys
hafa orðið á fólki,“ sagði Ragnar við
DV.
Hann benti jafnframt á að hefði
þessi skjálfti verið sjö stig mætti bú-
ast við að tjónið hefði orðið u.þ.b.
helmingi meira.
Þess má geta, til viðbótar við
framangreindar upplýsingar, að
áraunin var tvisvar til þrisvar sinn-
um meiri en hönnunargildi bygg-
inga gerir ráð fyrir í reglugerðum
og stöðlum en hafa ber í huga að
byggingar þola samkvæmt reynsl-
unni mun meiri áraun en sjálft
hönnunargildið segir til um. -JSS
Gæði og glæsileiki
smoft
CsólbaðstofaJ
Grensásvegi 7, sími 533 3350.