Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2000, Qupperneq 7
7
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000_____________________________________________________________
I>V Fréttir
Ný upplýsingamiðstöð í Bláa lóninu:
Grindvíkingar vilja fá
ferðamennina alla leið
DV, GRINDAVÍK:
Grindavíkurbær hefur í sam-
vinnu viö Bláa lónið opnað upplýs-
ingamiðstöð fyrir ferðamenn í því
skyni að auka umferð ferðamanna
DV-MYND ÞGK
Hljóöneminn FM 107
Guðmundur Jónsson forstööumaður
segir stuðninginn við Byrgið ómetan-
legan og að mikið starf sé unnið í
sjálfboðavinnu.
Meðferðarstöðin Byrgið:
Útvarp I
Rockville
DV, SUÐURNESJUM:___________________
Ný útvarpsstöð hóf nýlega göngu
sína í Rockville svokölluðu á Sand-
gerðisheiði eða öllu heldur meðferð-
arstöðinni Byrginu sem starfrækt
er í húsakynnum sem hýstu áður
hermenn Bandaríkjahers. Þetta er
útvarpsstöðin Hljóðneminn FM 107
sem er kristileg útvarpsstöð og var
áður rekin í Reykjavík. Byrgið er
kristilegt líknarfélag og rekur með-
ferðarstöð í Rockville. Rúmt ár er
síðan Bandaríkjaher afhenti húsa-
kynnin og nú er að skýrast hvaða
möguleika þau bjóða upp á. Á svæð-
inu eru mörg hús, m.a. kvikmynda-
hús, frystigeymslur, íþróttahús og
trésmíðaverkstæði.
Guðmundur Jónsson, forstöðu-
maður Byrgisins, segir það mikil-
vægan þátt í endurhæfingu vist-
manna að bjóða upp á fjölbreytta
starfsemi. „Sótt hefur verið um leyfi
til að starfrækja sóttvamarstöð fyr-
ir gæludýr og þá er gert ráð fyrir að
leigja út geymslupláss í frysti-
geymslunum til að fjármagna rekst-
ur stöðvarinnar," sagði Guðmund-
ur. Enn er þó mikil vinna eftir svo
hægt sé að nota öll húsin og margir
sem leggjast á eitt við að koma öllu
í gott lag.
Starfsmenn og hermenn vamar-
liðsins hafa stofnað félagið Vini
Rockville sem ætla sér m.a. að setja
nýtt gólf í íþróttahúsið. ÞGK/HH
Eiríksstaðir í Haukadal:
Leifshátíð í ágúst
Hátíð Leifs Eiríkssonar verður
haldin á fæðingarstað hans, Eiríks-
stöðum, dagana 11.-13. ágúst. Um er
að ræða fjölskylduhátíð með léttu yf-
irbragði, fræðslu og ýmiss konar
afþreyingu. Sérstök hátíðardagskrá
verður haldin eftir hádegi laugardag-
inn 12. ágúst með þátttöku ýmissa
opinberra gesta, innlendra sem er-
lendra. Hátíðarsvæðið verður tví-
skipt og þar verður teflt saman árun-
um 1000 og 2000.
Haldið verður upp á að þúsund ár
eru liðin frá Vínlandssiglingu Leifs
heppna og landafundum hans. Á há-
tíðinni verða erlendir og innlendir
víkingar að störfum. Á dagskránni
eru leikþættir, söngur, tónlist, kvöld-
skemmtanir og dansleikir fyrir unga
sem aldna. Fjölbreyttar veitingar
verða á boðstólum og farið verður í
sagnagöngur um Haukadal með stað-
kunnugum leiðsögumönnum. Ýmis
þjónustutjöld verða á svæðinu, svið
fyrir skemmtanir og hljómsveitir,
veitingatjald og tjöld fyrir bömin. Á
Eiríksstöðum eru líka næg tjald-
stæði og bílastæði. -DVÓ
um svæðið, þ.e. að sækja Grindvík-
inga heim, en Bláa lónið er einn
besti staðurinn til að kynna slíka
hluti því um 60% erlendra ferða-
manna kemur í Lónið.
Gert er ráð fyrir að miðstöðin
verði opin í þrjá mánuði og að
starfsmaður verði þar frá kl. 11-18.
Róbert Ragnarsson, ferðamálafull-
trúi Grindavikurbæjar, hefur haft
veg og vanda af þessu samstarfi
ásamt Önnu Gunnhildi Sverrisdótt-
ur, rekstrarstjóra hjá Bláa lóninu.
Anna segir tilganginn með upplýs-
ingamiðstöðinni vera að kynna
Reykjanesið og þá möguleika sem
bjóðast þar og að Bláa lónið sé ein-
stök náttúruperla sem margir
erlendir ferðamenn sæki og því sé
mjög gott að kynna ferðamöguleika
á svæðinu og fyrirtæki sem því
tengjast. -ÞGK
DV-MYND ÞORSTEINN G. KRISTJANSSON.
Bláa lónið
Grindavíkurbær hefur í samvinnu við Bláa lónið opnað upplýsinga-
miðstöð fyrir ferðamenn
BILAR
Chevrolet pick-up S-10 4x4, árg-
'95-Verð 980 þús.
Dodge Caravan, árg. '98,3,3 vél, 5 d., ekinn 39
þús. km, centrallæsingar, rafdr. rúður og speglar.
Air con, control, cruise.Verð 2.100 þús.
Grand Cherokee Limited, árg. 2000,4,7 vél,
quadro drive, sóllúga, ekinn 17 þús. km, 10xcd
magasín.
Verð 4.450 þús.
Pajero dísil, árg. 91,ekinn 190
þús. km, ssk.. Verð 950 þús.
Toyota touring 4x4, árg. '92.
Verð 550 þús.
Grand Cherokee Laredo, árg. 1996,rauður, ekinn
45 þús.Verð 2.100 þús.
Chevrolet Silverado SLT 4x4, árg. '98,turbo 5,5
dísil, ekinn 86 þús. km.Verð 2.900 þús.
Dodge Caravan, árg. '93, 7
manna.Verð 880 þús.
Mazda station 4x4, árg. '93.
Verð 450 þús.
Toyota Avensis 1800, árg. 1999,vínrauður, ekinn
15 þús. km, ssk., spoiler, álfelgur.Verð 1.530 þús.
Egill Vilhjálmsson, Smiðjuvegi
sími