Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2000, Side 8
8
Viðskipti
Umsjón: Viðskiptabladið
Gífurleg aukning í netvið-
skiptum hiá Flugleiðum
- allt að 760% aukning milli ara
Mikil aukning hefur orðiö í netviðskiptum hjá Fluglelðum. Það hefur meðal
annars bætt nýtingu í fiugi verulega.
Gífurleg aukning hefur orðið í net-
viðskiptum hjá Flugleiðum. Þetta er
eitt af því sem fram kom í dag á
reglulegum samráðsfundi þeirra sem
sjá um markaðs- og sölustarf á Netinu
hjá Flugleiðum í Noregi, Danmörku,
Þýskalandi, Bretlandi, Frakklandi,
Bandaríkjunum og íslandi.
Aukning í sölu Flugleiða yfir Netið
hefur verið framar björtustu vonum.
í Bandaríkjunum hefur salan aukist
um 760% í maí milli áranna 1999 og
2000 og á Islandi er aukningin um
280% á sama tíma. í Norður-Ameriku
er hlutfall heildarsölu Flugleiða á
Netinu 13% á meðan helstu keppi-
nautar eru með um 1-2% af sinni sölu
á Netinu. Til samanburðar má nefna
að markmið annarra flugfélaga á Am-
eríkumarkaði er að vera með 5-15%
af sölu á Netinu innan 5 ára.
í netklúbbi Flugleiða i Bandaríkj-
unum eru tæplega 111 þúsund manns
og til viðbótar fær hátt á aðra milljón
manna netklúbbstilboð Flugleiða í
hverri viku, þar sem tilboðum félags-
ins er einnig dreift til félaga í banda-
ríska netklúbbnum Smarter-
Living.com.
Þess má geta að nú eru tveir
stærstu söluaðilar Flugleiða í Banda-
ríkjunum, Priceline.com og Ex-
pedia.com, ferðaskrifstofur sem ein-
göngu eru með starfsemi sína á Net-
í Þýskalandi bóka 21% allra far-
þega sem ferðast með Flugleiðum
sig á Netinu en það er ótrúlega há
tala sé litið til þess að einungis 2%
Þjóðverja kaupa ferðir á Netinu.
Flugleiðir hafa markvisst unnið
að því að vinna nýja markaði með
því að hagnýta Netið á sem bestan
hátt. Ljóst er að staða fyrirtækisins
hér heima og erlendis er mjög góð,
bæði hvað varðar áætlanir Flug-
leiða og ekki síður í samanburði við
helstu keppinauta fyrirtækisins.
Á síðasta ári bókuðu alls 3%
þeirra farþega sem ferðuðust með
Flugleiðum ferðir á Netinu en stefnt
er að því að árið 2003 verði helming-
ur heildarsölu Flugleiða yfir Netið.
Þrátt fyrir háan kostnað við að
tengjast Netinu í Frakklandi hefur
þáttur Netsins í viðskiptum aukist
um mörg hundruð prósent á síðustu
þremur árum. Flugleiðir hafa nýtt
sér þá uppsveiflu og stefna á enn
stærri hlutdeild í franska markaðn-
um. Vefsíða Flugleiða í Frakklandi:
www.icelandair.fr er ein af tíu vin-
sælustu flugfélagasíðum í Frakk-
landi og því ljóst að markaðsstarf
Flugleiða hefur skilað miklum ár-
angri.
Ljóst er að áhersla Flugleiða á
Netið i starfsemi sinni er að bera
ávöxt. Að undanförnu hafa 5-15% af
markaðsfé fyrirtækisins runnið til
markaðs- og sölustarfs tengt Netinu.
Samstarf Flugleiða við jafn þekkt
sem upprennandi fyrirtæki á Net-
inu hefur fært fyrirtækinu aukin
tækifæri og aukin viðskipti. Gott
dæmi um það er að Flugleiðir var
fyrsta alþjóðlega flugfélagið sem
gerði samstarfssamning við
Priceline.com sem er aðeins tveggja
ára gamalt. Priceline.com hefur þeg-
ar náð mjög traustri stöðu á banda-
ríska markaðnum með daglegt
framboð á ferðum að verðmæti 16
milljónir dollara eða sem nemur
1,24 milljörðum króna.
Stuttar fréttir
Starfsmönnum
fækkar um 60
Ákveðið hefur verið að gera breyt-
ingar á fyrirkomulagi löndunar og
saltfiskmarningsvinnslu fyrirtækis-
ins á Akranesi. Landanir úr skipum
HB verða áfram á Akranesi, en í
höndum sjálfstæðs löndunarfélags. í
frétt frá félaginu segir að einnig hafi
verið ákveðið að hætta, a.m.k. tíma-
bundið, vinnslu á þurrkaðri loðnu í
Sandgerði. Seinni hluta ársins 1999
varð almennt verðfall á afurðunum í
Japan og er ekki fyrirsjáanleg breyt-
ing á afurðaverði til hækkunar. Sala
á afurðinni er til staðar, varan hefur
líkað vel á mörkuðum, gæðin verið
mjög góð og starfsfólkið skilað mjög
góðum árangri í vinnslunni, en verð-
ið á þurrkaðri loðnu er eins og áður
er sagt óviðunandi. Það er ljóst að
þessar breytingar hafa í för með sér
að starfsmönnum fyrirtækisins á
Akranesi og í Sandgerði fækkar sam-
tals um 60.
DaimlerChrysler
og Huyndai
bindast
DaimlerChrysler hyggst festa kaup
á 10% hlut í suður-kóreska bílafyrir-
tækinu Huyndai Motor fyrir 429 millj-
ónir dollara, eða sem samsvarar um
30 milljörðum íslenskra króna. Þetta
kemur fram í sameiginlegri tilkynn-
ingu félaganna í dag. Þar kemur jafn-
framt fram að fyrirtækin hyggi á náið
samstarf í framtíðinni.
Troðfuli búð af
spennandi unaðsvörum
ástarlífsins fyrir
dömur og herra.
Opiö
mán.-fös.1CM8
laug.10-16
Fákafeni 9 • S. 553 1300
Burðarás stofnar nýtt fjárfest-
ingarfélag, Frumkvöðul ehf.
- afkoma af flutningastarfsemi Eimskips undir væntingum
Eimskip.
Burðarás hf., dótturfélag Hf. Eim-
skipafélags íslands, hefur stofnað
fjárfestingarfélagið Frumkvöðul
ehf. sem er að fullu í eigu Burðar-
áss. Frumkvöðull ehf. mun einkum
einbeita sér að fjárfestingum í ung-
um áhættusömum vaxtarfyrirtækj-
um á sviði hátækni, hugbúnaðar,
fjarskipta og líftækni. Mun félagið
taka yfir núverandi eignarhluta
Burðaráss í þessum flokki fjárfest-
inga. Hlutafé hins nýja félags er
1000 milljónir króna.
Sala hlutabréfa fyrír nálægt
700 milljónir króna
Til að auka sveigjanleika félags-
ins til annarra fjárfestinga hefur
Burðarás selt hlutabréf í nokkrum
félögum að söluverði nálægt 700
milljónum króna. Við það myndast
um 400 milljón króna söluhagnaður
hjá félaginu sem mun hafa jákvæð
áhrif á afkomu félagsins á fyrri
hluta ársins. Meðal annars var seld-
ur lítill eignarhlutur í nokkrum
félögum svo sem Þróunarfélagi ís-
lands hf„ Marel hf„ íslandsbanka
FBA hf. og Skeljungi hf.
Á þessu ári hefur Burðaráss fjár-
fest fyrir 1.300 milljónir króna í 16
félögum og nemur markaðsverð-
mæti hlutabréfa félagsins nú um 20
milljörðum króna. Stofnun Frum-
kvöðuls ehf. og sala hlutabréfa í
nokkrum félögum er liður í að fram-
fylgja breyttri fjárfestingastefnu og
áherslum Burðaráss sem kynntar
voru fyrr á árinu.
Slæm afkoma
I frétt frá Eimskip kemur fram að
á sama tíma og verulegur söluhagn-
aður er af seldum eignarhlut Burða-
ráss í öðrum félögum er afkoma af
flutningastarfsemi Eimskipafélags-
ins talsvert lakari en ráð var fyrir
gert á fyrri helmingi þessa árs.
Kemur þar einkum til óhagstæð
gengisþróun, harðari samkeppni
auk þess sem áhrif af verkfalli Sjó-
mannafélags
Reykjavíkur
og hækkun ol-
íuverðs hefur
haft neikvæð
áhrif á af-
komu félags-
ins. Gert er
ráð fyrir að
milliuppgjör
félagsins fyrir
fyrstu sex
mánuði ársins
verði kynnt í
fyrstu viku
ágústmánaðar.
íslandsbanki FBA segir að af-
koma af flutningastarfsemi Eim-
skipafélagsins sé talsvert lakari en
ráð var fyrir gert á fyrri helmingi
þessa árs. Af þessum sökum segir
íslandsbanki FBA að fjárfestar ættu
að lækka verðmat sitt á Eimskip
þar sem þegar var búið að verð-
leggja þann söluhagnað sem nú hef-
ur myndast inn í verðið á félaginu
en væntanlega ekki lakari afkomu
af reglulegri starfsemi. Þó er vart
ástæða til mikilla gengislækkana
þar sem ekki er fyrirséð að minnk-
un hagnaðar hjá félaginu sé varan-
leg.
Fiskafli í
maí eykst
mikið milli
ára
Fiskaflinn í maímánuði síðast-
liönum var 85.396 tonn samanborið
við 61.507 tonn í maí í fyrra. Aukn-
ingin skýrist af mun meiri veiði á
kolmunna en alls veiddust 28.879
tonn miðað við 2.279 tonn í maímán-
uði 1999. Botnfiskaflinn dróst lítillega
saman, fór úr 56.220 tonnum í 54.016
tonn nú. Skel- og krabbadýraafli
dróst einnig saman, fór úr 2.708 tonn-
um í 2.127 tonn.
Heildarafli íslenskra skipa úr íslenskri Heildarafli íslenskra skipa úr íslenskri
lögsögu I maí 1997-2000 lögsögu janúar til mai 1997-2000
Mai 1997 1998 1999 2000 Janúar-maí 1997 1998 1999 2000
Heildarafii 59.940 66.866 61.507 85.396 Heildarafli 1.053.175 724.651 906.1061.076.790
Botnfiskafli 55.498 57.219 56.220 54.016 Botnfiskalii 226.856 221.423 251.113 248.243
Þorskur 17.542 19.821 20.450 19.701 Þorskur 97.787 110.163 128.831 123.068
Ýsa 6.068 4.264 4.006 4.417 Ýsa 22.974 16.606 22.358 18.785
Ufsi 3.443 2.499 2.553 3.386 Ufsi 17.280 12.945 14.898 15.383
Karfi 3.620 2.771 4.118 2.974 Karfi 37.453 29.644 35.743 30.098
Úthalskarfi 14.459 18.123 17.700 16.146 Úthafskarfi 14.459 20.356 18.527 18.325
Annar botnfiskafli 10.366 9.741 7.393 7.392 Annar botrrfiskafli 36.903 31.709 30.756 42.584
Kolmunni 4.147 2.279 28.879 Sltd 15.252 8.782 17.729 16.761
Skel og krabbad. 4.442 5.444 2.708 2.127 Loöna 779.551 456.682 618.326 765.403
Annarafli 0 56 300 374 Kolmunni • • 3.109 34.308
Skel og krabbad. 31.516 29.747 15.490 11.773
Annarafli 277 339 302
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000
33L
HEILDARVIÐSKIPTI 1060 m.kr.
Hlutabréf 185 m.kr.
Spariskírteini 360 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
' íslandsbanki FBA 21,06 m.kr.
0i Össur 18,64 m.kr.
; Q Flugleiðir 10,40 m.kr.
MESTA HÆKKUN
0 Össur 4,26%
; © Landsbankinn 2,46%
© Nýherji 1,25%
MESTA LÆKKUN
j © Flugleiðir 7,01%
i © Sjóvá almennar 6,22%
I © Tryggingamiöstöðin 3,00%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.544,6
- Breyting o 0,576%
Líkur á frekari vaxtahækkun
Nokkrar líkur eru á frekari
vaxtahækkun Seðlabankans. Þetta
er mat Ráðgjafar og efnhagsspár
ehf. en í Gjaldeyrismálum í morgun
kemur fram aö nokkuð hefur verið
um stöðutökur spákaupmanna á
móti krónunni undanfarið. í Gjald-
eyrismálum segir að til þess að slíkt
borgi sig þurfl gengishreyfing krón-
unnar að yfirvinna vaxtamun á
gefnu tímabili sem nú sé um 6% á
ársgrundvelli miðað við þriggja
mánaða vexti.
|1,j±í.,lK!!K!í3il síöastliðna 30 dasa
0 Össur 343.102
y Húsasmiðjan 273.410
Q Islandsbanki-FBA 264.737
Eimskip 159.394
Baugur 153.561
síöastlibna 30 daga
© Nýherji 16%
© Skýrr hf. 15%
© Opin kerfi 12%
© Þorbjörn rammi 11 %
© Stálsmiöjan 9%
prsnKiWiTKi síöastlibna 30 daga
© Loönuvinnslan hf. -20 %
© Delta hf. -18 %
© Fiskiðjus. Húsavíkur -11 % ;
OSH -9%
o
Philip Morris kaupir Nabfsco
Matvælafyrirtækið Philip Morris hef-
ur ákveðið að festa kaup á Nabisco
Holdings fyrir 14,9 milljarða dollara, eða
sem samsvarar rúmum 1000 milljörðum
íslenskra króna. Til samanburðar og til
gamans má nefna að áætluð landsfram-
leiðsla á Islandi á þessu ári er um 670
milljarðar. Frá því i apríl hefur verið
búist við nýjum eigendum að Nabisco.
Með kaupunum festir Phihp Morris sig
í sessi sem næststærsti matvælafram-
leiðandi heims á eftir svissneska fyrir-
tækinu Nestlé. Þriðja stærst er síðan
Unilever sem nýverið festi kaup á Best-
foods fyrir 20,3 milljarða dollara.
1! II: <.,yr rm
m DOW JONES 10542,99 0+1,33% j
NIKKEI 17279,06 0+2,09%
S&P 1455,25 0+0,96%
Jggg NASDAQ 3912,12 0+1,74%
E2E2 FTSE 6398,20 O -0,11%
Hi DAX 7028,14 0+0,01%
ö CAC40 6617,25 0+0,47%
27.06.2000 kl. 9.15
KAUP SALA
PBP Dollar 77,010 77,410
m Pund 115,500 116,090
Bl Kan. dollar 51,910 52,240
E9 Dönsk kr. 9,7120 9,7660
@3 Norskkr 8,8410 8,8890
E9 Sænsk kr. 8,6510 8,6990
ae Fi. mark 12,1798 12,2530
o Fra. frankl 11,0401 11,1064
O Bolg. franki 1,7952 1,8060
□ Sviss. franki 46,7500 47,0100
Holl. gyllini 32,8619 33,0593
g Þýskt mark 37,0268 37,2493
Ðlít. líra 0,037400 0,037630
m Aust. sch. 5,2628 5,2944
Port. escudo 0,3612 0,3634
ISTlSpá. peseti 0,4352 0,4379
[~lljap.yen 0,728300 0,732700
] írskt pund 91,952 92,504
SDR 102,230000102,840000 |
■ [ecu 72,4181 72,8532