Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2000, Side 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000
Skoðun I>V
Húsnæði er mannréttindi
„ísland er eina landiö í heiminum sem lítur á húsnæöi sitt sem fjármagn. “
Mannréttindi eða
verslunarvara ?
Ætlarðu að baða þig
í Nauthólsvíkinni?
Viktoría Hermannsdóttir, 13 ára:
Já, alveg örugglega seinna í sumar.
Anna Kristín Pálsdóttir, 13 ára:
Já, örugglega, mér líst vel á þetta.
Kolbrún Siguröardóttir nemi:
Já, veröur maöur ekki aö gera það,
hvítur og heitur sandur og fínirí.
Ingibjörg Finnbogadóttir
heimavinnandi:
Nei, ég hef ekki tíma til þess.
Ingibjörg Anna Ingadóttir nemi:
Já, mér finnst þetta frábært.
Guðrún Óskarsdóttir nemi:
Já, auövitaö, í sumar.
Herbert nokkur
Guðmundsson hefur
nú í tvígang fundið
sér það verkefni að
ráðast á Leigjenda-
samtökin og þeim
sem þar starfa. Tals-
menn Samtakanna
kallar hann fáráð-
linga og samtökin
„pensjonat", hvað
sem það á að merkja.
Svo kemur i ljós að
Herbert veit ekkert
um samtökin og spyr hver þau séu og
hverjir myndi þau og kosti. Greini-
lega þekkir hann ekki heldur það
„klondyke“ sem kallast leigumarkað-
ur hérlendis.
Leiguviðskiptin eru að stærstum
hluta svört og hvergi skráð og því lít-
ið að marka skýrslur. Sama er að
segja um „leigufyrirtæki á þessum
markaði" og eru því miður hvergi til
nema í höfði Herberts.
Ég ætla ekki að munnhöggvast
frekar um þessa vitleysu, en skal
með ánægju segja hver Leigjenda-
Hlegið að
Guðni Jóhannesson
skrifar:_________
„Ríkissjónvarpið er ónýt frétta-
stofnun og gagnslaus. Þangað sóp-
ast athyglissjúkt fólk, sem er meira
í mun að taka sig út á skerminum
en að afla frétta og flytja þær.“ -
Svo mörg voru þau orð í ágætri
grein Odds Ólafssonar 1 Degi 22.
júní þar sem hann er að fjalla um
fréttaflutning Sjónvarpsins vegna
jarðskjálftanna.
Margt annað kom fram í grein
Odds sem maður er svo hjartanlega
sammála. Spumingin er hvað með
framhaldið? Hver ber ábyrgðina og
Leiguviðskiptin eru að
stœrstum hluta svört og
hvergi skráð og því lítið að
marka skýrslur. Sama er að
segja um „leigufyrirtœki á
þessum markaði“ ogeru
því miður hvergi til nema í
höfði Herberts.
samtökin eru ef fleiri i „pensjónati"
Herberts vita ekki.
Upphaflega varð til hópur sem
ræddi stofnun samtaka um öðruvísi
húsnæðisstefnu og fékk verklýðsfélög
í lið með sér og því hef ég litið á
Leigjendasamtökin sem hluta af
verklýðshreyfingunni, þótt hún hafi
lítið sinnt þeim. Leigjendasamtökin
eru hagsmunasamtök með pólitískt
markmið og engum háð. Allt starf er
unnið af félagsmönnum í sjálfboða-
vinnu. Þar er enginn launaður starfs-
maður. Aðalfundur er haldinn árlega
og þar eru lögð fram ársskýrsla, end-
fréttastofu
Hver ber ábyrgðina og axlar
hana? Hvað ætlar útvarps-
stjóri að gera? Er hugsanlegt
að stjóm fréttastofunnar sé
ekki í réttum höndum og að
flinkara fólk sé til staðar til
að taka við?
axlar hana? Hvað ætlar útvarps-
stjóri að gera? Er hugsanlegt að
stjóm fréttastofunnar sé ekki í rétt-
um höndum og að flinkara fólk sé
urskoðaðir reikningar og kosin 12
manna stjórn. Stjórnin ber ábyrgð á
starfinu og það er undir fólkinu kom-
ið hve virknin er mikil.
Þau hafa frá upphafi rekið bæki-
stöð af litlum efnum, en þau fá eina
milljón kr. frá ríkinu og hundrað
þúsund frá borginni. Þetta fé fer í
það að kosta reksturinn og þá aðstoð
sem hægt er að veita fólki. Síðustu 11
árin hefur komið í minn hlut að
halda miðstöðinni gangandi með að-
stoð annarra og sinna erindum sem
berast. Samkvæmt ársskýrslum eru
þau um 4.300 á ári. Öfugt við íslend-
inga lýstu Svíar yfír hlutleysi í
hanaslag stórveldanna, en byggðu í
staðinn upp heima hjá sér besta vel-
ferðarkerfi í heimi og öflugan iðnað
til að standa undir kostnaðinum.
Þessa leið vildi ég fara en flokkarnir
ekki. ísland er eina landið í heimin-
um sem lítur á húsnæði sitt sem fjár-
magn. Það þýðir að enginn á rétt á
íbúð nema hann geti borgað hana.
Við viljum heQa til vegs kjörorð
sænskra jafnaðarmanna; húsnæði er
mannréttindi en ekki verslunarvara.
Sjónvarps
til staðar til að taka við? Um það hef
ég ekki hugmynd. Hitt er annað mál
að það er hlegið að fréttastofu Sjón-
varpsins opinberlega og úti í bæ. Yf-
irstjórn Sjónvarpsins verður að átta
sig á því að gerð hafa verið gjörsam-
lega ófyrirgefanleg mistök og ber að
taka afleiðingunum.
Hvað haldið þið að gert yrði hjá
t.d. BBC? Málið er bara að þetta er
ekki BBC og við erum á íslandi þar
sem enginn í opinberri stöðu þarf
nokkurn tíma að bera ábyrgð á
starfl sínu. Þegar menn gera axar-
sköft í opinbera geiranum hér á
landi fá þeir yfirleitt stöðuhækkun.
Jön
Kjartansson
frá Pálmholti,
form. Leigjenda-
samtakanna,
skrifar:
Pagfari
Evran tekin í sátt á Hólum
Framsóknarflokkurinn hefur níu líf líkt og
kötturinn. Og ekki nóg með það. Það er líka líf í
formanni flokksins þótt hægfara sé og þungur á
brún. Ungdómurinn í flokknum, já, mikið rétt,
það eru til ungir framsóknarmenn, hélt þing sitt
um helgina á Hólum í Hjaltadal. Vaðmál og ann-
að þjóðlegt þvældist ekkert fyrir framsóknar-
æskunni. Hún var lengra komin í þankanum og
á alþjóðlegri mið. Evran stendur henni nær en
léttvæg álkrónan og því vilja ungir framsóknar-
menn í Evrópusambandið hið bráðasta.
Fyrir þing ungliðanna var vitað að Evrópu-
sambandið yrði ofarlega á baugi. Vitringar í
framsóknarfræðum óttuðust þetta og töldu það
flokknum óheppilegt enda hefur Evrópuumræða
nánast verði tahú í íslenskri pólitík, nema hvað
Össur formaður hefur reynt af mætti að koma
henni á blað fyrir hönd Samfylkingarinnar og
annarra vandamanna.
En þar vanmátu ungir sem gamlir Framsóknar-
maddömuna. Halldór sjálfur mætti í partíið á Hól-
um og stal senunni. Utanríkisráðherrann og fram-
sóknarformaðurinn var ekkert að skafa utan af
hlutunum. Ef túlka má orð hans á biskupsstólnum
er staðan einfaldlega sú að EES-samningurinn,
sem eitt sinn var allra meina bót, stenst ekki leng-
ur íslensku stjórnarskrána. íslendingar fá yflr sig
Tökum okkur far með Evrópuhraðlestinni og
það á næstu brautarstöð.
Með þessu slær Halldór tvær flugur i einu
höggi. Hann er orðinn þreyttur á sambúðinni
við Davíð. Brestir eru komnir í sambandið enda
hefur það skaðað maddömuna. Hún tapar fylgi
þótt Sjálfstæðisflokkurinn haldi sínu. Það er því
ólíklegt að hjúskaparheitið verði endurnýjað í
þriðja sinn. Halldór er því kominn á biðús-
buxurnar, heldur inn á mið Össurar og gerir sig
líklegan til fylgilags.
Halldór veit nefnilega sem er að Samfylkingin
mun einskis láta ófreistað að komast í ríkis-
stjórn eftir næstu þingkosingar. Það er orðinn
samhljómur í Evrópustefnu þessara tveggja
flokka. Hinum megin standa eftir sem tvíburar
Davíð og Steingrímur J. og vilja ekkert af Evrópu
vita.
Framsókn nær því, með þessu útspili unglið-
anna og formannsins, að ganga í endurnýjun líf-
daganna. Nái þeir félagar Halldór og Össur sæmi-
legu fylgi næst er ekki ólíklegt að Össur gefi for-
sætið eftir og taki að sér Evrópusamningana úr
utanríkisráðherrastóli.
Framsókn verður því áfram í stjórn - eins og
venjulega.
slendingar fá yfir sig alls konar
lagaflœkjur frá Evrópusambandinu
án þess að hafa minnstu áhrif á það
sem þar er verið að samþykkja
alls konar lagaflækjur frá Evrópusambandinu án
þess að hafa minnstu áhrif á það sem þar er verið
að samþykkja. Það er ólíðandi og mat Halldórs for-
manns er því kalt. Hendum úreltum og ónýtum
samningi Jóns Baldvins og stígum skrefið til fulls.
Þingmenn
Suðurlands
Selfyssingur hringdi:
Maður tekur eft-
ir þvi hvaða þing-
menn láta sér annt
um kjördæmi sín,
þá sem þar búa og
lifa og starfa við
breytilegar að-
stæður. Við seinni
jarðskjálftahrin-
una var það aðeins
einn þingmaður,
Árni Johnsen, sem
dreif sig úr borg-
inni og austur yfir
íjall til að kanna aðstæður á fyrsta
klukkutímanum eftir skjálftann. Ég
kaus ekki Árna eða hans lista, en
hann fær hrós flestra hér um slóðir
fyrir frumkvæðið. Nú eru þing-
menn að funda á Hellu ásamt sveit-
arfélögunum, en þingmenn höfðu
enga forystu í þeim efnum. Það
kann margt að breytast í litrófi
stjórnmálanna í næstu kosningum.
Við kjósendur fylgjumst vel með.
Einn af fjöl-
skyldunni
Már Sveinsson dýraeftirlitsma&ur skrifar:
Vegna fréttar í DV 19. þ.m. um
hrottalega meðferð á hundi í Nes-
kaupstað vil ég sem dýraeftirlitsmað-
ur i Neskaupstað taka fram eftirfar-
andi. - Umræddur hundur býr ekki
við illt atlæti eigenda sinna, hann er
hafður eins og gæludýr og einn af
fjölskyldunni. Breyttar fjölskyldu-
aðstæður urðu til þess að þau
ákváðu að láta hundinn frá sér sem
þau og gerðu. Hann fór á flakk og
fannst í sumarbústaðahverfi innst í
Norðfirði, teipaður á trýni og illa
haldinn. Dýraeftirlitsmaður færði
hundinn til skráðra eigenda sem
varð mikið um er þeim voru skýrðir
málavextir og ákváðu að láta hund-
inn ekki frá aftur en reyna að halda
honum. Samkvæmt reglugerð um
hunda skal hundur aldrei ganga laus
i þéttbýli sem þýðir að sé hann einn
úti verður hann að vera i bandi en
annars í taumi fullorðins manns.
Menntasetur MA
- Vantar hvatningu til heimamanna?
Segullinn er
fjölmenniö
Árni Gunnarsson skrifar:
Það er vist nokk sama hvernig
staðið er að hinni svokölluðu byggða-
stefnu eða „aðstoð við landsbyggð-
ina“, það verður engin breyting á því
að þangað sækir fólkið sem fjölmenn-
ið er, fjölbreytnin í afþreyingu og
þjónustu, og þar vill fólk helst búa.
Framhleypni og sjálfumgleði þekktra
einstaklinga t.d. úr hópi mennta-
manna í dreifbýlinu (les: skólameist-
ari MA) vegur ekki þungt til búsetu-
jöfnunar. Það er ekki nóg að mæla
„fagurt og frítt“ í heimaranni um
spillinguna í höfuðborginni eða
stunda áróður fyrir auknum styrkj-
um frá stofnanakerfinu. Þessir sömu
menn eiga að hvetja heimamenn tfl
framkvæmda upp á eigin spýtur,
sýna frumkvæði og nota til þess
ómældan afrakstur fyrirtækja (les:
Samherji t.d. og fleiri) á heimaslóð-
um. - Akureyri á nógan „heiman-
mund“ til heimabrúks..
m
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangið:
gra@ff.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.