Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2000, Page 2
2
MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 2000
DV
Fréttir
ísland ónumið land fyrir smygl á fólki:
Ásókn flóttamanna
til landsins eykst
- segir yfirmaður Útlendingaeftirlitsins
Á undaníomum dögum og vikum
hafa fleiri og fleiri mál komiö til
kasta útlendingaeftirlitsins sökum
aukinnar aösóknar útlendinga í
pólitískt hæli á íslandi. Nú á dögun-
um komu til landsins indverskir
feröamenn og dvöldu hér á landi
skamma hríð. Þegar dvöl þeirra
lauk á íslandi héldu þeir til Bret-
lands þar sem þeir sóttu um pólitísk
hæli.
Fyrir9éð er aö þeirri beiðni verði
synjað í Bretlandi og munu þeir því
verða sendir aftur til íslands. Ekki
er ólíklegt að íslenska ríkið muni
þurfa aö bera kostnaðinn af því að
senda þá til Indlands. Sæki þeir um
hæli á íslandi munu sljómvöld
þurfa að bera kostnaðinn af dvöl
þeirra á meðan svokölluð „hælis-
meðferð“ fer fram. Það ferli getur
tekið allt að sjö mánuði.
ísland ónumið land
Að sögn Georgs Lárussonar, for-
stjóra Útlendingaeftirlitsins, virð-
ast þeir sem stunda viðskipti með
flóttamenn hafa uppgötvað ísland
sem góðan kost þegar til þess kem-
ur aö smygla fólki inn í lönd. „ís-
land er að öllum líkindum eina
ónumda landið í þessum efnum og
það virðast þeir sem stunda þessi
vafasömu viðskipti hafa komið auga
á. Héma er aðbúnaður einstaklega
góöur og löggjöfin mjög ófullkomin í
þessu tilliti. Sökum þessa er aðsókn
til íslands að aukast. Það er þó rétt
aö á meðan flóttafólk er í þessari
svokölluðu hælismeöferð mega
þeir/þær ekki vinna og því fellur
Vegabréfalausir
Svo viröist sem eitthvað af útlendingum komist vegabréfalausir til íslands
og sæki hér um pólitískt hæli. íslenska ríkiö ber kostnaöinn afdvöl þeirra
hér á landi á meöan á „hælismeöferö“ þeirra stendur.
Georg Hólmfri&ur
Lárusson. Gísladóttir.
það á Rauða kross íslands að halda
þessu fólki uppi.
Að þremur mánuöum liönum tek-
ur Útlendingaeftirlitið við og er
kostnaðurinn u.þ.b. 70 þúsund krón-
ur á mánuði við hvem einstakling. í
augnablikinu em liklega nálægt 30
einstaklingum í hælismeðferð.“
Að sögn Georgs er tekið öðmvísi
á málum þeirra sem sækja um hæli
í nágramialöndum íslands. Þeir em
gjaman vistaðir í eiginlegum
„flóttamannabúöum“ þar sem að-
búnaður er mun verri en þekkist
hér á landi.
Hér er flóttamönnum komið fyrir
á gistiheimilum, borgaðir dagpen-
ingar og annað uppihald tryggt.
Þeir sem annast mál þessara flótta-
manna bentu DV á aö margir flótta-
menn virtust ekki gera þetta með
þaö fyrir augum að setjast að i við-
komandi landi heldur væri tilgang-
urinn að blóðmjólka velferðarkerfi
viðkomandi lands. Þessir aðilar
ganga imdir nafninu „asylum
shoppers.“ Þorri þeirra sem til Is-
lands koma eru þó menn og konur
sem eru að flýja skelfilegt pólitískt
ástand í heimalöndum sínum.
Tíu þúsund á viku
Á dögunum fregnaði DV af manni
sem kvaðst hafa barist meö upp-
reisnarmönnum í Tsjetsjeníu og
hefði komist til íslands á folsku
vegabréfi með það fyrir augum að
sækja um pólitískt hæli. Hann
kvartaði sáran yfir þeim móttökum
sem hann hafði fengiö og sagðist
svelta heilu og hálfu hungri sökum
fjárskorts og að honum væri mein-
að að vinna. Hann bar Rauða kross
íslands ekki vel söguna. Hann haföi
á orði að honum hefði verið neitað
um læknishjálp og tannlækningar.
Starfsmenn RKÍ körmuðust ekki
við þessa frásögn.
„Viðkomandi aðili kom til Rauða
krossins og kvartaði undan tann-
pínu sem stafaði af slælegum tann-
viðgerðum í hans heimalandi. Það
var farið með hann til tannlæknis
þar sem hann fékk bráðabirgðafyll-
ingar í tennurnar.
Tannlæknirinn mat það svo að
ekki væri brýn þörf á meiri viðgerö-
um strax en ljóst er aö ef á að laga
allar skemmdir í munni þessa
manns mun það kosta skattborgara
á aðra milljón. Hann, rétt eins og
allir flóttamenn sem hingað koma,
mun fara í læknisskoðun í heilsu-
vemdarstöðinni við Barónsstíg í
ágúst
Það er reynt að koma flóttafólki í
læknisskoðun um leið og það kem-
ur til íslands. Þessi aðili hefur ekki
farið sérstaklega fram á að komast
undir læknishendur,“ sagði Hólm-
fríður Gísladóttir hjá Rauða krossi
íslands.
Samkvæmt upplýsingum Rauða
krossins fá þeir sem era í hælismeð-
ferð og á vegum RKÍ 42 þúsund
krónur á mánuði í dagpeninga.
Einnig er flóttafólkinu séð fyrir
húsaskjóli og fæði. -ÓRV
Stjórn ASA hafnaði beiðni um starfslokasamning:
Mönnum mismunað
- segir Sigurður Ingvarsson, fráfarandi forseti
Sigurður Ingvarsson, frá-
farandi forseti Alþýðusam-
bands Austurlands, segir að
mönnum innan verkalýðs-
hreyfingarinnar sé mismim-
aö eftir því hvort þeir séu
innan fjármálageira hennar
eða utan hans. Stjóm Al-
þýðusambands Austurlands
hefúr hafnað beiðni hans
um starfslokasamning.
„Þetta eru ekki beinlínis
vonbrigði," sagði Sigurður.
„Ég taldi rétt að láta reyna á þetta.
Starfslokasamningar eru ekki
óþekktir í verkalýðshreyfingunni.
Það þekkja allir samning Bjöms
Grétars. Hjá Lífeyrissjóði Austur-
lands, sem er lífeyrissjóður fólksins
í ASA, er einnig búið að gera starfs-
lokasamning. Ég vildi athuga hvort
menn sætu við sama borð í þessum
efnum en er óbanginn vegna niður-
stöðunnar. Ég kemst vel af án
þess.“
í samþykkt stjómarfundarins seg-
ir m.a. að hún samþykki að hafna
beiðni Sigurðar um starfslokasamn-
ing á þeim grundvelli sem hann hafi
farið fram á. Stjóm ASA
bendir á að hún hafi ekki
gert athugasemdir við störf
Sigurðar Ingvarssonar sem
forseta og framkvæmda-
stjóra ASA. Þar breyti engu
persónulegt álit einstakra
sijómarmanna á aðgerðum
sem Sigurður hafi staðið aö
sem stjómarmaður í Verka-
mannasambandi íslands.
Það er álit stjómar ASA að
Sigurður hafi sem forseti og
framkvæmdastjóri ASA unnið störf
sín af trúmennsku og haft að leiðar-
ljósi heildarhagsmuni verkafólks á
Austurlandi.
Stjóm ASA lýsir hins vegar full-
um skilningi á því að Sigurður kjósi
að draga sig í hlé frá störfum hjá
sambandinu og telur eðlilegast aö
slíkt gerist í tengslum við næsta
þing ASA sem ákveðið hefur verið
að halda dagana 5. og 6. október nk.
Uppgjör við Sigurð hljóti hins
vegar að fara eftir „ráðningarsamn-
ingi” og vera innan ramma sam-
þykktrar fjárhagsáætlunar á hveij-
inn tíma. -JSS
Siguröur
Ingvarsson.
Þijú hjól undir „bílnum"
Hér situr Nikulás Jónsson, þjónustustjöri Sólar-Víkings, viö stýriö á nýjasta far-
artæki þeirra, Funk-Tech-þríhjóli. Hjóliö er skráö fýrir tvo, er meö öryggisbeltum
og öllum búnaöi, seigjukúplingu og tvígengismótor. Carlsberg lætur framleiöa
þau fyrir sig sérstaklega í Danmörku þar sem þau eru notuö viö sendlastörf.
Elliðaárnar:
Vatnið minnkar vegna þurrka
— „eðilegt“ segir Guðjón Magnússon
Það vakti athygli hve Elliðaám-
ar vom orðnar vatnslitlar I gær-
morgun en þurrkar síðustu daga
hafa þar haft sitt að segja.
„Við höfum ekki gert neitt, vatn-
ið hefur bara minnkað síðustu
daga og vestari kvíslin tekur líka
sitt,“ sagði Guðjón Magnússon hjá
Okuveitunni í gærdag, en Elliða-
ámar vora óvenjuvatnslitlar í gær.
„Veiðin hefur verið fín í ánni og
við eram ekkert að hrófla við
neinu, okkur dytti það ekki í hug.
Áin er farin að nálgast 400 laxa. En
þegar svona miklir þurrkar verða
þá minnkar vatnið, það gefur auga
leið,“ sagði Guðjón í lokin.
Borgarstjóradagurinn var á laug-
ardaginn og veiddi Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgarstjóri einn
lax og Markús öm Antonsson,
fyrrverandi borgarstjóri, annan.
-G.Bender
DV-MYND G.BENDER
Elliöaámar
Þær voru óvenjuvatnslitlar í gærdag,
þegar viö tókum þessa mynd, en
ástæöan er miklir þurrkar.
Ánægja með trúlofunina
HTveir af hveijum
þremur íslending-
um eru ánægðir
með trúlofun Ólafs
Ragnars Grímsson-
ar og Dorritar
Moussaieff sam-
kvæmt skoöana-
könnun Gaflups.
Sjónvarpið greindi frá.
200.000 símtöl
Neyðarlínan, 112, fær um 210
þúsund símtöl á ári, eða 600-800 á
dag. Þetta er miklu meira en búist
var við þegar fyrirtækið var stofn-
aö fyrir um fjóram árum. Sjón-
varpið greindi frá.
Mismæli Flugleiða
Áhöfn Flugleiða ávarpaði Nor-
egskonung tvisvar á tveimur
tungumálum Hákon þegar hann
var boðinn velkominn i flugið frá
Ósló til Keflavíkur fyrir helgL
Hvorki Haraldur né kona hans
munu þó hafa tekið þetta óstinnt
upp. Mbl. greindi frá.
Frekari raskanir mögulegar
Önnur hver ferð
féfl niður á
nokkram leiðum
SVR í gær vegna
ónógs fjölda vagn-
stjóra. Forstjóri
SVR segir ekki úti-
lokað að til frekari
röskunar komi í
sumar. Sjónvarpið greindi fiá.
Samstarf mögulegt
Framkvæmdastjóri Atlants-
skips hf., Stefán Kjæmested, segir
að vel komi til greina að félagið
taki upp samstarf við Samskip um
flutninga til og frá Bandaríkjun-
um. Mbl. greindi frá.
Nýir næturklúbbar bannaðir
Borgarráð hefur samþykkt til-
lögu um að starfsemi nýrra nætur-
klúbba verði ekki heimiluð í mið-
bæ Reykjavíkur eöa öðrum mið-
hverfum borgarinnar. Þá verður
óheimilt að starfrækja nektarstaði
í stærri verslunar- og þjónustumið-
stöðvum samkvæmt tillögunni.
Stöð 2 greindi frá.
Harðorð úttekt
Jóhannes Pálmason, nýr stjóm-
arformaöur Heymar- og talmeina-
stöðvar íslands, segir það koma til
greina að láta einkafyrirtæki sjá
um afgreiðslu heymartækja. Þá
kemur til álita að fella hluta af
starfsemi stöðvarinnar imdir háls-
nef- og eymalækningadeild Land-
spítalans. Harðorð úttekt sem heil-
brigðisráðuneytið lét gera á starf-
semi stöðvarinnar kallar á breyt-
ingar. RÚV greindi frá.
Launaskrið
„Ég er alveg
sannfærður um að
laim ráðherra, al-
þingismanna og
æðstu embættis-
manna munu rjúka
upp í kjölfar
ákvörðunar Kjara-
dóms,“ sagði Ari
Skúlason, framkvæmdastjóri ASÍ, í
samtali viö Dag vegna hækkunar á
launum forseta Islands.
-hdm