Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2000, Blaðsíða 32
*
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFIIR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
0Mb
Grundarf j örður:
Sportbátur
týndur í þoku
Leit var gerð að litlum sportbát
aðfaranótt sunnudags sem ekki
hafði skilað sér i land á umsömdum
tíma. Báturinn, sem var með þrjá
menn innanborðs, hafði lagt af stað
í skemmtisiglingu frá Stykkishólmi
og ætlaði að koma að landi í Grund-
arfirði. Þegar báturinn skilaði sér
ekki á umsömdum tima var hafm
leit að honum. Báturinn, sem lent
hafði í blindþoku, skilaði sér svo í
land við sveitabæinn Suður-Bár í
Eyrarsveit af sjáifsdáðum en í hann
vantaði allan búnað fyrir siglingar
við þessi skiiyrði. -snæ
Slasaður
göngugarpur á
Laugaveginum
- þyrla send á staðinn
Landhelgisgæslan sendi á laugar-
daginn þyrlu eftir slasaðri konu sem
var að ganga Laugaveginn ásamt
hópi fólks. Konan hafði meitt sig á
ökkla og treysti sér ekki að ganga
lengra og var því kallað á hjálp. Þá
var gönguhópurinn staddur í dal-
verpi sunnan við Hrafntinnusker,
vestan við Kaldaklof, og var búinn að
slá upp tjöldum svo ekki fór illa um
konuna. Reynt var að senda bíl frá
Björgunarsveitinni á Hellu til að ná í
þá slösuðu en hann komst ekki á leið-
arenda vegna krapa og aurbleytu
þannig að þyrla Landhelgisgæslunn-
ar var send á staðinn. -snæ
Slagsmál á Gauknum
Töluvert fyllirí var í miöbæ Reykjavíkur á
laugardagskvöld. Eitthvaö varum rysking-
ar meöal manna og brutust m.a. út slags-
mál á veitingastaönum Gauki á Stöng.
Glannaakstur í Ólafsvík:
Bíltúrinn endaði
á húsvegg
Ökutúr ungs ökumanns í Ólafs-
vík endaði heldur óskemmtilega á
laugardaginn þegar bíllinn sem
hann ók fór inn í húsagarð og lenti
á íbúðarhúsi. Bíllinn er mikið
skemmdur en ekki urðu slys á fólki.
Ekki var um ölvunarakstur að
ræða heldur eingöngu reynsluleysi
og glannaskap ökumannsins sem
hefur aðeins haft ökuleyfið um
skamma hríð. -snæ
. , Dv-MYND INGO
Sumarmyndin i ar
Þeir eru glaöhlakkalegir, félagarnir Kjartan Gunnarsson og Hannes Hólmsteinn Gissurarson, þar sem þeir stika
Austurstrætiö meö rjómaís t hendi og bros á vör. Úr svip þeirra má lesa ósk um aö sumariö veröi eilíft og í þeim efn-
um eru þeir sammála allri þjóöinni sumariö 2000.
Umferðarslys um helg-
ina á Norðurlandi:
Fimm bílar
Æm ••
gioronytir
Allmargar milljónir fóru í súginn
á Norðurlandi um helgina en þar
gjöreyðilögðust fimm bílar í samtals
fjórum umferðaróhöppum. Að sögn
lögreglunnar á Akureyri er þetta
óvenju mikið og er það mildi að
ekki urðu alvarleg slys á fólki. Um-
ferðarslysin gerðust bæði innanbæj-
ar utan og eru númerin af bílunum
komin inn á borð til lögreglunnar
þar sem þessir bílar eiga ekki eftir
að fara i fleiri túra um bæinn. -snæ
Helgin hjá lögreglunni:
Amfetamín í
Öskjuhlíðinni
Tveir
menn voru
teknir með
fíkniefni í
Öskjuhlíð-
inni á laug-_
ardaginn. í fljótu bragði virtist vera
um tvö „slög“ af amfetamíni að ræða.
Mennimir eru góðkunningjar lögregl-
unnar og var eftiið ætlað til eigin
neyslu. Töluverð ölvun var í miðbæ
Reykjavíkur á laugardagskvöldið,
enda veðrið milt og gott, en þó voru
engin teljandi vandræði. í Hafnarfírði
voru tveir teknir fyrir ölvunarakstur
og þrír í Kópavoginum. -snæ
Malagafanginn enn á ferð og hrelli íbúa í Baldursgötunni:
Oskubökkum og bleikri máln-
ingu rignir út um gluggann
- fundur íbúa og lögreglunnar haldinn í vikunni
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur
verið að gera nágrönnum sínum við
Baldursgötuna lífið leitt síðastliðin
ár. „Það er alltaf ónæði þama, glös-
um og öskubökkum hefur rignt nið-
ur úr gluggum. Þarna er alltaf
vímuefnaneysla og það er lið sem
þvælist með.
Lögregla og sjúkrabilar eru héma
reglulega og fíkniefnalögreglan er
hérna nánast tvisvar eða þrisvar í
viku,“ sagði nágranni sem ekki vildi
koma fram undir nafni vegna þess að
maðurinn hefur haft í morðhótunum
við hann og fjölskyldu hans.
„Hann er búinn að vera með hót-
anir við mig, að drepa mig og
mömmu mína og kveikja í bílnum
minum þannig að ég lít alltaf út um
gluggann þegar ég vakna til að gá
hvort bíllinn sé í björtu báli,“ sagði
nágranninn og bætti því við að á
tímabili hefði hann sofíð með golf-
kyifu við höfðagaflinn hjá sér.
Um siðustu helgi tók steininn úr
þegar maðurinn fleygði málningarfótu
út um gluggann á húsinu og ætlaði
henni að lenda á manni sem hann var
að rífast við. Hann hitti manninn þó
ekki heldur opnaðist fatan og bleik
málning slettist yfir nærstadda bíla og
götuna. Kalla þurfti á slökkviliðið til
þess að hreinsa burt málninguna. íbú-
ar viö Baldursgötu ætla nú að halda
fund með lögreglunni í Reykjavík í
næstu viku þar sem þau vandræði sem
maðurinn hefúr valdið verða rædd, en
nágrönnum hefur fúndist lögreglan
gera of lítið í málum mannsins.
Útburður takmörkuö lausn
„Skýrslum á viðkomandi er safnað
og þetta er þá gjaman bundið ákveðnu
húsnæði. Eftir ákveðinn tíma og
ákveðinn málafjölda er farið í sýslu-
mann og óskað eftir útburði," útskýrði
Jónas Hallsson, aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn í Reykjavík. Hann bætti því við
að hægt væri að bera fólk út úr sínum
eigin íbúðum, sem og leiguíbúðum.
Meðal kvartana fólksins eru innbrot
Stórum jarðskjálftum spáð á Suðurlandi:
Stöðug upphleðsla á spennu
- en ekkert bendir til yfirvofandi skjálfta
„Við erum eð stöðuga upphleðslu
á spennu á þessu svæði,“ sagði Páll
Halldórsson jarðeðlisfræðingur við
DV í gær. Á vefsíðu jarðeðlissviðs
Veðurstofu íslands kemur fram i
grein eftir þá Pál, Ragnar Stefáns-
son og Gunnar B. Guðmundsson að
skjálftamir sem urðu á Suðurlandi
fyrr í sumar hafi losað aðeins fjórð-
ung þeirrar spennu sem verið hefði
í jörðinni. Möguleiki sé á frekari
skjálftum þegar fram líða stundir,
svipuðum að stærð og skjálftamir í
sumar voru. Jarðskjálfti á austur-
hluta svæðisins geti orðið allt að 7
að styrkleika.
Páll sagði að þekkt væri hvort
tveggja úr sögunni að spennan losn-
aði tiltölulega fljótlega eða þá að það
Ljóst væri að síðustu skjálftar á
Suðurlandi hefðu ekki klárað alla
þá spennu sem verið hefði í jörð-
inni.
„Ég myndi álíta að verulegar lík-
ur séu á því að á næstu ánun, eða
1-2 áratugum, eigi eftir að verða
þama kippir, ekkert ósvipaöir þeim
sem urðu í sumar. Þá getur komið
kippur austar á svæðinu en ég tel
að það verði lengra í hann.“
Páll sagði að sem stæði vseru eng-
ar vísbendingar um yfirvofandi
skjálfta á svæðinu. Orðið hefði vart
viö smáskjálftakippi fyrir síðari
skjálftann í sumar á þeirri sprungu
sem síðan fór í gang. Bundnar væru
vonir við að hægt yrði að gefa
skammtímaviðvaranir með því að
fylgjast með því hvar sprungur
væru farnar að hreyfa sig. Aðeins
hefði borið á virkni í Flóanum og
Ölfusi en það væri ekkert sem hefði
náð sér á strik. -JSS
sem maðurinn er talinn tengjast,
fíkniefnaneysla, ólæti, morðhótanir og
aðrar hótanir. Maðurinn á langan
glæpaferil að baki sem nær aftur til
ársins 1973. Hann var tekinn fyrir eit-
urlyfjasmygl á Malaga á Spáni á sínum
tíma og sat í fangelsi þar.
Einnig hefur hann verið handtekinn
fyrir innbrot, ölvunarakstur, skjalafal
s, þjótnað, íjársvik og fikniefhabrot.
Maðurinn hefur verið sviptur ökmétt-
indum ævilangt og eitt mál gegn hon-
um er enn í gangi.
Ef maðurinn verður borinn út er
málið samt ekki leyst. „Ef honum yrði
hent út héma þá byrjar þetta vanda-
mál bara einhvers staðar annars stað-
ar,“ sagði nágranninn.
Samkvæmt síðustu heimildum mun
hafa sést til mannsins vera að kaupa
sér farmiða úr landi nú fyrir helgina.
-SMK
Pantið í tíma
darai i Þjóðhátíð
Ú
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
570 3030
loppurinn
á ísnum
yz,