Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2000, Page 7
7
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000
DV Fréttir
Dalvík:
Agætur hagnaður
hjá Sæplasti
Sæplast á Dalvík
Hagnaöur Sæplasts hf., móöurfélags og dótturfélaga, var rúmar 23 milljónir
króna eftir skatta fyrstu 6 mánuöi ársins.
PV, AKUREYRI:________________________
Hagnaður Sæplasts hf„ móðurfé-
lags og dótturfélaga, var rúmar 23
milljónir króna eftir skatta fyrstu 6
mánuði ársins samkvæmt milliupp-
gjöri sem stjóm félagsins fjallaði
um á fundi sínum í gær. Hagnaður-
inn jókst um 2 milljónir króna mið-
að við sama tíma í fyrra. Tekjur
Sæplasts hf. og dótturfélaga í
Kanada, Noregi og Indlandi voru
1.071 milljón króna fyrstu sex mán-
uði ársins miðað við 354 milljónir
króna eftir sex mánuði 1999 og 964
miljónir króna allt árið 1999. Veltu-
aukning á milli ára er því 202%,
enda gætir nú áhrifa tveggja nýrra
dótturfélaga Sæplasts í Noregi, þ.e.
Sæplasts Álasund A/S og Nordic
Supply Containers A/S.
Eignir félagsins í lok júní voru
2.201 milljón króna og höfðu hækkað
um rúmar 100 milljónir króna ffá
áramótum en á tímabilinu keypti fé-
lagið tvö fyrirtæki, Nordic Supply
Containers A/S og Atlantic Island
ehf„ en áhrifa frá því félagi gætir
einungis í efnahagsreikningi félags-
ins. Eigið fé var 698 milljónir króna
og hafði hækkað um 28 milljónir
króna frá áramótum. Eiginfjárhlut-
fall samstæðunnar var tæp 32% og
arðsemi eigin fjár um 7%. Skuldir fé-
lagsins voru 1.504 milljónir króna og
hafa hækkað um 73 milljónir frá ára-
mótum. Veltufjárhlutfall þann 30.
júní sl. var 1,41. í sjóðstreymi kemur
fram að veltufé frá rekstri var tæpar
110 milljónir króna fyrstu 6 mánuði
ársins en var 63 milljónir króna á
fyrstu sex mánuðum ársins 1999 og
106 milljónir króna allt árið 1999. Hjá
Sæplasti starfa nú 235 manns og þar
af tæplega 200 erlendis.
Öll dótturfélög Sæplasts hf. skil-
uðu hagnaði nema þau sem sinna
hverfisteypu í Noregi en þar var á
tímabilinu hagrætt mikið, einni
verksmiðju var lokað og verið er að
sameina starfsemina öðrum verk-
smiðjum Sæplasts i Noregi. Unnið
er að hagræðingu í öllum verk-
smiðjum Sæplasts og mun áhrifa
hennar gæta enn frekar á seinni
hluta ársins og á því næsta. Þrátt
fyrir að á tímabilinu hafi fallið til
verulegur kostnaður vegna hagræð-
ingar í rekstri hafa markmið rekstr-
aráætlunar félagsins náðst en ekki
hefur þótt tilefhi til að endurskoða
rekstraráætlun fyrir allt árið.
Áætlanir félagsins vegna fjárfest-
inga erlendis hafa að fullu gengið
eftir og verða nú 93% tekna sam-
stæðunnar til erlendis. Áhrifa fjár-
festinganna mun gæta enn frekar á
síðari hluta þessa árs og því næsta.
-gk
DV-MYND ÖRN ÞÓRARINSSON
Siglóminning
Hér er Una heiöruö og föngulegur
kvennakórinn í baksýn.
Kvennakórinn
heiðraði texta-
höfundinn
DV, SIGLUFIRDI:______________
A tónleikum Kvennakórs Siglu-
fjarðar, sem haldnir voru í Siglu-
fjarðarkirkju fyrir nokkru, flutti kór-
inn lagið Siglóminning í fyrsta skipti
opinberlega við frábærar undirtektir
fjölmargra áheyrenda. Siglóminning
er erlent lag en textinn eftir Unu Sig-
ríði Ásmundsdóttur.
„Okkur fannst vel við hæfl að sýna
Unu Sigríði svolitla viðurkenningu
við þetta tækifæri. Hún hefur oft
samið fyrir okkur texta og sá nýjasti,
Siglóminning, var saminn i síðasta
mánuði. Hann er afar fallegur og
saminn um bæinn okkar í tilefni þess
að hún hefur átt heima í Siglufirði í
hálfa öld. Auk kvennakórsins, sem
flutti um tuttugu lög á tónleikunum,
söng Karlakór Siglufjarðar nokkur
lög. Það er Elías Þorvaldsson sem
stjómar báðum siglfirsku kórunum
og annaðist hann einnig undirleik.
Auk hans léku undir Antonía Hevesi
og Jón Örvar Gestsson og Gróa Mar-
ía Þórðardóttir söng einsöng með
kvennakómum. -ÖÞ
Miklabraut:
Tafir á göngubrú
Verulegar taflr hafa orðið á opn-
un nýrrar göngubrúar yfir Mildu-
braut frá Grundargerði og yfir í
Skeifuna. Göngubrúin átti að vera
tilbúin fyrir rúmum mánuði en
verður að líkindum ekki opnuð fyrr
en i næsta mánuði:
„Verktakinn var eitthvað seint á
ferðinni," sagði Harald Alfreðsson
hjá gatnamálastjóra en með nýju
göngubrúnni tengist Smáíbúða-
hverfið Skeifunni og Heimahverf-
inu með samfelldum göngustíg.
„Vonandi verður þetta vinsæl brú,“
sagði Harald hjá gatnamálastjóra.
Önnur göngubrú er þegar komin
i gagnið austar á Miklubrautinni en
ráðagerðir um þriðju göngubrúna á
gatnamótum Miklubrautar og Háa-
leitisbrautar hafa verið lagðar á
hilluna í bili.
-EIR
Aldnir Skagfirðingar í Austfjarðaferð:
Ljósmóðir og prest-
ur með til öryggis
- auk læknis. Lögregluþjónn fór á kostrnn
_______;_________
Frá Eskifirði.
PV, ESKIFIRDI:
Um 50 myndar-
legir eldri borgarar
frá Skagafirði voru
fyrir nokkru í
heimsókn á Aust-
fjörðum. Hafði hóp-
urinn bækistöðvar
á Eiðum en ferðast
þaðan til margra
staða hér austan-
lands.
Til Eskifiarðar
komu Skagfirðing-
amir í blíðskapar-
veðri. Hópurinn
kom marsérandi
og syngjandi undir
harmoníkuleik Kristjáns frá Gil-
haga sem lék af alkunnri snilld.
Var tekið á móti þessum merku
gestum með virktum í Melbæ, hús-
næði eldri borgara á Eskifirði. Var
þeim boðið upp á kaffi og veitingar
ásamt ekta eskfirskum hákarli frá
Hákarla-Guöjóni. Skagfirðingar eru
hér með að endurgjalda heimsókn
eskfirskra eldri borgara til Skaga-
fjarðar frá því 1995.
Það kom glögglega í ljós hve
Skagfirðingar eru fyrirhyggjusamir
í orði sem verki því að meö í för
voru, til trausts og halds, ljósmóðir,
læknir og prestur, enda getur nú á
tímum allt gerst sem ekki hefur
komið fyrir áður.
Skagfirðingar eru skemmtilegir
með afbrigðum og mikið söngfólk.
Sungu þeir af hjartans list og
glöddu okkur með vel æfðri söng-
skrá sinni.
Margar góðar og skemmtilegar
ræður voru fluttar bæði af Eskfirð-
ingum og Skagfirðingum. Best
fannst mér þó ræðan hans Jóns
Ólafssonar, lögregluþjóns á Eski-
firði. Ég hélt að Jón gæti ekki verið
svona skemmtilegur ræðumaður.
Að lokinni móttöku í Melbæ var
hið fallega steinasafn Sörens og Sig-
urborgar skoðað og að því loknu hið
einstaka Sjóminjasafn Austurlands,
undir öruggri leiðsögn Geirs Hólm
safnvarðar. RT
LOKAÐ
Yfirlýsing frá samráöshópi 18 sveitarfélaga um fjarvinnslu:
Hart deilt á stjórnvöld
- ráöamenn halda að sér höndum, segir í yfirlýsingunni
„Samráðshópurinn 18 sveitarfé-
laga átelur harðlega tregðu stjóm-
valda hvað varðar virka þátttöku í
þróun upplýsingaiðnaðar utan höf-
uðborgarsvæðisins. Þrátt fyrir skýr
fyrirheit og hartnær heilu ári eftir
útkomu skýrslu Iðntæknistofnunar
um möguleika til fjarvinnslu á
landsbyggðinni, halda ráðamenn að
sér höndum og láta stefnumörkun í
þessum mikilvæga málaflokki emb-
ættismönnum eftir, í stað þess að
taka það frumkvæði sem þeim ber.
Með yfirlýsingum sínum hafa
stjómvöld skapað miklar vænting-
ar, en óútskýrt aðgerðaleysi og
skilningsleysi reyna nú mjög á þol-
inmæði almennings um aút land. í
hinni nýju tækni felast ómæld tæki-
færi til nýsköpunar á landsbyggð-
inni eins og dæmin sanna. Einkum
er það umhugsunarvert að einkafyr-
irtæki hafa séð sér hag í að nýta
slík tækifæri, en ríkisfyrirtæki hafa
sýnt mikla tregðu. Að óbreyttu er
hætt við að sinnuleysi stjómvalda
verði til þess að grafa undan fram-
tíðarmöguleikum landsbyggðarinn-
ar á þessu sviði. Fundurinn hvetur
stjómvöld þvi til aö vakna af dvala
sínum og sinna skyldu sinni, i sam-
ræmi við fyrri yfirlýsingar og álykt-
anir. Til að undirstrika alvöru máls-
ins mun samráöshópurinn fara
fram á fund með ríkisstjóminni
innan skamms.“ -ÓRV