Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2000, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000
11
Utlönd
Pútín fyrirskipar þjóöarsorg vegna áhafnar Kúrsk á miðvikudag:
Rússar óska aðstoðar
við að ná upp líkunum
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
fyrirskipaði þjóöarsorg í landinu á
morgun, miðvikudag, vegna dauða
áhafnar kjamorkukafbátsins Kúrs,
sem sökk í Barentshafi fyrir hálfri
annarri viku.
Yfirmaður Norðurflota Rússlands
tilkynnti formlega í gær að menn-
imir 118 um borð í Kúrsk hefðu all-
ir látið lifið. Þá höfðu norskir kafar-
ar komist um borð í kafbátinn og
komist að því að hann var fullur af
vatni.
Vjatsjeslav Popov aðmíráll ávarp-
aði rússnesku þjóðina í beinni sjón-
varpsútsendingu frá herskipi í
Barentshafi og bað hana fyrirgefn-
ingar á að hafa ekki tekist að bjarga
sjóliðunum.
Bestu sjóliðarnlr
„Við misstum bestu kafbátaá-
hööiina í Norðurflotanum," sagði
Popov titrandi röddu af geðshrær-
ingu.
„Fyrirgefið bömunum. Fyrirgefið
sonum ykkar. Og fyrirgefið mér fyr-
ir að færa ykkur ekki syni ykkar.“
Norskir embættismenn sögðu að
björgunaraðgerðum yrði nú hætt en
að Rússar hefðu óskað eftir aðstoð
við að ná líkum sjómannanna úr
kafbátnum. Rússneska sjónvarpið
sagði að þegar hefði eitt lík fundist
nærri neyðarlúgu.
Köfurunum tókst að opna innri
lúgu á kafbátnum níu dögum eftir
að hann sökk vegna sprenginga um
borð þar sem hann var við heræf-
ingar í Barentshafi.
Fullur af sjó
„Við komumst að þvi að kafbátur-
inn er fullur af sjó,“ sagði John
Espen Lien, talsmaður norska hers-
ins, í samtali við norska ríkisút-
varpið NRK eftir að kafaramir
höfðu kannað flakið. Enginn kafari
fór inn í skrokk kafbátsins.
Rússnesk stjómvöld sættu vax-
andi gagnrýni í gær vegna máls-
meðferðar sinnar. Yfirmaður
norsku björgunarsveitarinnar
kvartaði undan mikilli skriffinnsku
og rússneskir stjómmálamenn
hvöttu til að hafin yrði rannsókn á
björgunaraðgerðunum.
ígor Sergejev vamarmálaráð-
herra hélt uppi vömum fyrir rúss-
nesku björgunarsveitimar. Hann
viðurkenndi að mistök hefðu verið
gerð en þau hefðu ekki verið meiri
háttar.
En fréttir um að norsku kafaram-
ir hefðu getað opnað kafbátinn á
tæpum sólarhring, nokkuð sem
Rússum tókst ekki að gera á rúmri
viku, gerðu ekkert annað en að
kynda undir ásakanir um að stjóm-
völd hefðu beðið of seint um erlenda
aðstoð.
Pútín gagnrýndur
Vladímír Pútín forseti hefur eink-
um sætt gagnrýni fyrir aðgerðaleysi
sitt á meðan reynt var að bjarga
sjóliðunum í Kúrsk. Hann lét ekkert
í sér heyra fyrr en fjórum dögum
eftir slysiö og lét það ekki spilla fyr-
ir sér sumarleyfinu.
Það tók Rússana fjóra daga að
þiggja aðstoð en norsku kafarana
tæpan sólarhring að komast inn í
kafbátinn.
Á meðan á björgunaraðgerðunum
stóð gerðu rússneskir embættis-
menn sig hvað eftir annað seka um
að gefa rangar upplýsingar um gang
mála. í sumum tilvikum skýrist það
af skorti á upplýsingum en í öörum
var greinilegt að embættismenn
vom að reyna að gera minna úr
slysinu en efni stóðu til. Jafnframt
ýktu þeir um getu rússneska björg-
unarliðsins.
Umhverfisverndarsinninn Alex-
ander Níkítín, fyrrum liðsforingi í
rússneska sjóhemum, sagðist í gær
óttast geislamengun úr Kúrsk á
botni Barentshafsins.
Forðast deilur
Kohl vill ekki ávarpa þýska þingiö til
þess aö koma i veg fyrir deilur.
Kohl talar ekki
Helmut Kohl, fyrrum kanslari
Þýskalands, ætlar ekki að ávarpa
þýska þingið í lok september í
tilefni 10 ára sameiningar Austur-
og Vestur-Þýskalands.
Imynd Kohls sem kanslari
sameinaðs Þýskalands hefur verið
svert eftir að upp komst aö. Kohl
hefði þegið 1 milljón dollara í
fjárframlög tU flokks síns,
KristUegra demókrata.
Kohl mun þó koma fram á minni
hátíðarhöldum 27. september og 1.
október nk.
Sorgin ræður ríkjum í Múrmansk
Mikil sorg var meöal ættingja og vina sjóliöanna á rússneska kjarnorkukafbátnum Kúrsk sem sökk í Barentshafi fyrir
tíu dögum. 1 gær staöfestu rússnesk yfirvöld aö allir mennirnir um borö, 118 talsins, heföu týnt lífi þegar kafbáturinn
sökk eftir aö tvær sprengingar uröu um borð. Yflrvöld hafa veriö harölega gagnrýnd fyrir getuleysi sitt viö björgunina.
Fyrrum breskur njósnari heim úr útlegð:
Ákærður fyrir að Ijóstra upp
leyndarmálum um vanhæfni
David Shayler, fyrrum liðsmaður
gagnnjósnadeildar bresku leyni-
þjónustunnar, var ákærður i gær
fyrir að hafa ljóstrað upp opinber-
um leyndarmálum með staðhæfing-
um sínum um vanhæfni leyniþjón-
ustunnar.
Shayler var aftur á móti ekki
ákærður fyrir fullyrðingar sínar um
að breska leyniþjónustan hefði haft
uppi áform um að myrða Múammar
Gaddafí Líbýifleiðtoga.
Njósnarinn fyrrverandi var flutt-
ur á lögreglustöö strax eftir komuna
til Bretlands í gær, eftir þriggja ára
sjálfskipaða útlegð í Frakklandi.
Hann sagði að lögreglan heíði ekki
yfirheyrt sig þann stutta tíma sem
hann var í haldi og aö takmörkuð
ákæran sýndi að málstaöur stjóm-
valda væri ekki sterkur.
„Ég var alls ekki yfirheyrður. Það
Ailur er varinn góður
Njósnarinn fyrrverandi David Shayler
líturyfir öxl sér á meöan hann ræöir
viö fréttamenn eftir 3 ára útlegö.
er nú ljóst að staðhæfingar stjóm-
valda eiga ekki við nein rök að
styðjast," sagði Shayler eftir að hon-
um hafði verið sleppt gegn trygg-
ingu og gert að mæta í réttarsal á
fimmtudag.
Hann sagðist standa við þær full-
yrðingar sínar að Bretar hefðu tek-
ið þátt í misheppnaðri tilraun til að
ráða Gaddafi af dögum árið 1996.
„Robin Cook, utanrikisráðherra
Bretlands, hefur sagt að staðhæfing-
ar Shaylers um tilræðið við Gadda-
fi séu hreinn hugarburður.
Ákæran á hendur Shayler tengist
blaðagrein sem hann skrifaöi eftir
að hann lét af störfum í leyniþjón-
ustunni MI5. Þar sagði að drykkja
væri þar mikil og að haldin hefði
verið skrá yfir háttsetta þingmenn
Verkamannaflokksins á meðan
flokkurinn var í stjómarandstöðu.
Skoöanakönnun vekur vonir í Serbíu:
Milosevic nýtur
minni stuðnings
Ný skoðanakönnun, sem fram-
kvæmd var í Serbíu i ágúst, sýnir
að einungis 23 prósent Serba myndu
kjósa Slobodan Milosevic,
núverandi forseta, yrði kosið nú.
Sama könnun leiddi einnig i ljós að
35 prósent kjósenda hyggjast kjósa
Vojislav Kostunica, frambjóðanda
kosningabandalags 15 flokka.
Könnunin var framkvæmd af
útvarpsstöðinni B2-92 - eftir að nöfn
frambjóðenda forsetakosninganna
þann 24. september höfðu verið
kynnt. Úrtakið var 1700 manns.
Einn helsti leiðtogi stjómar-
andstöðunnar, Vuc Draskovic og
flokkur hans SPO, eiga ekki þátt í
kosningabandalaginu.
Rekur lestina
Ef fer sem fram horfir mun stjórnar-
tíö Milosevic brátt heyra sögunni til.
..það sem
fagmaðurinn
notar!
•. i#m
Allar gerölr festlnga
fyrir palla og grindverk
á lager