Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2000, Blaðsíða 6
24
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000 33"V
Margar nýjungar hjá ís-hlutum:
Endurunninn
qjaldeyrir
Mikill innflutningur hefur verið
á vinnuvélum og öðrum tækjum og
tólum fyrir verktakafyrirtæki und-
anfarin misseri. Eitt þeirra fyrir-
tækja sem hefur haslað sér völl í
innflutningi vinnuvéla er fyrirtæk-
ið ís-hlutir ehf. Fyrirtækið er í eigu
þriggja reyndra sölumanna; þeirra
Gunnars Bjömssonar, Kristjáns
Lárussonar og Péturs Ingasonar
RAFVER
sem allir eiga sér langa sögu sem
sölumenn vinnuvéla hér á landi.
Fyrirtækið flytur inn bæði nýjar og
nýlegar vélar og er ekki bundið
neinum sérstökum framleiðanda
heldur reynir að uppfylla óskir
hvers kaupanda óháð merkjavöm.
„Við höfum flutt inn mikið af vél-
um að undanförnu og erum að
styrkja okkur á markaðnum auk
þess að flytja inn allar stærðir af
vinnuvélum emm vð með umboð
fyrir „trailer vagna,“ bæði véla-
vagna og flatvagna og nú á dögun-
um vorum við einmitt að afhenda
einn slíkan. Við höfum einnig um-
boð fyrir vökvafleyga og borvagna á
samt mörgu fleiru sem tilheyrir
verktökum og flutningsaðilum,“
segja þeir félagar.
Fyrirtækið er nú að láta smíða
hjá Komatsu verksmiðjunum
stærstu beltagröfu sem til íslands
hefur komið. Um er að ræð 120
tonna vél sem afhent verður í des-
ember nk.
„Þessi vél er ætluð til að dýpka
hafnir og þess háttar. Vélin grefur
niður á 18 metra dýpi og lyftigeta
hennar er á milli 70 og 80 tonn og er
hún búin rúmlega 800 hestafla vél.
Þessi grafa er sérsmíðuð eftir þörf-
um kaupandans hér enda búin til að
vinna í sjó og þola saltið sem að öllu
jöfnu fer afar ifla með vinnuvélar.“
Ýmsar nýjungar aðrar má telja
hjá fyrirtækinu, þar á meöal eru
vogir sem ætlaðar eru í malarnám-
ur þannig að vörubílarnir aka yfir
þær á leið sinni til og frá námunum
og verður því efnissalan ljós jafnóð-
um auk þess sem bílstjórarnir eiga
ekki að þurfa að fara með of mikla
hlassþyngt út á vegi landsins.
Vinnuvélaleigu komið á fót
Það er vandi margra stórra sem
smárra verktakafyrirtækja að þurfa
að liggja með vinnuvélar sem nýtast
afar illa og eru verkefnalausar stór-
an hluta ársins. Til að ráða bót á
þessum vanda hafa þeir félagar hjá
Ís-Hlutum ákveðið að koma á fót
vinnuvélaleigu þannig að verktakar
geti leigt sér vélar þegar um stærri
verk er að ræða.
„í samstarfi við erlent fyrirtæki á
þessum markaði erum við að hefja
útleigu á stórum vinnuvélum og er
þá einkum horft til þess að leigja
vélar í stór verkefni og verður ein-
Við bjóðum til sölu
CARNEHL malarvagna og skúffur
á allar gerðir vörubíla
Á.
/AFLRAS
Einhöfða 14 110 Reykjavík S: 587 8088 Fax: 587 8087
Hér má sjá Furukawa-fleyginn sem búinn er nýrri gerð af loftrásum.
göngu um að ræða nýjar og nýlegar
vélar. Að loknum vekefnum verða
vélamar seldar úr landi á ný
þannig að um þjóðhagslega hag-
kvæmt verkefni er að ræða enda
fáum við gjaldeyri aftur inn í land-
ið fyrir þessar gömlu vélar.“
Vandamál mikils innflutnings á
stórum tækjum til lítils lands er að
losna við gömlu tækin af markaðn-
um. Ein af þeim nýjungum sem ís-
hlutamenn hafa ráðist i er að selja
gamlar vinnuvélar úr landi og hafa
þær verið seldar til meginlands Evr-
ópu, þaðan sem þær hafa farið það-
an bæði austur fyrir jámtjald og allt
til Afríku.
„Það hefur nokkuð verið selt úr
landi af gömlum vinnuvélum og við
hreykjum okkur af því að vera
þrautryðjendur á þessu sviði.
Helsta vandamálið við þennan út-
flutning er hversu flutningsgjöld
eru há og skemmir það mjög fyrir
þvi að losna við þessar vélar og fá
erlendan gjaldeyri fyrir,“ segja þeir
félagar hjá Is-hlutum sem eru að
endurvinna gjaldeyri fyrir þjóðina.
-GS
Mikið afl leysist úr læðingi þegar Furukawa-borvagninum er beitt á bergið.
Áhugaverðar vinnu-
vélasíður á Netinu
Á Netinu er að finna ýmsar
heimasíður fyrir þá sem áhuga hafa
á vinnuvélum og vinna í faginu.
Stærstu vinnuvélaframleiðendur
heims Catepillar og Komatsu er báð-
ir með heimasíður á Netinu þar sem
hægt er að fræðast um þau tæki
sem þeir framleiöa og ýmislegt því
tengdu. Slóðirnar á heimasíður
þeirra eru www.cat.com og
www.komatsu.com.
Á heimsiðunni www.bigtoy.com
er hægt að finna ýmsar áhugaverða
upplýsingar um vinnuvélar og allt
sem að þeim snýr. Þar er til dæmis
hægt að fá upplýsingar um veffóng
ýmis framleiðanda, áhugasamtaka,
uppboða, safna og fleira sem tengist
vinnuvélaiðnaðinum.
Þeir sem áhuga hafa á að eignast
gröfu, ýtu eða vörubílamódel ættu
til dæmis að kíkja á heimasíðu fyr-
irtækisins Model Excavator
Company en slóðin er
www.users.globalnet.co.uk en það
fyrirtæki sérhæfir sig í framleiðslu
á vinnuvélamódelum. Það voru
tveir áhugamenn um vinnuvéla-
módel sem stofnuðu fyrirtækið en
upphafið má rekja til þess að fram-
leiðendur og safnarar komustu yfir
módel frá þeim. Módelin þóttu það
góð að þeir báðu félagana um að
búa til auka módel fyrir sig.