Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2000, Blaðsíða 12
30
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000 JL>"V
Sérhæfðir í vöruflutningakössum:
Kertastiakarnir
björguou okkur
- segja eigendur Vagna og þjónustu
Myndavélaaugu eru komin aftan á þessa stóru bíla þannig að ökumaður sér á
skjá í mælaborðinu hjá sér allt fyrir aftan bifreiðina DV-myndir GS
Fyrirtækið Vagnar og þjónusta
ehf. hefur allt frá stofnun síðla árs
1987 sérhæft sig í smíði vörukassa
á sendi- og flutningabifreiðar og
er fyrirtækið nú orðið ráðandi á
þessum markaði hérlendis. „Við
byrjuðum á að smíða vörukassa
með hnoðuðum hliðum eins og þá
tíðkaðist og náðum strax fótfestu
á markaðnum en þegar dró fram á
árið 1998 fór að draga verulega úr
innflutningi vöru- og sendibíla
þannig að við stóðum uppi verk-
efnalausir haustið 1998. Eftir tölu-
verðar bollaleggingar um verkefni
ákváðum við að ráðast í að smíða
háa kertastjaka úr smíðajámi og
hlutu þeir góðar viðtökur enda
smíðuðum við hundruð slíkra
kertastjaka fram til jóla og seldum
aUt. Árið eftir var fjöldi manna
farinn að smíða svona stjaka
þannig að við létum það alveg
eiga sig enda farið að rofa til í
innflutningi atvinnubíla og með
því batnaði verkefnastaða okkar.
En kertastjakamir fleyttu okkur
yfir erfiðan hjalla í rekstrinum,“
segir Gestur Magnússon sem
ásamt Birni bróður sínum á og
rekur fyrirtækið.
Margar nýjungar
Eftir að smíðin náði sér á skrið
að nýju hefur verið stöðugur og
jafn stígandi í framleiöslu fyrir-
tækisins enda hafa þeir bræður
verið fljótir að tileinka sér allar
nýjungar i þessari grein og vom
til að mynda fyrstir hér á landi til
að smíða kassa úr lituðu áli sem
var límt utan á kassann i stað
þess að draghnoða eins og áður
var gert og verða kassarnir bæði
fallegri og endingabetri með þess-
ari aðferð.
„Það eru sífellt að koma nýjung-
ar í þessu eins og öðm. Nú er orð-
ið hægt að opna alla hliðar kass-
ans og leggja hana upp á þak á
meðan bíllinn er lestaður og er
það gert með þráðlausri fjarstýr-
ingu. Þá eru vörulyftumar sem
við emm að selja komnar með
slíka fjarstýringu. Við hönnun
kassana reynum við að uppfylla
þarflr hvers og eins, til dæmis
vorum við að nýlega að afhenda
bfl sem búinn er uppstigi eða eins-
konar tröppu meðfram hliðum.
Einungis þarf að ýta á einn takka
og þá er komið þrep meðfram
bílnum sem auðveldar tO muna
afla umgengni um vörukassann.
Myndavélaaugu er komin aftan á
þessa stóru bOa þannig að öku-
maður sér á skjá í mælaborðinu
hjá sér aUt fyrir aftan bifreiðina.“
Eini í heiminum
Nú er fyrirtækið að hefja smíði
á „traOer vagni“ sem verður að
því er best er vitað sá eini sinnar
tegundar í heiminum. Vagninn
verður 13 metra langur og búinn
opnanlegum hliðum, rúllubraut-
um í gólfl og vörulyftu þannig að
hann á að geta sinnt fjölbreyttum
verkefnum þar sem sérhæfing í
flutningum er ekki enn orðin jafn
mikO hér og gerist víða erlendis.
Því er nauðsynlegt að geta notað
tækin i sem flest og fá með því
bætta nýtingu. Vagnar og þjón-
usta ehf. er að byggja nýtt 1100
fermetra húsnæði á Tunguhálsi í
Reykjavík og er ætlunin að starf-
semi fyrirtækisins verði komin
þangað innan fárra vikna.
„Það verður bylting fyrir okkur
að flytja í nýja húsið. Þrengslin
hérna eru farin að standa okkur
verulega fyrir þrifum. Við höfum
orðið að láta frá okkur mikið af
verkefnum vegna plássleysis hér
og það heftir vitanlega vöxt fyrir-
tækisins auk þess að verkefnin
færast tO samkeppnisaðila okkar.
En framtíðin er björt og við ótt-
umst hana ekki heldur þvert á
móti erum fuUir bjartsýnii segja
þeir bræður Björn og Gestur
frumkvöðlar hjá Vögnum og Þjón-
ustu ánægðir með sinn hlut.
-GS
Bjöm og Gestur Magnússynir, eigendur Vagna og Þjónustu, viö einn þeirra bíla sem þeir hafa smíöaö yfir. Eins og
sjá má er hægt aö opna kassann mikiö auk þess sem gangstigiö kemur fram undan hliöum bflsins.