Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2000, Síða 27
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000
35
x>v
Tilvera
Kevin Bacon:
Leikari
á ystu
nöf
Kevin Bacon leikur ósýnilega
manninn í Hollow Man, sem frum-
sýnd verður í kvikmyndhúsum hér
á landi á morgun. í myndinni leikur
hann vísindamanninn Sebastian
Caine, vísindamann sem starfar á
vegum Pentagon í tilraunaverkefni
sem miðar að því að gera dýr ósýni-
leg. Tilraunirnar ganga vel og í kjöl-
farið ákveður Caine að gera tilraun
á sjálfum sér, gera sig ósýnilegan.
Kevin Bacon hefur lengi verið i
fremstu röð leikara í Bandaríkjun-
um og hefur tekið ýmsar U-beygjur
á ferlinum, leikið í myndum sem
best eru geymdar í glatkistununni
ásamt því að leika í úrvalsmyndum
sem lifa góðu lífl. Af og til hefur
hann einnig leikið á sviði og í dag
er hann í hópi leikara sem
treystandi er fyrir hvaða hlutverki
sem er, vinnur ekkert allt of mikið
og gefur sér tíma til að lifa líflnu
ásamt eiginkonu sinni, leikkonunni
Kyru Sedgwick, og tveimur börn-
um.
Bacon fæddist inn í hamingju-
sama millistéttarfíölskyldu i Fíla-
delfíu og var faðir hans í góðri
stöðu hjá borginni og móðir hans
kennari og þekktur pólitíkus.
Sautján ára gamall flutti hann til
New York, þar sem hann varð einn
yngsti nemandinn sem sest hefur á
skólabekk í Square Theatre School.
Meðfram náminu og ströglinu að
því loknu vann hann sem þjónn á
börum í New York. Bacon fékk litið
hlutverk í National Lampoon’s
Animal House, sem í fyrstu var
sviðsverk, og í kjölfarið lék hann
sama hlutverk í kvikmyndinni.
Ferill Kevins
Bacons í
kvikmyndum
National Lampoon’s
Animal House, 1978
Starting Over, 1979
Hero at Large, 1980
Friday the 13th, 1980
Only When I Laugh, 1981
Diner, 1982
The Demon Murder Case, 1983
Footloose, 1984
Quicksilver, 1986
Lemon Sky, 1987
White Water Summer, 1987
Planes, Trains and
Atomobiles, 1987
Criminal Law, 1988
End of the Line, 1988
She’s Having a Baby, 1988
The Big Picture, 1989
Tremors, 1990
Flatliners, 1990
He Said, She Said, 1991
Queens Logic, 1991
JFK, 1991
Pyrates, 1991
A Few Good Men, 1992
The River Wild, 1994
The Air Up There, 1994
Murder in the First, 1995
Balto, 1995
Apollo 13, 1995
Sleepers, 1996
Telling Lies in America, 1997
Picture Perfect, 1997
Digging to China, 1998
Wild Things, 1998
Stir of Echoes, 1999
HoUow Man, 2000
Fyrsta hlutverkið á Broad-
way var í Slab Boys, þar
sem mótleikarar hans voru
Sean Penn og Val Kilmer,
sem voru jafn óþekktir og
Bacon á þessum tíma.
Stóra stökkið kom þegar Barry
Levinson fékk honum eitt stærsta
hlutverkið í sinni fyrstu kvikmynd,
Diner. Þar lék hann ríkan ungling
sem átti við drykkjuvandamál að
stríða. í þéssari þekktu mynd Levin-
son voru fleiri væntanlegar
Hollywood-stjörnur að stíga sín
fyrstu skref í átt tO frægðar og má
þar nefha Mickey Rourke, Ellen
Barkin, Steve Guttenberg, Paul
Reiser og Daniel Stem. Þetta var
árið 1982. Tveimur árum síðar lék
Bacon í Footloose og ný Hollywood-
stjama var komin fram i sviðsljós-
ið.
Ferill Bacons gefur til kynna að
annað hvort er hann mjög leitandi
eða með vöntun á sjálfstrausti. Hef-
ur hann oftsinnis látið góð hlutverk
frá sér fara og leikið í staðinn ein-
hver furðufyrirbæri í þess furðu-
legri myndum. Ávallt hefur hann þó
náð að standa uppréttur. Á Broad-
way hefur honum gengið betur að
feta sig áfram, leikið nokkur góð
hlutverk og fengið Golden Globe-til-
nefningar fyrir leik sinn. Ekki er þó
hægt að ganga fram hjá því að hann
hefur einnig leikið mörg góð hlut-
verk i kvikmyndum, hlutverk sem
hafa haldið nafni hans á lofti. Má
þar nefna nýlegar myndir eins og A
Few Good Men, Murder in the First,
Apollo 13 og Sleepers. Bacon segist
leika í einum til tveimur kvikmynd-
um á ári: „Þegar hárið er farið að
þvælast fyrir mér veit ég að nú er
kominn tími til að fara að vinna,
því yfirleitt er ég sendur í klippingu
þegar ég hef fengið hlutverk."
Tónlistin á einnig hug Kevins
Bacon og árið 1994 stofnaði hann
ásamt bróður sínum Michael hljóm-
sveitina Bacon Brothers. Þeir byrj-
uðu að leika í litlum klúbbum á
norðausturströndinni og hafa hald-
ið þessu tómstundastarfi sínu gang-
andi. Fyrir þremur árum leikstýrði
Kevin Bacon sinni fyrstu kvik-
mynd, Losing Chase, sem fjallar um
vinskap tveggja kvenna sem eiga
við sálræn vandamál að stríða. Eig-
inkona hans Kyra Sedgwick lék
annað hlutverkið og mótleikkona
hennar var Helen Mirren.
-HK
Hollow Man:
Kostir þess að vera ósýnilegur
í Hollow Man er sagt frá vísinda-
manninum Sebastian Caine (Kevin
Bacon), sem er að vinna að mjög
þýðingamiklu verkefni fyrir Penta-
gon. Hvað er betra fyrir hermenn
framtíðarinnar en að vera ósýnileg-
ir óvinum sínum? Þegar Caine
ákveður að prófa ákveðna formúlu
á sjálfan sig fer allt úrskeiðis sem
hugsast getur, hann verður ósýni-
legur með öllu. Samstarfsmenn
hans, Linda (Elisabeth Shue) og
Matthew Kensington (Josh Brolin)
reyna að gera Caine aftur sýnilegan
Osýnilegi maöurinn
Elisabeth Shue viröir fyrir sér hinn ósýnilega Kevin Bacon.
með annarri formúlu en hún virkar
ekki sannfærandi. Caine verður
óvinur samstarfsmanna sinna og
smitast af þeim nýja krafti sem
hann býr nú yfir, eða eins og hann
segir sjálfur: „Það er ótrúlegt hvað
þú getur gert, þegar þú þarf ekki
lengur að horfa á sjálfan þig í spegl-
inum.“
Leikstjóri Hollow Man er Paul
Verhoven, sem hefur átt sínar hæð-
ir og lægðir. Hann er Hollendingur
sem vakti athygli heimsins með
mynd sinni The Fourth Man.
Hollywood tók hann upp á arma
sína og varð hann einn af eftir-
lætisprinsum borgarinnar í kjölfar
vinsælda Robocop. Ekki minnkaði
virðingingin fyrir honum þegar
Total Recall var frumsýnd og í
hæstu hæðir fór hann þegar hann
sendi frá sér Basic Instict. Fallið af
toppnum varð síðan stórt þegar
Showgirls leit dagsins ljós og má
segja að með Starship Troopers og
Hollow Man sé hann að rembast við
að klifra á toppinn aftur. -HK
High Fidelity Á
★★★★ Þetta er sérlega skondin
mynd um ofur venjulegt nútímafólk og
ofur venjulegar raunir þess, þannig
gerð aö manni stendur ekki á sama
um fólkið í henni og vill því allt hið
besta. Það er gott að finna þannig til
þegar maður gengur út úr bíóinu.
-ÁS
Amerícan Psycho
★★★i Christian Bale leikur „sækó-
inn" Patrick Bateman af mikilli snilld.
Hann er óaðfinnanlegur á yfirborðinu
en tómur undir niðri. Útlit myndarinnar
er fullkomlega í takt við satíruna sem*-
dregur miskunnarlaust dár að uppa-
menningunni. American Psycho er
lykiltexti í vestrænni menningu og
Mary Harron gerir honum góð skil.
-BÆN
X-Men
★★★ X-Men er mikið sjónarspil,
tæknilega fullkomin. Hraðinn í at-
burðarásinni kemur þó aldrei niður á
sögunni sjálfri, sem hefur marga
anga, og það er merkilegt hvað tekist
hefur að gera teiknimyndaofurmenni
að jafnlifandi persónum og raunin er.
Leikarar eru yfirleitt mjög góðir, með
þá lan McKellan og Patrick Stewart
fremsta meðal jafningja.
-HK
101 Reykjavík
★★★ Hilmir Snær leikur auðnuleys-
ingjann Hlyn sem lifir og hrærist í
hverfi 101 Reykjavík. Líf hans er í
föstum skorðum þar til vinkona móður
hans kemur í heimsókn og úr verður
einhver sérkennilegasti ástarþríhyrn-
ingur íslenskrar kvikmyndasögu.
Fjörug mynd sem býr þó yfir þungri
og alvarlegri undiröldu.
-BÆN
Keepíng the Faíth
★★★ Jake og Brian eru afar
skemmtilega skrifaðar persónur og,
eins og við er að búast, eru Norton
og Stiller óaöfinnanlegir í hlutverkum
sínum. Jenna Elfmann hefur þá út-
geislun sem þarf í hlutverkið og mað-
ur skilur varla hvernig hægt er að
vera ekki skotinn í henni.
-PJ
Islenski draumurinn
★★★ Líflegt og skemmtilegt handrit
sem er uppfullt af lúmsku háði og
skemmtilegum orðaleikjum. Styrkleiki
myndarinnar er kannski einnig helsti
veikleikinn. Persónurnar tala mikið í
myndavélina og þótt handritið bjóði
upp á skemmtileg tilsvör og orðaleiki,
þar sem góðir leikarar skapa eftir-
minnilegar persónur og fara vel með
textann, þá er ekki laust við að at-
burðarásin hafi hæðir og lægðir. ís-
lenski draumurinn lofar góðu um
framtíðina hjá Robert Douglas.
-HK
Titan A.E.
★★A Aðal Titan A.E. er útlitið.
Myndin er litskrúðugt sjónarspil þar
sem þeyst er á milli plánetna og sól-
kerfa í einni andrá í farartækjum sem
eru jafnfjölbreytt í útliti og persónur
myndarinnar. Sagan, sem er hin
skemmtilegasta, er hentug tyrir formiö
og í anda þekktra stjörnustríðsmynda
og gefur ekkert eftir mörgum leiknum
myndum um sama efnið í spennu.
-HK
Music of the Heart
★★A Wes Craven tók sér smáhvíld .
á milli „Öskur“mynda sinna númer tví*
og þrjú og leikstýröi Music of the He-
art, sem er eins langt frá hryllings-
myndum hans og hægt er, hugljúft
drama um kennslukonu sem kennir
fátækum börnum á fiðlu. Og með
henni sýnir Craven að honum er fleira
til lista lagt en gera spennandi hryll-
ingsmyndir sem fá hárin til að rísa.
Með stórkostlegum leik bætir Meryl
Streep enn einni skrautfjöðrinni við
einstæðan leikferil í kvikmyndum.
-HK
Shanghai Noon
★★iÞegar best lætur er Shanghai^
Noon vel heppnaður farsi. Hraðinn í
atburöarásinni er mikill. Fyndnar setn-
ingar eru oftast á kostnað Jackies
Chans og svo er myndin uppfull af vel
útfærðum bardagasenum og áhættu-
atriðum. Enginn slær þó Jackie Chan
út í slíkum atriöum þar sem hann
nánast prjónar sig í gegnum tug af
kúrekum, eins og ballettdansari innan
um glímukappa, og gerir svo hluti A.
sem aðrir leikarar mundu fá áhættu-
leikara til aö gera fyrir sig. -HK