Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2000, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2000, Síða 27
MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 2000 DV Kvikmyndir 43 Sting er 49 ára í dag Breski poppgosinn Gordon Matthew Sumner eða Sting er 49 ára 1 dag. Hann var á sínum tíma að- alsöngvari og bassa- leikari hljómsveitar- innar Police en hóf sólóferil 1984. Árið 1985 stofnaði hann hljómsveitina Blue Turtles og hljóðritaði með þeim fyrstu sólóplötu sína. Sting hefur komið fram i nokkrum kvikmyndum, m.a. eftir vísindaskáldsögunni Dune. Hann hefur tekið þátt í Qölda góðgerðartón- leika og hefur verið ötull talsmaður fyrir vemdun regnskóganna. Gildir fyrir þriöjudaginn 3. október Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.i: . Sinntu mikilvægum verkefnum fyrst þar sem ekki er séð hve mikinn tíma þú hefur. Þrýsting- ura fólk við vinnu skilar sér lítið. Þú verður að leggja þig allan fram. Fiskarnir (19. febr-20. marsl: Gættu þess að gleyma lengu mikilvægu þótt þú hafir í mörg hom að líta. Það gætu orðið einhvérjir árekstrar í einkalifmu. Hrúturinn (21. mars-19. anríll: . Gengi þitt í vinnunni I fer óðum batnandi og það er engu líkara en að lánið leiki við þig. Gamall vínur leitar ráða hjá þér. Hruturinn (21. Nautið (20. ai ér nog fyrir st I VIUUIOl llll i^-L </ ekki. Þú ætti Nautið (20. apfíl-20. maíi: Þú ert fremur niður- dreginn fyrri liluta dagsins en það bráir þó af þér ef þú hefúr nóg Tyrir stafhi. Þú kynnist mikil- vægri manneskju á næstunni. Tvíburarnir (21. maí-21. iúnn: Þú ert talsvert gefinn Myrir að gagnrýna aðra og það gæti komið þér í koll ef þú gætir þín i ættir að eyða kvöldinu í góðra vina hópi. Krabblnn (22. iúní-??. iúin: Það hefúr verið mikið I að gera hjá þér undan- ' fariö og nú er kominn tími til að hlaða batt- f>ú ættir að fara í ferðalag. Uónið (23. iúlí- 22. ágúst): Lífið virðist leika við þig þessa dagana og | M ekki er óiíklegt að ást- " in sé á næstu grösum. Kvöldið'verður afar skemmtilegt og eftirminnilegt. Mevlan (23. áeúst-22. sept.l: Þú hugar að framtíðar- áformum og er þar sannarlega úr mörgu ^ f að velja. Þótt ýmsir vilji ráðleggja þér og vilji þér vel verður þú að treysta á sjálfan þig. Voein (23. sept.-23. okt.l: Ástvlnir eiga saman notalega stund og era jafnvel famir að gera áætlanir um framtíð- iná. Þetta er einmitt rétti tíminn til þess. Sporðdreki (24. okt.-2i. nóv.): [ Það er óróleiki í kring- um þig sem stafar af »óleystu deilumáli. Reyndu að komast að i um breytingar sem fyrst. Bogamaður (22. nóv.-21. des.l: IStaðfesta er mikilvæg í Fdag. Þú ert vinnusam- ur og eitthvað sem þú gerir vekur athygli igum þig. Steíngeitin (22. des.-i9, ian.ú Þín blða ný og skemmtilegt tækifæri í vinnmmi sem er um að gera að nýta sér. Fjoiskyldulífið gengur betur en það hefúr gert undanfarið. Biógagnrýní ,>■ : Kvikmy?í!gi@ The Straight Story - ★★★* Mjúkur Lynch Það er ekki ofsögum sagt að Dav- id Lynch hafi komið öllum á óvart með The Straight Story. Þetta er leikstjórinn sem þar á undan gerði Lost Highway, þar sem mátti hafa sig allan við að fá einhvern botn í söguna og leikstjóri sem þekktur er fyrir að setja í kvikmyndir sínar persónur sem erfitt er að finna samastað í raunveruleikanum. Lynch er einnig sá sem gerði The Elephant Man, það er bara svo langt siðan hann leikstýrði henni að hún stendur þrátt fyrir gæðin að nokkru leyti í skugganmn af Blue Velvet, Wild at Heart og Tvídranga-sjón- varpsseríunni. The Elephant Man og The Straight Story eiga margt sam- eiginlegt þó ólík- ar séu. í þeim er Lynch á ljóðrænan hátt að fást við það besta og versta í manneskjunni. Mannfyrirlitningin er áberandi í fyrrnefndu myndinni á meðan það besta í manneskjunni er í forgrunninum í The Straight Story, sem er einstaklega hugljúf kvikmynd um sjötíu og þriggja ára gamian mann, Alvin Straight (Ric- hard Farnsworth), sem vill ekki skilja við lífið án þess að sættast við bróður sinn. Eins og hann segir voru þeir eins nánir eins og bræður geta orðið en áfengi, öfund, hroki og hégómi gerði þá að óvinum. Alvin er góður maður og búinn að lifa timana tvenna. Hann er einnig þrjóskur og vill á fund bróð- ur sins yfir þver miðríki Bandaríkj- anna án aðstoðar. Þar sem hann hefur ekki bílpróf ákveður hann að fara á sláttuvél, sem fer með fimm kílómetra hraða á klukkustund. Al- vin býr yfir mikilli visku sem kem- ur aðeins úr skóla lífsins. Á sinn ró- lega hátt leiðbeinir hann villuráf- andi meðbræðrum sinum sem hann hittir á ferð sinni um leið og hann svarar þeim sem vilja honum vel með setningum á borð við: „Þú ert góður maður að reyna að leiðbeina þrjóskum manni.“ Þegar svo hjól- reiðakapparnir spyrja hann hvernig það sé að vera gamali svarar hann: „Það versta við ellina er að muna þegar ég var ungur.“ Þegar svo að lokum hann hittir bróður sinn þarf ekki mörg orð til að lýsa tilfinning- um þeirra i frábæru lokaatriði. The Straight Story væri ekki þessi áhrifamikla og hugljúfa kvik- mynd ef ekki kæmi til leikur Ric- hards Farnsworth. David Lynch er mikill fagmaður og gerir aiit rétt og stundum má meira að segja sjá takta sem kunnuglegir eru eins og þegar fjölskylda og vinir sitja úti á bletti og fylgjast með æfingu hjá slökkviliðinu. Hann veit það samt að myndin stendur og fellur með Famsworth og leyfir honum að njóta sín, má þar nefna atriðið á barnum þegar tveir gamlir menn rifja upp sársaukafulla reynslu sína af fyrri heimsstyjöldinni. Túlkun Famsworth þar lætur engan ósnort- inn. Hilmar Karlsson David Lynch. Handrit: John Roach og Mary Sweeney. Kvikmyndataka: Freddie Francis. Aðaihlutverk: Richard Farnsworth og Sissy Spacek. A leið út í óvissuna Richard Farnsworth í hlutverki Alvins sem fer á sláttuvél til aö hitta deyjandi bróður. Cosi ridevano - ★★★ Kv,kmyVÖgÖ Kaldhæðin örlög Gianni Amelio er orðinn ansi þekktur, kannski ekki meðal al- mennings en myndir hans hafa vak- ið hrifningu á kvikmyndahátíðum. Fyrir nokkrum árum sá ég L’Amer- ica á kvikmyndahátíð hérna og það má sjá að Cosi ridevano er gerð af sama manni, þótt hún nái ekki þeim íronísku hæðum og sjarma sem gerði L’America svo heillandi. Titillinn Cosi ridevano (Hvernig við hlógum) vísar í dálk í ítölsku tímariti frá sjötta áratugnum þar sem lesendur sendu inn brandara. Með því að skoða þessi gömlu blöð má sjá hvemig húmor ítölsku þjóð- arinnar breytist með árunum. Gi- anni Amelio reynir að fanga breyt- ingamar í itölsku samfélagi á sjötta og sjöunda áratugnum á svipaðan hátt, á tímabili þar sem Ítalía er að breytast úr sveitamenningu í borg- armenningu. Myndin gerist á sex ára tímabili, frá 1958 til 1964, og sýn- ir okkur einn dag á hverju ári í lífi tveggja munaðarlausra bræðra sem hafa flust frá Sikiley tii Torino. Eldri bróðirinn, Giovanni, er ómenntaður og ólæs. Hann er stað- ráðinn í að yngri bróðirinn, Pietro, fái notið þeirrar menntunar sem hann hefur sjálfur farið á mis við og verði að lokum kennari sem í hans huga er mesta virðingarstaða sem hann gæti náð. Hann færir stöðugar fómir til að kosta menntun Pietro sem lætur sér fátt um finnast og sýnir náminu lítinn áhuga. Honum snýst þó hugur um síðir en fanatísk staðfesta Giovanni endar með ósköpum og sagan endar í kald- hæðnislegum viðsnúningi. Persónur í myndum Gianni Amelio, í þessari sem fyrri myndum hans, eiga erfitt uppdráttar og eru í lægstu þrepum virðingarstigans í sínu samfélagi og myndimar segja frá draumum þeirra um betra líf og oft vonlítilli baráttu þeirra til að öðlast það. f Cosi ridevano eru per- sónumar fulltrúar hinna lægst settu í gömlu ítölsku þjóðfélagsskip- uninni. Með mikilli þrjósku, fóm- fýsi og staðfestu nær eldri bróðirinn að gera það sem þarf til að mennta yngri bróður sinn en þjóðfélagið breytist hraðar en metnaður þeirra og niðurstaða erfiðisins verður allt önnur en hann hafði séð fyrir sér. Leikstjórinn stundar persónusköp- un sína af mikiili alúð og góðir leik- arar hjálpa honum að gera bræð- urna að fullmótuðum persónum sem eiga samúð áhorfandans. Frá- sagnarstíllinn er markviss en hæg- ur og maður þarf því að sýna svolitla þolinmæði. Íronían er ekki jafnmögnuð og í L’America en leik- stjórinn kemur hugðarefnum sínum á framfæri á þann hátt að áhorfand- inn getur haft ánægju af. Pétur Jónasson Leikstjórn og handrit: Gianni Amelio. Að- alhlutverk: Enrico Lo Verso og Francesco Giuffrida. VIDEOHOL LIN y\ ^>mu b>axrck ^BÓNUSVIDEO Loitjíiit f þínu hvorfí 4*,- t 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.