Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2000, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2000
Viðskipti_____________________________________________________________________________________________________________________________DV
Umsjón: Viðskiptablaðið
Íslandsbanki-FBA og
Gilding kaupa Ölgerðina
Íslandsbanki-FBA hf. hefur kom-
ist að samkomulagi við aðaleigend-
ur Ölgerðarinnar Egils Skallagrims-
sonar ehf. um kaup á 96,58% hlut
þeirra í fyrirtækinu. Kaupin eru
samstarfsverkefni Islandsbanka-
FBA og Fjárfestingafélagsins Gild-
ingar.
í frétt frá nýjum eigendum segir
að Íslandsbanki-FBA og Gilding
stefni að frekari eflingu félagsins og
auknum umsvifum í rekstri. Engar
breytingar eru fyrirhugaðar á
starfsmannahaldi. Stefnt er að því
að áreiðanleikakönnun íslands-
banka-FBA ljúki í lok nóvember og
þann 1. desember verði
gengið frá kaupum og
eigendaskiptum. Það
hefur orðið að sam-
komulagi að engar
upplýsingar verði
veittar um kaupverð,
enda þjóni það hvorki
hagsmunum kaupenda
né seljenda.
Ölgerðin Egill
Skallagrímsson ehf.
var stofnað árið 1913
og er eitt þekktasta framleiðslufyr-
irtæki landsins. Fyrirtækið fram-
leiðir gosdrykki, bjór og léttöl, bæði
undir eigin vörumerkjum og ann-
arra auk þess að stunda innflutning
á sams konar vörum. Meðal þekktra
vörumerkja fyrirtækisins eru Egils
Appelsín, Maltextrakt, Egils Kristall
og Egils Gull. Meðal þekktra vöru-
merkja samstarfsaðila eru Pepsi,
Tuborg og Grolsch.
Íslandsbanka-FBA, Landsbanka
íslands, Búnaðarbanka íslands og
Kaupþingi var geflnn kostur á að
gera kauptilboð í hlutinn sem í boði
var og skiluðu allir aðilar inn til-
boði nema Kaupþing. Eigendur
áskildu sér rétt til að taka hvaða til-
boði sem var eða hafna öllum. Eng-
in skilyrði voru sett af hálfu selj-
enda um endanlega kaupendur og
var hagstæðasta tilboði tekið.
Aukið samstarf
Flugleiða og SAS
hafa fengid heimild til nánara samstarfs á flugleiðum
yfir Norður-Atlantshafið
Formlegt leyfi hefur verið gefið út í Bandaríkjunum til Rugleiða og SAS til
markaðssamstarfs í flugi milli Bandaríkjanna og Norðurlandanna
Metútflutningur
á fersku kjöti til
Bandaríkjanna
Fyrsta sláturtíð Norðlenska ehf.
hefur gengið vel en félagið var sem
kunnugt er stofnað fyrr á árinu með
samruna Kjötiðnaðarsviðs KEA og
Kjötiðjunnar á Húsavík. Öll sauðfjár-
slátrun var færð til Húsavíkur og að
mati fyrirtækisins hefur þessi breyt- |
ing í meginatriðum komið vel út.
í frétt frá Norðlenska kemur fram
að hefðbundinni sláturtíð hjá félag-
inu mun ljúka 31. október nk. og alls
verður slátrað tæplega 60 þúsund
dilkum og um 6 þúsund ám. Meðal-
þyngd dilka þegar þetta er skrifað er
15,26 kg. Meðal þess sem hæst ber er
óvenju mikill útílutningur á fersku
kjöti til Bandaríkjanna og hefur hann
skilað hærra verði til bænda en áður
hefur fengist.
Fiskafli meiri í
september á
þessu ári
Fiskaflinn síðastliðinn september-
mánuð var 67.788 tonn en var 65.937
tonn í septembermánuði árið 1999.
Botnfiskaflinn jókst lítillega á milli
ára, fór úr 35.790 tonnum í september
1999 í 36.009 tonn nú.
í frétt frá Hagstofúnni kemur fram
að þorskaflinn dróst saman um 2.213
tonn og ýsuaflinn um 472 tonn. Út-
hafskarfaaflinn var enginn síðastlið-
inn septembermánuð og nemur sam-
drátturinn því 2.850 tonnum, eða sem
nemur aflanum í septembermánuði
árið 1999. Karfaaflinn jókst hins vegar
um 3.863 tonn, grálúðuaflinn um 1.326
tonn og ufsaaflinn irni 975 tonn.
Heildaraflinn það sem af er árinu er
1.438.341 tonn sem er nokkru meira en
veiðst hafði á sama tima í fyrra
(1.241.719). Þessi aukning er vegna auk-
innar veiði tveggja tegunda, loðnu og
kohmmna, en báðar þessar tegundir
hafa veiðst töluvert betur í ár en i fyrra.
Hins vegar hefur botnfiskafli dregist
saman um tæp 15 þús. tonn og skel- og
krabbadýraafli um tæp 7.500 tonn.
Bandarísk stjómvöld gáfu sl.
fostudag út formlegt leyfi til Flug-
leiða og SAS til markaðssamstarfs í
flugi milli Bandaríkjanna og Norð-
urlandanna og er það í fyrsta sinn
sem tveimur erlendum flugfélögum
er heimilað slíkt. Leyfið gerir það
að verkum að SAS getur nú haflð
sölu farseðla á flugi Flugleiða milli
Bandaríkjanna og Norðurlanda eins
og það væri þeirra eigið, enda sam-
Samningur á 9 flugleiöum
í frétt frá Flugleiðum kemur fram
að Flugleiðir og SAS gerðu samning
um það sín í milli fyrir rúmu ári að
á samtals níu flugleiðum yfir Atl-
antshafið yrði flug Flugleiða einnig
kennt SAS. Þetta er flug til og frá
þremur borgum á Norðurlöndun-
um, þ.e. Kaupmannahöfn, Ósló og
Stokkhólmi, til og frá Minneapolis,
Boston og Baltimore í Bandaríkjun-
um, með viðkomu í Keflavík. Fyrr á
þessu ári sóttu félögin sameiginlega
um samþykki bandarískra yflrvalda
til að geta framfylgt samningnum og
hafiö nánari samvinnu sín á milli.
Hafa bandarisk yflrvöld haft samn-
ing félaganna til skoðunar frá því í
apríl. Niðurstaðan kom föstudaginn
13. október 2000 og var hún jákvæð
fyrir félögin. Leyfið byggist í raun á
því aö flug milli Bandaríkjanna og
íslands, íslands og Evrópu og milli
Bandaríkjanna og Norðurlanda er
frjálst öllum bandarískum og evr-
ópskum flugfélögum.
Ávinningur SAS af samningun-
um felst í aö geta boðið viöskipta-
vinum sínum mikla tíðni, stuttan
ferðatíma og góða þjónustu Flug-
leiða á milli þessara staða en Flug-
leiðir njóta á móti markaðsstyrks
SAS sem getur í framhaldi af leyfis-
veitingunni boðið flug Flugleiða
sem sitt eigið í samningum við
Mannafl, stærsta ráðningarstofa
á íslandi tók til starfa 16. október sl.
Mannafl samanstendur af ráðning-
arstofu Ráðgarðs hf., sem tók til
starfa 1988, og ráöningarstofu
Gallup sem stofnuö var 1996.
í frétt frá Mannafli kemur fram
að þessi fyrirtæki hafa verið í
fremstu röð á sviði ráðgjafar og
ráðninga á undanfomum árum og
hafa áunnið sér traust viðskipta-
vina, auk þess sem þau búa yfir víö-
tækri þekkingu á íslensku atvinnu-
lífi. „Mannafl verður í forystu á
sviði ráðgjafar um ráðningar stjóm-
enda og millistjómenda, störf sér-
fræðinga, starfsfólks í sérhæfð skrif-
stofustörf og í aðrar ábyrgðarstöður
fyrir háskólamenntað fólk. Mannafl
er í öflugu erlendu samstarfi," segir
i frétt frá Mannafli.
20 starfsmenn
Hjá Mannafli vinna 20 starfs-
menn. Þar af em 16 ráðgjafar sem
hafa að baki fjölbreytta háskóla-
menntun og reynslu. „Ráðgjafar
Mannafls beita faglegum vinnu-
brögðum og starfa eftir ákveðnum
verkferlum sem tryggja gæði þjón-
ustunnar. Þeir leitast við að veita
fyrirtækjum og einstaklingum per-
sónulega þjónustu sem sniðin er að
ferðaskrifstofur og aðra söluaðila.
Þá felur samningur félaganna í sér
samstarf um vildarkerfi sem kemur
sér vel fyrir viðskiptavini þeirra
beggja.
óskum og aðstæðum hvers við-
skiptavinar. Trúnaðar er gætt í hví-
vetna. Mannafl er með skrifstofur í
Furugerði 5 í Reykjavík og í Skipa-
götu 16 á Akureyri," segir Mannafl.
í frétt frá fyrirtækinu er bent á að
ráðgjafar hafi aðgang að ýmsum
mælitækjum varðandi starfsmanna-
val. Þar má nefna persónuleikapróf-
ið NEO PI-R, eitt viöurkenndasta
persónuleikapróf í heiminum og
styrkleikamatið ATPI sem hefur
verið lengi í notkun hjá Gallup.
Einnig er boðiö upp á stýrð stjórn-
endaviötöl og sérsniðin próf, s.s
tungumála- og tölvupróf, sem er ætl-
að að mæla tiltekna kunnáttu eða
eiginleika.
„Það vill stundum gleymast að
starfsmannaráðningar hafa á sér
tvær hliðar, þ.e. bæði umsækjand-
inn og atvinnurekandinn standa
frammi fyrir ákveðnu vali. Að sjálf-
sögðu er æskilegt að valið sé rétt
fyrir báða aðila, þannig að fyrirtæk-
ið ráði starfsmann sem uppfyllir
þær kröfur sem starfið gerir en jafn-
framt verður starfið að uppfylla
væntingar starfsmannsins. Þegar
þetta tvennt fer saman dregur úr
starfsmannaveltu og vinnuandinn
verður jákvæðari,“ segir í frétt frá
Mannafli.
Gatnamót Hringvegar og Víkurvegar
ásamt Reynisvatnsvegi.
Skv. 14. gr. reglugerðar um mat á umhverfisáhrifum nr. 671/2000
boða Vegagerðin og Reykjavíkurborg til almenns kynningarfundar
um tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum
mislægra gatnamóta Hringvegar og Víkurvegar
ásamt Reynisvatnsvegi í Reykjavík.
Fundurinn verður haldinn kl. 16, föstudaginn 20 október,
í Skúlatúni 2,5. hæð.
Tillögu að matsáætlun er unnt að nálgast á veraldarvefnum
og er slóðin www.almenna.is/vikurvegur
Almenningi gefst kostur á að koma á ffamfæri athugasemdum við
tillöguna til 3. nóvember nk. Athugasemdum skal skila til
Vegagerðarinnar, Borgartúni 5-7, 105 Reykjavík.
ÍKEYKJAVIKlJKBORÍi
VEGAGERÐiN
Stærsta ráðningarstofa á
íslandi tekin til starfa
Þetta helst__________
Heildarviðskipti 1208 m.kr.
- Hlutabréf 143 m.kr.
- Ríkisvíxlar 741 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
0 Islandsbanki - FBA 33 m.kr.
Eimskip 25 m.kr.
€ Tryggingamiðstöðin 15 m.kr.
MESTA HÆKKUN
QBakkavör Group 5,9%
Q Þormóður rammi 1,6%
O íslenskir aðalverktakar 1%
: MESTA LÆKKUN
OHIutabréfasjóðurinn Auðlind 5,4%
©Austurbakki 5,2%
o Nýherji 4,5%
ÚRVALSVÍSITALAN 1426,1 stig
- Breyting O -0,8%
Meiri hag-
vöxtur í Japan
Búist er við að hagvöxtur í Japan
muni verða meiri á þessu ári en
fyrri spár bentu til. Tilkynnt hefur
verið um aukin útgjöld upp á 102
milljarða dala til að auka vöxtinn og
koma hagkerfinu aftur af stað. Gert
er ráð fyrir að hagvöxtur muni
nema 1,5% á þessu reikningsári sem
endar í mars á næsta ári. Fyrri spár
höfðu gert ráð fyrir 1% vexti.
MESTU ViOSKIPTi
i 0 Íslandsbanki-FBA 568.898
Q Össur 472.122
j 0 Baugur 320.528
Q Pharmaco 243.102
\ Q Tryggingamiðstöðin 225.203
sitastllöna 30 Aaea j 0 Pharmaco 16 %
j 0 íslenskir aðalverktakar 10%
10 Delta hf. 9%
; 0 Bakkavör 7%
í 0 Lyfjaverslun 6%
, , o síöastlibna 30 daga
j 0 Héðinn smiðja -39 %
0lsl. hugb.sjóðurinn -26%
j 0Sláturféiag Suðurl. -21 %
: 0 Fiskiðjus. Húsavíkur -20 %
j 0 Hampiðjan -14%
Vísitölur í Banda-
ríkjunum rétta úr
kútnum
í ljósi góðrar afkomu Microsoft, sem skilaði 18% meiri hagnaði á þriðja ársfjórðungi en síðasta ár, voru markaðir í Bandaríkjunum opnaðir í gærdag með hvelli. Frammistaða Microsoft og Nokia hefur gefið íjárfestum kjarkinn á nýjan leik og vísitölur markaðarins hafa þrugðist við samkvæmt því.
BHdow jones 10142,98 O 1,68%
1 • Inikkei Hlills&p 15198,73 O 2,62% 1388,76 O 3,47%
Bf NASDAQ 3418,60 O 7,79%
SsínsE F^DAX 6278,10 O 0,95% . 6628,36 O 0,13%
I WcAC 40 6133,53 O l.H% i
20.10.2000 kl. 9.15
KAUP SALA
HiÉDollar 85,480 85,920
: SfSPund 123,580 124,210
l*lkan. dollar 56,610 56,960
fSSÍDönskkr. 9,7120 9,7660
HS-Norsk kr 9,0190 9,0680
ESsænsk kr. 8,5000 8,5470
)4Hn. mark 12,1514 12,2244
| iFra. franki 11,0143 11,0805
1 Belfi. franki 1,7910 1,8018
Q) Sviss. franki 47,9800 48,2500
CShoII. gyllini 32,7851 32,9821
^iÞýskt mark 36,9403 37,1623
|)ít líra 0,037310 0,037540
g^ Aust. sch. 5,2505 5,2821
Port. escudo tlZlSpá. posotí 1 * |Jap. yon 0,3604 0,3625 0,4342 0,4368 0,787200 0,791900
| jírskt pund 91,737 92,288
SDR 109,540000 110,200000
Secu 72,2489 72,6831