Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2000, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2000, Page 28
Snyrtiborö, dúkkur, dúkkuvagnar, vöggur, þríhjól og bílar fyrir litlar dömur. Símí 567 4151 & 567 4280 Heíídverslun með leikföng og gjofavörur FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Eyrarbakki: Stálu fánum og húsnúm- erum Það var heldur sérkennilegt, þýf- ið sem lögreglan fann í bíl þjófa á ^ Eyrarbakka í nótt. Svo virðist sem þjófamir hafi farið um bæinn og skrúfað húsnúmer af húsum, tekið niður skOti af húsum og nælt sér í fána frá Kjarval, RARIK, íslands- pósti, Árborg og Olís. Einnig tóku þeir reiðhjólastæði, tvær vegstikur og skilti sem bannaði bifreiðastöður ásamt íleiru. Lögreglunni barst tilkynning um atferli fólksins skömmu eftir klukk- an þrjú í nótt. Fólkið er allt um tvítugt og að sögn lögreglunnar á Selfossi skemmti það sér vel við iðju sína en fjörið endaði á lögreglustöðinni. Stúlkan sem ók bílnum var ekki grunuð um ölvun og gekkst hún við aðild sinni að prakkarastrikunum. Hún fékk því að fara heim en menn- imir þrír voru allir grunaðir um ölvun og fengu því að gista fanga- geymslur lögreglunnar það sem eft- ir lifði nætur. Að sögn lögreglunnar átti svo að taka skýrslu af mönnun- um í dag. -SMK Sykur er eitur í Helgarblaði DV á morgun er ítar- legt viðtal við Jón Braga Bjamason, prófessor í efnafræði við Háskóla ís- lands. Jón hefur ákveðnar skoðanir á sykumeyslu og styður þær erlendum rannsóknum og eigin þekkingu. Hann segir að sykur sé fíkniefni og neysla hans ein helsta orsök margra sjúk- dóma. Einnig er í blaðinu fjallað um fasteignir Guðjóns Más Guðjónssonar í OZ, viðtal við Sigurð Skúlason leik- ara og fjallað um hrapalleg mistök ís- lenskra dómnefnda. Rætt er við leið- sögukonur á kynlífsnámskeiði, rúss- neskan doktor í málvísindum sem nuddar undir Jökli og sagt frá frosn- um laumufarþegum sem falla af himn- um ofan. DV-MYND PJETUR Hjálpsamir unglingar Krakkar úr Borgarholtsskóla flokkuðu í morgun föt sem almenningur á íslandi hefurgefið til hjálparstarfs Rauða krossins. Þetta starf krakkanna er liður í Lífsleikni og er markmiðið aö efla skilning unglinga á mannúöarstarfi í þágu bágstaddra. Með fram fataflokkuninni verða unglingarnir fræddir um hjátparstarf á vegum Rauða krossins. Mjólkur- fræðingar reknir heim Þremur mjólkurfræðingum sem starfað hafa hjá KEA var sagt í lok vinnudags í gær og fyrradag að þeir þyrftu ekki að mæta aftur til starfa hjá fyrirtækinu. Fyrirtækið hafði sagt mönnunum upp, en þeir áttu óunninn um sex vikna upp- sagnarfrest. Hafði þeim verið sagt að þeir myndu vinna uppsagnar- frestinn, að sögn Geirs Jónssonar, formanns Mjólkurfræðingafélags- ins, þegar DV leitaði staðfestingar hans í morgun. Geir sagði að þetta mái væri hluti af stærra ágreiningsmáli milli KEA og mjólkurfræðinga. Mjólkurfræðingar ættu forgangs- rétt til ákveðinna starfa. Hann vildu forráðamenn fyrirtækisins ekki virða en teldu að ófaglærðir gætu sinnt þeim. Málinu hefði ver- ið skotiö til Samtaka atvinnulífs- ins og væri nú beðið svara frá þeim. „Þetta hleypir enn meiri hörku í þetta mál,“ sagði Geir. „Fram- koma gagnvart þessum starfs- mönnum er fyrir neðan allar hell- ur. Það er ljóst að menn brutu ekki af sér. Þetta er stjórnunar- stUl.“ -JSS Lögreglan fann 16 unglinga undir lögaldri á Bóhem : Erótískt menningar- kvöld menntskælinga í síðustu viku fann lögreglan 16 unglinga á erótíska skemmtistaðnum Bóhem í Reykjavík. Þcir af voru fjórir þeirra að drekka áfengi. Drengimir voru allir 16 og 17 ára, en samkvæmt íslenskum lögum má ekki hleypa unglingum innan við 18 ára aldur inn á vínveitingastaði, og ekki má veita þeim áfengi sem eru undir tvítugu. Drengjunum var öllum vísað af staðn- um. Venjulega setur Bóhem 25 ára ald- urstakmark á gesti hússins en sam- kvæmt heimildum DV voru ungling- arnir þama á menningarkvöldi á veg- um Menntaskólans í Hamrahlið. Heimildir DV herma að aðili á vegum skólans hafl haft samband við Bóhem og óskað eftir undanþágu á aldurstak- markinu. Forráðamenn Bóhems urðu við þeirri ósk, en með þvi skilyrði að unglingamir sýndu skilríki sem sönnuðu að þeir væm orðnir 18 ára gamlir. Lögreglan fékk heimild til þess að leita í vösum þriggja ung- menna og fann einungis þeirra eigin skilríki sem sýndu réttan aldur. Jónas Hallsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn lögreglunnar í Reykjavík, sagði málið vera í vinnslu lögregl- unnar. Forráðamönnum Bóhems hef- ur verið veittur ffestur til þess að gefa skýringu á atburðinum og að þeim fresti loknum verður tekin ákvörðun um það hvort staðurinn fær áminningu. Áminningar eru und- anfari tímabundinnar leyfissvipting- ar - refsingar sem beitt er eftir ítrek- uð lögbrot vínveitingahúsa. Þrír vínveitingaeftirlitsmenn starfa hjá lögreglunni í Reykjavik en njóta auk þess aðstoðar lögreglu- manna. Aö sögn Jónasar er það ekki óal- Nektardansmeyjar á Bóhem. í síöustu viku rak lögreglan 16 ung- linga undir 18 ára aldri út af eró- tíska skemmtistaönum Bóhem. gengt að unglingar undir aldri fmnist á vínveitingastöðum en sjaldgæfara er að fmna svona marga á einum stað. „Svokölluð bjórkvöld virðast vera orðin afar vinsæl hjá framhaldsskól- um sem 18 ára og eldri sækja. En þama var um menningarkvöld að ræða,“ sagði Jónas. Reykjavíkurborg gefur út áfengis- veitingaleyfi veitingahúsa i borginni. Að sögn Ólafs Hjörleifssonar, fulltrúa skrifstofustjóra borgarstjórnar, eru mál sem þessi könnuð þegar kemur til endumýjunar áfengisveitingaleyfa veitingastaða. Ef lögreglustjóri gefur veitingastaðnum áminningu fyrir brot á lögum er áminningin send skrifstofu borgarstjómar. „Jafnframt eru allar umsóknir sendar til umsagnar lögreglustjóra og þar hefur hann færi á þvi að vekja at- hygli á hlutum sem af einhveijum ástæðum hafa ekki komist til skila til okkar,“ sagði Ólafur. Ekki náðist í rektor MH í gær. -SMK Fíkniefnalögreglan með átta í haldi í umfangsmiklu máli: Hasssending kom þrisvar til landsins Þegar skipverji sem hafði verið í fríi á Skógafossi gekk í land í Reykjavík í sumar með kassa sem innihélt tíu kíló af hassi höfðu efn- in komið þrisvar sinnum til lands- ins. Á meðan, um margra vikna skeið, hafði fíkniefnalögreglan fylgst dag og nótt með manninum og skipinu - í Reykjavík, á Grundar- tanga og á Vestfjörðum. Efnin fóru um borð í skipið í útlöndum fyrr í sumar en það hét þá Goðafoss. í þriðja túmum ákvað maðurinn, sem hafði verið í stuttan tíma í sigl- ingum hjá Eimskip, að fara um borð og ná í efnin. Hann var þá strax handtekinn. Annar maður, sem Skógarfoss. einnig hafði verið stuttan tíma hjá Eim- skip, kom efn- unum fyrir í skipinu ytra. í máli þessu eru nú átta manns í haldi, þar af tveir íslend- ingar sem handteknir voru hér á landi í gær en einn sem hol- lenska lögregl- an handtók einnig í gær. Búast má við að hann verði sendur heim fljót- lega. 7 kíló til viðbótar hafa verið hald- lögð í málinu. Rannsókn flkniefna- lögreglunnar hefur tekið nokkra mánuði og eru tveir menn staddir ytra. Þrir ítalir, tvær konur og karl- maður, hafa verið úrskurðaðir í 3ja vikna gæsluvarðhald í öðru flkni- efnamáli sem Tollgæslan á Keflavlk- urflugvelli og fíkniefnalögreglan unnu að saman. Fólkið kom með 300-A00 grömm af kókaíni til lands- ins - andvirði á annan tug milljóna króna reynist efnin hrein. -Ótt Gæði og glæsileiki smoft (sólbaðstofa) Grensásvegi 7, sími 533 3350. brotheT P-touch 9400 Stóra merkivólin sem 10 leturgerðir margar íeturstærðir 16 leturstillingar Crentar í 10 línur orði 6 til 36 mm þolir álagið Rafport Nýbýlavegi 14 Simi 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.