Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Side 2
2 MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2000 DV Fréttir Sameining ríkisbankanna kynnt starfsfólki í morgun: msssm Það þarf góðan vilja - til að klára málið fyrir áramót, segir bankastjóri Landsbanka Bankaráð Búnaðarbanka íslands hf. og Landsbanka íslands hf. komust í gær að niðurstöðu í við- ræðum sín á milli um sameiningu bankanna. Stjórnendur bankanna tveggja ætluðu að kynna starfs- fólki niðurstöður sinar. í fram- haldi af því átti að senda Verð- bréfaþingi íslands tilkynningu um málið. Bankaráðsmenn vörðust allra frétta af málinu í gærkvöldi og vildu ekkert segja um hvert inni- hald niðurstöðunnar var. Pálmi Jónsson, formaður banka- ráðs Búnaðar- bankans, sagði aðeins að þarna hefði fengist nið- urstaða sem menn hefðu orð- ið sammála um. Samkvæmt heimildum DV hefur m.a. verið tekist á um mat á eignarstöðu bankanna inn í væntanlega sam- einingu. Fyrir h Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans. ;i voru vanga- veltur um að Landsbankinn yrði metinn með 57% hlutdeild i nýjum banka og Búnaðarbankinn með 43%. Hah- dór J. Kristjáns- son, bankastjóri Landsbankans, vildi hvorki segja af né á varðandi þá hluti. Hann vildi heldur ekkert segja að svo stöddu Pálmi Jónsson, formaður banka- ráðs Búnaðar- banka. um hvaða samkomulag hefði verið gert um bankastjóra og fækkun útibúa og uppsagnir starfsfólks. „Við vOjum virða rétt starfsfólks til að fá upplýsingar um málið á undan öðrum.“ Samkeppnisráð hefur sex vikur til að skoða málið og ef sá tími er nýttur er á mörkum að þaö náist að klára málið fyrir áramót eins og ráðherra hefur vonast til að væri hægt. „Það þarf góðan vilja hjá öll- um sem að málinu koma ef það á að takast,“ sagði Halldór J. Krist- jánsson. -HKr. Samfylkingin: Stórsókn í menntamálum og afkomutrygging Menntamálin voru i öndvegi á fyrsta flokksstjórnarfundi Samfylk- ingarinnar sem haldinn var á laug- ardaginn. Samþykkt var ályktun um stórsókn til eflingar menntun í landinu. „Þetta var ákaflega vel sóttur fundur. Það er tvennt sem að mínu mati bar hæst á fundinum, annars vegar menntamál og hins vegar málefni öryrkja og aldraðra. Það ríkir gríðarleg óánægja meðal sam- fylkingarfólks um þá skammsýni sem rikir i menntastefnu ríkis- stjórnarinnar. Samfylkingin ætlar að gera menntamálin að höfuðmáli og við höfum sett af stað ítarlega stefnumótun í þeim efnum. Við munum beita okkur fyrir auknum íjárframlögum til menntamála með það að markmiði að gera tækifæri til menntunar samkeppnishæf við það besta sem gerist erlendis. Það þarf að bæta kjör kennara svo fram- haldsskólarnir geti verið í fremstu röð en því miður eru þessir skólar að missa sitt besta fólk vegna launa- kjara,“ sagði Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingar, í samtali við DV. „Það var einnig niðurstaða fund- arins að þingflokkur Samfylkingar leggi fram tillögu um afkomutrygg- ingu fyrir öryrkja og aldraða sem felur í sér tilfærslu á 3 til 5 milljörð- um króna til þeirra. Við ætlum að leggja sérstaka áherslu á að bæta kjör ungra öryrkja, fólks sem hefur hlotið varanlega örorku á æskuár- unum,“ sagði Össur. -aþ Þing Noröurlandaráðs: Framtíð norrænn- ar samvinnu Norðurlanda- ráðsþing verður sett í Háskólabíói síðdegis í dag. Forsætisráðherr- ar Norðurland- anna auk utanrík- is- og vamarmála- ráðherra land- Sigríður Anna anna verða við- Þóröardóttir. staddir þingið. Sigríður Anna Þórðardóttir, þingmaður Sjálfstæðis- flokks, er forseti Norðurlandaráðs og að hennar sögn verða mörg áhuga- verð málefni rædd á þinginu. „Það sem stendur upp úr að mínu mati og ég veit að margir eru spenntir fyrir er skýrsla frá svokallaðri Vísra manna nefnd sem hefur starfað undir stjóm Jóns Sigurðssonar, bankastjóra Nor- ræna fjárfestingarbankans. í skýrsl- unni, sem kallast Umleikið vindum veraldar - norrænt samstarf, er fjallað um innihald og áherslur í norrænu samstarfl til framtíðar. Það verður bæði spennandi og gaman að fylgjast með umræðum um þær hugmyndir sem er að fmna i skýrslunni." Þing Norðurlandaráðs stendur í þijá daga og lýkur á miðvikudag. -aþ DVIHYND KK Ossur boröar ísbjöm Össur Skarphéðinsson þingmaður gæddi sér á ísbjarnarkjöti í fyrsta skipti á laugardagskvöidið. ísbjarnarkjöt var með- ai fjölmargra rétta á árlegu villibráðarkvöldi sem haldið var í Ársölum í Glæsibæ á laugardagskvöldið. Forvígismenn villibráðarkvöldsins eru bræðurnir Jakob Örn og Haraldur Ingi Haraldssynir en þeir hafa ekki áður boðið upp á ísbjarn- arkjöt. ísiensk villibráð var í aðalhlutverki á veistuborðinu en það var grænlenski ísbjörninn sem vakti hvað mesta spennu meðal gesta. Aö sögn Haralds Inga þótti ísbjörninn góður og flestir á því að bragðið væri mitt á milli lambakjöts og kálfakjöts. íslendingar með eftirlit með kosningum í Aserbaídsjan: Ekki þær lýðræðislegu sem ég á að venjast -segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir alþingismaður „Ég vil ekki fullyröa neitt um kosningasvik og veit ekki til þess á þessari stundu, en það var margt sem kom mér spánskt fyrir sjónir þegar ég ásamt fjölmörgum öðrum evrópskum þingmönnum var að fylgjast með á kjörstööum og þegar miðað er við lög og reglur um kosningar þá voru reglur brotnar," segir Ásta Ragnheiður Jóhannes- dóttir þingmaður, en hún hefur verið í höfuðborg Aserbaídsjan, Baku, siðustu þrjá daga sem með- limur eftirlitsnefndar á vegum Ör- yggis- og samvinnustofnunar Evr- ópu ásamt fjölda annarra þing- manna. „Við byrjuðum á að hitta full- trúa allra flokka sem bjóða fram í þingkosningunum og fulltrúa al- þjóðlegra samtaka sem eru hér til að fylgjast með kosningunum. Var farið yfir málin með þeim og virt- ust allir vilja að þessar kosningar færu lýðræðislega fram, minnugir þess að fyrstu kosningamar í Aserbaídsjan sem haldnar voru 1995 þóttu ekki hafa upp- fyllt alþjóðlegar kröfur. Ástæðan fyrir þvi að Ásta Ragnheiöur stjómendur Jóhannesdóttir. leggja mikla áhersla á að kosningarnar fari vel fram er vegna þess að landið sækir stíft um að komast í Evrópuráðið. Það fór samt ekki fram hjá mér og öðram sem vorum í eftirlitinu að lýðræði er litið öðrum augum i Aserbaídsj- an en við eigum að venjast." Ásta Ragnheiður sagði aðspurð að ekki væri hægt að segja að kosningarnar hefðu farið friðsam- lega fram: „Hér er lítil hefð fyrir kosningum og það sést fljótt á kjör- stöðunum. Ég fór á tuttugu og fjóra kjörstaði og aðeins á tveimur kjör- stöðum voru innsiglin viðunandi, annars staðar var hægt að opna kassana og við lentum í því að sjá þegar fólk var nappað við að reyna að koma fleiri en einum atkvæða- seðli í kjörkassa. Svo var annað sem mér fannst merkilegt að sjá og það var að margir voru saman í einum kjörklefa. Þetta þótti sjálf- sagt, en þetta er að sjálfsögðu brot á kosningalögum." Ásta Ragnheiður segir að nokk- ur ólæti hafi brotist út þegar kjör- fundi lauk: „Þar sem ég endaöi eft- irlitsfor mína þá brutust út stimp- ingar og slagsmál þegar búið var að loka og það var víst víðar, með- al annars var ég vitni að því að kjörseðlar voru kuðlaðir saman og hent í gólfið. Þegar svo lögreglan kom og skakkaði leikinn þá þurfti að fara að tina kjörseðlana upp og ganga frá þeim fyrir talningu." -HK Eru ekki skjólstæðingar Jón Sigurðsson, bankastjóri Norræna fjárfestingarbankans, segir að kominn sé timi til að Norður- löndin hætti að líta á Eystrasaltsríkin sem skjólstæðinga sína, opna þess í stað stofnanir sínar fyrir þeim og leyfa þeim að taka þátt í norrænu samstarfl. Fréttastofa RÚV sagði frá. Hlaðboröin vinsæl sem fyrr Áhugi fólks á jólahlaðborðum veit- ingahúsanna virðist ekki ætla að dvína fyrir þessi jól. Fullbókað er nær allar helgar fram að jólum. Jólahlað- borðstíminn stendur opinberlega frá 16. nóvember til 23. desember. Einnig verður boöið upp á hlaðborð á milli jóla og nýárs. Forsvarsmenn veitinga- staðanna segja að það borgi sig að panta tímanlega. Mbl. sagði frá. Alvarlega slasaður eftir ákeyrslu Keyrt var á mann á Geirsgötu við Reykjavíkurhöfn um sexleytið á sunnudagsmorgun. Hann mun hafa slasast nokkuð alvarlega. Bílstjórinn keyrði í burtu en gaf sig seinna fram við lögreglu. Lögreglan vill ekki gefa upp skýringar bílstjórans á brotthvarfi sínu. Fréttastofa Stöðvar 2 sagði frá. Fækka hrossum um helming Þorkell Bjamason, fyrrverandi hrossa- ræktarráðunautur, segir að fækka þurfi hrossum hér á landi um helming. Um 90.000 hross eru til í landinu og segir Þor- kell það ekki þjóna neinum tilgangi að ala undan ómögulegum merum. Frétta- stofa Ríkissjónvarpsins sagði frá. Sjónvarpið kaupir 100 myndir Rikissjónvarpið og Sambíóin gerðu með sér samning um kaup þess fyrr- nefnda á 100 kvikmyndum sem annað- hvort hafa verið sýndar eða munu verða sýndar. Þetta eru stærstu kaup Ríkis- sjónvai'psins á kvikmyndum sem og stærsta sala Sambíóanna. Mbl. sagði frá. Tæki upp á 1.300 mil|jónir íslensk erfðagreining hf. keypti í seinustu viku arfgerðargreiningatæki að verðmæti 1.300 milljónir króna. Sam- kvæmt fréttatilkynningu er þetta gert til að styrkja stöðu fyrirtækisins sem ein af stærstu og tæknilega fúllkomnustu miðstöðvum í arfgerðargreiningum í heiminum. Mbl. sagði frá. ASÍ vill skoða ESB-aðild Á heimasíðu ASÍ er sagt að ísland þurfi að endurskoða afstöðu sína gagn- vart Evrópusamstarfi. Er þeirri hug- mynd velt upp að þar komi innganga alveg til greina. Fréttstofa Ríkissjón- varpsins sagði frá. Sjómaður sóttur Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slas- aðan sjómann í skipið Jón á Hofi frá Þorlákshöfn á laugardagsmorguninn. Maðurinn hafði fótbrotnað illa, en bát- urinn var á veiðum út af Ingólfshöfða. Þyrlan fór með manninn á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Hann var lagður inn á sjúkrahúsið. Valt heilan hring Ökumaður bíls missti stjóm á öku- tæki sínu á þriðja tímanum í gærdag með þeim afleiðingum að bíll hans valt heilan hring. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli slapp maðurinn lítið meidd- ur, enda spenntur í bílbelti, en bíllinn er mikið skemmdur. Engin hálka var á veginum er slysið varð. -SMK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.