Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Side 32
Dúkkukerrur og dúkkuvagnar í miklu úrvali Sími 567 4151 & 567 4280 Heildverslun með leiklöng og gjafavörur FRETTASKOTIÐ SIMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö f hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. .550 5555 MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2000 Nemar svartsýnir: Langt og __ leiðinlegt verkfall „Ég er mjög svartsýn á að kjara- deilan leysist fyrir tilskildan tíma og ég held að fiestir framhalds- skólanemar óttist mjög langt og leiðinlegt verkfall,“ sagði Stein- unn Vala Sigfúsdóttir, formaður Félags framhaldsskólanema, í samtali við DV í gærkvöld en þá höfðu engar fregnir borist af ár- angri viðræðna framhaldsskóla- kennara og samninganefndar rík- isins. Steinunn Vala segir ýmislegt á döfinni skelli verkfall framhalds- skólakennara á í kvöld. „Við ætl- um að opna upplýsingavef, www.verkfall.is, þar sem fólk get- ur fengið upplýsingar um gang mála og við munum fjalla um kjaradeiluna á tungumáli sem ungt fólk skilur. Síðan er áformað að opna upplýsingamiðstöð í Hinu húsinu á miðvikudag og þar verð- ur bryddað upp á ýmsu áhuga- verðu.“ Jafnframt verður boðað til mál- þings formanna nemendafélag- anna á næstunni. „Við viljum ékki taka pólitíska afstöðu í kjara- 1 úéilunni en það er auðvitað vert að minna á að 20 þúsund fram- haldsskólanemar verða settir út á gaddinn komi til verkfalls. Við höldum aö sjálfsögðu í vonina þar til annað kemur í ljós en því mið- ur er útlitið svart,“ sagði Steinunn Vala Sigfúsdóttir. -aþ Patreksfiörður: 23 rjúpum stolið Ókunnur aðili gerði sér lítið fyrir og stal 23 rjúpum sem héngu utan á húsi á Patreksfírði aðfaranótt sunnudagsins. Veiðimaðurinn og húsráðandinn hafði hengt veiðina upp fyrir utan hjá sér, en þegar ( hann vaknaði í gærmorgun upp- götvaði hann að jólamaturinn var horflnn. Lögreglan á Patreksfirði er með málið í rannsókn. Að sögn lögregl- unnar var talsverð ölvun á Patreks- flrði í nótt. -SMK ísafjarðardjúp: Bíll valt Aðfaranótt laugardagsins varð um- ferðaróhapp á þjóðvegi 61 við Strandsel við ísaflarðardjúp, þar sem ökumaður bíls missti stjóm á bíl sínum og valt hann út fyrir veginn og ofan í fjöru. Að sögn lögreglunnar á ísafirði er talið lík- legt að maðiu-inn hafi misst stjóm á bílnum vegna hálku á veginum. Maður- inn var í bílbelti og slasaðist lítið en bill- inn er mikið skemmdur. -SMK Spenntir strákar í bókabúö Bækurnar um Harry Potter hafa slegiö í gegn hérlendis sem annars staöar og þriöju bókarinnar hefur veriö beöiö meö mikilli eftirvæntingu. Bókin Harry Potter og fanginn frá Azkaban kom í bókabúöir á laugardag og biöu margir krakkar spenntir eftir aö hefja lesturinn. Bókinni var dreift í þúsundum eintaka og í mörgum bókabúöum var viöbúnaöur vegna útgáfunnar. Ari Skúlason, framkvæmdastjóri ASÍ: Munum fá það sama - ef gengið verður að kröfum framhaldsskólakennara „Ef framhaldsskólakennarar fá launahækkanir sem eru í líkingu við þær kröfur sem þeir leggja upp með, launahækkanir sem eru veru- lega hærri heldur en þær sem félög innan Alþýðusambands íslands sömdu um, þá er staðan væntanlega sú að svigrúm til launahækkana í þjóðfélaginu er mun meira en við töldum okkur trú um og þá munum viö að sjálfsögðu fara fram á það sama,“ segir Ari Skúlason, fram- kvæmdastjóri Alþýðusambandsins, og bætir við að Alþýðusambandið hafi talið sig, fyrr á árinu þegar samnmgar voru gerðir, vera að fylla það rúm sem væri fyrir hendi til þess að hér yrði ekki óstöðugleiki og óðaverðbólga: „Það eru ákvæði í okkar samning- um sem ganga út á það að ef at- vinnureksturinn getur þolað meira þá fáum við að sjálfsögðu sem því munar og ef ekki er fallist á það þá Ari Skúlason getum við sagt samningunum upp og farið í aðgerðir til að fá það sem aðrir fá.“ Ari segist samt ekki eiga von á því að gengið verði að kröfum fram- haldsskólakennara á þann hátt sem þær eru settar fram: „Kröfur kenn- ara eru settar fram á allt annan hátt heldur en sambærileg félög hafa sett sínar kröfur fram á síðustu árum.“ Enginn árangur hafði náðst í kjaradeilu kennara þegar DV fór í prentun í gærkvöld en nýr samningafundur var ráðgerður i morgun. -HK/aþ. Banaslys varð á Reykjanesbraut - karlmaöur lést, sjö fluttir slasaðir á sjúkrahús Karlmaður á fimm- tugsaldri lést í alvarleg- um árekstri fjögurra bíla á Reykjanesbrautinni i Hafnarfirði um klukkan 18.30 í gær. Þrír aðrir liggja á sjúkrahúsi en enginn þeirra er talinn vera i lífshættu. Átta manns voru í bíl- unum tjórum og voru all- ir fluttir á slysadeild Landspítalans í Fossvogi en fjórir þeirra fengu að fara heim að skoðun lok- inni. Sex sjúkrabilar voru sendir á slysstað ásamt tækjabílum slökkviliðsins og fjölda lögreglumanna úr Hafn- arfirði, Kópavogi og Reykjavík, en klippa DV-MYND INGÓ Fjögurra bíla árekstur Karlmaöur lést í höröum árekstri fjögurra bíla á Reykja- nesbraut í Hafnarfiröi í gær. Sjö aörir voru fluttir á slysadeild Landspítaians i Fossvogi og voru þrír lagöir inn á sjúkrahúsiö. þurfti fólk úr einum bíln- um. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfírði skullu tveir fólksbílar og tveir jeppar saman á Reykjanesbraut- inni, á móts við Sólvang. Lögreglan rannsakar nú til- drög slyssins en vitað er að einn bíll fór yflr á rangan vegarhelming. Tveir bíl- anna voru á norðurleið og hinir tveir á suðurleið. Reykjanesbraut var lok- að í báðar áttir á slysstað í rúman klukkutíma, á með- an fólkinu var sinnt, bílflökin fjariægð og vegur- inn hreinsaður. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. -SMK Dauðaslys í umferðinni: 25 látnir á árinu Samkvæmt upplýsingum Umferðarráðs er karlmaðurinn sem lést í umferðarslysi á Reykja- nesbraut í Hafnarfirði á sjöunda tímanum í gær 25. fórnarlamb um- ferðarslysa á árinu. Þessir 25 hafa látist í 19 slysum. í fyrra lést 21 í umferðarslysum á íslandi og árið 1998 voru fómarlömbin 27. Þá eru þeir sem slasast hafa alvarlega i umferðarslysum síðustu ár ótaldir. -SMK Jarðskjálftahrina á Reykjanesi Jarðskjálftahrina vmð á Reykja- nesskaga á fostudagskvöld. Að sögn jarðskjálftavaktar á Veður- stofunni varð sá fyrsti kl. 21.19. Allir jarðskjálftarnir áttu upptök sín í Fagradalsfjalli, um níu kíló- metra norðaustur af Grindavík. Stóð hrinan fram yfir miönætti. Stærsti skjálftinn mældist 3,3 stig á Richterskvarða og varð hann kl. 22.39. Næstu skjálftar voru af stærðargráðunni 3,1 og 2,9 á Richt- er. Fólk á Reykjanesskaga varð greinilega vart við stærstu skjálft- ana og reyndar varð víðar vart við þá. Margir minni skjálftar urðu einnig í nágrenni við upptök þeirra stærstu. -HK Vandaðar kveðjur NVjAlC W VILIPIK Sími 569 4000 brother P-touch 9200PC Prentaöu merkimiða beint úr tölvunni Samhæft Windows 95, 98 og NT 4.0 360 dpi prentun 1 til 27 mm letur Strikamerki Rafport Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport_______

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.