Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Side 4
Fréttir
MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2000
I>V
Aðskilnaður lögreglu- og sýslumannsembætta:
Sýslumenn ósam-
mála aðskilnaði
Ríkislögreglustjóri hefur opnaö
umræðu um að skipta landinu í
jafnmörg lögregluumdæmi og hér-
aðsdómstólarnir átta og setja lög-
reglustjóra yfir hvert þeirra. Sýslu-
menn myndu þar með hætta að
gegna starfi lögreglustjóra og ein-
beita sér að sýslumannsstarfinu.
Þetta myndi fækka lögreglustjórum
landsins en 25 sýslumenn eru nú
starfandi á landinu. Sýslumenn eru
almennt ósammála þessum breyt-
ingum og telja að nær sé að fækka
sýslumönnum fyrst og líta svo á
hvort aðskilja beri þessi tvö emb-
ætti.
„í þessari stöðu tel ég það vera
skynsamlegast að endurskoða skip-
an sýslumannsembætta með tilliti
til þess að fækka þeim en jafnframt
að efla þau. Ég er jafnframt þeirrar
skoðunar að þetta skref eigi að stíga
fyrst áður en menn fara að huga að
því hvort skipta eigi upp lögreglu-
og sýslumannsembættunum,“ sagði
Björn Jósef Arnviðarson, sýslumað-
ur á Akureyri og formaður Sýslu-
mannafélags íslands. „Ég held að
með þvi að sameina embætti og
stækka þau nýtum við fjármuni bet-
ur og getum án kostnaðarauka veitt
betri þjónustu."
Skilvirkari starfsemi?
í síðustu ársskýrslu sinni segir
Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri: „Hugleiða má, þegar til
framtíðar er litið, hvort eigi væri
skynsamlegt að sameina lögreglulið;
in og fækka lögregluumdæmum og
setja yfir þau lögreglustjóra sem
eingöngu sinntu lögreglustjóm. Að
því má leiða rök að slíkar grund-
vallarbreytingar á skipulagi lögregl-
unnar í landinu og aðskilnaður
sýslumannsstarfa og lögreglustjóra-
starfa hefði í for með sér öflugri,
skilvirkari og kostnaðarminni starf-
semi en nú þekkist." Haraldur hef-
ur einnig nefnt þetta á öðrum vett-
vangi, svo sem á óformlegum fundi
hans og allsherjamefndar Alþingis
sem haldinn var hjá Ríkislögreglu-
stjóra á dögunum.
„Ég tel þetta afar misráðið. Ég tel
að það eigi að fækka embættunum
og styrkja þau en ekki að breyta
þessu,“ sagði Ólafur Helgi Kjartans-
son, sýslumaður á Isafirði. „Ég hygg
Isafjðröur
Ríkislögreglustjóri hefur opnað umræðuna um það hvort aðskilja eigi sýslumanns- og lögreglustjóraembættin.
Sýslumenn landsins eru almennt ósammála þeirri skiptingu og telja nær að byrja á þvi að fækka sýslumönnum en
25 sýslumenn starfa á landinu í dag.
Björn Jósef
Arnviöarson,
sýslumaður
á Akureyri.
Haraldur
Johannessen
ríkislögreglu-
stjóri.
Olafur Helgi
Kjartansson,
sýslumaður
á ísafirði.
að það sé almenn samstaða í
röðum sýslumanna um að
það beri að fækka embættun-
um og styrkja þau og skoða
reynsluna af því áður en við
förum að brjóta upp þetta
kerfi. En í þessum efnum veg-
ast annars vegar á hagsmun-
ir þess að stjómsýsla sé virk
og fjármunir hins opinbera
séu vel nýttir í samræmi við
kröfur Alþingis og hins vegar
þeir að vegalengdir breytist
ekki til skrifstofa embætt-
anna. Auðvitað er þetta einfóldun,
en ekki er ástæða til að brjóta upp
þá meginskipan embættanna sem
hefur verið við lýði öldum saman
án þess að þau verði styrkt og séð
hvernig þau takast á við mikilvæg
verkefni sín við þær aðstæður."
Ólafur Helgi bætti því við að
hann teldi að ef lögreglustjóraemb-
ættin væru tekin af sýslumönnum
myndi það hafa í fór með sér að sú
þjónusta sem hefur verið tiltölulega
nálægt íbúunum myndi færast fjær
þeim.
Björn Jósef útskýrði að til sumra
þessara smærri embætta hefði verið
stofnað vegna landfræðilegra að-
stæðna á þeim tíma þegar samgöng-
ur voru erfiðari. I dag eru samgöng-
ur hins vegar mun auðveldari og
taka þyrfti það til athugunar ef
fækkun sýslumannsembættanna
yrði skoðuð.
Sömu sjónarmið
Að stofni til byggjast embætti
sýslumanna í dag á 730 ára gömlu
kerfl sem gerir þau að elstu embætt-
um landsins að prestum frátöldum.
Árið 1992 var dómsvald tekið af
sýslumönnum en þeir höfðu farið
með dómsvald í um 300 ár. Sýslu-
menn halda enn tollstjóra- og lög-
reglustjóraembættunum og fara
með meirihluta ákæruvalds í land-
inu. Auk þess sinna þeir ýmsum
öðrum framkvæmdavalds-
verkefnum, svo sem nauð-
ungarsölum, skiptingu dán-
arbúa og innheimtu opin-
berra gjalda, svo að eitthvað
sé nefnt. Sú ábending hefur
komið fram að þeir sitji
beggja vegna borðsins í sum-
um málum, eins og þegar
þeir senda sína menn í að
bjóða upp og innheimta fyrir
ríkissjóð.
„Fyrir þessu er löng
reynsla og hefð og þetta er
ekki talið brjóta i bága við nein lög
að gera þetta með þessum hætti,“
sagði Ólafur Helgi.
Margir sýslumenn eru Birni
Jósef og Ólafi Helga sammála í
þeirri skoðun að litlu sýslumanns-
embættin séu of smáar stjómsýslu-
einingar. Til dæmis er lítill mögu-
leiki á sérhæfingu starfsmanna í
þessum litlu embættum. Ólafur
Helgi taldi að fækka mætti embætt-
unum í 12 en þau eru 26 i dag.
„Sjónarmiðin sem eru á bak við
það að fækka lögreglustjórum eru
nákvæmlega sömu sjónarmið og ég
hef varðandi það að fækka sýslu-
mönnum; að koma á skipulegri
stjórn," sagði Ólafur Helgi. -SMK
Reykjavík:
Slasaður
maður fannst
á Klapparstíg
Um tíuleytið í gærmorgun var til-
kynnt um eldri mann sem lá í blóði
sínu á Klapparstíg í Reykjavík.
Maðurinn hafði dottið á andlitið og
blæddi úr höfði hans.
Hann var rænulítill og var fluttur
með sjúkrabíl á slysadeild Landspít-
alans í Fossvogi þar sem hann var
lagður inn. Við nánari rannsókn
kom fram að blætt hafði inn á heil-
ann en ekki er vitað hvort það gerð-
ist við fall hans eða hvort blæðingin
inn á heilann varð til þess að mað-
urinn féll. -SMK
Kópavogur:
Eldur í skúr
Lögreglunni í Kópavogi og
slökkviliðinu á höfuðborgarsvæð-
inu var tilkynnt um eld í vinnuskúr
á byggingarsvæði í Salahverfl Kópa-
vogs um klukkan 2.30 aðfaranótt
laugardagsins. Skúrinn stóð í ljós-
um logum og er ónýtur eftir eldinn,
en ekkert fólk var nálægt er
slökkviliðið kom á staðinn og engan
sakaði. Talið er að um íkveikju hafl
'verið að ræða og rannsakar lögregl-
an í Kópavogi málið. -SMK
Reykjavík:
Ekið á mann
Ekið var á mann í Reykjavík
snemma á sunnudagsmorguninn og
slasaðist hann alvarlega. Það var
um sexleytið í gærmorgun sem lög-
reglu og sjúkraflutningamönnum
var tilkynnt um manninn, sem þá lá
á Geirsgötunni, hafnarmegin við
Kolaportið. Ökumaðurinn sem ók á
manninn var á bak og burt. Hinn
slasaði var fluttur á slysadeild
Landspítalans í Fossvogi og síðan
lagður inn á gjörgæslu, en hann er
talinn alvarlega slasaður. Rúmum
klukkutíma eftir að maðurinn var
fluttur á sjúkrahús gaf ökumaður-
inn sig fram við lögreglu. -SMK
ÁTVR við
Garðatorg
Forsvarsmenn ÁTVR hafa kynnt
fyrir bæjarráði Garðabæjar þá ætl-
un sína að taka á leigu húsnæði í
Garðatorgi 7, sem er verslunar- og
þjónustuhúsnæði í miðbæ Garða-
bæjar, í því skyni aö reka þar áfeng-
is- og tóbaksverslun. Bæjarráð hef-
ur fjallað um erindið og gerir ekki
athugasemd við þessa staðsetningu
vínbúðar. -DVÓ
Veðriö i kvokl \ SoLir&ingur og sjavarfol! Voöríð a niorgim
REYKJAVIK AKUREYRI
Yfirleitt léttskýjað
Norðaustan 5 til 15 m/s og yfirleitt léttskýjaö,
0 til 7 stiga frost. Él um noröan- og
austanvert landiö en mestur vindur veröur
austan til. Um 4 til 10 stiga frost verður á
hálendinu.
Sólarlag í kvöld 16.54 18.23
Sólarupprás á morgun 09.31 08.27
Síödegisfléö 14.41 19.14
Árdegisflóö á morgun 03.15 07.48
Skýringar á veöurtáknum
/♦^viNDÁrr
15)
'^SVINDSmKUR
i nwtrum á sníkúndu
10°,
-io;
.Hm
Nfrost HEIÐSKiRT
O e> :0
IÉTTSKÝJAD HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ AtSKÝJAD
W' !. RIGNING SKÚRiR ..W StYDDA O SNJÓKOMA
ÉUAGANGUR
ÞRUMU- SKAF- ÞOKA
VEÐUR RENNINGUR
All< ejþtfr
Vetrardekkjatími
Veturinn sækir á og gert er ráö fyrir
kólnandi veöri næstu daga. Þá er
vissara fyrir ökumenn aö huga aö
ástandi hjólabúnaðar bíla sinna.
Varasamt getur veriö aö haida inn í
veturinn á nauðasköllóttum
sumartúttum. Trúlega er því skárra aö
vera vel búinn meö nagladekk, þó
gatnamálastjóri í Reykjavík sé því
andsnúinn.
Bjart veður
Breytileg átt, 3-5 m/s og bjart veður. Frostlaust við vesturströndina en
frost annars 1 til 6 stig.
MlOvik.il
'úíiVju
’jf
Vindur:
5-8
Hiti 1° tii
Suövestan 5-8 m/s og
skýjaö vestaniands en
annars léttskýjaö.
Hiti 1 tíl 5 stig viö
vesturströndina en frost
annars 0 til 5 stig.
Fiiiifiilii
Hiti 0° «1 -S*
Vindur:
5-10 m/s
Hiti -3" til -8"
Gert er rá5 fyrir breytilegri
átt, 5-10 m/s
og éljum víöa um land.
Kélnandl veöur.
Noröaustanátt og
éljagangur, elnkum
noröanlands og viöa
talsvert frost.
AKUREYRI alskýjaö -2
BERGSSTAÐIR skýjaö -2
B0LUNGARVÍK snjóél -2
EGILSSTAÐIR -1
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 4
KEFLAVÍK skýjaö 1
RAUFARHÖFN snjóél -2
REYKJAVÍK hálfskýjaö 0
STÓRHÖFÐI skúrir 2
BERGEN úrkoma 8
HELSINKI rigning 9
KAUPMANNAHÖFN þokumóða 6
ÓSLÖ úrkoma 7
STOKKHÓLMUR sandbylur 5
ÞÓRSHÖFN skúrir 8
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 7
ALGARVE skýjaö 19
AMSTERDAM léttskýjaö 9
BARCELONA hálfskýjað 16
BERLÍN léttskýjað 9
CHICAGO heiöskírt 1
DUBLIN rigning 8
HALIFAX súld 8
FRANKFURT skýjað 9
HAMBORG þokumóða 6
JAN MAYEN snjókoma -4
LONDON skýjað 10
LÚXEMBORG skýjað 5
MALLORCA léttskýjaö 19
MONTREAL 5
NARSSARSSUAQ skýjaö -10
NEW YORK léttskýjað 9
ORLANDO þokumóöa 14
PARÍS skýjaö 11
VÍN léttskýjaö 11
WASHINGTON léttskýjaö 7
WINNIPEG heiöskírt 4
Lin.'ir>l