Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Page 6
6
MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2000
ÐV
Fréttir
^ Byggðastofnun sagði upp samningum við atvinnuþróunarfélögin:
Ataksverkefni í byggða-
málum í uppnámi
- samningar renna út um áramótin
DV-MYND NH
Frá Vík í Mýrdal
Þar hefur fótunum veriö kippt undan átaksverkefni sem miklar vonir voru bundnar viö.
því hvort það verður um frekari
fjárveitingu að ræða, þannig að eins
og staðan er þá er óvíst um fram-
hald verkefnisins frá og með næstu
áramótum," sagði Róbert Jónsson.
Verkefnið í uppnámi ef þetta
er staðreynd
„Það er ljóst að ef þetta er stað-
reynd er átaksverkefnið í uppnámi,
þar með verður ekki hægt að ljúka
þeim verkefnum sem í gangi eru á
þess vegum.
En við getum ekki trúað því að
þetta sé raunin og treystum þvi að
staðið verði við gerða samninga svo
takast megi að ljúka þessu átaks-
verkefni eins og áætlanir gerðu ráð
fyrir,“ sagði Ámi Jón Eliasson, odd-
viti Skaftárhrepps og stjórnarmaður
í átaksverkefninu í Vestur-Skafta-
fellssýslu.
Miklar vonir hafa verið bundnar
við Átaksverkefni í atvinnumálum
sem Skaftárhreppur, Mýrdalshrepp-
ur ásamt Atvinnuþróunarsjóði Suð-
urlands og Byggðastofnun standa að
í sameiningu. Meðal þess sem unn-
ið hefur verið að hefur verið að
koma upp fjarfundabúnaði í Vík og
á Klaustri til að bæta aðgengi fólks
að starfs- og símenntun í gegnum
búnaðinn. -NH
DV, SUÐURLANDI:__________
„Þessi samningur við okk-
ur sem sagt var upp í sumar
var sérstök fjárveiting til at-
vinnuþróunarsjóðsins sem
ætlast var til að við notuðum
í vinnu við verkefni sem
stuðla að því að steftiu ríkis-
stjómarinnar í byggðamálum
sem samþykkt var í mars
1999 sé náð. Þannig að þetta
er ekkert gjafafé, heldur er
ætlast til að við vinnum að
ýmsum verkefnum sem geta
uppfyllt þá steí'nu," sagði Ró-
hert Jónsson, framkvæmda-
stjóri Atvinnuþróunarsjóðs
Suðurlands, þegar DV leitaði
til hans vegna uppsagnar
Byggðastofnunar á samningi
um atvinnuráðgjöf.
Samkvæmt samningnum
sem sagt hefur verið upp fékk
Atvinnuþróunarsjóður Suð-
urlands 9,1 milljón til verk-
efna á Suðurlandi. Róbert
segir að enn sé ekki farið að
ræða um endurnýjun samn-
ingsins og framhaldið sé
óljóst. „Þetta gengur hægt,
við vitum ekkert enn hvað
verður um þetta mál. En nú
eru atvinnuþróunarfélögin í
fjárhagsáætlunargerð þannig
að þetta er mjög óheppileg
staða og þau verða að vita
hvernig þessu reiðir af til að
geta gengið frá áætlunargerð
sinni fyrir árið 2001. En við
erum að vonast til að þessi
samningur verði framlengdur
um eitt ár og stjórn Byggðastofnun-
ar hefur verið sent erindi um að það
verði gert,“ sagði Róbert Jónsson.
Hann segir að átaksverkefni það
sem Atvinnuþróunarsjóður Suður-
lands er aðili að í Vestur-Skaftafells-
sýslu sé fjármagnað með sérstakri
fjárveitingu frá Byggðastofnun, 6
milljónum kr. á ári i þrjú ár, og því
er þetta verkefni einnig í uppnámi.
„Þeir hafa enn ekki getað svarað
Kemur spánskt fyrir sjónir
- þyrfti frekar aö efla starfsemina, segir stjórnarmaður í Byggðastofnun
DV, SUDURLANDI:________________
„Það hefur enn engin ákvörðun
verið tekin um þetta í stjórn
Byggðastofnunar. Þetta hefur held-
ur ekki komið til formlegrar um-
fjöllunar í henni. Þetta kemur mér
þvi eilítið spánskt fyrir sjónir,“
sagði Karl V. Matthíasson, vara-
þingmaður og stjórnarmaður í
Byggðastofnun, vegna upp-
sagna Byggðastofnunar á
samningum við atvinnuþró-
unarfélög og um átaksverk-
efni.
Hann veltir fyrir sér getu
atvinnuþróunarfélaganna,
hvers þau séu megnug, hvort
þau ættu ekki að vera kröft-
ugri. „Ég held að þau þuríl
að tengjast Byggðastofnun
betur, það þarf að styrkja
samband Byggðastofnunar
og atvinnuþróunarfélaganna
til að hendurnar vinni sam-
an,“ sagði Karl. „En þetta
mál hefur ekki verið tekið
Matthiasson. fyrir í stjórninni. Ég hef
Karl V.
ekki leitt hugann að þessu því ég
hef aldrei fundið neina hugsun eða
tilhneigingu til að rýra hlut at-
vinnuþróunarfélaganna, ég tel að
þvert á móti eigi að efla og styrkja
atvinnuþróunarstarfsemi í byggð-
unum sjálfum," sagði Karl V
Matthíasson. -NH
______Umsýjn:
Syífi KHsiýánsson
netfang: sandkom@ff.is
Ríka fólkið á Kúbu
Um 400 íslend-
ingar dvöldu ný-
lega í um viku-
tíma á Kúbu og
nutu lífsins. Það
vakti athygli
1 nokkurra þeirra
þegar þeir
brugðu sér í
bílferð með
leigubíl og
báðu bílstjórann að sýna sér eitt-
hvað merkilegt að hann ók rakleið-
is út á flugvöll og þar sýndi hann
ferðalöngunum risaþotu Atlanta og
sagði að 400 forrikir íslendingar
hefðu komið með þessari þotu og
létu hana bíða eftir sér í vikutíma.
Var leigubílstjórinn greinilega
hissa á þessu mikla ríkidæmi í
landi sem heitir ísland. Ferðalang-
arnir sögðu fátt en hugsuðu sitt, en
í hópi Kúbufara í þessari ferð með
risaþotu Atlanta voru m.a. nokkrir
verkalýðsforingjar í „pílagríma-
ferð“, eflaust að kynna sér hvernig
kommúnismi Kastrós hefur skilað
sér til þjóðarinnar.
„Það gerið þið sjálfur"
Færeyingarnir
Jakub Jakobsen
og Jakub Purk-
hus, sem eiga
Rúmfatalagerinn
sem á Smára-
torg í Kópavogi
sem á Glerár-
torg á Akureyri,
eru komnir í |
hóp helstu fram-
kvæmdamanna hér á landi, enda
duglegir og áræðnir. Sá fyrrnefndi
hélt ræðu við opnun Glerártorgs
þar sem hann auglýsti aðeins í
leiðinni verslun sina Rúmfatalager-
inn. Jakub sagði að þar gætu Akur-
eyringar keypt ódýr rúm, ódýrar
dýnur, ódýra kodda og sængur.
„En bömin verðið þið að búa til
sjálfir," bætti Jakub við og við-
staddir fógnuðu því að Jakub ætl-
aði ekki að taka yfir „barnafram-
leiðsluna" í bænum.
Kobbarnir
Jakubarnir
tveir frá Færeyj-
um fengu sér
.mann á Akur-
eyri til að vera
eins konar um-
sjónarmaður
með byggingu
| Glerártorgs og
auðvitað fengu
þeir til þess
nafna sinn sem þó skrifar nafnið
sitt með o í stað u, enda þarna
kominn Jakob Björnsson, fyrrver-
andi bæjarstjóri. Jakobi var það
mikið hjartans mál að hægt yrði að
opna verslunarmiðstöðina 2. nóv-
ember klukkan 11, enda hafði hann
lýst þvi yfir i sumar að hann
myndi snæða KA-húfuna sína ef sú
dagsetning stæðist ekki. Jakob get-
ur því sett á sig húfuna næst þegar
hann fer að hvetja liðið sitt í hand-
boltanum.
Forstjórinn ákvað að losa samningana:
Til að stjórnin geti endurskipulagt
- segir Kristinn H. Gunnarsson, formaður stjórnar Byggðastofnunar
DV, SUDURLANDI:
„Þetta er gert til að stjórnin hafi
möguleika á að geta endurskipulagt
þessi mál. Það er hlutur sem ný
stjórn þarf að hafa möguleika á að
fara yfir, sem eðlilegt er; því ákvað
forstjórinn á sínum tíma að losa
samningana," sagði Kristinn H.
Gunnarsson, þingmaður og formað-
ur stjómar Byggðastofnunar, við
DV. Byggðastofnun hefur nú sagt
upp samningum sem hún gerði á
sínum tíma við atvinnuþróunarfé-
lögin um fjármagn sem Byggða-
stofnun lagði til þeirra samkvæmt
samningi um atvinnuráðgjöf og
byggðist á ákvörðun ríkisstjórnar-
innar um aðgerðir í byggðamálum
frá 1999. Auk þess hefur samningum
um íjármögnun sérstakra
átaksverkefna í atvinnu-
málum verið sagt upp. „Ég
veit ekki betur en að það
hafi verið uppsagnará-
kvæði í þeim samningum
sem gerðir voru um þetta á
sínum tíma. Stjómin mun
fara yfir þessi mál í vetur
þannig að það má vel vera
að á þessu verði einhverjar
breytingar eins og gengur,
hver stjórn verður að fá að móta
sína stefnu," sagði Kristinn.
Hvað með verkefnið í Vestur-
Skaftafellssýslu?
„Það var meiningin að legið gæti
fyrir ný stefna fyrir áramót, en ég
held það verði ekki úr þessu, og geri
ráð fyrir að við framlengjum
samningana um einhvern
tíma meðan vinnan klárast,"
sagði Kristinn H. Gunnars-
son. „Það er eðlilegur hlutur
að farið verði yfir stefnumót-
un í þessum ráðgjafarmálum
eins og öðrum málum sem
stjórnin hefur á sinni könnu
og mótar stefnu í. Mér finnst
einkennilegt ef menn eru að
fmna að því að við viljum
gera það og jafnvel gera einhverjar
breytingar á gildandi stefnu,“ sagði
Kristinn.
Síðasta stjórn langt fram úr
fjárveitingum
Fjárhagur Byggðastofnunar virð-
ist þurfa endurskoðunar við. Heim-
ildir DV segja að síðasta stjórn
stofnunarinnar hafi farið verulega
fram úr fjárveitingum sínum, heild-
arframúraksturinn hafi verið sam-
svarandi fjárveitingu hálfs annars
árs. Vill nýr formaður staðfesta
þetta?
„Það þarf ekki annað en lesa árs-
skýrslu stofnunarinnar til að sjá
þetta. Það var búið að ráðstafa nán-
ast öllu fjármagni hennar, bæði til
lánveitinga og annarra verkefna.
Þannig að öllu því fé sem við i nýrri
stjórn áttum að hafa úr að spila á
fyrsta árinu var þegar búið að ráð-
stafa að nánast öllu leyti, en það
tengist þó ekki þessum samningum,"
sagði Kristinn H. Gunnarsson. -NH
Kristinn H.
Gunnarsson.
Mörður í stuði
Útvarpsráð
Rikisútvarpsins
er enn og aftur
aðhlátursefni
landsmanna. í
þetta skiptið er
það vegna sam-
þykktar ráðsins
um að við is-
lenska lagið
sem sent verðu:
í Evrópukeppni sjónvarpsstöðva
skuli sunginn íslenskur texti en
ekki texti á erlendu tungumáli. Það
var samfylkingarmaðurinn Mörður
Árnason sem fann sig knúinn til að
leggja þetta til í útvarpsráði til að
bjarga íslensku tungunni og vænt-
anlega þjóðinni frá glötun. Félagar
hans í ráðinu, sem yfirleitt eru
sammála um það að vera ósam-
mála, brugðust nú hins vegar vel
við erindi Marðar og samþykktu
samhljóða. Væri réttast að láta út-
varpsráðsmenn sjálfa syngja í
keppninni.