Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Qupperneq 8
MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2000
Fréttir
DV
150 þúsund rjúpur skotnar í fyrra:
Veiðimonnum fjolg-
ar en rjúpum fækkar
Dagróðrarsjómenn óánægðir:
Aflinn hrapar
um helming
DV. SNÆFELLSNESI:
Næstum sex vikur eru liðnar af
rjúpnaveiðitímanum og veiðin hef-
ur alls ekki gengið vel. Tíðarfarið
hefur verið mjög hagstætt fyrir
fuglinn en ekki fyrir þann fjölda
veiðimanna sem hefur ætlað að ná
sér í soðið. Erfitt er að henda reið-
ur á þvi hve mikið hefur verið
skotið en líklega eru það nokkur
þúsund rjúpur. í fyrra veiddust um
150 þúsund rjúpur yfir allt landið
en þessar tölur voru að koma í ljós
núna síðustu daga, enda hafa skot-
veiðimenn verið að skOa inn veiði-
Gunnar Bender
blaðamaður
skýrslum fyrir síðasta veiðiár.
Skotveiðimenn sem DV hefur
rætt við víða um land segja flestir
sömu söguna: minni rjúpa en í
fyrra og engin stórveiði. Auðvitað
hefur einn og einn veiðimaður
fengið góða veiði; það er líka alltaf
gangurinn i þessu. En sögur af
mikilli veiði heyrast ekki á hverj-
um degi og þeir sem fá góða veiði
eru þeir sem þekkja svæð-
ið eða fá jafnvel að
skjóta á einhverjum
ákveðnum góð-
um svæðum.
Síðustu daga
hefur veðurfarið
breyst á stórum
hluta landsins
en kannski ekki
alveg nógu
mikið fyrir
rjúpnaveiði-
menn sem
vilja meiri
snjó og kulda.
„Veiðin hef-
ur gengið
mjög
mis-
jafn-
lega
það
sem
af er
Ný
sending!
3 Úrval af skemmtilegum smáhlutum
Sérverslun með gamla muni og húsgögn
Langholtsvegi 130, sfmi: 533 33 90
Misjöfn veiöi
Rjúpnaveiðimenn
hafa farið víða til
rjúpna það sem
af er veiðitíman-
um og veiðin ver-
ið misjöfn. Einn
og einn hefur
fengið góða
veiði en í
fyrra voru
skotnar
um 150
þúsund
rjúpur.
h I
veiðitím-
anum og mesta veiðin sem ég hef
frétt af var fyrir vestan. Þar voru
menn aö fá þetta á milli 20 og 30
rjúpur yfir daginn," sagði Áki Ár-
mann Jónsson, veiðistjóri á Akur-
eyri.
„Yfirleitt eru það tvær fyrstu
vikumar sem gefa best en i fyrra
veiddust um 150 þúsund rúpur yfir
allt landið hjá þeim sem skiluðu
inn veiðiskýrsltun. Okkur hafa
verið að berast tölur núna síðustu
vikurnar og þetta er að skýrast
SPENNANDI OG OÐRUVISI
HÚSGA GNAÁKLÆÐI!
A K LÆ Ð I
SÍMI 555 3986 / 897 6666
HJALLAHRAUNI 8
HAFNARFIRÐI
OPIÐ MÁNUDAGA -
FIMMTUDAGA13 -18
FÖSTUDAGA13 -16
lít
J)jói.niynd.ai.toj-a cJ^zytzjcujL u
Jínnljocji aiin.0ii.on
(fÓJodai
fjóítnij nd.ii.
JíjEij-íiLjötu iO’j - 2. fiæci
cSuní 562 1/66 - £62 6636
með veiðina. En veiðin núna hefur
oft verið betri.“
Þarf bara ekki að friða
rjúpuna meira?
„Nei,
alls ekki,
friðun getur líka virk-
að öfugt og þetta er alveg
nóg þar sem er friðað
núna. Náttúruleg afEoll
verða alltaf mest fyrstu
tvær vikur veiðitímans,"
íV' sagði Áki Ármann.
Otrúlegustu
menn sem
I JS borða rjúpu
„Við bíðum eftir
* » að veðurfarið
breytist og
kólni og
frysti, þá þéttir
rjúpan sig og hún hættir
I ætinu i efstu fjöllum,"
segir Sigmar B. Hauksson,
formaður Skotveiðifélags ís-
lands, sem enn þá hefur veitt
lítið eins og fjöldi veiði-
manna.
„Ég er alltaf í sambandi
við rjúpnaskyttur i
því starfi sem ég er í
og rjúpnaveiðin
hefði mátt vera
betri,“ sagði Róbert
Schmidt skotveiðimaður og bætti
við:
„En um leið og snjór fer að leggj-
ast í kjarrlendi og í grónar hlíðar
þá kemur rjúpan og þéttir sig sam-
an. Nokkrar skyttur í Borgarfirði
hafa fengið frá 7-12 fugla í ferð og
svipaða sögu er að segja af tveim
skyttum sem náöu 9 og 11 fuglum
fyrir fáum dögum nálægt Hvera-
völlum. Til min leita rjúpnaskytt-
ur daglega og menn eru að bíða eft-
ir breyttu veðurfari. Sjálfur hef ég
lítið fariö, náði 4 rjúpum í opnun-
inni og hef ekki farið síðan. Ég bíð
frekar eftir snjónum og þá fer mað-
ur strax,“ sagði Róbert í lokin.
„Ég hef sjaldan labbað eins og
síðustu daga en náð litlu. Ætli það
þurfi ekki veðurbreytingu, og það
fljótlega, til að rjúpan hreyfi sig
eitthvað," sagði skotveiðimaður
sem sjaldan hefur labbað eins mik-
ið og núna en fengið fáar rjúpur.
Þegar rjúpnaveiðin er svo lítil
sem raun ber vitni gæti verðið
hækkað verulega þegar nær dreg-
ur jólum og margir þurfa að ná sér
í soðið. En rjúpan er einn vinsæl-
asti jólamaturinn og þrátt fyrir að
stór hluti þjóðarinnar sé á móti
þessum veiðiskap úðar hann þessu
í sig um jólin, eða eins og einn
veiðimaðurinn sagði:
„Auðvitað borða margir rjúpur
um jólin og maður selur ótrúleg-
ustu mönnum þennan fugl í
jólamatinn, mönnum sem eru bún-
ir að deila á mann í marga mánuði
áður, og þeir slá ekki slöku við.
Rjúpan er herramannsmatur, það
vita allir,“ sagði veiðimaðurinn í
lokin.
Rjúpnaveiðimönnum fjölgar ár frá
ári og verslunarmenn sem við rædd-
um við sögðu að alltaf væru aö bæt-
ast við nýir og nýir veiðimenn.
Byssurnar yrðu betri og betri en
rjúpunni fækkaði og erfíðara yrði að
fá að skjóta. Erlendum veiðimönn-
um, sem koma hingað til
lands til
að skjótá rjúpur, Sölgar. Fátt
er víst betra en að labba í ís-
lenskri náttúru og fá að skjóta
eina og eina rjúpu. Þau fyrir-
tæki sem gera þetta eru meðal
annars Sportmenn íslands og
veiðifélagið Lax-á, auk fjölda manna
sem gera út á þennan hóp veiði-
manna.
Sagan í lokin lýsir kannski mál-
inu ágætlega en þar var það rjúpna-
skyttan af höfuðborgarsvæðinu sem
hafði verið í gifsi í langan tima
vegna fótbrots. Var maðurinn að
vonum glaður að losna við gifsið,
enda rjúpnaveiðitíminn í hámarki
og hann hafði ekkert komist til
Qalla. í síðustu viku var gifsið tekið
af og glaður i bragði haltraði veiði-
maðurinn til fjalla, þó með litla
veiðivon í brjósti, enda hafði lítið
veiðst síðan rjúpnaveiðitíminn byrj-
aði. En hann var laus við gifsið og
kominn á veiðislóð og það var fyrir
öllu. Til að gera langa sögu stutta þá
skakklappaðist maðurinn til veiða,
stuttan tíma, enda hálfslappur í löpp-
inni. Hafði hann þó 9 rjúpur upp úr
krafsinu sem er góð veiði miðað við
dagsveiðina síðustu vikurnar.
Hann var hálfslappur í löppinni
þegar heim var komið en ánægður
með veiðina.
Nokkurrar óþolinmæði yfir lé-
legu fiskirli er farið að gæta hjá sjó-
mönnum á dagróðrabátum við
Breiðafjöröinn. Þrátt fyrir nokkuð
hagstætt tíðarfar liðna haustmán-
uði og allt fram undir þetta þá læt-
ur sá guli lítið á sér kræla. Óvenju
lélegt hefur verið hjá dragnótabát-
um sem gerðir eru út frá tveimur
höfnum við Breiðafjörðinn eða frá
Ólafsvík og Rifi. Línubátar hafa
einn og einn verið að ná smáskotum
og sömu sögu er að segja af hand-
færabátum.
í Ólafsvík er landaður afli októ-
bermánaðar á síðasta degi hans orð-
inn helmingi minni en í október í
fyrra. Þrátt fyrir rýra haustmánuði
hefur þó meiri afla verið landað á
höfnunum fjórum við Breiðafjörð-
inn, nema í Rifi, fyrstu 9 mánuði
þessa árs sé miðað við síðasta ár; í
lok sepember var aflinn 36.638 tonn
á móti 25.827 tonn á sama tíma í
fyrra. DVÓ/GK
Ungir fram-
kvæmdamenn
DV, HELLU: ~
Þeir létu hendur standa fram úr
ermum, þessir vösku drengir á
Hellu á dögunum. Þeir höfðu viðað
að sér efnivið og voru að hefjast
handa við að byggja sér kofa. Það
eru því bæði ungir sem aldnir á
Hellu sem taka vasklega á við að
byggja upp bæinn sinn eftir nátt-
úruhamfarimar í sumar. Fram-
kvæmdamennimir ungu heita
Sveinbjöm, Þráinn, Hjörvar, Siggi
í og Eyþór. -NH
DV-MYND DANÍEL V. ÖUFSSON
Hraöskreiður fiskibátur
Guögeir Svavarsson fyrir framan nýja bátinn.
Ný gerð hraðfiski-
báts úr trefjaplasti
DV, AKRANESl:
I vikunni verður fyrsti báturinn
frá fyrirtækinu Guðgeir Svavarsson
ehf. afhentur og fær hann nafnið
Maron AK 20. Um er að ræða nýja
hönnun á hraðfískibáti úr trefja-
plasti. Báturinn er 5,98 brúttólestir,
3,20 m á breidd og mesta lengd 9
metrar.
“Hugmyndin að þessari bátsgerð
fæddist í byrjun ársins. Þetta er
fyrsti báturinn sem smíðaður er
samkvæmt þessari teikningu og er
hann úr trefjaplasti. Ég er búinn að
selja annan bát til og fá þó nokkrar
fyrirspumir um þessa báta. Það
komast 660 lítra fiskiker í bátinn og
verð bátsins, sem verður afhentur í
næstu viku, er 15 milljónir króna,"
sagði Guðgeir Svavarsson, hönnuð-
ur og skipasmiður, við DV.
-DVÓ