Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Page 10
10
Tælenskur matur
Take away
Frí heimsending
561-29-29
Thal Expt*ess
Laugavegi 126
105 Reykjavik
Sími 561-29-29 Fax 561-11-10
e-mail: thai-express@simnet.is
Sólar- og öryggisfilma
á hús og bíla.
Hlerar gegn fárviðri og
þjófafélaginu.
Sterk og ódýr, örugg, t.d.
fyrir kjallaraglugga.
Uppsetningarþjónusta
ef óskað er.
Dalbrekku 22 - sími 544 5770
Útlönd
MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2000
DV
Vafasöm íhlutun forseta í kosningum í Aserbaídsjan:
Sonurinn verði
skipaður nýr forseti
Svo gæti farið að í kjölfar þing-
kosninga, sem fram fóru í fyrrum
sovétlýöveldinu Aserbaídsjan í gær,
færu völdin í landinu úr höndum
fóður til sonar. Vestrænir eftirlits-
menn hafa lýst kosningunum sem
svindli.
Forseti Aserbaidsjan, Haídar
Aljev, gaf í skyn eftir kosningamar
að sonur hans, Ilham, yrði hugsan-
lega næsti forseti landsins ef hann
kysi að láta af störfum fyrr en áætl-
að var fyrir aldurs sakir. Forsetinn
er 77 ára gamall.
Opinberir embættismenn í stjórn-
arflokki landsins hafa gengið lengra
en forsetinn og tekið af allan vafa
um hvernig túlka beri orð forsetans.
Áróðursherferð hefur verið hrundið
af stað þar sem sonur forsetans er
kynntur sem nýr arftaki.
Háttsettur embættismaður í vest-
rænni eftirlitsnefnd, sem fylgst hef-
ur meö kosningunni, sagði að ekki
hefði verið farið eftir kosningalög-
Artur Rasizade
forsætisráðherra og stjórnarliöi í
Aserbaídsjan.
um og að óreiða og svindl hefði ein-
kennt kosningamar.
Aserar hafa aö undanfórnu sóst
eftir aðild að Evrópuráðinu sem
rækir mannréttinda- og lýðræðis-
mál í álfunni. Hafa stjórnmála-
skýrendur bent á að framganga
stjórnvalda í kosningunum í gær
muni setja svip sinn á ákvörðun
ráðsins um að heimila Aserum að-
ild. í fyrstu þingkosningum í land-
inu, eftir að Sovétríkin liðu undir
lok, sátu stjórnvöld einnig undir
ámæli og ásökunum um kosninga-
svindl.
Athyglin beindist að ILham Aljev
þar sem hann mætti ásamt föður
sínum, forsetanum, á kjörstað í mið-
borg Baku í gær.
Þegar forsetinn var spurður
hvort hann sæi son sinn fyrir sér
sem nýjan forseta landsins svaraði
hann: „Hann er ekkert smábam ...
hann ákveður það sjálfur.“
Kjörtímabil forseta nær til 2003.
Táragas í Ramallah
Palestínskir mótmælendur reyna að forða sér undan táragaskúlum sem ísraelskir hermenn skutu að þeim sl.
föstudag í bænum Ramallah á Vesturbakkanum. Til óeirða kom í bænum á föstudag.
Bush-bræður gera
lokaatlögu að Flórída
George Bush, frambjóðandi
repúblikana til bandarísku forseta-
kosninganna, ferðaðist um Flórída-
fylki í gær í úrslitatilraun til að ná
meirihluta kjósenda fylkisins á sitt
band fyrir kosningamar nk. þriðju-
dag.
Skoðanakannanir hafa ýmist sýnt
að fylgi Bush og Gores í fylkinu er
hnífjafnt eða fylgi Gores hefur
mælst ívið meira.
Yngri bróöir Bush, Jeb, sem
jafnframt er ríkisstjóri í Flórida,
ferðaðist með bróður sínum
Kosningaforinni var heitið um
West Palm Beach og þaðan til Mi-
ami, Tampa og Orlando.
„Við erum að ferðast um þetta
stóra ríki í dag með ein skilaboð.
Náum í atkvæðin. Kjósendumir eru
þarna," sagði George Bush á kosn-
ingafundi sem efnt var til á flugvell-
George og Jed Bush
Ríkisstjórinn og
forsetaframbjóðandinn á útifundi.
inum í West Palm Beach í steikj-
andi hita.
Kannanir sýna að fylgi Gores er
ívið meira en fylgi Bush í ríkjum á
borð við Kaliforníu og New York
þótt fylgi Bush mælist enn þá tveim-
ur prósentum meira þegar litið er
til landsins alls. Stjómmálaskýrend-
ur hafa því bent á mikilvægi þess að
Bush nái meirihlutakosningu í Flór-
ída en fylkið hefur á að skipa 25 af
270 atkvæðum kjörmannaráðsins
sem þarf til að ná meirihluta í for-
setakosningunum.
A1 Gore, frambjóðandi demó-
krata, dvaldist í Fíladelfíu í gær þar
sem hann ávarpaði m.a. 1500 manns
sem voru samankomin á kosninga-
fundi í Fairmont Park.
Búist er við því að allt að 100
milljónir manna sniðgangi kosning-
arnar.
Mubarak meft meirihluta
Forseti Egypta-
lands, Hosni
■ Mubarak, og stjórn-
I - ' , f arflokkur hans unnu
yfirgnæfandi meiri-
í hluta i annarri um-
M ferö þingkosninga
■ v • sem fram fóru í land-
Líðan Ingiríðar óbreytt
Líðan dönsku drottningarmóður-
innar, Ingiríðar, er óbreytt en
heilsu hennar tók að hraka fyrir
nokkrum dögum og hefur hún verið
rúmliggjandi að undanförnu.
Ingiríður varð níræð á þessu ári.
Sprenging í Estoniu
Bandaríski auðkýfingurinn
Gregg Bemis, sem kafaði niður á
flak farþegaferjunnar Estoniu sem
liggur á hafsbotni I lögsögu Finn-
lands, segir hugsanlegt að spreng-
ing hafi orskakaö það að ferjan
fórst.
Gríski mannræninginn sem
rændi rútu í Aþenu á fostudag og
sleppti eftir tveggja daga umsátur
lögreglu framdi í gær sjálfsmorð
með því að henda sér út um glugga
á sjöundu hæð á lögreglustöð þar
sem hann var í haldi.
í tengslum vift þjóðina
Tony Blair ítrek-
aði í gær aö hann
væri í tengslum við
bresku þjóðina þrátt
fyrir aö neita að
lækka olíuskatta til
að koma upp á móti
olíuverðshækkun-
um að undanförnu.
Olía í sjóinn
Brasilíski olíurisinn Petribras
hefur. enn sætt ámæli fyrir að
menga strendur Brasilíu. í gær fóru
um 50.000 lítrar af hráolíu í sjóinn í
Sao Sebastiao-flóa þegar olíuskip frá
félaginu rakst á steinblokk á hafnar-
garðinum. í júlí á þessu ári varð
mesta mengunarslys í Brasilíu síð-
ustu 25 ár þegar um 1 milljón lítra
af olíu rann í sjóinn við strendur
landsins.
Talar til pólitíkusa
Jóhannes
Páll páfi II
sagði í ræðu
við messu í
Vatíkaninu í
gær að stjórn-
málamenn
ættu að byggja
vinnu sína á
ótakmarkaðri
og óeigingjarnri ást. Bað hann þá
um að leysa vandamál sin framveg-
is með rökræðu fremur en ofbeldi.
„Lifið í pólitíkinni og í þjónustu við
aðra,“ sagði páfí.
Á fjórfta rými Kúrsks
Kafarar náðu að fjórða rými
kjarnorkukafbátsins Kúrsk i gær en
skemmdir á þeim hluta reyndust
það miklar að ekki var unnt að að
ná fleiri líkum úr kafbátnum að svo
stöddu. Taismaður Norðurflotans
rússneska sagði að kafarar yrðu
fyrst aö komast fyrir brotajárn sem
hindraði aðgang.