Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Síða 27
MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2000 _________________________________________________________________________________________43 *
I>V Tilvera
I IIUIUI iiiii mx.
ofi
J. m,c
AfjmæJí&barnfó
Hawke
þrítugur
Banaaríski kvik- JL ..
myndaleikarinn Et-
han Hawke fagnar
þrítugsafmælinu í
dag. Ethan, sem er
fæddur og uppal-
inn í Texas, hefur
leikið í fjölda kvik-
mynda; meðal ann-
ars Great Expectations og Dead
Poet’s Society. Hawke er kvæntur
leikkonunni Umu Thurman og sam-
an eiga þau dótturina Mayu.
liijfJJ.LfeS'
Gildir fyrir þriójudaglnn 7. nóvember
Vatnsberinn (20. ian-18. febr.):
■Reyndu að vera ekki
'M allt of gagnrýninn við
ástvini þína. Það gæti
* valdið misskilningi.
Væntumþykja verður endurgoldin
margfalt.
Fiskarnir (19. febr.-20. mars>:
Dagurinn verður við-
Iburðarikur og þú hef-
ui' meira en nóg að
gera. Gættu þess
að ver'a ekki of tortrygginn.
Happatölur þínar eru 1, 5 og 37.
Hrúturinn (21. mars-19. anrili:
. Fyrri hluti dagsins
('kemur þér á óvart. Þú
þarft að glíma við
óvenjulegt vandamál.
Þú verður þreyttur í kvöld og ætt-
ir að taka það rólega.
Nautið (20, apríl-20. maíi:
I Vertu þolinmóður þó
að þér finnist vinna
annarra ganga of
hægt. Það væri
go^jugmynd að hitta vini í
kvöld.
Tvíburarnir (21. ma?-2i. iúníi:
Fréttir sem þú færð
»■6111 ákaflega ánægju-
legar fyrir þig og þina
nánustu. Hætta er á
smávægilegum deilum seinni
hluta dagsins.
Krabbinn (22. iúní-22. iúiíJ:
Reyndu að halda þig
k við áætlanir þínar og
’ vera skipulagður. Þér
_____ bjóðast góð tækifæri í
vinnunni og um aö gera að gripa
gæsina á meðan hún gefst.
Liónið (73. iúlí- 22. áeústi:
Þú þarft að einbeita
I Æ Þér aö einkamálunum
og rækta samband þitt
__ við manneskju sem þú
ert að fjarlægjast. Kvöldið verður
ánægjulegt.
Mevian (23. áeúst-22. sept.i:
Eitthvað sem þú vinn-
ur að um þessar mimd-
VV *Krir gæti valdið þér hug-
^ n arangri. Taktu þér góð-
an tíma í að íhuga hvað gera skal.
Þú færð bráðlega góðar fréttir.
Vogin (23. sept.-23. okt.l:
Ekki taka mark á fólki
sem er neikvætt og
svartsýnt. Dagurinn
verður skemmtilegri
en þú bjóst við, sérstaklega seinni
hluti hans.
Sporðdreki (24. okt.-2t . nnv.r
n Þú átt skemmtilegar
samræður við fólk og
idagurinn einkennist af
samstöðu milli sam-
starfsaðila. Happatölur þinar eru
3, 24 og 36.
Bogamaður (22. nóv.-21. des.l:
,í dag gætu ólíklegustu
} aðilar loksins náð sam-
komulagi um mikil-
væg málefhi og þannig
auðveldað framkvæmdir á
ákveðnu sviði.
Steingeitin (22. des.-19. ian.l:
Þú ert að velta ein-
hverju alvarlega fyrir
þér og það gæti dregið
athygli þína frá því sem
þú ert að vinna að. Ef þig skortir
einbeitingu ættir þú að hvíla þig.
i vMJuiaiim iz.
h-
DV-MYND SIGURÐUR K. HJÁLMARSSON.
Meö tvo góða með sér
Eiríkur Vilhelm Siguröarson meö hundana Skotta og Lubba í smölun í Sólheimaheiöi í Mýrdal í vikunni. Þaö munar um
aö hafa tvo góöa smalahunda meö i för.
Smaladrengurinn og
hundarnir hans
ÐV. MÝRDAL:
Það er ekki mikið að því að fá frí
í skólanum einn dag og geta verið í
félagskap með hundunum Skotta og
Lubba frá Sólheimahjáleigu í Mýr-
dal. Eiríkur Vilhelm fór í göngur í
Sólheimaheiði á þriðjudag en hann
telur mikla þörf á að hjálpa afa sín-
um að smala og þó að aíinn sé orð-
inn 72 ára þarf 11 ára drengurinn að
hafa sig allan við til að fylgja
honum fram úr heiðinni. -SKH
Svíh&jjoÞ
Britney full í
næturklúbbi
Táningastjarnan Britney Spears,
sem er nú á tónleikaferðalagi um
Evrópu, ákvað að fara að skemmta
sér ærlega á næturklúbbnum
Moritzbastei í Leipzig i Þýskalandi.
Britney var í bleiku minipilsi, ör-
litlum topp og háhæluðum skóm.
Þýskir sjónvarpsmenn voru á
staðnum og tóku myndir af því
þegar stjarnan pantaði sér hvern
drykkinn á fætur öðrum. Britney er
bara 18 ára og i heimalandi sínu,
Bandaríkjunum, má hún ekki
kaupa áfengi fyrr en eftir þrjú ár.
Eftir fimm klukkustunda drykkju
komst Britney á þá skoöun að
kominn væri háttatími. Þýskir
sjónvarpsáhorfendur sáu að Britney
átti í talsverðum erfiðleikum með
gang þegar hún lagði af stað í bólið.
Britney Spears
Sjónvarpsmenn tóku myndir af
drykkju söngkonunnar.
Það sást einnig greinilega að fótin
voru orðin aflaga og að lífvörður
reyndi að dylja líkama stjörnunnar.
Inni í Bens sat annar lífvörður og
beið með enn einn kokkteOinn
handa Britney Spears. Hann hafði
þau áhrif að söngkonan var komin
hálf út um glugga bifreiðarinnar og
hafði hátt. Ekkert hefur frést af
líðan Britney daginn eftir.
Nú velta menn því fyrir sér hvað
unnusti söngkonunnar, Justin
Timberlake í N’Sync, segi um vOlt
liferni hennar í Evrópuferðinni. í
viðtali við bandaríska Elle fullyrðir
söngkonan að hún sé enn óspjölluð
mey. Hún hefur lýst því yfir að hún
ætli að vera hrein mey þar til hún
gengur upp að altarinu meö hinum
eina rétta.
Von Trier vill
gera klámmynd
Danska leikstjóranum
Lars Von Trier finnst klám-
myndum ekki gert nógu hátt
undir höfði og af þeim sökum
hefði hann áhuga á reyna sig
við gerð einnar slíkrar. Hann
hefur jú smáreynslu nú þeg-
ar þar sem í mynd hans Idjót-
unum er stóðlífissena þar
sem sjá má innlimun, ef svo
má segja.
„Ég sé.ekki hvað er svona
hræðilegt við þetta,“ var haft
eftir Lars í þýsku kvik-
myndatímariti á dögunum.
En ef til kemur ætlar Lars
ekki að gera þessa hefð-
bundnu klámmynd þar sem
söguþráður og kvikmynda-
gerð eru látin lönd og leið.
Nei, alvörumynd yrði það.
Armani ríkastur
allra á Ítalíu
Tískukóngurinn Armani er ríkasti
maður Ítalíu samkvæmt skattskrám.
Tískuhús Armanis, sem er aldarfjórð-
ungsgamalt í ár, var með um 90 mOlj-
arða króna veltu í fyrra. Næst ríkasti
ítalinn er Cesare Romiti, fyrrverandi
stjórnarformaður Fiats. Fjölmiðla-
kóngurinn SOvio Berlusconi var bara
í 17. sæti. AOir þrir hafa sætt rann-
sókn vegna meintrar spOlingar.
Armani var sakaður um að hafa
mútað skattrannsóknarmönnum.
Týndi minnis-
bókinni sinni
Rapparinn Eminem er nú fullur ör-
væntingar yfir því að hafa týnt minn-
isbókinni sinni sem var fuU af nýjum
textum. Minnisbókin, sem var með
mynd af poppstjörnunni Britney Spe-
ars, á að hafa horfið í flugvél frá
Cincinnati til New Orleans. Eminem
biður nú aðdáendur sína um hjálp á
heimasíðunni sinni. Hann vonast til
að minnisbókin berist honum sem
fyrst. Hann býður einnig vegleg fund-
arlaun. Textarnir í bókinni áttu að
vera við lög á næstu plötu rapparans.
ICS'
Ný
sending!
jjl Úrval af skemmtilegum smáhlutum
Sérverslun með gamla muni og húsgögn
Langholtsvegi 130, sími: 533 33 90
Opiö: Mán.12:00 - 18:00. Laug. 12:00 • 16:00
Fæst I Apötekinu, Lyfju, Lyf og heílsu og opMom londsins.