Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2000, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000
I>V
Fréttir
Norðmenn hafa náð tökum á klaki og eldi þorsks:
Risavaxið þorsk-
eldisævintýri
- íslendingar ættu að hefjast handa, segir verkefnisstjóri
Eldisþorskur
J0rgen Borthen meö freöinn eldisþorsk.
Áætlaö er aö 40 þúsund tonnum af þorski veröi
slátraö innan 10 ára.
DV. BERGEN:_____________________
Norðmenn hafa náð slíkum tök-
um á klaki þorsks og eldi að þeir
stefna að því að ársframleiðslan
verði 40 þúsund tonn innan tíu ára.
Það er Hafrannsóknastofnun í
Bergen sem þróað hefur aðferð til
að þorskurinn nái að fjölga sér. Sér-
stakar stöðvar í grennd við Bergen
ala svo seiðin upp þar til þau eru
um 10 senímetrar að stærð. Þá eru
þau seld til fiskeldistöðva sem ala
fiskinn upp í sláturstærð. Nú eru
sex stöðvar i þorskeldinu en búist
við að þær verði níu á næstu ári.
Búið er að gefa út 100 leyfi fyrir
slikt eldi. Jorgen Borthen er verk-
efnisstjóri þessa átaks í að koma
þorskeldinu á laggirnar. Norsk
sjomatssenter fjármagnar átakið
sem heitir Sats pá torsk.
Þorskabændurnir ala fiskinn í
tönkum þar sem fóðrun hans, hita-
stig og lýsing fer eftir hámákvæm-
um reglum til að hámarksafrakstur
náist. Meðal þess sem Norðmenn
hafa glímt við er að fresta kynþrosk-
anum vegna þess hve hægir á vexti
hans þegar náttúran gerir vart við
sig.
„Við náðum þeim árangri að
fresta kynþroskanum um eitt ár
sem gerir allan gæfumun. Við
stjórnum þessu með ljósum og get-
um látið fiskinn hrygna hvenær
sem er. Þar skiptir ekki máli hvort
um er að ræða hávetur eða sumar.
Nú getum við sagt með sanni að
mikið ævintýri sé í uppsiglingu. Við
höfum náð tökum á sjálfu klakinu
og einnig sjálfu eldinu," segir
Jorgen, hæstánægður með árangur-
inn.
í dag eru aðeins um
200 tonn af fullvöxnum
þorski í kvíum en 500
þúsund seiði komust á
legg á þessu ári og þau
eru á leið út til þorska-
bænda sem alla þau upp
í sláturstærð. Reikna má
með að þessi seiði gefi af
sér 1500 tonn af þorski
eftir tvö ár. Á næsta ári
er reiknað með að seiðin
verði ein milljón sem
gefa framleiðslu sem
nemur 3000 tonnum af
þorski. Á árum þar á eft-
ir mun framleiðslan ná
10 milljón seiðum sem
dreift verður i eldis-
stöðvar um allan Noreg.
Verðmæti þess fiskjar
mun verða samkvæmt
núverandi verðlagi um
átta milljarðar íslenskra
króna auk framlegðará-
hrifa vegna þess að fisk-
urinn gefur fólki atvinnu
vítt og breitt um Noreg.
Jorgen segist vera
bjartsýnn á að þessi
áform gangi eftir og
áhugi á þorskeldi sé
nægur; bæði frá væntan-
legum kaupendum og
þeim sem vilja heíja
framleiðslu.
„Þarna eru óendanlegir möguleik-
ar og við finnum feiknarlegan áhuga
eftir að við náðum tökum á þessu
eldi. Við höfum fengið fyrirspurnir
frá Skotlandi og Kanada svo eitthvað
sé nefnt. Þá var haft samband við
mig frá verslunarkeðjunni Marks og
Spencer Bretlandi nýverið og þeir
vildu komast í samband við allar eld-
isstöðvar hér. Vandinn er sá að við
eigum aðeins tvö hundruð tonn af
þorski í sláturstærð. Þetta er mikil
breyting því fyrir rúmum tveimur
árum var sáralítill áhugi á þessu,“
segir hann.
Hann segist ekki vita til þess að is-
lendingar hafi kynnt sér sérstaklega
það sem i gangi er í þorskeldi. Ekki
sé spuming í sínum huga um að þeir
eigi að hefja slíka framleiðslu.
„Þarna er um að ræða úrvalshrá-
efni enda er fiskurinn tekinn ná-
kvæmlega í þeirri stærð sem menn
ákveða og hráefnið er nákvæmlega í
því ástandi sem óskað er eftir og
gæði vörunnar mikil. Það er mikil
breyting frá því þar sem fiskur er
veiddur á hafi úti geymdur við alls
kyns aðstæður. Þetta er því framtíð-
in og nóg pláss fyrir fleiri á mark-
aðnum. Ég er dálítið undrandi á því
að íslendingar skuli ekki vera komn-
ir af stað með þetta eldi og þá ekki
sist í því ljósi að þeir hafa náð frá-
bærum tökum á lúðueldi. Þeir hafa
gjörsamlega stungið okkur aftur fyr-
ir sig þrátt fyrir að aðeins eitt fyrir-
tæki á íslandi stundi þetta eldi en
við höfum þróað þetta árum saman.
Á íslandi er næg orka og kjöraðstæð-
ur fyrir þennan rekstur," segir
Jorgen. -rt
Stjórnarmaður framhaldsskólanema:
Námið að
fara í vaskinn
- byggingarvinna gefur grunnlaun kennara
„Ég veit að fjölmargir nemend-
ur eru alveg brjálaðir núna. Um-
mæli menntamálaráðherra í ut-
andagskrárumræðum á Alþingi
um að önnin okkar sé að eyði-
leggjast verður til þess að brott-
fall nemenda úr skólum verður
enn meira heldur en stefndi í,“
sagði Margrét Rún Einarsdóttir,
stjórnarmaður í Félagi fram-
haldsskólanema, við DV í gær.
Þar vísaöi hún til ummæla
Björns Bjarnasonar menntamála-
ráðherra á þingi í gær, þar sem
hann sagði að tækjust samningar
milli rikis og framhaldsskóla-
kennara í lok vikunnar mætti
bjarga önninni.
Þetta er eitthvað sem nemend-
ur hafa aldrei heyrt,“ sagði Mar-
grét Rún.
„Eins og staöan er í dag er ver-
ið að segja okkur að önnin sé
ónýt verði ekki samið fyrir viku-
lok. Það tala allir um aö sjá til
hversu lengi verkfallið vari og
ákveða framtíðina með hliðsjón
af þvi. Verkfall sem stendur fram
í janúar-febrúar er meira en
margir ráða við. Þeir eiga þann
kost einan að hætta.
Við erum að tala um lokapróf í
mars og önnur í júní, með
kennslu um helgar. Umræður af
því tagi sem voru á Alþingi i gær
eru rosalega slæmar. Allir skóla-
stjórnendur sögðu við nemendur
á fundum áður en verkfallið
hófst, að önnin yrði ekki
eyðilögð. Svo kemur mennta-
málaráðherra núna og segir
þetta. Margir sjá fram á að nám-
ið sé um það bil að fara í
vaskinn."
Margrét Rún sagði að allir fé-
lagar hennar í Borgarholtsskóla
væru farnir að vinna. Sjálf fékk
hún vinnu hjá Landsbankanum
um leiö og verkfall hófst. Hún
kvaðst myndu vinna þar til verk-
fallið leystist. Þá tæki hún aftur
til við nám í margmiðlunarhönn-
un.
DV hitti einnig tvo nemendur
sem komnir voru í byggingar-
vinnu í verkfallinu, þá Árna
Gunnarsson úr Iðnskólanum og
Atla Gunnarsson úr Verslunar-
skólanum. Þeir sögðust hafa farið
að vinna strax eftir að verkfall
hófst.
Aðspurðir um hvort þeir væru
með sæmileg laun sögðust þeir
vera meö sem svaraði grunnlaun-
um framhaldsskólakennara á
mánuði. Þeir sögðu að flestir
skólafélaganna, sem þeir væru í
sambandi við, væru farnir að
vinna. Báðir kváðust þeir ætla að
halda áfram í skóla þegar verk-
fallið leystist, en voru sammála
um að það mætti standa fram að
jólum úr því sem komið væri.
-JSS
I byggingarvinnu í verkfallinu
Árni Gunnarsson úr lönskólanum og Atli Gunnarsson úr Verslunarskólanum
eru í byggingarvinnu meðan á verkfalli framhaldsskólakennara stendur.
WHk.
Líkur á uppsögn launaliðar
Halldór Bjömsson,
varaforseti ASÍ, telur
meiri líkur á því en
minni að launalið
kjarasamninga félaga
í ASÍ verði sagt upp í
byrjun næsta árs.
Hann gagnrýnir sér-
staklega að stjórn-
völd skuli ekki ætla að lækka tekju-
skatt til samræmis við hækkun sveitar-
félaganna á útsvari.
Tvö dótturfyrirtæki ÍE
íslensk erfðagreining hefur stofnað
dótturfélagið íslenskar krabbameins-
rannsóknir og keypt íslenskar lyfia-
rannsóknir ehf. íslenskum krabba-
meinsrannsóknum er ætlað að taka við
krabbameinsrannsóknum af íslenskri
erfðagreiningu og sjá um markaðssetn-
ingu meðferðar- og greiningarúrræða
við krabbameini.
38 prósent hækkun
íbúi á Egilsstöðum gagnrýnir harð-
lega dagfargjaldahækkanir í innan-
landsflugi. Bent er á að fyrir skömmu
hafi ódýrasta fargjaldið Egilsstaðir -
Reykjavík - Egilsstaðir verið 8.800 kr.
Það hafi verið stéttarfélagsgjald sem
núna er búið að leggja niður. Lægstu
flugfargjöldin á þessari leið hafi þvi
hækkað um 38%. Dagur greinir frá.
Uppgröftur
Mannvistai'leifar hafa fundist síð-
ustu daga við uppgröft í Laufási við
Eyjafjörð. Þar hefur verið grafmn tæp-
lega 40 metra langur skurður frá gamla
prestsseturshúsinu og í gamla torfbæ-
inn. Miðaö við öskulög og fleira eru
þessar minjar ekki eldri en frá 15. og
16. öld. Dagur greinir frá.
Andvígur líknardauöa
„Við sjáum ekki
þörf á því, nema sið-
ur sé, að setja svona
löggjöf hér,“ sagði
Sigurður Guðmunds-
son landlæknir um
ákvörðun hollenskra
stjómvalda að leyfa
læknum að binda
enda á líf sjúklinga sem þess óska. -
Vísir greinir frá.
Verðlaun fyrir bílavörur
Hraðamælabreytir, sem framleiddur
er af Samrás á Seltjamamesi, vann ný-
lega til verðlauna á sýningu fyrir vörur
tengdar bílum í Las Vegas í Bandaríkj-
unum. Af 650 nýjum vörum var hraða-
mælabreytirinn TruSpeed í öðru sæti i
flokknum besta nýja varan.
Ekki útboð á sorphiröu
Umhverfis- og heil-
brigðisnefnd borgar-
innar vísaði nýlega
frá tillögu Guðlaugs
Þórs Þórðarsonar og
Ólafs F. Magnússon-
ar, borgarfulltrúa
sjálfstæðismanna,
um að skoðuð verði
að bjóða út sorphirðu
Sprenging í kókaínneyslu
Kókaínneysla er að aukast verulega
á íslandi samkvæmt upplýsingum frá
SÁÁ. Tölur samtakanna benda til þess
að kókaínneysla hafi allt í einu tekið
stökk árið 1997 og hafi síðan margfald-
ast. Og enn er aukning milli ára því
samkvæmt upplýsingum SÁÁ nú í nóv-
ember voru neytendur sem til meðferð-
ar komu orðnir 150 frá áramótum. -
Dagur greinir frá.
hagkvæmni þess
í borginni.
Kvótaþing tímaskekkja
„Ég hef óneitanlega mestan áhuga á
að beita mér í byggðamálum en mér
frnnst byggðastefnan engan veginn
hafa gengið eftir,“ segir Sigríður Ingv-
arsdóttir sem mun um áramót taka
sæti á þingi í stað Hjálmars Jónssonar
sem ráðinn hefur verið dómkirkju-
prestur. - Dagur greinir frá -HKr.