Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2000, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000
I>V
5
Fréttir
Höröur Kristjánsson
notfang: sandkorn@ff.ls
Hugsað með hjartanu
Á borgarafundi
um málefni Orku-
bús Vestfjarða,
sem haldinn var á
ísafirði fyrir
skömmu, sagði Ei-
ríkur Finnur
Greipsson fyrir-
hugaða sölu á
Orkubúinu til rík-
isins vera pólitískan subbuskap.
Stjórnarformaður Orkubúsins, Þor-
steinn Jóhannesson, yfirlæknir á
ísafirði, sagði að vegna misvísandi
upplýsinga um víkjandi lán sem
ríkið ætlaði ekki að greiða þá hefði
hann sagt við sjálfan sig: „hingað
og ekki lengra. Nú nota ég þetta líf-
færi sem ég hef, heilann, en sný
burt frá hjartanu." Gárungar
vestra spyrja nú hvort þetta sé
ekki fullseint athugað. Hætt sé við
að heilinn sé orðinn slappur af
notkunarleysi ef læknirinn hefur
alltaf hugsað með hjartanu...
Fólk í einkennisbúningum
Umhverfis-
verndarsinnar eru
ekki par ánægðir
með Siv Frið-
leifsdóttur um-
hverfisráðherra
þessa dagana.
Hafa þeir mót-
mælt kröftuglega
fullyrðingum ráð-
herra um að þeirra félagar hafi
verið ánægðir með tillögur Islands
á umhverfisráðstefnunni í Haag
sem fór út um þúfur í síðustu viku.
Segja þeir umhverfisverndarsinna
alls ekkert hafa talað við ráðherr-
ann á ráðstefnunni. Siv sagðist þó
á Alþingi hafa talað þar við fólk í
einkennisbúningum. Fullyrt er að
bilstjórar, gangaverðir og borða-
lagðir töskuberar, sem staddir voru
þar sem umhverfisráðstefnan var
haldin, hyggist óska eftir opinberri
rannsókn. Þyki þeim illt að sitja
undir grun um að vera umhverfis-
verndarsinnar og enn verra að
vera grunaðir um að hafa rætt við
umhverfisráðherra íslands...
Drepið með senditækjum
Sagt er
að áhuga-
fólk um
rjúpur í
jólamat-
inn í
Eyjafirði
hafi verið
orðið úrkula vonar um að fá að
smjatta á þessum lynghænsnum
þessi jólin. Bann á rjúpnaveiði við
allan austanverðan Eyjafiörð hafi
skapað örvæntingu í þessum hópi
en nú hafi kviknað ljós í myrkrinu.
Náttúrufræðistofnun hafi nú sýnt
mönnum hvernig komast megi í
kringum rjúpnaveiðibannið. Eng-
inn verði heldur sakaður um að
skjóta fuglana. Rjúpan einfaldlega
steindrepst ef sett eru á hana
senditæki sem stofnunin notar til
að fylgjast með af hverju hún
drepst. Segja gárungar að mikið
hafi verið hringt á stofnunina að
undanförnu og óskað eftir kaupum
á senditækjum...
Skamm
Hjá Sólveigu
Pétursdóttur
dómsmálaráð-
herra furða menn
sig á því þessa
dagana hvers
vegna afbrotum á
íslandi fiölgar
stöðugt í flestum
málaflokkum.
Furða menn sig ekki síst á þessu
vegna þeirrar staðreyndar að sjátf-
ur Haraldur Johannessen ríkis-
lögreglustjóri sendi bréf til lög-
reglustjóra landsins þann 9. ágúst
1998 með tilmælum um að fækka
afbrotum um 20%. Sérfræðingar
um lögreglumál telja því víst að
ríkislögreglustjóri verði enn að
senda bréf og nú verði afbrota-
menn grátbeðnir um að halda sig á
mottunni svo ekki þurfi að fiölga
lögreglumönnum...
Samruni orkufyrirtækja á Suðurnesjum:
Deilt um verðmæti
fyrirtækjanna
- ráðgert að stofna Hitaveitu Suðurnesja hf. 1. janúar
Hitaveita Suðurnesja
Meö samruna viö Rafveitu Hafnarfjaröar mun fyrirtækið hafa yfir gríöarstóru háhitasvæði aö ráöa.
í síðustu viku
samþykkti bæjar-
stjórn Reykjanes-
bæjar samruna-
áætlun Hitaveitu
Suðurnesja og Raf-
veitu Hafnarfiarð-
ar. Jafnframt var
samþykkt að gera
fyrirtækið að
hlutafélagi. Til að
af þessu geti orðið
þurfa þó öll sveit-
arfélögin 5 á Suð-
urnesjum, sem
eiga hlut í hitaveit-
unni, að sam-
þykkja áætlunina.
„Við teljum að
sjóðstreymismat,
sem gert var á
hitaveitunni fyrir
tveim árum, hafi
verið ákaflega var-
færnislegt. Þau
fyrirtæki, sem
hitaveitan á í, eru
þar metin á bók-
færðu verði en
ekki á hugsanlegu
gangverði. Ári
seinna, eða 1999, er
gert sjóðstreymis-
mat á Rafveitu
Hafnarfiarðar þar
sem gefnar eru
mismunandi for-
sendur. Þar er fyr-
irtækið metið á 1
til 1,8 milljarða eft-
ir því hvaða forsendur eru notaðar,"
segir Kristmundur Ásmundsson, yfir-
læknir og bæjarfulltrúi J-lista í
minnihluta bæjarstjórnar Reykjanes-
bæjar. „Við teljum því eðlilegt að gert
verði nýtt mat af óháðum aðila á
sömu forsendum fyrir bæði fyrirtæk-
in.“ Þá telur minnihluti bæjarstjórnar
einnig ótímabært að breyta hitaveit-
unni í hlutafélag. Það hvetji til skatt-
lagningar á geiranum sem kosti hita-
veituna 150 milljónir á ári.
Hugmynd um sameiginlega orku-
veitu á Reykjanesskaga kom upp fyrir
tveim árum á fundi sveitarstjórnar-
manna í Svartsengi. í framhaldinu
náðist samkomulag á milli stjórnenda
Hitaveitu Suðurnesja og eigenda Raf-
veitu Hafnarfiarðar um að fara i sam-
runa. Áætlun var síðan lögð fyrir
sveitarfélögin og rikissjóð. Gerir áætl-
unin ráð fyrir að Hitaveita Suður-
nesja hf. verði stofnuð þann 1. janúar
2001.
Rafveitan metin á 1-2
milljarða
Hitaveita Suðurnesja er nú metin á
rúma 8 milljarða króna og Rafveita
Hafnarfiarðar á 1 til 1,8 milljarða eftir
mismunandi forsendum. Eigendur
hitaveitunnar eru öll 5 sveitarfélögin
á Suðurnesjum og ríkissjóður sem á
20 prósent. Reykjanesbær er stærstur
eigenda með 52 prósenta eignarhlut.
Eftir sameiningu yrði Reykjanesbær
með 43,2% eignarhlut, önnur sveitar-
félög á Suðurnesjum með 23,6%, ríkis-
sjóður með 16,6% og Hafnarfiarðar-
bær yrði líka með 16,6% hlut.
Fulltrúar Vatnsleysustrandar-
hrepps, m.a. Jón Gunnarsson fulltrúi
hreppsins í stjóm hitaveitunnar, hafa
verið með athugasemdir varðandi
verðmat á fyrirtækjunum, líkt og
minnihluti bæjarstjórnar Reykjanes-
bæjar. Jóhanna Reynisdóttir sveitar-
stjóri segir að ekki sé búið að taka
málið fyrir í sveitarstjórn. „Menn eru
að velta þessu fyrir sér, enda málið
stórt fyrir okkur eins og aðra. Við höf-
um frest til 8. desember til að taka af-
stöðu.“
Risavaxið háhitasvæði
Ellert Eiriksson, bæjarstjóri i
Reykjanesbæ, segir að meirihluti
bæjarstjórnar telji að lögð hafi ver-
ið fram fullgild rök um verðgildi
Hitaveitu Suðurnesja og Rafveitu
Hafnarfiarðar. Hann segir verðmæt-
ið alltaf afstætt. „Með samruna yrði
þetta mun öflugra orkufyrirtæki og
með því að Rafveita Hafnarfiarðar
komi þarna inn lika má segja að
sóknarlínan sé komin að Garðabæ.
Með þessu ættum við í sameiningu
risavaxið háhitasvæði á Reykja-
nesskaga. Meirihlutinn í Reykjanes-
bæ er sáttur við þá vinnu sem fram
hefur farið um þetta mál. Við vær-
um auðvitað tilbúnir að fá meiri
peninga fyrir hitaveituna en við
teljum þó að þetta sé eðlileg niður-
staða.“ -HKr.
Bless bursti
Nú á ég skilið að fá
uppþvottavél
HÁ QOO
Favorit
60850 U-W
Vinnur verk sín í hljóði
Þetta er sú heitasta á markaðnum, turbo þurrkun með heitum
blæstri og svo hljóðlát að þú hefur ekki hugmynd um að hún
er gangi. Tekur 12 manna stell, býr yfir 6 þvottakerfum, er
með 6 falt vatnsöryggi og svona mætti lengi telja - þetta er
alvöruvél. Við vonumst til að geta óskað þér til hamingju með
áfangann en bendum þér samt á að kveðja gamla
uppþvottaburstann og -vettlingana með hæfilegri virðingu.
B R Æ Ð U R N I R
Favorit 4231 U-W verð 49.900 stgr
Lágmúla 8 • Slmi 530 2800
www.ormsson.is
Kristmundur
Ásmundsson,
yfirlæknir í
Keflavík.
r J i . } ]
< \
Jóhanna
Reynisdóttir,
sveitarstjóri
Vatnsleysu-
strandarhrepps.
Ellert Eiríksson,
bæjarstjóri í
Reykjanesbæ.