Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2000, Síða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000
DV
Fréttir
Útboð Austur-Héraðs á Eiðum:
Félagsmálaráðuneytið
tekur ekki afstöðu
- Örn Kjærnested íhugar sterklega að fara í mál við bæjarfélagið
Eiöar
Miklar deilur hafa staðiö yfir um útboð Austur-Héraös á Eiðum og hvernig bæjarstjórnin hefur staðiö að því. Félags-
málaráðuneytið sendi frá sér iögfræðilegt álit á mánudag þar sem ekkert er fundið að vinnslu máisins.
Æðsta yfirvald sveitarstjórna,
félagsmálaráðuneytið, gerði engar
lögfræðilegar athugasemdir við
það hvernig Austur-Hérað stóð að
útboði og sölu eigna Eiðaskóla.
„Ég tel að
þótt niður-
staða sé kom-
in frá félags-
málaráðu-
neytinu þá sé
þetta enginn
dómur í mál-
inu. Þetta eru
bara hugleið-
ingar ráðu-
neytisins til
sveitarstjórn-
arinnar en
ekki bindandi niðurstaða fyrir
einn eða neinn,“ sagði Örn
Kjæmested, byggingaverktaki og
eigandi Bakka ehf., en Austur-Hér-
að hafnaði kauptilboði Bakka sem
hafði áður verið samþykkt með
fyrirvara. „Einn bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins hefur lýst því
yfir að hann hafi verið blekktur í
upplýsingum um þetta mál og ég
held að rétt sé að láta reyna á það
hvort merm hafa verið blekktir í
þessu máli eða ekki. Við munum
skoða það mjög alvarlega að fara í
málaferli við bæjarfélagið." Örn
bætti þvi við að sú ákvörðun yrði
tekin á næstu dögum.
„Félagsmálaráðuneytið tekur
ekki afstöðu til þess hvort lög um
framkvæmd útboða gilda um mál-
ið og þar stendur hnífurinn í
kúnni,“ sagði Björn Hafþór Guð-
mundsson, bæjarstjóri Austur-
Héraðs. „Við gerum okkur grein
fyrir fullri alvöru þessa máls og
menn hér munu setjast yfir þetta
álit og lesa það yflr.“
Forsagan
Eignir Eiðaskóla voru auglýstar
til sölu í sumar og er fresturinn til
þess að skila inn tilboðum rann út
í september höfðu tvö tilboð borist
í eignimar i heild sinni. Ákveðið
var að ganga til samninga við
Bakka ehf. og var skrifað undir
kaupsamning með fyrirvara um
samþykki bæjarstjórnar og sölu
ríkisins á umræddum eignunum.
Þegar staðfesta átti kaupsamn-
inginn á fundi bæjarstjómar hafði
borist nýtt tilboð í eignirnar frá
Sigurjóni Sighvatssyni og Sigurði
Gísla Pálmasyni, einum og hálfum
mánuöi eftir lokun útboðsins. Bæj-
arstjórnin hafnaði þá öllum tilboð-
um sem fram komu, nema einu
sem var í húsið Garð, og ákvað að
falla frá fyrrnefndum kaupsamn-
ingi við Bakka. Ástæðan var nýja
tilboðið og að ekki var samstaða
innan meirihlutans um að stað-
festa samninginn við Bakka.
„Ég lít á þetta miklu frekar sem
pólitískt mál innan bæjarstjómar-
innar heldur en nokkum tímann
hvort ég fæ þetta viðkomandi
dæmi eða einhver annar,“ sagði
Örn. „Þetta snerist um það hvort
meirihlutinn myndi springa eða
ekki. Þarna lenti maður inni í
hringiðu í pólitík og má sín
einskis í því máli.“
Álit félagsmálaráðuneytisins
Bæjarstjóri Austur-Héraðs,
Björn Hafþór Guðmundsson,
óskaði eftir því að félagsmálaráðu-
neytið veitti álit sitt á því hvort
bæjarstjómin hefði staðið rangt að
útboðinu með því að leyfa bæjar-
fulltrúa sem boðið hafði í Eiða, en
dregið tilboð sitt til baka, að taka
þátt í afgreiðslu málsins. Álit fé-
lagsmálaráðuneytisins var að þar
sem bæjarfulltrúinn hefði dregið
tilboð sitt til baka hefði hann
engra hagsmuna aö gæta í þessu
máli.
Félagsmálaráðuneytið var
einnig beðið um að veita álit sitt á
þvi hvort bæjarstjórn hafi verið
heimilt að hafna öllum tilboðum
sem borist höfðu í eignina þrátt
fyrir að útboðsfresturinn væri út-
runninn og búið væri að skrifa
undir, en ekki staðfesta, kaup-
samning við Bakka. Félagsmála-
ráðuneytið taldi bæjarstjórnina
hafa haft fulla heimild til þess þar
sem á grundvelli sveitarstjórnar-
laga var ekki kominn á bindandi
kaupsamingur milli Austur-Hér-
aðs og Bakka ehf.
Félagsmálaráðuneytið vildi hins
vegar ekki taka afstöðu til þess
hvort lög um framkvæmd útboð
gilda um málið og sagði dómstóla
þurfa að kveða upp úr með það. Að
sögn Björns Hafþórs bæjarstjóra
var það mat lögfræðings Austur-
Héraðs að þau lög giltu ekki í
þessu tilviki en lögfræðingur Arn-
ar Kjærnested hefur hins vegar
haldið því fram að þau geri það.
Kærufrestur stjórnsýslulaga er
ekki liðinn. Að sögn Guðjóns
Bragasonar hjá félagsmálaráðu-
neytinu er álitið ekki úrskurður
svo það er ekki bindandi fyrir
ráðuneytið ef einhver bjóðenda
ákveður að senda inn stjómsýslu-
kæru eða ný gögn i málinu.
-SMK
Morðið á Einari Erni:
DNA-rannsókna
og krufningar-
skýrslu beðið
Rannsóknarlögreglan í Kópa-
vogi vinnur enn hörðum höndum
að rannsókn dauða Einars Amar
Birgissonar, 27 ára gamals Kópa-
vogsbúa sem lést af mannavöldum
fyrr í mánuðinum. Hinn grunaði,
Atli Helgason, situr í gæsluvarð-
haldi sem rennur út 15. desember.
Atli og Einar Örn áttu saman
nýopnaða verslun, Gaps Collection
á íslandi. Atli hefur játað að hafa
orðið Einari Erni að bana með
hamri í Öskjuhlíðinni um hádegis-
bil miðvikudaginn 8. nóvember og
hafa svo falið líkið í hraungjótu
nálægt Grindavíkurvegi. Atli var
einn af þeim fjölmörgu sem tóku
þátt í leitinni að Einari Emi, en
líkið fannst eftir ábendingu Atla
viku eftir hvarf Einars.
Kafarar fundu bíllykla Einars
Arnar á Snarfarasvæðinu við
Elliðaár en hið ætlaða morðvopn,
hamar sem Atli sagðist hafa hent í
Hafnaríjaröarhöfn, hefur ekki
fundist.
Lögreglan bíður enn krufningar-
skýrslu og DNA-rannsókna frá
Noregi á blóðblettum sem fundust
í bílum Einars Amar og Atla.
Ákæra hefur ekki verið gefin út
í málinu þar sem rannsókn þess er
ekki lokið, en játning Atla liggur
fyrir.
-SMK
Reykjavík:
Ráðist á
lögreglumenn
Ráðist var á nokkra lögreglu-
menn að störfum I Reykjavík um
helgina. Aðfaranótt laugardags
réðst unglingsstúlka að lögreglu-
manni og meiddi hann lítils hátt-
ar. Lögreglumaðurinn var, ásamt
starfsfélögum sínum, að reka
ólögráða unglinga út úr sam-
kvæmi í heimahúsi. Sömu nótt
höfðu lögreglumenn afskipti af
manni sem lá á Geirsgötunni.
Hann brást ókvæða við og réðst á
lögreglumennina með þeim afleið-
ingum að einn lögreglumannanna
meiddist á hendi. Maðurinn var
fluttur í fangageymslur lögregl-
unnar.
Eins voru höfð afskipti af
tveimur ölvuðum mönnum sem
veist höfðu að öryggisverði í veit-
ingahúsi í Kringlunni. Annar
þeirra var fluttur í fangageymslur
lögreglunnar.
-SMK
Þurrt suðvestan til
Víða norðaustanátt, 10 til 15 m/s, og rigning
eða slydda, en þurrt að mestu suðvestan til.
Sólarlag í kvöld 15.51 15.15
Sólarupprás á morgun 10.43 10.49
Síðdegisflóó 20.30 01.03
Árdegisflóö á morgun 08.49 13.22
SKýifcgar á veðu?táicr.um
—VINDÁTT 15) “N.VINDSTTRKUR í metrum á sekúndu 10% hiti ■10" \FR0ST & HÐÐSKÍRT
IÉTTSKÝJAÐ HÁIF- SKÝJAÐ SKÝJAO O AtSKÝJAÐ
w RIGNING SKURIR SLYÐDA §1í SNJÓKOMA
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR "Í* SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Talsverö hálka víða um land
Á Vestflörðum er ófært um
Hrafnseyrarheiöi en þungfært um
Dynjandisheiði. Annars eru flestir
þjóðvegir landsins færir en víða er
talsverö hálka.
BYGCT A tlPPLYSINGUM FRA VEGAGERD RIKISINS
CZlSNJÓR
mm ÞUN0FÆRT
„ÓFÆRT
Hlýnar í veðri
Norðaustan 13 til 18 m/s og rigning á Vestfjörðum á morgun en mun
hægari austlæg átt annars staöar og víða skúrir. Heldur hlýnar og hiti
yfirleitt 2 til 7 stig á morgun.
ÍÖSÍHd
Vindur: O
8-13 m/s
Hiti 2° «1 7°
____ikigur
Vindur:
8-13 rrv/»
Hiti 2” «1 7°
Noröaustan 8-13 m/s og
rlgnlng eða slydda með
köflum norðan- og
austanlands en hægarl
suðvestan tll og lengst af
þurrt. Hlti 2 til 7 stlg.
Noröaustan 8-13 m/s og
rlgnlng eða slydda með
kóflum norðan- og
austanlands en hægarl
subvestan tll og lengst af
þurrt. Hltl 21II 7 stlg.
MWHWM
Vindur:'^^
3-8 m/8
Hiti 2* tii T W#
Fremur hæg austlæg eöa
breytileg átt og skúrlr I
flestum landshlutum.
Áfram fremur mllt.
AKUREYRI léttskýjað -3
BERGSSTAÐIR hálfskýjað -5
BOLUNGARVÍK skýjaö 3
EGILSSTAÐIR 1
KIRKJUBÆJARKL. hálfskýjað 4
KEFLAVÍK hálfskýjaö 4
RAUFARHÖFN skýjað 1
REYKJAVÍK hálfskýjað 1
STÓRHÖFÐI rigning 5
BERGEN rigning 8
HELSINKI skýjaö 4
KAUPMANNAHÖFN skýjað 8
ÓSLÓ rigning 4
STOKKHÓLMUR súld 6
ÞÓRSHÖFN alskýjað 8
ÞRÁNDHEIMUR heiöskírt -4
ALGARVE léttskýjaö 15
AMSTERDAM skýjaö 10
BARCELONA þokumóöa 12
BERLÍN alskýjaö 10
CHICAGO rigning 0
DUBLIN rigning 11
HAUFAX súld 3
FRANKFURT þoka 5
HAMBORG hálfskýjaö 11
JAN MAYEN skýjaö 2
LONDON skýjaö 12
LÚXEMBORG léttskýjað 8
MALL0RCA skýjaö 10
MONTREAL 2
NARSSARSSUAQ heiöskírt -12
NEW YORK heiðskírt 6
ORLANDO skýjaö 13
PARÍS skýjaö 9
VÍN skýjaö 5
WASHINGTON léttskýjaö -2
WINNIPEG þoka -5