Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2000, Blaðsíða 6
6
Viðskipti
Umsjón: Vidskiptablaðið
Kjötframleiösla eykst
töluvert meira en sala
- neysla á hrossakjöti eykst langmest
Kjötframleiðsla á íslandi eykst
töluvert meira en neysla, sé litið
yfir tölur síðustu 12 mánaða mið-
að við 12 mánuði þar á undan.
Kjötframleiðsla í heild jókst um
13,2% en salan um aðeins 4,3%.
Neysla hrossakjöts eykst lang-
mest sé tekin hlutfailsleg aukning
í neyslu eftirfarandi kjötfram-
leiðslu: alifuglakjöts, hrossakjöts,
nautgripakjöts og svínakjöts. Töl-
ur fyrir breytingar í neyslu kinda-
kjöts voru ekki samanburðarhæf-
ar. Aukning neyslu á hrossakjöti
nemur 20,6%, og er það langmesta
aukningin, en neysla svínakjöts,
Neysla hrossakjöts eykst langmest.
sem kom næst á
eftir, jókst um
5,3%. Fram-
leiðsla á hrossa-
kjöti jókst hins
vegar mun
minna en neysl-
an, eða um 3,1%.
Útflutningur á
hrossakjöti
dróst saman um
23,6% og útflutn-
ingur á eggjum
dróst saman um
6,1%.
Sala á nauta-
kjöti jókst meira en framleiöslan,
því salan jókst um 0,4% en fram-
leiðslan dróst saman um 0,5%.
Nautgriparæktin var eina greinin
þar sem framleiðsla dróst saman á
milli þessara timabila.
Sala á svínakjöti jókst meira en
framleiðslan. Salan jókst um 5,3%
en framleiðslan um 4,6%. Sala á
alifuglakjöti jókst um 2,3% en
framleiðslan meira, eða 3,6%.
Framleiðsla á mjólk dróst sam-
an um 4,1% og eggjaframleiðsla
um 12,1% en sala á eggjum dróst
saman um tæp 10%.
Sparisjóður vél-
stjóra selur rúm
10% í Kaupþingi
Sparisjóður vélstjóra hefur selt
nærri öll hlutabréf sín í Kaupþingi
en sparisjóðurinn átti 10,64% hlut í
fyrirtækinu. Eftir söluna er eignar-
hlutur Sparisjóðs vélstjóra 0,24%
Vegna hluthafasamkomulags spari
sjóðanna verður ekki ljóst fyrr en 8.
desember hverjir nýir eigendur
verða.
Miðað við síðasta viðskiptagengi
á hlutabréfum Kaupþings má gera
ráð fyrir að 10,4% eignarhlutur
Sparisjóðs vélstjóra hafi verið seld-
ur fyrir minnst 1.550 milljónir
króna.
Nasco gjaldþrota:
Mikill taprekstur
Stjórn Nasco ehf. hefur ákveðið að
óska eftir gjaldþrotaskiptum á búi fé-
lagsins, eins og DV greindi frá í gær.
Ástæður þessa eru þær helstar að
mikið tap hefur verið á rekstri félags-
ins undanfarin misseri, sem skýrist
aðallega af sílækkandi afurðaverði og
hækkun á útgerðarkostnaði.
Stjórn Nasco segir að nú sé svo
komið að félagið geti ekki staöið í
skilum við skuldheimtumenn sína.
Fram kemur í tilkynningu frá fé-
laginu að í upphafl árs var rækjuverð
mjög lágt og talið að það hefði náð
lágmarki. Á árinu hefur afurðaverðið
lækkað enn frekar, auk þess sem
stærðarsamsetning aílans hefur verið
óhagstæð. Útgerðarkostnaður hefur
hækkað verulega á árinu og vegur
tvöföldun olíuverðs þar þyngst. Meg-
instarfsemi félagsins á íslandi hefur
verið rekstur rækjuvinnslu í Bolung-
arvík. Undirritaðir hafa verið samn-
ingar um sölu rækjuvinnslunnar til
nýrra eigenda og standa vonir til þess
að rekstur hennar geti haldi áfram.
Hin sígilda Jólagjafahandbók DV kemur út
laugardaginn 2. desember og fylgir
Helgarblaði DV.
Rækjuverö hefur lækkaö mjög á
árinu.
Skagstrendingur hf. og Burðarás
hf. eru í hópi stærstu hluthafa Nasco
og í tilkynningu til Verðbréfaþings í
gær kemur fram að bókfært verð
eignarhluta Skagstrendings hf. í
Nasco ehf. var 236 milljónir króna. í
árshlutauppgjöri félagsins fyrir
fyrstu sex mánuði ársins voru 100
milljónir króna gjaldfærðar vegna
eignarhlutans.
Þá kemur fram í tilkynningu frá
Burðarási að félagið fjárfesti fyrr á
þessu ári í hlutabréfum Nasco fyrir
að andvirði 157,6 milljónir, sem er
24,4% eignarhlutur.
Þar er að finna fjölda hugmynda að jólagjöfum fyrir fólk á öllum aldri.
Einnig er í Jólagjafahandbókinni skemmtileg umfjöllun
um jólin ogjólaundirbúninginn.
Aðalsteinn Jóns-
son lætur af störf-
um sem forstjóri
Aðalsteinn
Jónsson, for-
stjóri Hraðfrysti-
húss Eskifjarðar,
hefur ákveðið að
láta af störfum
þann 31. desem-
ber nk. Aðal-
steinn hóf störf
sem forstjóri
árið 1960 og hef-
ur gegnt því
samfellt aÚar
götur síðan.
Undir hans stjórn hefur Hrað-
frystihús Eskifjarðar verið eitt af
leiðandi sjávarútvegsfyrirtækjum
landsins og er skráð á Verðbréfa-
þingi íslands. Fyrirtækið á og gerir
út sex fiskiskip, rekur mjöl- og lýs-
isvinnslu, rækjuvinnslu og frysti-
hús. Á síðastliðnu ári störfuðu um
250 manns hjá fyrirtækinu. Þetta
kemur fram í fréttatilkynningu frá
Hraðfrystihúsi Eskifjarðar.
Stjórn Hraðfrystihúss Eskifjarð-
ar hefur ráðið EÍfar Aðalsteinsson í
starf forstjóra frá 1. janúar 2001.
Elfar er núverandi framkvæmda-
stjóri Fiskimiða ehf. og á sæti í
stjóm Hraöfrystihúss Eskifjarðar. I
kjölfar ráðningarinnar mun Elfar
láta af störfum sem framkvæmda-
stjóri Fiskimiða þann 31. desember.
Aöalsteinn
Jónsson.
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000
DV
Þetta helst
HEILDARVIÐSKIPTI
- Hlutabréf
- Húsbréf
MEST VIÐSKIPTI
Skeljungur
Kaupþing
Marel
MESTA HÆKKUN
; Q Kaupþing
: Q Skeljungur
: Q Húsasmiöjan
MESTA LÆKKUN
Q Síldarvinnslan
| Q Landsbankinn
i Q Pharmaco
ÚRVALSVÍSITALAN
- Breyting
982 m.kr.
579 m.kr.
342 m.kr.
306 m.kr.
47 m.kr.
46 m.kr.
5,2%
3,5%
1,1%
10,1%
5,4%
3,1%
1313 stig
O 1,41%
Olíuverð
hægir á
vexti í
Þýskalandi
Hagvöxtur í
Þýskalandi á
þriðja ársfiórð-
ungi var í sam-
ræmi við vænt-
ingar manna
sem sögðu að hann myndi dragast
saman vegna hækkandi olíuverðs.
Vöxturinn var 0,6% á ársfjórö-
ungnum og 2,8% vöxtur yfir árið.
„Vöxturinn á fjórða ársfjórðungi
mun sennilega vera í samræmi við
vöxtinn á þeim þriðja en horfur
fyrir næsta ár eru mun betri.“
Þetta sagði sérfræðingur hjá ABN
Amro.
Daimler-
Chrysler í
málaferlum
Daimler-
Chrysler, þýsk-
bandaríski bíla-
framleiðandinn, á
nú yfir höfði sér
skaðabótakröfu
upp á 8 milljarða
dollara frá einum af stærstu hlut-
höfum fyrirtækisins fyrir meint
svik og brot á lögum varðandi ör-
yggi eftir samruna fyrirtækjanna
1998.
Tracida Corporation hefur höfö-
að mál og segir að stjómendiu- í
Daimler-Benz hafl vitandi blekkt
stjómina og hluthafa með því að
segja samrunann vera samruna
tveggja jafnstórra fyrirtækja.
T?7^T7oim
!S o 1 10507,58 O 0,38%
Í~í~1nikkei 14485,32 O 1.74%
ÍPs&p 1336,09 O 0,13%
P NASDAQ 2734,98 O 1.46%
BEftse 6249,80 O 1.25%
gDAX 6625,56 O 0,71%
I~ CAC 40 6069,22 O 1.02%
__________294X2000 M. 9.15
KAUP SALA
jjtej Dollar 87,310 87,760
Síí? Pund 124,270 124,910
K*t.lKan. dollar 56,720 57,070
' Dönsk kr. 10,0760 10,1320
H^Norsk kr 9,3640 9,4150
BK' Sœnsk kr. 8,6320 8,6800
HHn.ma,k 12,6366 12,7125
Fra. frankl 11,4541 11,5229
m Belg. franki 1,8625 1,8737
in Sviss. franki 49,7900 50,0600
CfHoll. gyllini 34,0942 34,2991
—j Þýskt mark 38,4153 38,6461
H felLUra 0,03880 0,03904
EE ; Aust. sch. 5,4602 5,4930
V ; Port. cscudo 0,3748 0,3770
C^Spá. P®s®tí 0,4516 0,4543
1 • |Jap. yen 0,79280 0,79750
Ijírskt pund 95,400 95,973
SDR 111,8500 112,5200
Hecu 75,1338 75,5853