Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2000, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000
DV
Fréttir
7
Vaxandi hræðsla við Creutzfeldt-Jakob-sjúkdóminn:
Ekki ástæða til
að óttast
- nýtt afbrigði sjúkdómsins óþekkt hérlendis
Afbrigöi af Creutzfeldt-Jakob-sjúk-
dónmum hefur verið þekkt hér á
landi í um 40 ár, að sögn Guðmundar
Georgssonar, forstöðumanns Til-
raunastöðvarinnar á Keldum. Á
þessu 40 ára tímabili hafa fjórir ís-
lendingar látist, síðast 1995 og 1997.
Hér er þó ekki um sama afbrigði
sjúkdómsins að ræða og mest er nú í
umræðunni í Evrópu og rakið hefur
verið til kúariðu.
Creutzfeldt-Jakob-sjúkdómurinn
hefur verið þekktur í um 80 ár, fyrst
hjá Þjóðverjum. Er sjúkdómurinn
nefndur eftir þýsku geðlæknunum
Hans G. Creutzfeldt, sem lést 1964, og
Alfons M. Jakob, sem lést 1931. „Fyr-
ir fjórum árum, eða 1996, kom fram
nýtt afbrigði sjúkdómsins sem er frá-
brugðið því sem þekkt hefur verið
hér á landi. Þá settu menn fram til-
gátur um að það kynni að tengjast
neyslu riðusýkts nautakjöts af grip-
um sem haldnir voru svokallaðri
kúariðu. Hún er aftur rakin til fóðr-
unar á kjötmjöli úr sauðfé sem bann-
að var að gefa hérlendis 1978. Fyrstu
tilfellum kúariðu í Bretlandi var hins
vegar lýst um 1985,“ segir Guðmund-
ur Georgsson sem nú tekur þátt í
.Evrópusam-
vinnuverkefni
um þetta mál.
„Menn hafa
talsvert verið að
rugla þessum af-
brigðum saman
sem einu og sama
fyrirbærinu. Af
þessu nýja af-
brigði hefur
langstærstur
hluti tilfellanna
fundist í Bretlandi en ekkert hér á
landi. Lengri tími líður frá því fólk
sýnir einkenni af þessu nýja afbrigði
þar til það deyr en af því hefðbundna
afbrigði sem hér J)ekkist. Endanleg
greining á sjúkdómnum fæst þó ekki
fyrr en við krufningu en engin lækn-
ing er til við honum.“
Ekki af völdum kindakjöts
Árið 1980 voru menn hérlendis
farnir að setja sjúkdóminn í samband
við riðu i sauðfé. Miðað við tíðni riðu
í sauðfé hérlendis á árum áður hefði
sjúkdómurinn þó átt að vera mun al-
gengari. Ekki virðast þvi vera tengsl
á milli riðuveiki hérlendis og neyslu
kindakjöts. „Við teljum okkur geta
kveðið nokkuð fast að orði með það
að sjúkdómurinn hérlendis stafi ekki
af neyslu lambakjöts," segir Guð-
mundur.
Hæggengar veirur Creutzfeldt-Jak-
ob-sjúkdómsins hreiðra um sig i
taugavefjum og valda þar margvísleg-
um skaða. Veirurnar setjast ekki síst
að í heilanum og valda yflrleitt vit-
glöpum eða sturlun en einkennin
geta þó verið margvísleg. Þó mest af
smitefninu finnist venjulega í heila
og mænu flnnst það líka í öðrum vefj-
um, helst tengdum meltingarvegi.
„Vandinn er að greina sjúkdóm-
inn því smitefnið er svo sérkenni-
legt. í raun er um að ræða eðlilegt
prótín sem umbreytist i smitefni, en
í því sjálfu er ekki kjarnsýra eins og
einkennir allar aðrar örverur. Þetta
er því mjög sérstætt og af því að
þetta er normalt prótín myndast
ekki ónæmisviðbrögð eins og við
öðrum sýkingum. Hefðbundið af-
brigði sjúkdómsins má greina m.a.
með aðstoð heilalínurits, en segul-
ómun á heila hefur verið beitt til að
greina nýtt afbrigði sjúkdómsins."
-HKr.
Guömundur
Georgsson.
HB fær nýtt skip afhent um mánaðamótin:
Árs seinkun í Chile
DV, AKRANESI:______________________
Haraldur Böðvarsson hf. fær nýtt
skip, Ingunni AK 150, afhent um
næstu mánaðamót. Ingunn, sem hef-
ur verið í smíðum í Chile, átti að af-
hendast um síðustu áramót en
dráttur varð á því. Þegar svo átti að
afhenda skipið í sumar komu í ljós
gallar á hönnun skipsins þar sem
það risti ekki nóg. Varð að sam-
komulagi milli hönnuða skipsins,
skipasmíðastöðvarinnar í Chile og
HB að lengja skipið um rúma 7
metra. Skipið er nú rúmir 72 metr-
Ingunn sjósett
Myndin var tekin þegar Ingunn AK150 var sjósett í
Chile fyrir skömmu. Skipiö er meö um 700 tonn af
sjó í lestum og ekki er annað aö sjá en þaö beri
hlassiö vel.
ar á lengd og 12,6 metr-
ar á breidd.
Siglingin heim til ís-
lands tekur 4-5 vikur
þannig að búast má við
að skipið komi til Akra-
ness fyrstu eða aðra
vikuna á árinu 2001, ári
eftir að það átti að
koma til landsins, en
að vísu allt annað og
meira skip en ráð var
fyrir gert þá.
-DVÓ
(ir
brimborg
Bíldshöfða 6 • Sími 515 7025 Tryggvabraut 5 • Akureyri • Sími 462 2700 www.brimborg.is
2000 cc. vél, 7 manna
Búnaður m.a.
Rafmagn f rúðum
Samlæsingar
Rafdrifnir speglar
Líknarbelgir
Geislaspilari
Komdu og skoðaðu fjölda
annarra notaðra bíla f 1000
fermetra sýningarsal okkar að
Bfldshöfða 6 ogtryggðu þér
einstakan úrvalssbfl.
erum tiér
HOFÐAHOLLIN BILASALA
nrn.Tíii
bnMöllin
Löggild bilasala • Opiö mánudaga-laugardaga 10-19 • Sími 567 4840 • Fax 567 4851
BMW 730ÍA 93 02.cn 151 þús. K;n. ssn
toppiúga. álfelgur. cd. allt rafdr.. ABS.
Verð 1.700 þús. Tilboð 1.300 þus. Bilalan.
Mazda 626 ES 2.5 '93, ek, 148 þús. km, ssk..
toppiúga, álfeigur, cruisecontrol. leður. akt
rafdr. ABS o.fl.
Verð 950 þus. Tilboð 650 þus.
Cherokee Grand LTD 4,0 '96.ek. 130 þus
km, ssk.. alf.. dráttarkr.. leður. rafdr.. ABS o.fl.
Einn eigandi.
Verð 2.450 þús. Tilboð 1.950 þús.
Galloper 2,5 TDi 98/10. ek. 80 bus. km, ssk
áif.. rafdr.. ABS. spoiler. 7 manna.
Verð 2.050 þús. Tilboð 1.850 þús.
Ford Escort CLX st. ‘96. ek. 35 þús. km.
áíf.. vetrardekk.
Verð 750 þús. Tilboð 550 þús.
Dodge Caravan 3,0 ‘93.ek. '34 pus. sm.
ssk.. irtnbyggðir barnastólar. 7 manna.
hardkornadekk, áhv. bilalán.
Verð 950 þus. Tilboð 650 þus.
Cherokee Grand LTD 4.7 '99. ek. 62 þús.
krn, áíf.. toppniga, (eöur o.fl. Stórglæsiiegur
bsii með Qliu.
Verð 4.200 þús.
Ptymouth Grand Voyager 3,3 '96. ek. 85
djs. kr>. 5 d . ssk.. Á*.. rafdr. ABS, þófavðm,
irtað gler. 7 manna.
Verð 1.850 þús. Tilboð 1.550 þús.