Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2000, Síða 8
8
________________________________________________________________________________________________MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000
Útlönd DV
Gaddafi Líbýuleiötogi
Gaddafi segir Bandaríkjamönnum
hvernig foröast eigi borgarastríö.
Gaddafi gefur
góð ráð vegna
kosningaklúðurs
George Bush, forsetaframbjóð-
andi repúblikana, og A1 Gore, fram-
bjóðandi demókrata og varaforseti
Bandaríkjanna, fá nú góð ráð úr
óvæntri átt. Gaddafi Líbýuleiðtogi
lagði til í sjónvarpsviðtali að sá sem
fengi flest atkvæði yrði forseti og sá
sem hlyti næstflest atkvæði yrði
varaforseti. Þannig gætu Bandarík-
in komist hjá borgarastríði.
Sjálfur kvaðst Gaddafi ekki trúa
á þá aöferð að láta þjóðina velja sér
leiðtoga. Hann segir það varla
mögulegt fyrir 49 prósent þjóðarinn-
ar að styðja forseta sem 51 prósent
hefur valið.
Tíu ára dreng
blæddi út eftir
árás jafnaldra
Tíu ára dreng, Damilola Taylor,
blæddi út á tröppum fjölbýlishúss í
London á mánudaginn. Hann hafði
verið stunginn í fótinn. Lögreglan
leitar nú þriggja þeldökkra pilta á
aldrinum 11 til 14 ára sem sáust
hlaupa á brott frá staðnum um
svipað leyti og drengurinn fannst.
Móðir drengsins hafði sagt
skólayflrvöldum að hann væri
lagður í einelti en var sagt að hafa
ekki áhyggjur.
Bíræfinn bílstjóri
Andrew Lawrence Johannisson
rændi 400 milljónum króna.
Ræninginn hand-
tekinn heima hjá
vinkonu sinni
Danska lögreglan fann ekki nema
jafnvirði 100 þúsunda islenskra
króna þegar hún handtók í gær bíl-
stjórann sem rændi um 400 milljón-
um króna er hann átti að flytja í
banka á mánudagsmorgun.
Lögreglan þakkar fjölmiðlum
handtökuna. Snemma í gærmorgun
hringdi maður í lögregluna og
kvaðst telja að bílstjórinn, sem birt-
ar höfðu verið myndir af í fjölmiðl-
um, væri í íbúð á Amager. Bílstjór-
inn, sem hafði starfað í 1 mánuð hjá
öryggisfyrirtæki, beindi byssu að
starfsfélaga sínum er þeir voru að
flytja helgarveltu fjölda stórmark-
aða í banka á mánudaginn.
Barak reiðubúinn að ganga til kosninga í ísrael á næsta ári:
Sharon er til í að
ræða þjóðstjórn
Ariel Sharon, leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar i ísrael, sagðist í
morgun vera reiðubúinn að hefja
nýjar viðræður um þjóðstjórn við
Ehud Barak forsætisráðherra.
Barak tilkynnti í gær að hann væri
reiðubúinn að boða til kosninga á
næsta ári, áður en núverandi kjör-
tímabili lýkur.
Sharon, sem fer fyrir hinu hægri-
sinnaða Likud-bandalagi, sagðist til
í að ræða aftur við Barak, þótt
margar fyrri tilraunir þeirra til að
koma þjóðstjórn á koppinn hafi
runnið út í sandinn á undanfomum
vikum. Þjóðstjórninni verður aðal-
lega ætlað að kljást við uppreisn
Palestínumanna sem hefur kostað
um þrjú hundruð manns lífið á
tveimur mánuðum.
„Þetta er sorgardagur fyrir ísrael
í mínum huga. Þjóðin þarf að
standa sameinuð til aö koma á
friði,“ sagði Sharon i viðtali við út-
varpsstöð ísraelska hersins eftir að
Ariel Sharon
Leiötogi ísraelsku stjórnarandstöö-
unnar er tilbúinn aö ræöa aftur um
þjóöstjórn viö Ehud Barak.
Barak sagði á þingi í gær að kjör-
dagurinn yrði ákveðinn innan fárra
daga. „Ef boð berst frá Barak mun-
um við ræða við hann.“
Þingheimur sat sem þrumu lost-
inn undir yfirlýsingu Baraks í gær.
Barak mun gegna forsætisráðherra-
embættinu áfram þar til eftir kosn-
ingarnar og hann verður áfram í að-
stöðu til að leitast eftir friðarsamn-
ingum við Palestínumenn. Ef slíkir
samningar tækjust gætu þeir tryggt
honum endurkjör. Stjórnmála-
skýrendur sögðu í gær að líklegast
yrði boðað til kosninganna í maí á
næsta ári. Barak var kosinn forsæt-
isráðherra í maí 1999, til 4 ára.
Blóðug átök ísraelskra hermanna
og Palestínumanna héldu áfram i
gær. ísraelskir hermenn drápu
sautján ára palestínskan ungling
við landamæri Gaza og ísraels. Her-
mennir skutu á hóp manna sem
sprengdi sprengju í vegkantinum
þegar ísraelskur bíll fór hjá.
Leitað á haugunum
Mexíkósk kona viröir fyrir sér sóiina eftir heilan dag á öskuhaugunum í borginni Tijuana þar sem hún gramsaöi i ieit
aö einhverju nýtilegu. Rúmlega fjögur hundruö manns koma daglega til aö gramsa á haugunum og þéna um 250 til
500 krónur á sölu alls kyns muna sem þar fmnast. Nýkjörinn forseti Mexíkós hefur heitiö aö berjast gegn fátækt.
Annan vonsvikinn
Framkvæmda-
stjóri Sameinuðu
þjóðanna, Kofi Ann-
an, lýsti í gær yfir
vonbrigðum sínum
yfir því að loftslags-
ráðstefnan í Haag
skyldi misheppnast.
Annan sagði fátæk
lönd myndu líða mest fyrir mengun
sem þau eiga minnstan þátt í.
Mega vinna á nóttunni
Franskar konur geta nú starfað
að næturlagi með góðri samvisku.
Franska þingið heimilaði í gær kon-
um í iðnaðarstörfum að vinna á
nóttunni. Hingað til hafa konurnar
brotið lögin.
Lokaðir inni í námu
Björgunarmenn héldu í morgun
áfram að reyna að bjarga 40 námu-
mönnum sem hafa verið lokaðir
inni i kolanámu sem sprenging varð
í á föstudaginn. Ellefu létust í
sprengingunni.
Bætur til ættingjanna
Ættingjar þeirra sem létu lífið í
eldsvoðanum í skíðalest við Kaprun
í Austurríki fá bráðum fé fyrir út-
fararkostnaði og öðrum kostnaði
vegna slyssins.
Líknardráp löglegt
Hollenska þingið hefur heimilað
líknardráp undir vissum kringum-
stæðum. Læknar verða að sanna að
sjúklingurinn sé mikið þjáður og
dauðvona.
í kreppu vegna bæna
Poul Nyrup
Rasmussen, forsæt-
isráðherra Dan-
merkur, sætti í gær
harðri gagnrýni
fyrir að hafa lýst
sig andvígan bæna-
stundum múslíma í
vinnunni. Gagn-
rýnendur sjá ekkert athugavert við
að múslímar leggist á bæn í stað
þess að drekka kafFi i vinnuhléum.
Aukin þjóðernisást
Englendingar eru orðnir þreyttir á
að láta Walesbúa og Skota keyra yfir
sig. Þeim sem eru stoltir af að vera
Englendingar hefur fjölgað meira en
um helming undanfarin 2 ár.
Rannsaka fósturvísa
Frönsk yfirvöld vilja heimila
rannsókn á fósturvisum. Þau eru
hins vegar mótfallin einræktun.
Baráttan um Hvíta húsið heldur áfram:
Gore vill endurtalningu en
Bush undirbýr valdatöku
Fjórða vika baráttunnar um
Hvíta húsið er nú hafin. A1 Gore,
forsetaframbjóðandi demókrata,
hefur hafið mikla fjölmiðlaherferö
til aö leggja áherslu á kröfu sína um
endurtalningu atkvæða í Flórída og
George W. Bush, forsetaframbjóð-
andi repúblikana, sem hefur lýst sig
sigurvegara forsetakosninganna, er
í óða önn að undirbúa valdaskiptin
og koma saman stjóm.
Lögmenn frambjóðendanna
beggja sögðust í gær vera önnum
kafnir við að undirbúa sig fyrir
mikilvægan málflutning, í Hæsta-
rétti Bandaríkjanna á fóstudag og
fyrir ríkisdómstóli i Flórída á laug-
ardag. Hugsanlegt er aö úrslit for-
setakosninganna ráðist endanlega
að loknum þeim málfutningi.
Þá verða lögmennimir einnig að
Bush pælir í ráðherraefnum
George W. Bush er farinn aö spá í
ráöherra í stjórn sinni, fari svo aö
hann komist í Hvíta húsiö.
leggja fram skjöl fyrir klukkan 21 í
kvöld að íslenskum tíma í þriðju
málaferlunum frammi fyrir Hæsta-
rétti Flórída. Þar fara demókratar
fram á aö kosið verði að nýju í
Palm Beach sýslu. Þeir segja að
kjörseðlar í sýslunni hafi verið svo
ruglingslegir að Gore hafi misst af
þúsundum atkvæða þess vegna.
Á sama tíma hefur þing Flórída
komið á laggirnar nefnd sem á að
undirbúa tilnefningu kjörmanna
ríkisins ef svo færi aö málaferlun-
um yrði ekki lokið fyrir 12. desem-
ber. Þann dag rennur út fresturinn
sem ríkin hafa til að tilnefna kjör-
mennina sem síðan kjósa forsetann.
Kjörstjóm í Flórida staðfesti á
sunnudag að Bush hefði sigrað með
537 atkvæða mun en Gore viður-
kennir úrslitin ekki.
Mirja Markovíc úr felum
HMirja Markovic,
eiginkona Slobodans
Milosevics, fyrrver-
andi Júgóslaviufor-
seti, sat í gær þing-
fund í fyrsta sinn
eftir að manni henn-
ar var bolað frá
völdum í uppreisn í
síðastliðnum mánuði. Sjálfur var
Milosevic endurkjörinn leiðtogi
flokks síns um helgina.
Vilja ekki sofa
Bill Clinton Bandaríkjaforseti og
eiginkona hans, Hillary, minntust í
gær í veislu daganna í Hvíta hús-
inu. Hillary sagöi þau ekki vilja sofa
næstu vikur til að missa ekki úr eitt
augnablik.